Monitor

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Monitor - 16.05.2013, Qupperneq 16

Monitor - 16.05.2013, Qupperneq 16
16 MONITOR FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013 Lísa Hafliðadóttir lisa@monitor.is stíllinn Hver er Rakel? Ég er Rakel Unnur Thorlacius og ég elska McDonalds, naggrísa, slaufur og Clueless. Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? Stíllinn minn er ekki eitthvað sem ég get lýst með einu orði. Ég klæði mig bara í það sem mér dettur í hug þann dag. Hefur þú mikinn áhuga á tísku? Ég hef mjög mikinn áhuga á tísku. Er að vinna í fatabúð og ætla að fara að læra í tískuiðnaðinum erlendis. Hvar kaupir þú helst fötin þín? Ég versla aldrei á Íslandi nema í Spúútnik og Nostalgíu. Annars versla ég helst í Topshop eða vintage-búðum erlendis. Hvaða árstími finnst þér skemmtilegastur hvað varðar tísku? Mér finnst sumarið alltaf best. Þá þarf maður ekki að vera í þykkum þungum yfir- höfnum sem fela fötin manns. Þá eru allir svo sætir og glaðir og í fallegum fötum. Hvað er ómissandi að eiga í fataskápnum fyrir vorið? Einhverja flotta húfu eða derhúfu, magabol og gallasmekkbuxur. Hver hafa verið þín verstu tískumistök? Gólfsíða gallapilsið mun ásækja mig að eilífu. Hver er best klædda kona í heimi? Mér finnst Agyness Deyn mega kúl. En hún er ekkert best klædda kona í heimi, það er það engin. Er eitthvað skemmtilegt á döfinni hjá þér? Er að fara út í 3 vikur eftir einn og hálfan mánuð að hitta kærastann og ferðast um Evrópu í rútu. Ef þú yrðir að fá þér húðflúr, hvernig húðflúr myndir þú fá þér og hvar? Er einmitt að fara að splæsa í eitt svoleið- is í sumar, það er leyndó hvað ég ætla að fá mér en það mun vera á hendinni og vera fáránlega flott. Rakel Unnur Thorlacius er 24 ára verslunarstjóri í Spúútnik í Kringlunni. Rakel hefur mikinn áhuga á tísku og stefnir hún á að flytja erlendis til að læra eitthvað tengt tískuiðnaðinum. Hér sýnir Rakel lesendum fjögur vel valin dress úr fataskápnum hennar. Fatastílnum ekki lýst í einu orði ÚT Á LÍFIÐ SKÓR - JEFFREY CAMPELL. SAMFESTINGUR - SPÚÚTNIK. BOLUR - SPÚÚTNIK. HÁLSMEN - TOPSHOP. SPARI SKÓR - JEFFREY CAMPELL. BUXUR - TOPSHOP. BOLUR - NOSTALGÍA. BLÓM - H&M. UPPÁHALDS SKÓR - TOPSHOP. SOKKAR - PRIMARK. PILS - SPÚÚTNIK. BOLUR - TOPSHOP. HÁLSMEN - VINTAGE BÚÐ Í LOS ANGELES. HÚFA - TOPSHOP. HVERSDAGS SKÓR - NASTY GAL. SOKKAR - PRIMARK. GALLASMEKKBUXUR - SPÚÚTNIK. BOLUR - SPÚÚTNIK. HÁLSMEN - VINTAGE BÚÐ Í LOS ANGELES. TEYJA - URBAN OUTFITTERS. M yn di r/ Eg ge rt

x

Monitor

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.