Monitor - 16.05.2013, Side 20

Monitor - 16.05.2013, Side 20
Þó ég sé mikill Sci-Fi-rúnkari þá hef ég aldrei verið mikill Star Trek-aðdáandi, var alltaf meira fyrir Star Wars. Ég fór nú samt að sjá Star Trek árið 2009 sem J.J. Abrams leikstýrði og fannst hún frábær. Núna hefur Abrams snúið aftur með framhald af þeirri mynd og er hún alls ekki síðri. Myndin byrjar á því að Kirk Kapteinn hefur komið sér í vandræði eins og svo oft áður, en hann fer sínar eigin leiðir til að bjarga sér og áhöfn sinni. Hann brýtur allar mögulegar reglur til þess og þarf að takast á við afleið- ingarnar af því. Þegar dularfullur karakter ræðst á höfuðstöðvar Stjörnuflotans er kallað á vini okkar, Kirk og Spock, til að elta manninn uppi á óeirðasvæði, en það verkefni reynist hægara sagt en gert. Það sem J.J Abrams hefur gert við Star Trek-sögurnar er að gera þær „neytendavænar“ ef svo má að orði komast. Það þarf ekkert endilega að fíla Sci-Fi-myndir til að hafa gaman af þeim. Honum tekst vel að halda spennunni gangandi og hefur gert tilfinningaleysi Spock kómískt. Leikararnir standa sig allir með prýði og er Chris Pine flottur í hlutverki hetjunnar Jim Kirk sem allir elska. Zachary Quinto endurtek- ur síðan snilldarframmistöðu sína sem hinn tilfinn- ingalausi Vúlkani Spock. Simon Pegg sér síðan um húmorinn sem Scotty, Zoe Zaldana og Alice Eve um kynþokann en það er án efa Benedict Cumberbatch sem stelur senunni sem skúrkurinn. Cumberbatch er nú ekki mjög þekktur í kvikmyndaheiminum en hefur verið að geta sér gott orð sem Sherlock Holmes í þáttunum Sherlock. Hann er svo skuggalega góður og grjótharður í þessu hlutverki að það er ekki annað hægt en að vera hræddur við hann. Þessi mynd er frábær skemmtun. Hún er spenn- andi, heldur manni við efnið í þessa rúmu 2 tíma sem hún tekur og söguþráðurinn er góður og skýr, þó hann fari ansi hratt af stað og það er ákveðið twist í honum. Húmorinn og tengingin við persónurnar er samt það sem gerir þessa mynd, og fyrri myndina frá 2009, betri en gömlu myndirnar að mínum dómi. Sci-Fi fyrir alla, konur og karla K V I K M Y N D STAR TREK - INTO DARKNESS ÍVAR ORRI The Great Gatsby gerist sumarið 1922 á Long Island og segir frá fyrrver- andi hermanninum og núverandi sölumanni Nick Carraway og kynnum hans af hinum dularfulla og forríka Jay Gatsby, sem heldur miklar veislur á setri sínu en lætur sjálfur lítið fyrir sér fara, enda hafa fæstir þeirra sem sótt hafa veislurnar hitt hann í eigin persónu. Þeir Nick og Gatsby verða fljótlega ágætir vinir en um leið fer í gang atburðarás sem á eftir að verða örlagarík fyrir allar þær aðalpersónur sem við sögu koma. Skáldsagan The Great Gatsby eftir F. Scott Fitzgerald kom út árið 1925 og er talin á meðal bestu og merkustu skáldsagna sem skrifaðar hafa verið á enskri tungu. Leikstjóri myndarinnar, Baz Luhrman, er ekki að stíga sín fyrstu skref enda hefur hann áður gert myndir á borð við Moulin Rouge, Rome + Juliet og Australia. skjámenning “The D is silent, hillbilly.” (Django, 2012) FRUMSÝNING HELGARINNAR The Great Gatsby Leikstjóri: Baz Luhrman. Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio, Carey Mulligan, Tobey Maguire, Isla Fisher, Jason Clarke og Joel Edgerton. Lengd: 142 mínútur. Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára. Kvikmyndahús: Sambíóin Kringlunni, Egilshöll, Keflavík og Akureyri, Háskólabíó‚ Ísafjarðarbíó og Bíóhöllin Akranesi. 20 MONITOR FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013 VILTU VINNA MIÐA?facebook.com/monitorbladid

x

Monitor

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.