Morgunblaðið - 16.07.2013, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.07.2013, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2013 SpjótkastarinnÁsdís Hjálmsdóttir verður á meðal keppenda á al- þjóðlegu móti í Luzern í Sviss á morgun. Ásdís varð í 4. sæti á sama móti í fyrra en þá vann Christina Obergföll, sem vann svo til silfurverðlauna á Ólymp- íuleikunum í London. Fyrstu verð- laun í hverri grein eru demantur að andvirði 1.700 evra, jafnvirði 270 þúsund króna. Fyrir 2. sæti fást 600 evrur, 400 fyrir 3. sæti, 300 fyrir 4. sæti og 200 fyrir 5. sæti.    Evrópumeist-arar Bayern München hafa gengið frá sam- komulagi við Barcelona um kaup á spænska miðjumanninum Thiago fyrir and- virði 3,5 milljarða króna. Thiago er 22 ára miðjumaður og var fyrirliði spænska U21- landsliðsins sem varð Evrópumeist- ari í sumar. Hann var ítrekað orð- aður við Manchester United í sumar en Pep Guardiola, sem tók við Bay- ern í sumar en stýrði síðast Barce- lona, var staðráðinn í að fá kappann til sín.    Steven Gerrard skrifaði í gærundir nýjan samning til tveggja ára við Liverpool en fjórtán ár eru liðin síðan þessi 33 ára miðjumaður lék sinn fyrsta leik fyrir liðið. Á þeim tíma hefur hann skorað 159 mörk í 630 leikjum og meðal annars orðið Evrópumeistari, unnið UEFA- bikarinn einu sinni og enska bik- arinn í tvígang. Liverpool hélt í gær af stað í æfingaferðalag til Ástralíu og Asíu fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni.    Arnór Smárason, landsliðsmaðurí fótbolta, kom inn á á 73. mín- útu í gærkvöldi í sínum fyrsta leik fyrir sænska liðið Helsingborg er það lagði Öster að velli, 3:0. Arnór kom inn á rétt áður en þriðja markið var skorað en Helsingborg komst upp í annað sætið með sigrinum. Arnór gekk í raðir sænska liðsins á dögunum frá danska liðinu Esbjerg en Skagamaðurinn fékk ekki leik- heimild fyrr en félagaskiptaglugginn var opnaður í gær.    Stuðnings-menn Chi- cago Bulls í NBA-deildinni í körfubolta geta tekið gleði sína á ný því besti leik- maður liðsins, Derrick Rose, staðfesti í gær að hann væri búinn að ná sér að fullu eftir krossbandsslit. Rose spilaði ekki mínútu á síðasta tímabili, en hann sleit krossband í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í fyrra. Sama hversu mikil pressan var þá neitaði Rose að stíga fæti á keppnisvöllinn fyrr en hann væri orðinn alveg heill. „Ég ætti að geta spilað fyrsta leikinn á undirbúningstímabilinu. Ég er mjög spenntur fyrir því að spila. Ég er hundrað prósent heill,“ sagði Rose á blaðamannafundi á Spáni.    Þýska liðið FC Augsburg hefurgefist upp á að reyna að kaupa íslenska landsliðsframherjann Al- freð Finnbogason frá Heerenveen í Hollandi því verðmiðinn á honum er of hár. Hollenska liðið vill sjö millj- ónir evra fyrir framherjann sem skoraði 24 mörk í úrvalsdeildinni þar í landi á síðustu leiktíð en Augsburg hefur ekki bolmagn til að fjármagna svoleiðis kaup. Fólk sport@mbl.is geta að sama skapi verið ánægðir með að vinna upp forskotið og jafna leikinn úr því sem komið var. Liðið er þó enn án sigurs að lokinni fyrri umferðinni og það er vandræðaleg staða fyrir hvaða lið sem er. Eins og bent hefur verið á hafa langflestir leikir Fylkismanna í sumar verið jafnir en engin stig eru víst gefin fyrir að tapa leikjum naumlega. Þeir þurfa að spýta verulega í lófana ef ekki á illa að fara og þá væri ágæt- isbyrjun að forðast rauða spjaldið. Í þremur leikjum hafa brottvísanir hafa mikil áhrif á leiki liðsins. Ljósu punkt- arnir hjá Fylki voru þeir að Bjarni Þórður Halldórsson, Árni Freyr Guðnason og Andrés Már Jóhannesson fundu sig vel en liðið þarf sárlega á því að halda. meðan enn var jafnt í liðum og þeir héldu áfram að sækja þó að þeir væru manni færri. Skagamenn voru hins vegar hættu- legir þegar þeir komu boltanum inn í vítateig Fylkis í síðari hálfleik. Af þeim var til að mynda dæmt mark sem virtist vera löglegt í stöðunni 0:0. Garðar Gunnlaugsson skoraði eftir atgang í teignum og Skagamenn voru dæmdir brotlegir. Garðar og Ármann voru að- gangsharðir og Þorvaldur er líklega bú- inn að setja þar saman öflugt fram- herjapar. Þeir þurfa þó að fá þjónustu og hún var kannski minni en ella í þess- um leik þar sem fyrirliðinn Jóhannes Karl Guðjónsson var í leikbanni. Ef Skagamenn verða duglegir að dæla fyr- irgjöfum inn á vítateig andstæðinganna þá verða miðverðir annarra liða ekki öf- undsverðir af því að glíma við þessa tvo. Engin stig fyrir naum töp Það er þó ekki góður vitnisburður fyrir Skagamenn að hafa misst niður 1:0 forskot í leik þar sem þeir voru manni fleiri í 50 mínútur. Fylkismenn Í ÁRBÆNUM Kristján Jónsson kris@mbl.is Staða Fylkis og ÍA vænkaðist lítið í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í gær- kvöldi. Liðin gerðu þá jafntefli 1:1 og eru liðin á botninum með fjögur stig hvort lið þegar deildin er hálfnuð. Fylk- ismönnum tókst ekki að vinna leik í fyrri umferðinni en hafa gert fjögur jafntefli. Skagamenn hafa unnið einn leik og gert eitt jafntefli. Þrátt fyrir allt eru þessi lið þó aðeins tveimur stigum á eftir Víkingi og þremur á eftir Keflavík. Miðað við fyrri umferðina þá munu þessi fjögur liða berjast um að ná 9. og 10. sæti. Mikið var undir í gærkvöldi eins og staðan í deildinni sýnir og liðin voru frekar varkár til að byrja með. Alla vega litu engin dauðafæri dagsins ljós í fyrri hálfleik. Fylkismenn urðu fyrir áfalli á 40. mínútu þegar Tómas Þor- steinsson var rekinn út af en hann fékk þá sitt annað gula spjald. Síðara gula spjaldið var nokkuð harður dómur en Tómas hefði einnig átt að vera var- kárari eftir að hafa fengið áminningu. Hann renndi sér í manninn og bauð hættunni heim. Tómas leit út fyrir að vera mjög pirraður og skildi félaga sína eftir í erfiðri stöðu á vellinum í mik- ilvægum leik. Leikurinn opnaðist Í síðari hálfleik var leikurinn mun skemmtilegri og opnaðist þá talsvert. Spilamennska Árbæinga var betri á Skagamenn misstu niður vænlega stöðu  Hagur Fylkis og ÍA vænkaðist lítið  Skagamenn manni fleiri í 50 mínútur Fylkisvöllur, Pepsi-deild karla, 11. um- ferð, mánudag 15. júlí 2013. Skilyrði: Nánast logn, smá rigning- arúði og hlýtt. Völlurinn fínn. Skot: Fylkir 14 (10) – ÍA 8 (5). Horn: Fylkir 5 – ÍA 7. Lið Fylkis: (4-3-3) Mark: Bjarni Þórð- ur Halldórsson. Vörn: Andri Þór Jóns- son, Sverrir Garðarsson, Kristján Hauksson, Tómas Þorsteinsson. Miðja: Finnur Ólafsson, Oddur Ingi Guðmundsson (Elís Rafn Björnsson 80.), Árni Freyr Guðnason (Hákon Ingi Jónsson 89.). Sókn: Andrés Már Jó- hannesson (Egill Trausti Ómarsson 89.), Viðar Örn Kjartansson, Ásgeir Örn Arnþórsson. Lið ÍA: (4-4-2) Mark: Páll Gísli Jóns- son. Vörn: Einar Logi Einarsson, Andri Geir Alexandersson, Kári Ársælsson, Joakim Wrele. Miðja: Eggert Kári Karlsson, Arnar Már Guðjónsson, Mak- sims Rafalskis, Jón Vilhelm Ákason. Sókn: Ármann Smári Björnsson (Hafþór Ægir Vilhjálmsson 80.), Garð- ar Bergmann Gunnlaugsson. Dómari: Erlendur Eiríksson – 6. Áhorfendur: 1.206. Fylkir – ÍA 1:1 Morgunblaðið/Styrmir Kári Umkringdur Andri Fannar Stefánsson og Bjarni Ólafur Eiríksson sækja að Birni Pálssyni sem er með boltann og átti góðan leik fyrir Víkinga í gær. 0:1 Ármann Smári Björnsson71. Wrele komst fram hjá Andra og sendi mjög góða sendingu fyrir markið. Ármann þurfti bara að afgreiða boltann í netið úr mark- teignum. 1:1 Finnur Ólafsson 86. Náðiboltanum af varnarmönnum ÍA við vítateiginn, lék til vinstri og skaut með vinstri fæti neðst í hægra hornið. I Gul spjöld:Kári (ÍA) 7. (brot), Tómas (Fylki) 15. (brot), Viðar (Fylki) 50. (leikaraskapur), Arnar (ÍA) 55. (brot), Rafalskis (ÍA) 58. (brot), Oddur (Fylki) 61. (brot), Andrés (Fylki) 73. (mótmæli), I Rautt spjald: Tómas (Fylki) 40. (brot) Seinna gula spjaldið. M Bjarni Þórður Halldórsson (Fylki) Árni Freyr Guðnason (Fylki) Andrés Már Jóhannesson (Fylki) Páll Gísli Jónsson (ÍA) Garðar Gunnlaugsson (ÍA) Ármann Smári Björnsson (ÍA)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.