Morgunblaðið - 17.05.2013, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013
„Við munum taka slatta af stuð
Eurovision-lögum auk þess sem
nokkrar rólegar perlur fá að fljóta
með,“ segir Friðrik Ómar sem ásamt
Regínu Ósk, Selmu Björnsdóttur og
Eurobandinu leikur fyrir dansi í
Hlégarði í Mosfellsbæ annað kvöld,
en húsið verður opnað kl. 23.
Þegar blaðamaður náði tali af
Friðriki Ómari í gær var hann
staddur í Malmö og beið spenntur
eftir að heyra flutning Eyþórs Inga
á „Ég á líf“ í seinni undankeppninni.
„Þetta er í þriðja sinn sem ég fylgist
með keppninni á staðnum án þess að
vera að keppa. Það er alltaf rosalega
gaman að vera í salnum og skynja
viðbrögð salarins. Eyþór Ingi hefur
verið að fá rosalega sterk og góð við-
brögð við flutningi sínum hér á æf-
ingum og á ákveðnum stað í laginu
þegar hann tekur flotta strófu hefur
allt hreinlega ætlað um koll að
keyra. Það verður því spennandi að
fylgjast með honum í kvöld [fimmtu-
dag],“ sagði Friðrik Ómar og tók
fram að hann myndi sitja með fjöl-
skyldu Eyþórs Inga og vinum í saln-
um og veifa íslenska fánanum.
Að sögn Friðriks Ómars flýgur
hann heim í dag til þess að geta
sungið á dansiballi með Euroband-
inu á morgun. Aðspurður hvort ein-
hver lög úr keppninni í ár muni
heyrast annað kvöld segir Friðrik
Ómar að Eurobandið vilji ekki gera
upp á milli keppenda. „Hins vegar
sjáum við okkur ekki fært annað en
að flytja sigurlagið,“ segir Friðrik
Ómar og viðurkennir að stuttur tími
gefist til æfinga á sigurlaginu. „En
maður er nánast farinn að kunna
flest þeirra eftir að hafa kynnt sér
lögin og hlustað á þau síðustu vik-
urnar og verið hér í Malmö sl. þrjá
daga.“
Þess má að lokum geta að miðar
verða aðeins seldir við innganginn.
Eurobandið Regína Ósk, Friðrik Ómar og Selma Björnsdóttir.
Stuðlög í bland við perlur
Næsta víst er að stór hluti íslensku þjóðarinnar fylgdist
með seinni undanúrslitunum í Eurovision í gær þegar
Eyþór Ingi flutti íslenska lagið og komst áfram. Á leik-
sýningu Þjóðleikhússins, Englum alheimsins, var gert
stutt hlé og kom ein aðalpersónan inn á sviðið með far-
tölvu þar sem Eyþór Ingi var í beinni útsendingu frá
Malmö og söng eins og engill. Sungu leikararnir með
sem og áhorfendur og vakti uppátækið að vonum mikla
lukku.
AFP
Góður Eyþór Ingi hér á sviðinu í gær í lok lagsins Ég á líf, sem kom okkur áfram í lokakeppnina.
AFP
Gifstu mér Söngkonan finnska, Krista Siegfrids, kyssti aðra konu á sviðinu.
AFP
Glæsileg Hin norska Margaret Berger stóð sig með prýði.Íslenskar Þessar búa í Svíþjóð og mættu í stuðningslið.
Sungið með
Englum
alheimsins
Eurovision 2013
Englar syngja Frá sýningu á Englum alheimsins í gærkvöldi, þar sem leik-
arar og áhorfendur sungu með Eyþóri Inga í beinni útsendingu.
Verslunarrými
Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík
Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is
Verslunarhillur
Verðmerkilistar
Gínur
Útiskilti
Fataslár