Morgunblaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 10
Gamla höfnin Kl. 11:00 – 23:00 Gamla höfnin í fókus Fókus, félag áhugaljósmyndara, býður gestum á ljósmyndsýninguna Gamla höfnin í fókus. Sýninguna prýða fjöldi ljósmynda af hafnarsvæðinu frá sjónarhorni sjófarenda. Old Harbour Souvenirs, Geirsgötu 5c Kl. 11:00 – 20:00 Endurnýting - ekki þarf að henda öllu Myndlistasýning og sýning á munum sem gerðir hafa verið upp eftir að þeim hefur verið hent eða átt að henda, munir frá síðustu öld. Gömlu verbúðirnar, Grandagarði 45 Kl. 12:00 – 22:00 Spilhúsin Spilhúsin í Slippnum lifna við með hljóðinnsetningu eftir Finnboga Pétursson. Spilhúsastígur, á milli Slippsins og Hótel Marina, Mýrargötu 2 Kl. 12:00 – 21:00 Töfraheimar Vatnajökulsþjóðgarðs Kvikmynd sem veitir sýn inn í hinn ótrúlega fjölbreytta heim Vatna- jökulsþjóðgarðs, sem nær allt frá suðurhluta Íslands til norðurs. The Cinema, Verbúð nr.1, Gömlu höfninni, Geirsgötu 7b Kl. 13:00 – 22:00 Stefnumót við liðna tíð Langar þig í Polaroid mynd af þér og þínum í glæsilegum búningum frá gömlum tímum? Hin sívinsæla myndataka Ljósmyndasafns Reykja- víkur. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 6. hæð Kl. 13:00 – 15:00 Grill og gleði Skoppa og Skrítla, Sirkus Íslands og fjölbreytt tónlist í boði Lambakjöts. Meistarafélag kjötiðnaðarmanna grillar ljúfengt lambakjöt fyrir gesti og gangandi. Á Miðbakka á móti Kolaportinu, Geirsgötu Kl. 14:00 – 16:00 360° upplifun af Íslandi Í Expo skálanum er sýnd einstök 360° kvikmynd sem sýnir Ísland í öllum sýnum fjölbreytileika og skapar áhrifaríka undraveröld. Brim húsið við höfnina, Geirsgötu 11 Víkin – Sjóminjasafn Kl. 12:00 – 23:00 Rat Manicure Sýning á rýmisverkum eftir Sockface, unga konu á einhverfurófi, sem áhorfandinn gengur inn í og fær að njóta í einrúmi. Víkin – Sjóminjasafn, Grandagarði 8 Kl. 12:00 – 22:00 Hefur þú skoðað varðskip? Varðskipið Óðinn verður opið gestum og gangandi. Um borð taka á móti gestum fyrrverandi skipsverjar og segja frá dvöl sinni um borð í skipinu. Víkin – Sjóminjasafn, Grandagarði 8 Kl. 14:00 – 16:00 Ráðgáta í varðskipi Ratleikur um borð í Varðskipinu Óðni. Hvað leynist í káetunni? Getur þú fundið vísbendinguna hjá byssunni? Víkin – Sjóminjasafn, Grandagarði 8 Kl. 14:00 – 16:00 Að smíða sér bát Bátasmiðja við Sjóminjasafnið. Komdu og smíðaðu þinn eigin bát á bátaverk- stæðinu okkar! Allt efni á staðnum. Víkin – Sjóminjasafn, Grandagarði 8 Kl. 15:00 – 17:00 Föndursmiðja – fiskabúr Komdu og búðu til þitt eigið fiskabúr! Hver á heima í þínu búri? Eru það krabbar og krossfiskar eða kannski marhnútur? Víkin – Sjóminjasafn, Grandagarði 8 Kl. 17:00 – 18:00 Ert þú veiðikló? Dorgkeppni við gömlu höfnina. Færi og beita á staðnum. Verðlaun fyrir þann sem mest veiðir! Víkin – Sjóminjasafn, Grandagarði 8 Víkin dagskrá úti frá kl 13:00 – 23:00 Kl. 13:00 – 13:30 Sláturfélagið – Heiða Dóra og Jói Ben Kíktu í kaffi á Sjóminjasafnið. Stórskemmtileg dagskrá á bryggjunni, gítar og söngur, gömul akkeri og alls konar drasl. Víkin, kaffihúsið í Sjóminjasafninu, Grandagarði 8 Kl. 13:30 – 14:00 Le Ballet Barakan Komdu og upplifðu sjóðheitt og tryllt dans- og trommuatriði frá Gíneu V-Afríku undir stjórn Mamady Sano. Víkin, kaffihúsið í Sjóminjasafninu, Grandagarði 8 Kl. 14:00 – 14:30 Hljómsveitin Haust Haust eru skipuð af 6 ungum drengjum frá Reykjavík. Folk/popp tónlist sem fjallar um sveitina, ástina og litlu sjávarþorpin úti á landi. Víkin, kaffihúsið í Sjóminjasafninu, Grandagarði 8 Kl. 14:30 – 15:00 Hljómsveitin Robert the Roommate Hljómsveitin Robert the Roommate gaf út sína fyrstu plötu í apríl og ætlar að flytja efni af henni. Víkin, kaffihúsið í Sjóminjasafninu, Grandagarði 8 Kl. 20:30 – 21:00 Hljómsveitin Treisí Orkuboltarnir í Treisí munu skjóta þér upp í háloftin eins og þeim einum er lagið með sínu popp/rokki. Víkin, kaffihúsið í Sjóminjasafninu, Grandagarði 8 Kl. 21:00 – 21:30 Hljómsveitin Sunny Side Road Sunny Side Road er 6 manna hljómsveit sem hefur getið sér gott orð fyrir tónlist sína sem flokka mætti sem þjóðlagapopp. Víkin, kaffihúsið í Sjóminjasafninu, Grandagarði 8 Kl. 21:30 – 22:00 Ljúfir tónar í bland við eldhresst kántrí með Famina Futura Hin frábæra hljómsveit Famina Futura mun spila frumsamda tónlist í ætt við popp/folk/country. Melódísk og áheyrileg tónlist, hnýtt saman með djúpum textum um lífið og tilveruna. Víkin, kaffihúsið í Sjóminjasafninu, Grandagarði 8 Kl. 22:00 – 22:30 Meistarar Dauðans Hljómsveitin Meistarar Dauðans samanstendur af kornungum strákum. Þeir unnu Tónabær rokkar og Tónsköpunarverðlaun menningar- hátíðar og nú verður Grandi rokkaður í sundur. Víkin, kaffihúsið í Sjóminja- safninu, Grandagarði 8 Kl. 22:45 – 23:00 Hljómsveitin HR bandið Danshljómsveit HR blæs til síðsumarsdansleiks. Stuð- og gleðitónlist fyrir unga, aldna og alla þá sem vilja dansa og syngja sig inn í ágústnóttina. Víkin, kaffihúsið í Sjóminjasafninu, Grandagarði 8 Harpa Kl. 13:00 – 22:00 Tilfærsla – Róm / Reykjavík Sýning Rósu Gísladóttur í Hörpu sem samanstendur af skúlptúrum og ljósmyndum. Heimildarmynd Eggerts Gunnarssonar unnin í samvinnu við RÚV um listakonuna verður sýnd í Stemmu 2. Harpa, Flói, Austurbakka 2 Kl. 13:00 – 22:00 Aaru‘s Awakening - íslenskur tölvuleikur Kynning á íslenskum tölvuleik. Komið að skoða og prófa listræna, handteiknaða ævintýraleikinn Aaru’s Awakening úr smiðju Lumenox Games! Harpa, K1, Austurbakka 2 Kl. 13:30 – 16:00 Maximús Músíkús Maxímús Músíkús heilsar börnunum og gefur blöðrur. Harpa, Opin rými, Austurbakka 2 Kl. 14:00 – 15:30 Dáleiðandi Indverskur Kathak dans Töfrandi Kathak dans þar sem glæsileiki, færni og seiðandi túlkun Pragati Sood Anand á þessum fallega indverska dansi heillar áhorfendur. Harpa, Silfurberg, Austurbakka 2 Kl. 14:30 – 15:00 Maxímús Músíkús Barna- og unglingakór Íslands syngur nokkur lög úr nýju bókinni um Maxa, Maxímús Músíkús kætist í kór, sem kemur út næsta vor. Harpa, Hörpuhorn, Austurbakka 2 Kl. 15:00 – 16:00 Sinfóníuhljómsveit Íslands – Álfar og riddarar Barnatónleikar með færeyska tónlistarævintýrinu „Veiða vind“ í íslenskri þýðingu Þórarins Eldjárns þar sem Gói er í hlutverki sögumanns. Ókeypis aðgöngumiðar fást í miðasölu Hörpu samdægurs. Harpa, Eldborg, Austurbakka 2 Kl. 16:00 – 16:30 Maxímús Músíkús Maxímús Músíkús kennir börnunum létt spor undir handleiðslu Hildar Ólafsdóttur listdanskennara. Harpa, Hörpuhorn, Austurbakka 2 Kl. 17:00 – 18:00 Sinfóníuhljómsveit Íslands – Uppáhaldsklassík Síðdegistónleikar með vinsælum klassískum verkum. Ókeypis aðgöngumiðar fást í miðasölu Hörpu samdægurs. Harpa, Eldborg, Austurbakka 2 Kl. 18:30 – 19:30 Hér er BRODKA! Tónlist Moniku Brodka er blanda af modern electro og alternative pop með folk ívafi. Hún er ein skærasta stjarna Póllands í dag. Tónleikar hennar eru fullir orku. Harpa, Silfurberg, Austurbakka 2 Kl. 20:00 – 21:00 Þjóðin syngur Þjóðkórinn syngur í Eldborg. Söngáhugamönnum á Íslandi er stefnt saman í Eldborg til að hefja upp raust sína undir stjórn Garðars Cortes. Harpa, Eldborg, Austurbakka 2 Kl. 21:00 – 21:45 BYRTA frá Færeyjum Tvíeykið í BYRTA flytur blöndu af 80´s tónlist og skandinavísku poppi. Seiðandi straumar söngkonunnar og electro kóngsins úr Bloodgroup. Harpa, Silfurberg, Austurbakka 2 Kl. 19:00 – 19:30 Stanley Samuelsen frá Færeyjum – Kassagítar og söngur Stanley spilar hugljúf lög, en hann er einn fremsti kassagítarleikari Færeyja. Harpa, Norðurljós, Austurbakka 2 Kl. 20:00 – 21:00 Fósturlandsins Freyja Hin frábæra vestur-íslenska sópran- söngkona, Christine Antenbring, snýr heim til eldgömlu Ísafoldar, rifjar upp rætur sínar og flytur okkur eftirlætis- söngva forfeðranna við undirleik hins þekkta píanóleikara Mikhail Hallak. Harpa, Norðurljós, Austurbakka 2 Kl. 13:30 – 13:50 og kl. 16:30 - 16:50 RAX – Stuttmynd um sýningu RAX Fjallaland er fyrsta verk Ragnars Axelssonar sem eingöngu fjallar um Ísland. Niðurstaðan er stórbrotið ljósmyndaverk sem sýnt verður í Hörpu. Harpa, Kaldalón, Austurbakka 2 Kl. 17:00 – 17:45 Söngkvartettinn Sætabrauðsdrengirnir Kvartettinn er skipaður þeim Garðari Thór Cortes, Gissuri Páli Gissurar- syni, Bergþóri Pálssyni og Viðari Gunnarssyni. Jóhann G. Jóhanns- son leikur á píanó. Harpa, Kaldalón, Austurbakka 2 Kl. 18:00 – 19:00 og kl. 19:00 – 20:00 Heimspeki Hjartans Þorvaldur Gylfason hefur samið tónlist við 17 sonnettur eftir Kristján Hreins- son. Tónlistina hefur Þórir Baldursson tónskáld útsett. Harpa, Kaldalón, Austurbakka 2 Kl. 13:00 – 15:00 Töfrahurð með töfrahljóðfæri álfanna Töfraflautur álfanna, horn úr tröll- heimum og regnbogatromma. Taktu þátt í ævintýri og gerðu þín eigin álfahljóðfæri. Harpa, Vísa, Austurbakka 2 Kl. 13:00 – 15:30 Sýndarhvalaskoðun fyrir börn Ímyndið ykkur hvalaskoðunarferð, færið síðan ferðina með hugaraflinu frá sjónum og inn í þægindi sýningar- rýmis í Hörpu og látið koma ykkur skemmtilega á óvart. Ferðir eru á heila og hálfa tímanum. Harpa, Ríma, Austurbakka 2 Kl. 13:00 – 17:00 Bílasýning íslenska Cadillacs klúbbsins Íslenski Cadillac klúbburinn verður á Hörpuplani. Harpa, Hörpuplan, Austurbakka 2 Kl. 14:00 – 17:00 Stage Europe Networks Harpa í samstarfi við Hitt Húsið bjóða 5 upprennandi erlendum hljómsveit- um á vegum Stage Europe Network að ganga í bæinn og stíga á útisvið. Harpa, Hörputorg, Austurbakka 2 Kl. 17:00 – 19:30 Undiraldan á útisviði Undiraldan er tónleikaröð Hörpu í samstarfi við 12 Tóna. Boðið verður upp á sérstaka Undiröldudagskrá þar sem gestir og gangandi geta notið ferskra tónlistarstrauma. Harpa, Hörputorg, Austurbakka 2 Kynning á hátíðum í Reykjavík í Hörpu 2013 Kl. 13:00 – 22:00 Reykjavik Festival City – Heimildarmyndir Reykjavík er kjörinn áfangastaður allan ársins hring. Heimsins nyrðsta höfuðborg býður upp á fjölmargar kvikmynda-, sviðslista-, hönnunar- og tónlistarhátíðir auk listsýninga af ýmsum toga. Harpa, Stemma 1, Austurbakka 2 Kl. 14:00 – 21:00 Food and Fun Myndir og vídeó frá Food & Fun hátíðinni frá árinu 2013 gefa fólki sýnishorn af því sem kom skal á næsta ári. Harpa, við 12 Tóna, Austurbakka 2 Kl. 14:00 – 22:00 Reykjavik Dance Festival Black Yoga Screaming Chamber – Shalala. Öskraðu til að gleyma, slappa af, frelsa hugann, fá orku. Öskraðu án ástæðu – Þessi reynsla gæti breytt lífi þínu. Harpa, Norðurbryggja, Austurbakka 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.