Morgunblaðið - 16.07.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.07.2013, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2013 ÍÞRÓTTIR Aldur er afstæður Glódís Perla Viggósdóttir, 18 ára miðvörður Íslands, stóð sig frábærlega gegn sjöföldum Evrópumeisturum Þjóðverja á EM á sunnudaginn. Hún vildi bæta upp fyrir Noregsleikinn. 4 Íþróttir mbl.is Morgunblaðið/Eggert Taka tvö Það er skammt stórra högga á milli hjá Anítu Hinriksdóttur sem keppir á stórmóti um helgina eftir að hafa orðið heimsmeistari í fyrradag. ingham. Líklegt er þó að hún keppi í Moskvu. Judd kennti að hluta til kálfameiðslum um úrslit helg- arinnar en þau koma líklega ekki í veg fyrir að hún keppi á Ítalíu. „Þetta var ekkert alvarlegt, en ég er bara ekki vön að glíma við nein meiðsli. Ég veit að ég á meira inni. Mér líður eins og ég geti hlaupið á 1 mínútu og 58 sek- úndum,“ sagði Judd. Aníta næstbest á U19 og fjórtánda besta í Evrópu Aníta á næstbesta skráða tím- ann á árinu af keppendum á EM U19, og er í 14. sæti af öllum 800 metra hlaupurum Evrópu á keppnistímabilinu, hvaða aldri sem þeir eru á. Aðeins Aníta, Judd og hin úkraínska Olena Sidorska kom- ast á lista yfir 30 bestu 800 metra hlauparana í Evrópu á árinu. Si- dorska hefur hraðast hlaupið á 2:01,00 mínútum en hún er fædd 1994, tveimur árum fyrr en Aníta. Aníta hleypur í undanriðli á fimmtudaginn og í undanúrslitum á föstudag gangi allt að óskum. Úrslitahlaupið er svo á laugardag og því enginn hvíldardagur á mótinu eins og var á HM U17 ára um liðna helgi.  Jessica Rudd fékk silfur á HM í fyrra þegar Aníta varð fjórða  Er með 64/ 100 úr sekúndu betri tíma en Aníta  Vann Demantamótið í Birmingham FRJÁLSAR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR og nýkrýndur heimsmeistari 17 ára og yngri í 800 metra hlaupi, má eiga von á harðri samkeppni á Evrópumóti 19 ára og yngri á Ítal- íu í vikunni, sér í lagi frá von- arstjörnu Breta, hinni 18 ára Jes- sicu Judd. Þær mættust á hlaupabrautinni fyrir ári, á HM 19 ára og yngri í Barcelona, og þá fékk Judd silfur en Aníta varð í 4. sæti. Judd, sem er rétt rúmu ári eldri en Aníta, er með besta skráða tím- ann af keppendum á mótinu á Ítal- íu en hún vann Demantamótið í Birmingham í lok júní á 1:59,85 mín. Það er 64/100 úr sekúndu betri tími en Íslandsmet Anítu frá því í Mannheim í sumar. Meiðsli spiluðu inní Judd vonaðist til að gulltryggja sér þátttökurétt fyrir hönd Breta á HM fullorðinna um liðna helgi, á breska meistaramótinu, en tapaði þá nokkuð óvænt fyrir Marilyn Okoro sem hún hafði unnið í Birm- Aníta þarf að vinna vonarstjörnu BretaFH hefur leik í2. umferð for-keppni Meist- aradeildarinnar í kvöld þegar það mætir lit- háska meist- araliðinu FK Ekranas. FH- ingar eiga ágæta mögu- leika á að kom- ast áfram í 3. umferð og þá eru spennandi hlutir í boði; bæði and- stæðingar og krónur í kassann. Takist FH að leggja Ekranes að velli kemst það í 3. umferð Meist- aradeildarinnar en þar bíða firna- sterk lið á borð við hvítrússnesku Íslandsvinina í BATE Borisov, Skotlandsmeistara Celtic, rúm- enska stórveldið Steaua Búkarest og Legia Varsjá. Þó svo að FH myndi tapa á því stigi væri Evrópukeppninni ekki lokið hjá Íslandsmeisturunum því þeir myndu þá færast í umspilið um sæti í riðlakeppni Evr- ópudeildarinnar. Þar bíða stórlið á borð við Tottenham, Real Betis, Fiorentina og Feyenoord. Þessi draumur myndi skila FH 61 milljón króna – þó að vissulega fari vænn hluti hennar í ferðlög og uppihald meðan á keppni stendur – en FH fær 22,5 milljónir fyrir leikina gegn Ekranas og það sama komist liðið áfram. tomas@mbl.is Spennandi hlutir í boði fyrir FH Heimir Guðjónsson Varamaðurinn Toni Duggan hélt Englandi á lífi á EM í fót- bolta í gær þegar hún skoraði jöfn- unarmark, 1:1, gegn Rússlandi í uppbótartíma en tap hefði gert úr um vonir Eng- lands. Enska lið- ið var töluvert betri aðilinn og skapaði sér nóg af færum en tókst ekki að nýta þau. Frakkar unnu Spánverja, 1:1, í toppslag C-riðils en miðvörðurinn Wendie Renard skoraði eina mark- ið með skalla eftir hornspyrnu á fimmtu mínútu leiksins. Frakkland er í efsta sæti riðilsins með sex stig, Spánn í öðru með þrjú stig og Rúss- ar og Englendingar eru svo með eitt stig hvort lið. Úrslitin voru fín fyrir Ísland því fari allt eftir bókinni í lokaumferð C-riðils situr Rússland og England eftir sem þýðir að liðin tvö sem komast áfram með bestan árangur í þriðja sæti koma meðal annars úr riðli Íslands. tomas@mbl.is Toni Duggan bjargaði Eng- landi á EM Toni Duggan „Ég vissi að þessi leikur væri á leið- inni, en ekki að hann væri núna. Það hefði verið gaman að fá tveimur stig- um meira í honum en þó var jákvætt að fá ekki á sig mark,“ sagði Fjalar Þorgeirsson, markvörður Vals, eftir jafnteflið við Víking Ó. í gærkvöld en það var hans 200. leikur í efstu deild á Íslandi. Leikina hefur Fjalar spil- að með Þrótti R., Fram, Fylki, KR og Val. „Ég er búinn að vera í þessu í ansi mörg ár, spilaði fyrst í efstu deild 1998 og hef spilað margar leiktíðir í 1. deild líka. Það hefði verið gaman að þeir leikir væru allir í efstu deild líka. Leikirnir hefðu líka getað verið færri en maður hefur haldist heill í gegnum ferilinn,“ sagði Fjalar, sem er nokkuð ánægður með ferilinn. „Það að hafa fótbolta sem part af lífinu er frábært, og það eru forrétt- indi að fá að spila með góðu liði í efstu deild. Einhverjir á sama kali- beri og ég hefðu kannski farið niður og hætt í fótbolta, eða þá tekið skref- ið og farið út. Það hefur sýnt sig að það er erfiðara fyrir markverði að komast út, það þarf eitthvað að ger- ast þegar maður er réttur maður á réttum stað. Ég var tvisvar nálægt því að fara eitthvað út til Skandinav- íu, fyrir tíma umboðsmannanna sem nú sjá um þetta, en það datt í bæði skiptin upp fyrir. Þetta virðist opn- ara í dag,“ sagði Fjalar sem á að baki 5 A-landsleiki. En stendur eitt- hvað upp úr á löngum ferli þessa 36 ára markvarðar? „Ég er mjög ánægður með að hafa spilað 200 leiki í efstu deild. Það sem stendur upp úr er bara það að fá að gera það sem manni finnst skemmti- legast af öllu.“ sindris@mbl.is Forréttindi að hafa náð þessu  Fjalar Þorgeirsson spilaði sinn 200. leik í efstu deild á Hlíðarenda í gær  Var í tvígang nærri því að halda utan í atvinnumennsku til Skandinavíu Morgunblaðið/Styrmir Kári Hélt hreinu Fjalar Þorgeirsson lét Víkinga ekki skora hjá sér í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.