Morgunblaðið - 22.08.2013, Page 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að eru átta verslanir og níu merki
sem taka þátt í sýningunni,“ segir
Svava. „Þau eru Anna María de-
sign, Birna Concept Shop, Búðin,
Gammur, María Lovísa, Huld, hú-
noghún, Boutique Bella og IQ. Hönnunin sem
sýnd verður er öll ný og það verður sýnt úr
haust- og vetrarlínum 2013-14.“ Aðspurð
hvort hönnunin verði strax fáanleg fyrir
áhugasama til kaups segist hún vona það. „Ég
held að við séum nokkrar með krossaða fing-
ur og vona að nýju vörurnar verði komnar í
hús fyrir sýninguna. Ég er allavega með alla
fingur og tær líka krossaðar um að ég muni fá
sendinguna okkar frá spænska merkinu
Kling. Það mun ég sýna og nýjustu línuna frá
Dim-sokkabuxum og auðvitað verða inn á
milli klassískar Birnu-flíkur. Ég veit að þær
Anna María og Sif í húnoghún vinna baki
brotnu að því að búa til nýtt skart bara fyrir
þessa sýningu. Einnig hef ég heyrt að Gunn-
hildur í Gammi sofi varla neitt, því hún er að
leggja lokahönd á nýja kjóla fyrir sýninguna,“
bætir hún við.
„Til að vita samt hvað er hvað munu mód-
elin bera poka sem á stendur nafnið á versl-
ununum þar sem hægt er að kaupa þau föt og
þá fylgihluti sem þau klæðast.“
Alls konar straumar og stefnur
Gestir tískusýningarinnar eiga von á fjöl-
breyttri tísku enda línur og vörur þátttakenda
af ýmsu tagi.
„Það eru eingöngu konur sem standa að
þessari sýningu; konur sem hafa allar mjög
ólíkan stíl, sem gerir þetta að svo skemmti-
legri og fjölbreyttri sýningu,“ segir Svava.
„Það sem ég sá á æfingu og mátun var að á
meðal þess sem er ríkjandi er rokk og róm-
antík, einnig klassík og einfaldar línur.“ Svava
segir dökka liti áberandi en inn á milli skjóti
upp kollinum fögur blómamynstur og pallíett-
ur.
„Birna er klassísk og tímalaus hönnun,
Kling-línan sem verður til sýnis einkennist af
miklum ferskleika og smáatriðum sem koma
skemmtilega á óvart. Litir eru í dekkri kant-
inum, en svo sjást inn á milli fallegir sægræn-
ir og bláir tónar.
Það er smárokk í Gammi hjá henni Gunn-
hildi; fallegir kjólar með skemmtilegum smá-
atriðum sem gleðja augað.
Línan sem Hanna Hlíf er með til sölu í
Búðinni er rómantísk og svolítið hippaleg.
Hún mun líka sýna geðveikan samfesting sem
Elín Ey söngkona sýnir á sýningunni. Hanna
Hlíf prjónar og hannar fallegar peysur sem
hún sýnir.
Sif í húnoghún leikur sér svolítið með klass-
ísku formin, hringlaga og kassalaga, í skart-
inu sínu. Rokk og ról einkennir meðal annars
línuna sem hún sýnir og þar er mikið af flott-
um hringum og armböndum.
María Lovísa er með mjög elegant stíl, sem
leynir líka á sér á mjög skemmtilegan hátt.
Dökkir litir eru ríkjandi hjá henni með sterk-
um litum inn á milli.
Anna María design sýnir kvenlegt og fal-
legt skart, en hún er líka með skemmtilega
stóra og klossaða hringa. Það er eitthvað fyrir
alla hjá henni Önnu Maríu.
Hanna í IQ mun sýna skó frá merkinu
Arche, sem er franskt gæðamerki, þekkt fyrir
mikil þægindi. Einnig litríka og skemmtilega
hálsklúta frá merkinu Beck Söndergaard.
Loks verður Heiða í Boutique Bellu með
okkur, en línan sem hún sýnir er frekar dökk
og kynþokkafull, með blúndum og hælum.“
Að koma hönnuðum saman
Það blasir því við að breiður hópur hönnuða
kemur saman á Skólavörðustígnum. Hvernig
kom það til að þessi hópur hönnuða valdist
saman til að sýna á Menningarnótt?
„Ég hef unnið í mismunandi fatabúðum í
Reykjavík í nokkuð mörg ár núna og finnst
alltaf vanta meiri samvinnu á milli verslana. Í
þessu sambandi má nefna til dæmis miðnæt-
ursprengju í Kringlunni. Þá gera allar versl-
anirnar eitthvað saman, sem myndar
skemmtilega stemningu og allir hafa gaman
af.“ Svava var nýlega ráðin verslunarstjóri í
Birnu Concept Shop og langaði hana að eigin
sögn að gera eitthvað nýtt og spennandi með
búðina og um leið kynnast betur „nágrönn-
um“ sínum – búðum í nágrenninu. „Mér var
bent á að það væri enn opið fyrir að sækja um
styrk hjá Menningarnæturpotti á þeim tíma
og ákvað því að kanna áhugann hjá fleiri
verslunum á Skólavörðustígnum á að við
slægjum okkur saman og héldum tískusýn-
ingu á Menningarnótt. Ég fékk strax mjög já-
kvæð svör og sótti um styrkinn. Og auðvitað
fengum við hann,“ bætir Svava við og brosir.
Hún tekur fram að til að byrja með hafi
sýningin átt að vera frekar lítil í sniðum. „En
áhuginn varð strax mikill og ég vildi fyrst
leyfa öllum að vera með en þar kom að ég
varð að hætta að taka á móti umsóknum.
Þannig að við erum átta verslanir að fara að
sýna nýjustu haust/vetrar-línurnar í fatnaði,
skarti, töskum, beltum og skóm.“
Verkefni sem vatt upp á sig
Í ljósi þess hvað allir voru jákvæðir og til-
búnir í þetta ævintýri með henni ákvað Svava
að kanna með samvinnu á enn breiðari grund-
velli. „Ég hafði samband við þau Haffa og
Önnu Kvaran, stílista í Elite, og á sýning-
ardreglinum munu módel frá Elite sýna her-
legheitin og Anna Kvaran er listrænn stjórn-
andi sýningarinnar. Þau hafa verið frábær
viðbót og það er sko hægt að segja að þau
kunni sitt fag, þetta væri ekki orðið svona
flott ef þau væru ekki með okkur í þessu.
Loks ákvað ég að hafa samband við snill-
ingana Emil og Stjána á hárgreiðslustofunni
Sjoppunni og þeir ætla að sýna nýjustu
straumana í hárgreiðslu á sýningunni.“
Besti staðurinn í bænum
Tískusýningin fer fram á neðri hluta göngu-
götu Skólavörðustígs og Svava segir engan
annan stað hafa komið til greina fyrir tísku-
sýninguna. „Göngugatan á Skólavörðustig ið-
ar af lífi allan þann tíma sem hún er opin, ég
vildi að hún væri opin mun lengur. Þetta er
einfaldlega besta svæðið í miðbænum.“
Þess má í lokin geta að sýningin byrjar kl.
16:00 og stendur til 17:00.
Þórunn Lárusdóttir verður kynnir og mun
hún stýra sýningunni undir fögrum tónum Dj
Veloci.
jonagnar@mbl.is
Tíska á Menningarnótt
Meðal áhugaverðra viðburða á Menningarnótt er heljarmikil
tískusýning sem fram fer á Skólavörðustígnum. Svava Halldórs-
dóttir segir frá því sem fyrir augu mun bera.
Boutique Bella
Spennandi „Áhuginn varð strax mikill,“ segir Svava. Með henni á myndinni er dóttir hennar, Saga Ljós.
Átta verslanir munu sýna nýjustu haust/vetrar-línurnar í fatnaði, skarti, töskum, beltum og skóm.
Gammur
Hanna Hlíf
Kling / Birna
Anna María Design