Morgunblaðið - 22.08.2013, Síða 6

Morgunblaðið - 22.08.2013, Síða 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ M enningarnótt er hátíð borgarinnar í heild, en Bakkastígur fær sér- stakt kastljós að þessu sinni. Hvernig stendur á því? „Til að byrja alveg á byrj- uninni þá byrjaði þessi hugmynd eft- ir að við fengum þær fregnir að Dos Sardinas hafði verið neitað að koma fram á 17. júní hátíðinni í Reykjavík. Það risti alls ekki djúpt enda vissu fæstir um að við hefðum boðið fram krafta okkar þar,“ segir Eðvald. „En um sama leyti rakst ég á auglýsingu frá Landsbankanum og Höfuðborg- arstofu um Menningarnæturpott þar sem auglýst var eftir verkefnum og viðburðum á Menningarnótt. Til að gera langa sögu stutta þá slógum við til og sendum inn styrkumsókn vegna Bakkastígshátíðar og fengum. Við vildum hafa þetta skemmtilegt bæði fyrir okkur sem og gesti og gangandi. Það vill líka svo heppilega til að við erum allir, hver í sínu lagi þó, í einhverjum öðrum hljóm- sveitum og höfum líka allir sungið með Skátakórnum þannig að við vor- um komnir með fullt af tónlistar- atriðum.“ Tónlist og rakvélar Málið vatt síðan meira upp á sig og rakaranum í bandinu datt í hug að sýna gamlar rakvélar sem hann og faðir hans höfðu verið að safna í gegnum árin, að því er Eðvald segir. „Svo er Hildur Harðardóttir lista- kona systir tveggja hljómsveit- armeðlima og þau eru öll alin upp á Bakkastígnum, en hún býr nú í Reykjanesbæ og rekur þar listagall- eríið Gallerý 8 ásamt tíu öðrum lista- konum. Hún ákvað að setja upp lista- sýningu í Kotinu ásamt syni sínum, Davíð Erni Óskarssyni, og þeim Dadda (Kjartani Kjartanssyni) og Ogga (Óskari A. Hilmarssyni). Þau hafa öll einhverja tengingu við Bakkastíginn og þannig vatt þetta enn meira upp á sig. Ég var líka að frétta rétt í þessu að það hefði bæst við í þennan hóp því að Gulli, rak- aranemi á Vesturgötunni (Gunn- laugur Hreiðar Hauksson) sem er sonur bassaleikarans og bróðursonur rakarans, ætlar að sýna nokkur sprey-verk og jafnvel troða upp sem trúbador í þessu litla „pop up“ gall- erýi ásamt yngri bróður sínum.“ Innsýn í sögu Reykjavíkur Allar götur eru merkilegar á sinn hátt að sögn Eðvalds og Bakk- astígurinn er þar engin undantekn- ing. „Mörgum finnst Vesturbærinn mjög heillandi og hann hefur sína sögu. Bakkastígurinn er ein af elstu götunum í Reykjavík og lá hann nið- ur að sjávarbakkanum. Það var að- eins styttra í sjávarbakkann hér á ár- um áður, þar kemur líka tengingin við gömlu höfnina,“ útskýrir Eðvald. „Þetta svæði hefur heldur ekki verið mikið áberandi á Menningarnótt og úr því vildum við bæta. Þá höfum við líka þarna ágætis æfingahúsnæði bak við rakarastofuna og þannig er- um allir í góðum tengslum við göt- una. Þetta er afskaplega heillandi gata sem geymir mörg gömul og fal- leg hús og til dæmis eru þar tveir steinbæir, Götuhús frá 1895 og Garð- hús frá 1884 sem eru nú friðuð. Þann- ig að fólk fær ekki bara tækifæri til að njóta þarna menningar og lista heldur gefst því þarna gott tækifæri til að fá innsýn inn í byggingarsögu Reykjavíkur með óbeinum hætti.“ Skemmtilega gamaldags rakarastofa Rakvélasafnið sem er til sýnis er virkilega spennandi safn fyrir þá sem hafa einhvern tímann rakað sig eða eiga það eftir eða jafnvel bara þekkja einhvern sem rakar sig reglulega. „Þarna sér maður hvernig þróunin var í rakvélum, rakhnífum og öðrum fylgihlutum,“ segir Eðvald. „Rakara- stofan á Vesturgötu 48 hefur verið starfandi síðan 1957, fyrst rekin af Herði Þórarinssyni og síðan syni hans Ragnari Harðarsyni, sem leikur einmitt á gítar í bandinu. Þetta rak- vélasafn hefur því verið í mótun síðan þá og var Hörður duglegur að hirða hin ýmsu dót sem menn hafa komið með til hans í áranna rás. Hann vill því frekar kalla sig hirðara en safn- ara. Þarna eru hundruð rakvéla af ýmsu tagi, velturakvélar, konunglegt raksápuhylki, nasahárskeri, brýn- ingartæki fyrir rakblöð og svo má lengi telja.“ Að sögn Eðvalds hefur verið reynt að halda rakarastofunni í sem upprunalegasta horfi. „Gott ef leðurklæddu rakarastólarnir séu ekki komnir vel til ára sinna,“ bendir hann á. „Stofan er því skemmtilega gamaldags og segja má að hver heimsókn sé eins og afturhvarf til fortíðar á heillandi máta. Hver veit nema Hörður, gamli rakarinn, verði á rakarastofunni á Menningarnótt frá opnun og eitthvað fram eftir degi. Þá ættu gestir að geta fræðst um rakstursáhöldin sem og gamla tíma því hann man tímana tvenna bæði af Bakkastígnum og Vesturgötunni.“ Afsprengi ítalsks þjóðarkvölds Sem fyrr sagði koma Sardínurnar tvær við sögu á Bakkastígshátíð. Ólíkt því sem má halda þá eru Sard- ínurnar tvær eða Dos Sardinas ekki dúett heldur afar skemmtilegur fé- lagsskapur gamalla félaga sem allir hafa þann skemmtilega hæfileika að kunna á hljóðfæri, geta sungið og hafa gaman af tónlist. Hljómsveitin sjálf er skipuð þeim Eðvaldi Einari Stefánssyni sem leikur á slagverk og mandólín, Páli Viggóssyni sem sér um aðalraddir og ýmis slagverk, Guðmundi Pálssyni sem sér um gít- arleik og söng og þeim bræðrum Ragnari Hreiðari og Hauki Harð- arsonum. Þeir bræður spila á gítar og bassa. „Við erum einnig allir fé- lagar í Skátakórnum þannig að eitt- hvað getum við sungið. Eins og skát- um einum er lagið er hefð fyrir því að setja saman ýmiskonar skemmti- atriði og Dos Sardinas urðu einmitt til við slíkt tækifæri og komu fram á ítölsku þjóðarkvöldi skáta í Hafn- arfirði og þannig er nafnið til komið. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að ítalska þjóðarkvöldið var hald- ið og við félagar höfum spilað víða og við margvísleg tækifæri og ítalska efnisskráin vikið að mestu fyrir ann- ars konar þjóðlögum þótt nafn sveit- arinnar hafi haldist óbreytt.“ Ennfremur ætlar Baldursbandið svokallaða að leika ljúfa og djassaða tóna á Bakkastígshátíðinni. „Bald- ursbandið já, það eru allt menn, sum- ir komnir örlítið yfir miðjan aldur og hafa afskaplega gaman af því að spila saman. Þetta eru allt félagar í Odd- fellowstúkunni Baldri en hér er það tónlistin sem sameinar þá. Hér ætla þeir að taka góð og klassísk lög eins og „All of Me“, „Fly Me to the Mo- on“, „Girl from Ipanema“ og fleiri góða djass-standarda. Hver veit svo nema það leynist einhver íslensk perla hér inn á milli og ef til vill einn kántrý smellur til að hafa smá fjöl- breytni í þessu. Þetta eru allt hörku flottir spilarar sem hafa gaman af að spila saman og það skín svo sann- arlega í gegn.“ Loks ber að geta þáttar ÍTRíós sem sömuleiðis hyggst troða upp. „ÍTRíó kann að hljóma svolítið kunn- uglega en hér er þó engin tenging við hið margfræga Ríó Tríó. ÍTRíó er skipuð þeim Elín Lóu Baldursdóttur, Hauki Harðarsyni og Markúsi H. Guðmundssyni og spila þau íslenska þjóðtónlist. Þau starfa líka öll hjá ÍTR og hafa í nægu að snúast akk- úrat á Menningarnótt sjálfri. En hér ætla þau að taka sér smá pásu og leyfa okkur að njóta þeirra þjóðlegu tóna.“ Allir tengjast einhvern veginn Það má með sanni segja að býsna margbreytilegur hópur listamanna fléttist saman í Bakkastígshátíðina. „Það er í rauninni af mjög prakt- ískum ástæðum,“ útskýrir Eðvald. „Allir sem koma fram tengjast á einn eða annan hátt einhverjum hljóm- sveitarmeðlima í Dos Sardinas. Svo koma þarna fjölskyldubönd til sög- unnar því systir tveggja hljómsveit- armeðlima, sonur, bróðursonur, syst- ursonur, hálfbróðir og einn fjarlægur frændi sýna öll á „pop up“ gallerýinu í Kotinu á Bakkastígnum. Það hafa því allir einhverja tengingu við Bakk- astíginn, eru skátar eða tengjast okkur í Dos Sardinas á annan hátt, þannig að þetta var allt mjög hent- ugt. Þá var eitt sinn eldsmiðja í skúrnum rétt við rakarastofuna og í hornhúsi á Bakkastígnum býr Þór- arinn Svavarsson sem er eldsmiður. Félagar hans í Félagi eldsmiða ætla að kynna eldsmíðina fyrir utan Geys- ishúsið en hann ætlar að vera á Bakkastígnum enda aðeins styttra fyrir hann að fara. Það má kannski bæta því við að eldsmiðurinn er líka náskyldur rakaranum á Vesturgöt- unni. Þannig er litla Ísland, það hafa allir einhverja tengingu.“ Á Bakkastígshátíðinni verða sem- sagt mjög fjölbreytt tónlistaratriði með reglulegu millibili og til að bæta enn meira við þá flóru nefnir Eðvald Hljómsveitina PRIMA. „Sú hljóm- sveit er skipuð þeim Gunnari Kr. Sig- urjónssyni og Guðmundi Pálssyni. Hljómsveitin er alhliða dans- hljómsveit og sinnir tónlistarflutn- ingi við hvers kyns tækifæri en hér á Bakkastígshátíðinni munu þeir fé- lagar sýna á sér heitu hliðarnar og aðallega leika suður-ameríska tónlist og suðræna sveiflu. Skátakórinn kemur líka til með að troða upp á hátíðinni, sá kór saman- stendur af stórskemmtilegu fólki á öllum aldri sem eiga það sameig- inlegt að vera skátar og hafa gaman af því að syngja. Þau hafa verið starf- andi í tæp tuttugu ár og syngja blöndu af íslenskum og erlendum kórlögum ásamt því sem gömlu góðu skátalögin eiga sinn sess hjá þeim. Flestir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi. Við erum einnig að athuga hvort það sé möguleiki að fá lánaða Muurikka pönnu og bjóða gestum og gangandi að elda sér klatta. En það á eftir að koma betur í ljós hvort það tekst.“ Markmiðið er að sögn Eðvalds að ná skemmtilegri götustemningu þar sem allar fjölskyldur, stórar og smá- ar, geta sameinast og notið góðra stunda. „Fólk getur annaðhvort slak- að á yfir kaffibolla, rætt við rakarann um gamla tíma og rakáhöld, notið þess að berja fjölbreytt listaverk augum í Kotinu, fylgst með eld- smiðnum eða hlustað á fjölbreytta tónlist. Semsagt hugljúf gleði fram eftir degi.“ jonagnar@mbl.is Stemning og stuð á Bakkastígshátíð Bakkastígurinn er ekki ýkja fyrirferðarmikil gata í hvunndegi borg- arbúa. Hann fær þó nokkurn sess á Menn- ingarnótt á hátíð sem ber nafn hans. Þar koma tvær sardínur og rak- vélasafn við sögu, eins og Eðvald Einar Stef- ánsson rekur. Bakkastígur Gatan sú á sér sína sögu eins og allar aðrar í Reykjavík. Gleðisveit Dos Sardinas er ekki dúett eins og nafnið gefur til kynna en engu að síður sannkallað stuðband. Sjarmi Rakarastofur með gamla laginu eru óneitanlega heillandi hús.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.