Morgunblaðið - 16.07.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.07.2013, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2013 VIÐHORF Víðir Sigurðsson í Växjö vs@mbl.is Svíar eiga hrós skilið fyrir fram- kvæmd sína á úrslitakeppni Evr- ópumóts kvennalandsliða í fótbolta sem nú stendur yfir í landinu. Við sem fylgjum íslenska liðinu vorum fyrst í Kalmar og núna í Växjö und- anfarna daga, og á báðum stöðum hefur keppnin greinilega vakið mikla athygli almennings. Merki keppninnar er út um allt og fólk í bolum merktum henni er alls staðar. Á götunum, í búðunum, það er eins og flestir tengist keppn- inni á einhvern hátt. Svæði fyrir áhugafólk, svokölluð „Fan Zone“, hafa verið sett upp í miðborgum keppnisstaðanna og þau eru vinsæl en þar er boðið uppá ýmsa afþreyingu sem tengist fót- boltanum, veitingar, andlitsmálun, skemmtiatriði, og leiki keppninnar á breiðtjöldum. Þaðan er svo boðið uppá fríar rútuferðir á völlinn á leikdögum. Aðsóknarmetið á EM hefur þeg- ar verið slegið. Í fyrstu 12 liða keppninni í Finnlandi fyrir fjórum árum seldust 129 þúsund miðar en snemma í gær var búið að selja 135 þúsund miða og heilmikið eftir enn. Mun fleiri mæta á vellina, tæplega 4.000 og tæplega 5.000 manns hafa séð leiki Íslands, svo það eru ekki bara gestgjafarnir sem draga að sér athyglina. Mikið er sýnt frá keppninni í sænska sjónvarpinu og dagblöð og netmiðlar fjalla ítarlega um hana. Smålandsposten, dagblað sem hef- ur aðsetur í Växjö, lagði næstum því heila opnu undir leik Íslands og Þýskalands í gær. Eina vandamálið er að við ís- lensku fjölmiðlamennirnir vinnum alltaf lengur fram á kvöldin en aðr- ir kollegar okkar, sem þurfa að skila mikið fyrr vegna tíma- mismunar. Erum alltaf á síðustu stundu áður en fréttamannasvæð- unum er lokað. En það er svo sem gömul saga og ný! Vel að verki staðið hjá Svíunum EM 2013 Víðir Sigurðsson í Växjö vs@mbl.is Hún er aðeins 18 ára gömul en stóð vaktina í miðri vörn Íslands gegn fimmföldum Evrópumeist- urum Þýskalands með miklum sóma í fyrrakvöld. Glódís Perla Viggós- dóttir kom fyrst inní íslenska A- landsliðið síðasta haust en hefur tek- ið þátt í öllum leikjum þess á árinu og tók stöðu Sifjar Atladóttur í Þýskalandsleiknum í Växjö. Eftir að hafa komið inná fyrir hana í hálftíma í viðureigninni við Noreg í fyrstu umferðinni. Glódís sagði við Morgunblaðið að hún hefði vitað með sólarhrings fyr- irvara að hún myndi spila gegn Þjóð- verjum. „Já, það var búið að tilkynna okkur liðið kvöldið áður þó það væri ekki gefið út fyrir skömmu fyrir leik. Ég var mjög sátt við það, ég vildi bæta upp fyrir frammistöðuna gegn Norðmönnum því ég var stressuð í þeim leik og mér gekk ekki eins vel og ég vildi. Það var því gott að fá þennan leik og tækifæri til að bæta fyrir það gegn besta liðinu.“ Erfitt að keppa við hana Hún vissi ekki hvernig framhaldið yrði og hvort hún eða Sif myndi hefja leikinn gegn Hollandi á morg- un. „Nei, ég hef ekki hugmynd um það. Ef hún er klár í að spila, er þetta samkeppni milli okkar, ef hún er ekki klár, þá fæ ég væntanlega tækifæri aftur. Þetta er alltaf svona í fótboltanum, það er einhver sem nagar í bakið á manni, eða maður sjálfur að naga í bakið á einhverjum öðrum. Þannig á þetta að vera. Ég er tilbúin að byrja ef ég verð valin,“ sagði Glódís en vildi annars ekki gera of mikið úr því að hún væri í beinni samkeppni við Sif. „Hún er rosalega góður varnar- maður og það er erfitt að keppa við hana um stöðu. Ég hef alls ekki fundið fyrir því að hún líti á mig sem beinan keppinaut því Sif er búin að kenna mér heilmikið á þeim tíma sem ég hef verið með landsliðinu.“ Stressið hvarf í upphitun Þrátt fyrir ungan aldur og tak- markaða reynslu sagðist Glódís ekki hafa fundið fyrir miklu álagi við það að koma inní liðið fyrir leikinn gegn Þjóðverjum. „Nei, mér fannst það ekki erfitt. Ég náði stressinu úr mér í upphit- uninni, komst strax inní leikinn og fannst ég ná mér vel á strik um leið. Það var geysilega mikið að gera, þær lágu á okkur allan tímann þann- ig að þetta var erfitt, mikil áskorun, og það var greinilegt að maður mátti ekki gera nein mistök, þá yrði refsað fyrir það. En þegar allt er komið í gang er þetta bara fótboltaleikur, maður þarf að hugsa um þetta eins og hvern annan leik, og það tókst ágætlega. Það er aldrei gaman að tapa en þetta var mjög sanngjarn sigur. Þær voru miklu betri en við og áttu þetta bara skilið. En þetta er mín stærsta reynsla til þessa, að spila á móti Þýskalandi og það í 90 mínútur á stórmóti. Þetta gerir mik- ið fyrir sjálfstraustið,“ sagði Glódís. Truflar mig ekkert Hún sagði jafnframt að sér væri alveg sama þó einhverjir hefðu áhyggjur af því að tefla henni fram í lykilstöðu í liðinu svona ungri. „Já, ég hef heyrt það en það truflar mig ekkert. Mér finnst að aldurinn eigi ekki að skipta neinu máli, allir eiga að geta sýnt sig og sannað. Glódís er uppalin hjá HK í Kópa- voginum og fór ung að spila með meistaraflokki HK/Víkingi. Þar lék hún sem sóknarmaður tímabilið 2011 og var með markahæstu leik- mönnum 1. deildar með 14 mörk í 11 leikjum. Hún gekk síðan til liðs við Stjörn- una í fyrra og er í lykilhlutverki í Garðabæjarliðinu sem virðist stefna hraðbyri á meistaratitilinn eftir að hafa náð fullu húsi stiga eftir fyrri umferðina. Snilld að spila með Stjörnunni „Ja, ég veit það nú ekki. Mótið er nú bara hálfnað,“ svaraði Glódís þeirri fullyrðingu að Stjarnan ætti meistaratitilinn vísan. „Jú, vissulega erum við í góðri stöðu. Það er bara snilld að spila með Stjörnunni, þar standa allar rosalega vel saman. Þetta er skemmtilegur hópur.“ Hún stefnir hiklaust á að komast í atvinnumennsku í fótboltanum en hefur ekki sett sér neitt takmark í þeim efnum. „Já, það er markmiðið, en ég veit ekki hvenær það verður. Þetta ger- ist bara þegar það gerist. Ég veit ekki til þess að það sé neitt í gangi eins og er. Maður má heldur ekkert hugsa um það, best að vera bara í núinu, og hugsa ekki lengra en um næsta leik.“ Sniðugra að fara fyrst til Bandaríkjanna En hugurinn er þó farinn að leita vestur um haf. „Já, það væri sniðugt að fara í háskóla í Bandaríkjunum. Mig langar svolítið til þess ef ég finn góðan skóla sem mér líst á og vill fá mig. Ég hef velt því fyrir mér, og því að fara beint í atvinnumennsku í Evrópu. Það er svolítið sniðugra að fara fyrst til Bandaríkjanna því ef maður skrifar undir atvinnusamning er ekki hægt að fara þangað eftir það. En það er hinsvegar alltaf hægt að fara í atvinnumennsku eftir að hafa verið í Bandaríkjunum.“ Glódís þarf að fara að huga að þessum málum því hún er á mikilli hraðferð í skólanum. Var ári á undan jafnöldrum sínum upp grunnskólann og er nú við það að ljúka mennta- skólanum á þremur og hálfu ári. „Já, ég útskrifast um næstu jól svo vissu- lega þarf ég að fara að ákveða mig hvað úr hverju.“ Prakkararnir Fanndís og Hallbera Hún kveðst njóta þess að vera í A- landsliðshópnum. „Þetta er frábær hópur, allar svo jákvæðar og glaðar, og svo eru miklir prakkarar í þess- um hópi. Hverjar aðallega? „Það eru Fanndís og Hallbera sem eru alltaf að finna upp á einhverju!“ En Glódís og samherjar einbeita sér nú fullum fetum að stóra leikn- um gegn Hollandi annað kvöld en þar er sæti í átta liða úrslitum Evr- ópumótsins í húfi. Hún er bjartsýn. „Já, ég sé bara að við eigum góða möguleika. Noregur vann Holland, við hefðum getað unnið Noreg, þannig að við eigum að geta unnið þær hollensku. Og það verðum við að gera til að ná okkar markmiðum,“ sagði Glódís Perla, sem sjálf hefur upplifað það að komast í fjögurra liða úrslit Evrópukeppninnar með U17 ára landsliði Íslands. Aldur skiptir ekki máli  Glódís Perla Viggósdóttir ánægð með að hafa fengið tækifærið gegn Þjóð- verjum  Sif hefur kennt henni heilmikið  Ætlar sér í atvinnumennsku Morgunblaðið/Víðir Sigurðsson Växjö Glódís Perla Viggósdóttir og samherjar hennar í íslenska landsliðinu fengu fjölda vina og vandamanna í heimsókn á æfingasvæðið í Växjö í gær en æfing liðsins var opin og margir nýttu sér það. Glódís Perla Viggósdóttir » Hún er 18 ára og lék með HK og síðan HK/Víkingi í meist- araflokki en gekk til liðs við Stjörnuna eftir stutta dvöl í Danmörku haustið 2011. » Glódís lék sinn 11. A- landsleik gegn Þýskalandi í fyrrakvöld. Hún lék 24 leiki með U17 ára landsliðinu og á leikjametið þar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.