Morgunblaðið - 01.07.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.07.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2013 Byggingav örur - byg gingatækn i I I Gylfaflöt 3 | 112 Reykjavík | Sími 533 1600 | aseta@aseta.is Gosdrykkjaframleiðandinn Coca- Cola mun í vikunni hefja sölu á nýjum kóladrykk sem notar stevíu sem sætuefni. Drykkurinn hefur fengið nafnið Coca-Cola Life og verður til að byrja með aðeins fáanlegur í Argent- ínu. Drykkurinn er dökkbrúnn á lit eins og aðrir kóladrykkir fyrirtækisins en merkimiðinn grænn. Heimildir segja uppskriftina að drykknum nota bæði hefðbundinn sykur og stevíu en engin gervisætu- efni. Stevía er náttúrulegt sætuefni unn- ið úr jurtum sem upprunnar eru í Mið- og Suður-Ameríku. Stevía er sætari en sykur en hitaeiningalaus. Huffington Post greinir frá að Coca- Cola hafi nýlega lýst því yfir að til stæði að gera breytingar á uppskrift Sprite-drykkjarins á Bretlandsmark- aði með því að skipta út hluta af sykr- inum í drykknum fyrir stevíu. Með því er bæði hægt að koma til móts við þá sem vilja síður neyta gervisætu og eins mæta þörfum neytenda sem vilja draga úr hitaeiningum í mataræðinu. Nýlega sagði Viðskiptablað Morg- unblaðsins frá opnun fyrirtækisins Via-Health í Hafnarfirði en þar eru framleiddir stevíudropar í neytenda- pakkningum. ai@mbl.is Nýtt kók með stevíu sett í reynslusölu AFP Drykkur Kókflöskur í kæli í Bandaríkjunum. Ef reynslusalan í Argentínu gengur vel gæti hið nýja Coca-Cola Life komið á markað víðar um heim. FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Eftir slæma viku styrktist gull agnarögn á föstudag og endaði gull með afhendingu í ágúst dag- inn 1,91% hærra og endaði í 1.211,60 dölum á únsuna. Í við- skiptum föstudagsins fór gullið lægst í 1.179 dali og hæst í 1.235 dali. Hækkunin á föstudag var langt frá því að leiðrétta skarpa lækkun gullsins á síðustu vikum og mán- uðum en únsan kostaði um 1.600 dali í byrjun apríl og var nálægt 1.300 dala markinu í byrjun vik- unnar. Á öðrum ársfjórðungi hefur gull lækkað um meira en 23% og er það mesta hlutfallslega lækkun gulls á einum fjórðungi síðan verslun með gull í núverandi mynd hófst á Comex-markaðinum í New York árið 1975. Markaðsfrétta- vefurinn MarketWatch segir mestu ársfjórðungslegu lækkun gulls til þessa hafa verið 18% lækkun sem átti sér stað fyrstu þrjá mánuði ársins 1982. Á síðustu tveimur árum hefur gullúnsan lækkað um u.þ.b. 700 dali eða 38%. Bjartsýni dregur niður verðið Eins og áður hefur verið sagt frá í Morgunblaðinu þykir verð á gulli endurspegla traust fólks á mörkuðum og gjaldmiðlum. Þeir sem vænta þess að gengi veikist eða markaðir lækki leita í gullið bæði til að finna fjármunum sínum öruggt skjól en einnig til að njóta góðs af hækkandi gullverði eftir því sem fleiri leita athvarfs í málminum. Gullið hafði verið á hraðri siglingu upp á við um og eftir fjármálahrunið vestanhafs og náði hámarki síðla sumars 2011 eftir að hafa u.þ.b. þrefaldast í verði frá árinu 2007. Frá haust- byrjun 2012 hefur verð á gulli ver- ið á nokkuð skarpri leið niður og þykir það endurspegla vaxandi trú fjárfesta og almennings á mörk- uðum og hagstjórn stjórnmála- manna. Nýjasta lota lækkana á gulli hófst 19. júní þegar Seðlabanki Bandaríkjanna þótti gefa sterk- lega í skyn að ekki væri langt í að bankinn hætti að dæla fjármunum inn í bandaríska hagkerfið. Örv- unaraðgerðir seðlabankans hafa þótt skapa hættu á verðbólgu og gengishruni. Bjartsýni fjárfesta jókst því við fréttirnar og fjár- munir voru færðir úr gulli yfir í aðra og gjöfulli fjárfestingarkosti. Ástandið í Evrópu hefur líka sín áhrif en það að útlit er fyrir að muni takast að sigla evrusvæðinu farsællega út úr ólgusjó síðustu ára þýðir að færri evrópskir fjár- magnseigendur leita að skjóli í gulli. Skiptar skoðanir eru meðal markaðssérfræðinga um hvert gullið stefnir næst. Blaðamenn MarketWatch segja skarpa lækk- unina undanfarið hafa komið jafn- vel djörfustu fjárfestum á óvart og hraði niðursveiflunnar gefi ástæðu til að búast við að málmurinn skoppi upp á við á næstunni. Í sömu grein er vitnað í markaðs- greinendur sem sjá gullið ekki sem spennandi kost á næstunni, nema þá í litlu magni sem ódýra vörn gegn mögulegum skakkaföll- um á mörkuðum. Verð á gulli gæti líka náð jafn- vægi með fækkun gullnáma. Greinendur hjá Global Hunter Securities benda á að þegar verð á gulli fór undir 1.300 dali á únsuna hætti gullframleiðsla að vera hag- kvæm í mörgum námum. Fram- leiðslukostnaðurinn í dæmigerðri bandarískri gullnámu er oft í kringum 1.200 dali á únsuna sem þýðir að ef gullverð fer niður fyrir til dæmis 1.250 dala markið gæti framboð tekið að dragast saman og þar með hægt á lækkun málms- ins. Þá vitnar blaðamaður WSJ í nýja úttekt frá rannsakendum við Duke-háskóla þar sem reynt var að finna „eðlilegt“ verð á gulli. Rannsóknin sýnir að vísitala neysluverðs geti gefið brúkanleg- ustu viðmiðunina en miðað við það þurfi gull að lækka um þriðjung til að vera á eðlilegum stað. Titringur vegna hærri vaxta? Síðan er hópur fjárfesta sem hefur enn óbilandi trú á gullinu. Fréttastofa CNBC hefur eftir ein- um greinandanum að þeir sem líta til langtímaávöxtunar ættu að sjá lækkunina undanfarið sem gott tækifæri til að kaupa gull. Í sömu frétt er bent á að Seðlabanki Bandaríkjanna hafi í vikunni dreg- ið úr fyrri yfirlýsingum um að hægja á örvandi aðgerðum í hag- kerfinu og að „peningaprentunin“ muni halda áfram á meðan hag- tölur eru í slakara lagi. Bloomberg og Washington Post greina frá að starfsmenn banda- ríska seðlabankans þurfi að hafa sig alla við þessa dagana til að slá á áhyggjur markaðarins af hækk- andi vöxtum. Vaxtakrafan á 10 ára ríkisskuldabréfum fór upp í 2,61% í vikunni en var 1,63% í maí. Vext- ir á 30 ára fasteignalánum náðu tveggja ára hámarki og fóru úr 3,93% upp í 4,46% sem gæti hægt á fasteignamarkaðinum. Er gullið í frjálsu falli?  Gullverð hélt áfram að falla í síðustu viku þrátt fyrir styrkingu í vikulok  Lækkunin á öðrum ársfjórðungi nemur 23%  Lokun gullnáma gæti hjálpað gullverðinu að ná botni  Bandaríski seðlabankinn setur aukinn kraft í að róa markaði eftir að vextir hækkuðu AFP Glansandi Sjálfstætt starfandi gullgrafari í Mongólíu sýnir stoltur lítinn gullmola. Málmurinn sem fór á flug eftir fjármálahrunið hefur verið að síga hratt síðustu mánuði, m.a. vegna skánandi útlits á mörkuðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.