Morgunblaðið - 22.08.2013, Qupperneq 2
A
ðdragandi hverrar Menn-
ingarnætur og skipulagn-
ing hefst nefnilega jafn-
harðan og hátíðinni
lýkur, að sögn þeirra
Karenar Maríu og Guðmundar en
þau eru verkefnastjórar hjá Höf-
uðborgarstofu. „Það má segja að
undirbúningurinn fyrir hátíðina í ár
hafi hafist í nóvember á síðasta ári,
sérstaklega varðandi það sem lýtur
að flugeldasýningunni,“ segir Guð-
mundur. „Hún verður með sér-
staklega glæsilegu sniði í ár og
þegar flugeldasýning er plönuð þá
þarf að skipuleggja ótalmargt og fá
leyfi hér og hvar. Þannig að sá
þáttur undirbúningsins hófst strax
í nóvember en fyrsti fundur stjórn-
ar Menningarnætur var febrúar.
Þaðan í frá fer undirbúningurinn
stigvaxandi og er búinn að vera á
fullu síðan í maí.“
Öryggismál í öndvegi
Spurð um fyrstu verkefnin sem
þarf að fást við í skipulagsferlinu
segir Karen María þau vera fyrst
og fremst tvö. „Annars vegar er
það dagskráin, að hvetja fólk til
þátttöku því Menningarnótt er
þátttökuhátíð sem er búin til af
borgarbúum, sem sömuleiðis njóta
hennar, útskýrir Karen María.
„Það þarf til að byrja með að
hvetja fólk til þátttöku og tengja
saman ólíka og óvænta einstaklinga
þannig að óvæntir og skemmtilegir
hlutir geti orðið að veruleika á
Menningarnótt sjálfri. Það má
segja að það sé fyrsti hluturinn
sem við hugum að. Númer tvö er
hlutur sem er kannski ekkert sér-
staklega sýnilegur en er undirliggj-
andi í því að skapa ánægjulegan
dag, og það eru öryggismálin.
Hlutir eins og hvar má leggja bíln-
um, hvar kemst fólk á klósett, hvar
getur fólk fengið sér að borða og
svo framvegis. Það eru þessir hlut-
ir sem maður veit minnst af –
nema eitthvað sé í ólagi. Þetta á að
virka þannig að þegar þú mætir þá
fljótir þú áhyggjulaust með dag-
skránni og fólkinu, hvert sem það
kann að leiða þig. Snurðulaust.“
Guðmundur bætir því við að til
að allt gangi vel fyrir sig þurfi
samráð allra þeirra starfseininga
sem hafa með öryggi borgarbúa að
gera frá degi til dags. „Þess vegna
fundum við með slökkviliðinu,
hjálparsveitum, 112, lögreglustjóra-
embætti höfuðborgarsvæðisins, rík-
islögreglustjóra, landhelgisgæsl-
unni, Landspítalanum og fleirum,“
bætir Karen María við.
Gengið í bæinn
Þema Menningarnætur í ár er
Gakktu í bæinn. Karen María
bendir á að merkingin á bakvið
þemað sé í raun tvíþætt. „Upp-
haflega byrjaði þetta slagorð sem
þema Menningarnætur fyrir nokkr-
um árum síðan, en gafst síðan svo
vel að við ákváðum að gera línuna
að yfirskrift hátíðarinnar um
óákveðinn tíma. Merkingin snýr
annars vegar að því að fólk gangi
bókstaflega í bæinn og skilji einka-
bílinn eftir heima og noti vistvæna
möguleika til að koma í bæinn.
Þennan dag er mælt með því að
fólk gangi, hjóli eða nýti sér stræt-
isvagnaferðirnar sem eru ókeypis á
Menningarnótt. Auk þess er nánast
gulltryggt að einkabíllinn muni
sitja fastur þegar þar að kemur og
því ekkert vit í að þvælast með
hann í bæinn. Strætó hefur for-
gang, hjólandi umferð hefur for-
gang og síðast en ekki síst hafa
gangandi vegfarendur forgang.
Einkabíllinn er því afgangsstærð á
Menningarnótt,“ segir Karen María
og hlær við. „Svo er það hin merk-
ingin í yfirskriftinni sem lýtur að
gestrisni. Íbúar miðborgarinnar
bjóða á þessum degi nærsveit-
ungum sínum að koma og njóta alls
þess sem borgin hefur upp á að
bjóða á Menningarnótt, hvort held-
ur það eru viðburðir, veitingar eða
einfaldlega samvera við aðra borg-
arbúa. Maður er jú manns gaman
og það á sérstaklega við um Menn-
ingarnótt.“
Enn er þá ótalinn sá vinkill á yf-
irskriftinni sem snýr að vöfflu-
kaffinu umtalaða, þegar tiltekinn
hópur fólks sem býr á Skólavörðu-
holtinu og Þingholtunum býður
gestum og gangandi í vöfflur, hver
heim til sín. „Þessi gestrisni, þetta
samtal sem borgarbúar eiga hver
við annan á þessum degi; að kynn-
ast og njóta saman menningar og
hafa það gott og gaman. Hin tví-
þætta merking á því svo vel við að
við ákváðum að gera hana bara
varanlega.“
Hið vinsæla vöfflukaffi
Guðmundur skýtur því inn í að
sýnileg merki séu þess að slagorðið
sé að virka, þegar litið er til þess
hve mjög nýting á strætó hefur
aukist hin seinni ár. „2012 var al-
gert metár, við höfum aldrei verið
með aðra eins nýtingu á strætó og
er það vel. Við viljum halda þessu
áfram.“ Að sama skapi fjölgar þeim
ár frá ári sem sækja um að fá að
vera vöfflukaffigestgjafar. „Það er
alltaf stór hópur sem sækir um þar
og um leið fer gestafjöldinn vax-
andi ár frá ári,“ bætir Karen við.
„Fólki finnst hvorki tiltökumál að
bjóða ókunnugum heim, né heldur
finnst fólki það tiltökumál að sækja
ókunnuga heim og þiggja nýbakaða
vöfflu af húsráðanda.“ Guðmundur
nefnir að iðulega sé það sama fólk-
ið sem sæki um að fá að halda
vöfflukaffi. „Þetta verður greinilega
að persónulegri hefð hjá fólki á
Menningarnótt og er orðinn ómiss-
andi þáttur af deginum.“
Eins og þau Guðmundur og Kar-
en benda á hafa margir jafnvel far-
ið þá leið að flétta öðrum við-
burðum inn í vöfflukaffið og nefna
þau Þóru Andrésdóttur í því sam-
bandi. „Hún er jafnan með vöfflu-
kaffi og tónleika í garðinum um
leið, til dæmis með Retro Stefson.
Vöfflukaffið vindur því upp á sig og
þau Guðmundur og Karen María
útiloka ekki að útvíkka viðburðinn
til fleiri hverfa borgarinnar á
næstu árum.
Hátíð komin í kjörstærð
„Menningarnótt hefur alltaf verið
að stækka, ár frá ári,“ segir Karen
aðspurð um umfang hátíðarinnar í
ár. „Ég man ekki nákvæmar tölur
fyrir fyrstu hátíðina en önnur há-
tíðin hafði á að skipa á bilinu 60 til
80 viðburðum. Sú hátíð var haldin
1997 og þá komu um 10.000 manns
í bæinn. Síðan þá hefur Menning-
arnótt vaxið ört og núna erum við
að telja um 5-600 viðburði á hverri
hátíð, og lögregla telur jafnan á
bilinu 80-100.000 manns vera í mið-
borginni meðan á Menningarnótt
stendur,“ segir Karen María. „Við
erum hinsvegar komin á þann stað
með Menningarnótt að keppikeflið
er ekki lengur að stækka hátíðina
heldur að gera hana vel, “ bætir
Guðmundur Birgir við. „Þannig að
450 viðburðir og 75.000 manns er
ekki til að valda okkur vonbrigðum,
öðru nær, “ segja þau og hlæja.
„Frekar viljum við dýpka hátíðina
og draga fram ákveðna borgarhluta
og einkenni þeirra með því að
skipuleggja þar ákveðna viðburði.
Eins erum við með sérstaka við-
burði í ár sem tengjast Póllandi, til
að fagna þeim hluta samfélagsins
okkar, og eins erum við með einkar
spennandi dansatriði frá Indlandi
sem sýnt verður í Hörpu, ásamt
indverskri matarkynningu.“ Þá
verður einnig ríkulegt innlegg frá
frændum vorum í Færeyjum á
Menningarnótt og er það í takt við
hefð sem skapast hefur um framlag
frá þeim á hinni árlegu borgarhátíð
Reykvíkinga.
Að endingu minna þau Karen
María og Guðmundur Birgir á flug-
eldasýninguna sem verður með
einkar nýstárlegu sniði í ár, eins og
sjá má hér í blaðinu í viðtali við
höfund sýningarinnar, dansarann
og danshöfundinn Sigríði Soffíu
Níelsdóttur. „Þar verða flugeldar í
stað dansara og því óhætt að segja
að við endum Menningarnótt með
öðrum hætti en áður. Við mælum
því með að fólk njóti dagsins og
komi sér svo vel fyrir þegar loka-
atriðið nálgast, því það ætti að
verða býsna eftirminnilegt,“ segja
þau Karen María og Guðmundur
Birgir hjá Höfuðborgarstofu að
endingu.
jonagnar@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Verkefnastjórn Skipulagning
hverrar Menningarnætur hefst
tæpu ári áður en hún gengur í
garð. Guðmundur Birgir Hall-
dórsson og Karen María Jónsdóttir
eru þar í eldlínunni.
Menningarnótt: þátttökuhátíð borgarbúa
Þótt menningarnótt sé ekki nema einn laugardagur þá liggur að baki henni margra mánaða skipulagningarferli enda í ótal horn á
líta, eins og verkefnastjórarnir Karen María Jónsdóttir og Guðmundur Birgir Halldórsson segja frá.
2 | MORGUNBLAÐIÐ
MENNINGARNOTT.IS
Höfuðborgarstofa ber ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd
Menningarnætur.
Forstöðumaður Höfuðborgarstofu: Einar Þór Bárðarson.
Stjórn Menningarnætur: Einar Örn Benedikstsson,
Áslaug Friðriksdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Einar Þór Bárðar-
son og Margrét Kristín Blöndal.
Verkefnisstjórar Menningarnætur: Karen María Jónsdóttir og
Guðmundur Birgir Halldórsson.
Markaðs- og kynningarmál: Jón Trausti Sæmundsson og Bryndís
Pjetursdóttir.
Landsbankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá
upphafi.
Vodafone býður gestumMenningarnætur upp á flugelda-
sýninguna.
Ath. dagskráin er ekki tæmandi og auk þess birt með fyrirvara um
breytingar.
Nánari upplýsingarmá finna á www.menningarnott.is.
Höfuðborgarstofa þakkar öllum þeim sem komu að undirbúningi,
skipulagningu og framkvæmdMenningarnætur, án þeirra hefði
hátíðin ekki orðið.