Morgunblaðið - 17.05.2013, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 17.05.2013, Qupperneq 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 Tvær sýningar verða opnaðar í dag kl. 18 í Listasafni Íslands, annars vegar sýningin Huglæg Landakort/ Mannshvörf og hins vegar safnsýn- ingin Gersemar. Fyrri sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík sem hefst í dag og eiga 40 listamenn frá 15 smáríkjum og svæðum í Evrópu verk á henni. Á henni er dregin upp mynd af þeirri „miklu fjölbreytni, sem finna má í tjáningu listamanna frá smáríkjum Evrópu, þjóðum með innan við milljón íbúa, óháð land- fræðilegri legu og stærð landa þeirra“, eins og segir í tilkynningu. „Með blað- og bóklist að vopni tak- ast þessir listamenn á við langa hefð einstæðrar útgáfustarfsemi, sem miðlun skapandi samskipta,“ segir þar einnig. Nokkrir Íslendingar eru meðal sýnenda. Hluti sýningarinnar felst í útgáfu á bókverki sem inni- heldur öll þau verk sem gerð voru í tilefni af sýningunni og verða þau sýnd í formi innsetningar svissneska listamannsins Oppy De Bernardo. Sýningarstjórar eru Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Ís- lands, Alessandro Castiglioni, Rita Canarezza og Pier Paolo Coro. Gersemar er þrískipt sýning, skipt niður á þrjá sali safnsins. Á henni verða í sumar sýndar gersem- ar úr safneign Listasafns Íslands, eins og titillinn gefur til kynna. Sýnd verða íslensk málverk og teikningar frá 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, málverk frá ýmsum landshornum og gersemar úr samtímanum. Sýning- arstjórar Gersema eru Halldór B. Runólfsson og Sigríður M. Ólafs- dóttir. Fjöldi 40 listamenn eiga verk á Huglæg landakort/Mannshvörf. Huglæg landakort og gersemar  Tvær opnanir í Listasafni Íslands Literary Death Match (LDM) nefnist alþjóðleg lestrarröð sem hóf göngu sína í Bandaríkjunum og í kvöld verður boðið upp á LDM-kvöld kl. 19 á skemmtistaðnum Dollý í Reykja- vík. Verður það í fyrsta sinn sem LDM fer fram hér í borg en slík kvöld hafa verið haldin í 47 borgum víða um heim. Hugmyndin með LDM er að brjóta upp hefðbundið upp- lestrarform og gera það skemmti- legt, m.a. með því að sækja í um- gjörð sjónvarpsþátta á borð við Idol án þess að fórna listrænu gildi, eins og segir í tölvupósti. Í kvöld fá fjórir rithöfundar sjö mínútur hver til þess ða flytja spennandi texta fyrir gesti og þrjá dómara. Höfundarnir eru Andri Snær Magnason, Auður Jóns- dóttir Kári Túliníus og Kristín Eiríks- dóttir. Einn dómaranna tekur fyrir bókmenntalegt gildi, annar flutning- inn og sá þriðji heildarupplifunina. Dómarar verða þau Bergur Ebbi Benediktsson, Hugleikur Dagsson og Kristín Ómarsdóttir. Dómara er svo að velja tvo lesara og komast þeir áfram í lokaumferðina „þar sem furðan ræður ein ríkjum“, eins og því er lýst. Að lokum stendur einn lesari uppi sem sigurvegari. Kynnir kvöldsins verður Adrian Todd Zuniga, stofnandi LDM. Barist Auður Jónsdóttir etur kappi við þrjá kollega sína í kvöld á Dollý. Fjórir rithöfundar berjast á Dollý Árin segja sitt1979-2013 BISTRO Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is Lauga-ás special Lambalæri bearnaise Gratíneraður fiskur Lauga-ás special Lambalæri bearnaise Gratíneraður fiskur Komdu í bíó! Þú finnur upplýsingar um sýningartíma okkar og miðasölu á www.emiði.is og www.miði.is -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU POWE RSÝN ING KL. 10 :40 - T.K. kvikmyndir.is H.V.A -Fréttablaðið LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar L 12 12 16 STAR TREK 3D Sýnd kl. 4 -5:20 - 8 - 10:40(P) MAMA Sýnd kl. 8 - 10:10 LATIBÆR - BÍÓUPPLIFUN Sýnd kl. 4 OBLIVION Sýnd kl. 5:30 Stórmyndin sem tekin var upp á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.