Monitor - 16.05.2013, Síða 14

Monitor - 16.05.2013, Síða 14
14 MONITOR FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013 H Myndbandinu er leikstýrt af Einari Braga Rögnvalds- syni og Frey Árnasyni. Það kom rosalega stór og góður hópur að myndbandinu sem fórnaði heilli helgi í það og við kunnum þeim bestu þakkir fyrir það. Óttist þið ekkert pressuna sem fylgir því að gefa út plötu númer tvö á eftir vel heppnaðri frumraun? H Nei, ég get ekki sagt það. Fyrst og fremst af því við ætlum ekki að gefa út alveg eins plötu. Þessi plata verður töluvert persónulegri. Við vorum að tala um að hún yrði dimm á bjartan hátt, er það ekki? A Jú, eða björt á dimman hátt? H Já, hún verður allavega með dekkra yfirbragði. A Hún er tilraunakenndari en ég held að hún muni samt falla í kramið því hún verður án efa betur gerð. Ég held að ég geti fullyrt það að sem heildstæð plata verður þessi betri en sú fyrri. H Ég held að þetta verði meiri „headphone-plata“ en sú fyrri. Sem sagt ekki alveg jafnmikil partíplata, nema náttúrlega ef fólk dansar bara aðeins hægar við þessi lög. Upp úr hverju leggið þið helst í textagerðinni? H Ég hugsa að í grunninn séum við aðallega að segja sögur en við tölum mjög mikið undir rós í textunum okkar. A Já, við reynum að segja sögur ásamt því að skapa eitthvað ákveðið andrúmsloft. Sumir textar segja kannski ekki beint neina sögu en ganga bara út á það að við erum að velta einhverju atriði ítarlega fyrir okk- ur. Mörg laganna fjalla til dæmis um eitthvað ákveðið atriði sem tengist djamminu, ástæðuna fyrir djamminu eða af hverju það er gott að drekka svona rosalega mikið. Annars deilum við mjög lítið á hluti, erum oftast bara að lýsa aðstæðum eða „mála myndir“. Vantar ekki meiri „gangsteralæti“ í ykkur? Þurfið þið ekki að rappa meira um bílana ykkar eða hvað húsin ykkar eru stór og glæsileg? A Við eigum báðir mjög ljóta bíla. Það gæti samt alveg gengið upp að rappa um bílinn minn. Þó svo að hann sé ljótur þá hefur hann stórkostlegan persónuleika og við erum góðir vinir. Við höfum gengið í gegnum súrt og sætt, ég hef hatað hann og ég hef elskað hann. Þetta yrði kannski bara eins og lag um ástarsamband við konu. H Ég gæti kannski rappað um „crib-ið“ mitt af því að ég bý í einbýlishúsi á Hellu þessa dagana. A Já, nákvæmlega. Ætli nokkur íslenskur rappari búi í jafnstóru húsi og þú? H Ég veit það ekki. Ég er ekki viss um það. A Á sama tíma held ég að það sé enginn íslenskur rappari sem býr í minni íbúð en ég (hlær). Hvað gerið þið þegar þið eruð ekki að fást við tónlist? H Ég er búinn að vera að vinna hjá Kjötsmiðjunni en er nýhættur þar til þess að einbeita mér að plötunni okkar sem við ætlum að klára í sumar. Ég ætlaði nú að vera duglegur við að leggja fyrir en það gekk ekki alveg sem skyldi. A Ég er í viðskiptafræðinámi og í hljómsveitinni og svo geri ég náttúrlega bara þetta „beisikk“ dót eins og að hanga með vinum mínum, fara í ræktina og svo framvegis. Bróðir Svartúlfs og svo Úlfur Úlfur. Eruð þið með einhvers konar úlfablæti? H Úlfar eru rosalega sexí. Í textunum okkar erum við einmitt líka svolítið oft að velta fyrir okkur dýrslega eðl- inu sem finnst líka í mannfólki. Það eðli brýst einmitt mjög mikið út á djamminu og þess vegna er djammið mjög góður vettvangur fyrir slíkar pælingar. A Úlfar eru náttúrlega alltaf svo mikil rándýr en manneskjan er alltaf meira rándýr. Að lokum, hvernig verður sumarið? H Ég verð mikið að vinna í garðinum við húsið mitt. Hann er stór og ég þarf að slá hann og snyrta trén og svona. A Hvað hljómsveitina varðar er forgangsatriðið að klára plötuna og svo verðum við að spila eitthvað. Við erum til dæmis bókaðir á Keflavík Music Festival, LungA og Gærunni í sumar. H Já, ég er í raun til í að spila sem mest í sumar. Við skulum segja að sumrinu verði helst varið í stúdíóinu og á þjóðveginum. ARNAR Á 30 SEKÚNDUM Fyrstu sex: 290288. Uppáhaldsmatur: Hamborg- arar í öllum stærðum og gerðum. Lag í uppáhaldi þessa stund- ina: Numbers on the board með Pusha T. Það fyndnasta sem ég hef séð á netinu: Hestagrímur eru í 80% tilfella ástæðan fyrir því að ég hlæ upphátt af netinu. Uppáhaldsíþróttamaður: Ég fylgist ekkert með íþróttum í dag og á þar af leiðandi eng- an uppáhaldsíþróttamann. Æskuátrúnaðargoð: Stan Collymore. HELGI Á 30 SEKÚNDUM Fyrstu sex: 280287. Uppáhaldsmatur: Nautasteik. Lag í uppáhaldi þessa stundina: Figure Eight með Ellie Goulding. Uppáhaldsíþróttamaður: Peter Schmeichel. Æskuátrúnaðargoð: Peter Schmeichel líka. Ég held að þetta verði meiri „headphone-plata“ en sú fyrri. Sem sagt ekki alveg jafnmikil partí- plata, nema náttúrlega ef fólk dansar bara aðeins hægar við þessi lög.

x

Monitor

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.