Morgunblaðið - 17.05.2013, Side 48

Morgunblaðið - 17.05.2013, Side 48
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 137. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Hafður að fífli 2. Beittu syni sína hrottalegu ofbeldi 3. Notfæra sér konur í meðferð 4. Ástfangin af Eyþóri við fyrstu sýn »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  No Homo eftir Guðna Líndal Bene- diktsson var valin besta íslenska stuttmyndin á stutt- og heimildar- myndahátíðinni Reykjavík Shorts & Docs sem lauk í fyrradag. A World Not Ours í leikstjórn Mahdi Fleifel var valin besta heimildarmynd nýliða á hátíðinni. Átta íslenskar stuttmyndir kepptu um verðlaunin fyrir bestu ís- lensku stuttmyndina en sex um verð- launin fyrir bestu heimildarmyndina. Sérstök dómnefndarverðlaun hlaut Valdimar Jóhannesson fyrir stutt- mynd sína Dögun. No Homo besta íslenska stuttmyndin  Bókmenntahátíð í Reykjavík verð- ur haldin 11.-15. september nk. og hafa 16 erlendir rithöfundar stað- fest komu sína á hana og 10 ís- lenskir taka þátt í dagskránni. Heimskunnir og virtir höfundar eru meðal þeirra erlendu og má þar nefna kanadíska rithöfundinn Dou- glas Coupland, Hollendinginn Her- man Koch og Antonio Skármeta frá Síle. Íslensku höfundarnir eru Auður Jónsdóttir, Eyrún Ingadóttir, Gerður Kristný, Guðmundur Andri Thorsson, Hermann Stefánsson, Hugleikur Dagsson, Rúnar Helgi Vignisson, Stefán Máni, Sölvi Björn Sigurðsson og Þorsteinn frá Hamri. Frekari upplýsingar um hátíðina má finna á vef hennar, bok- mennta- hatid.is. Heimskunnir höf- undar koma í haust Á laugardag Sunnan og suðaustan 5-13 m/s, hvassast við vestur- ströndina. Víða léttskýjað á N- og A-landi, annars skýjað. Á sunnudag (hvítasunnudagur) Suðlæg átt 5-13 m/s. Rigning V- til, bjartviðri á NA-verðu landinu. Hiti 5 til 16 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg breytileg átt og bjart með köfl- um, sunnangola og skýjað S- og V-lands síðdegis. Hlýnar heldur. VEÐUR KR-ingar eru einir á toppi Pepsi-deildar karla í knattspyrnu en þriðju umferðinni lauk í gær. KR tók á móti nýliðum Þórs í Frostaskjólinu og upp- skar öruggan sigur, 3:0. KR hefur níu stig í efsta sæti en FH og ÍBV koma næst með sjö stig. Þórs- arar hafa byrjað Íslands- mótið afar illa en þeir eru án stiga og með marka- töluna 1:7. »2 KR-ingar einir í toppsætinu Beckham hættur sem meistari í fjórum löndum Blikarnir áttu svo sannarlega glæsi- legan endasprett þegar þeir tóku á móti Skagamönnum í Pepsi-deildinni í gær. ÍA var 1:0 yfir þegar 83 mínútur voru liðnar af leiknum en þeir græn- klæddu settu þá í fluggírinn og skor- uðu fjögur mörk á lokakafla leiksins. Breiðablik hefur þar með unnið báða heimaleiki sína 4:1 en tapað úti- leiknum með sama mun. »6 Frábær endasprettur hjá Blikunum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Lára Halla Sigurðardóttir larahalla@mbl.is „Það er lítið um að sundfólk á Íslandi geti stundað bæði íþróttina og há- skólanám af fullum krafti,“ segir Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, sundmaður og nemi við Arizona State University í Bandaríkjunum. Hann lauk nýlega grunnnámi og hlaut heiðursverðlaun sem fyr- irmyndarnemandi í lokahófi sund- félags skólans. Allt gengur út á íþróttir Davíð fékk íþróttastyrk til fjög- urra ára og gerði það honum kleift að stunda nám við skólann. Hann hyggst ekki láta staðar numið eftir grunnnámið og hefur meistaranám í arkitektúr við sama skóla í sumar. Aðspurður segir hann að sér hafi gengið vel að stunda sundið samhliða háskólanáminu. „Í Bandaríkjunum gengur allt út á íþróttir og því er reynt að sníða námið að þeim,“ segir Davíð. Hann æfir yfirleitt um 24 klukkustundir á viku þar sem hann syndir, teygir og leggur stund á ýms- ar þol- og þrekæfingar. Davíð segir að íslenskir nemendur komi mun betur undirbúnir inn í há- skólann en þeir bandarísku. „Oftast eru útlendingarnir í liðinu með hæstu einkunnirnar.“ Fyrsta árið bjó hann á dæmigerðri bandarískri heimavist þar sem hann svaf í koju, þvotturinn var þveginn fyrir hann og tilbúnar máltíðir biðu hans á veitingastöðum á háskóla- svæðinu. Síðustu tvö árin bjó hann hins vegar í íbúð og þurfti þá að tak- ast á við lífið upp á eigin spýtur. „Fyrsta árið var eiginlega eins og að vera enn heima hjá mömmu og pabba,“ segir Davíð og segist hafa þroskast heilmikið á þessum árum. Hann segir sundíþróttina meiri hópíþrótt í Bandaríkjunum en hér á landi. „Það er meiri stemning þegar allir eru saman í liði,“ segir Davíð. „Liðsheildin er rosalega sterk þarna.“ Leiðtogahæfileikar í lauginni Verðlaunin sem Davíð hlaut eru kennd við Ron Johnson, fyrrverandi sundþjálfara við skólann. Verðlaunin fara til þess sundmanns sem sýnir leiðtogahæfileika bæði í sundlauginni og í skólastofunni. „Þetta eru flott verðlaun,“ segir Davíð, en hann var einnig valinn fyrirliði liðsins í upphafi skólaársins. Davíð tekur einnig þátt í íþróttalíf- inu hér á landi. Þessa dagana æfir hann af kappi fyrir Smáþjóðaleikana sem eru framundan í maí. Þar mun hann keppa í 100 metra baksundi, 50 og 100 metra skriðsundi og lík- lega einnig í boðsundi. Hann hóf sundferil sinn sjö ára gamall og fann fljótlega að þar lágu styrk- leikar hans. „Það var aldrei neitt annað sem kom til greina,“ segir Davíð. „Mér fannst þetta alltaf mjög skemmtilegt.“ Leiðtogi í sundlaug og skólastofu  Íslendingur var valinn fyrirmyndar- nemandi í Arizona State University Stinga sér til sunds Davíð Hildiberg Aðalsteinsson átti góðar stundir í bandarískum háskóla þar sem hann stundaði sund samhliða náminu. Hér bregður hann á leik með félögum sínum í sundliðinu, en hann var valinn fyrirmyndarnemandi vegna leiðtogahæfileika sinna í sundlauginni og í skólastofunni. Davíð segir fjölskyldu sína og aðra íslenska sundmenn fylgjast vel með árangri hans. „Það er orðið markmið hjá mörgum í sundi að komast á svona styrk,“ segir hann. Hann hvetur aðra íþróttamenn til að kanna möguleikann á dvöl í háskólum erlendis og segir reynsl- una gefandi og dvölina hafa ver- ið afar skemmti- lega. „Ég þurfti skyndilega að standa á eigin fótum,“ segir Davíð. Margir vilja út að synda REYNSLAN AFAR GEFANDI Enski knattspyrnumaðurinn David Beckham tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að leggja skóna á hill- una að þessu keppnistímabili loknu. Hann varð á dögunum franskur meistari með París SG og hafði áður unnið meistaratitlana í Englandi, á Spáni og í Bandaríkjunum á löngum og glæsi- legum ferli. »3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.