Morgunblaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 11
Kl. 13:00 – 14:00
Blúshátíð Reykjavíkur
Upptaktur verður sleginn fyrir næstu
Blúshátíð. Harpa, Hörpuplan,
Austurbakka 2
Kl. 14:00 – 21:00
Mýrin – alþjóðleg barnabók-
menntahátíð í Reykjavík
Úti í mýri er alþjóðleg barna- og
unglingabókmenntahátíð í Reykjavík.
Fjölbreyttir viðburðir fyrir áhugamenn,
fagfólk, börn og fullorðna. Harpa, við
12 Tóna, Austurbakka 2
Kl. 14:00 – 14:30
Riff
Kvikmyndahátíðin RIFF býður upp
á úrval íslenskra stuttmynda, þar
á meðal Child Eater e. Erling Óttar
Thoroddsen og Yfir horfinn veg e.
Andra Frey Ríkharðsson sem hlutu
sérstaka viðurkenningu á hátíðinni
2012. Harpa, Kaldalón, Austurbakka 2
Kl. 15:00 – 16:00 og
kl. 17:00 – 18:00
Bókmenntaborgin í Reykjavík
– Ofurlítil dugga
Bókmenntaborgin Reykjavík býður
krökkum og fjölskyldum þeirra í
hressilega skáldasiglingu á bátnum
Lunda með systkinunum Sigrúnu og
Þórarni Eldjárn. Smábátahöfnin við
Hörpu, Austurbakka
Kl. 17:00 – 18:00 og
kl. 19:00 – 20:00
Bókmenntaborgin í Reykjavík
– Ljóðasigling
Skáldin Sigurbjörg Þrastardóttir og
Sigurður Pálsson verða í brúnni á
bátnum Lunda á stuttri siglingu um
Sundin. Þau munu flytja farþegum
eigin ljóð og annarra sem snerta
bókmenntaborgina Reykjavík og
hafið. Smábátahöfnin við Hörpu,
Austurbakka
Kl. 15:00 – 16:00
Myrkir músíkdagar
Hátíðardagskrá Myrkra músíkdaga
kynnt. Flytjendur eru Tinna Þorsteins-
dóttir, píanóleikari og Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir, messósópran. Auk
þess eru flutt rafverk eftir Þorkel
Sigurbjörnsson. Harpa, Kaldalón,
Austurbakka 2
Kl. 16:00 – 16:30
Riff
Kvikmyndahátíðin RIFF býður upp
á úrval íslenskra stuttmynda, þar
á meðal Ástarsaga e. Ásu Helgu
Hjörleifsdóttur og Dag eða tvo e.
Hlyn Pálmason sem hlutu sérstaka
viðurkenningu á hátíðinni 2012.
Harpa ,Kaldalón, Austurbakka 2
Kl. 16:00 – 17:00 og
kl. 17:00 – 18:00
Lókal – alþjóðleg leiklistarhátíð
Alþjóðlega leiklistarhátíðin Lókal sýnir
brot úr fjórum nýjum verkum sem
sýnd verða á hátíðinni í ár sem haldin
verður 28. ágúst – 1. september.
Harpa ,Ríma, Austurbakka 2
Kl. 16:00 – 18:00
Airwaves
Nokkrar hljómsveitir sem komið hafa
fram á Airwaves hátíðinni stíga á svið.
Harpa, Silfurberg, Austurbakka 2
Bakkastígshátíð
Kl. 14:00 – 19:00
Bakkastígshátíð
Tónlistaratriði, listsýning, rakvélasafn
og eldsmiður að störfum þar sem
vélsmiðja var áður starfrækt í kringum
1950. Hugljúf gleði á Bakkastíg
frameftir degi. Á mótum Bakkastígs
og Vesturgötu
Kl. 14:00 – 22:00
Með hverju rökuðu menn sig hér á
árum áður?
Raksköfur, rafmagnsvélar, rakhnífar
og fylgihlutir sem Hörður Þórarinsson
hóf að safna fyrir 30 árum til sýnis í
heild sinni í fyrsta skipti. Beitt rakvéla-
safn á Vesturgötunni. Rakarastofa
Ragnars og Harðar, Vesturgötu 48
Kl. 14:00 – 22:00
Listsýning í Kotinu
Listafólkið Hildur Harðardóttir, Óskar
A. Hilmarsson, Kjartan Kjartansson og
Davíð Örn Óskarsson sýna þæfð verk
og myndir í Kotinu á Bakkastíg.
Í Kotinu á Bakkastíg, á mótum
Bakkastígs og Vesturgötu
Kl. 14:00 – 22:00
Tvær sardínur á palli
Dos Sardinas leikur létt og
skemmtileg lög í eldri kantinum á sinn
einstaka hátt. Á mótum Bakkastígs
og Vesturgötu
Kl. 15:45 – 15:05
Skátakórinn á góðri stund
Skátakórinn þekkja margir af
einskærri gleði og léttleika sem hann
einkennir. Kórinn tekur nokkur vel
valin lög og hver veit nema þar leynist
einhver skátalög. Á mótum Bakkastígs
og Vesturgötu
Kl. 17:15 – 17:35
ÍTRíó í Ríó
Á meðan meðlimir ÍTRíó eru ekki að
sinna öðrum verkum á Menningarnótt
þá flytja þeir hér nokkur af sínum best
æfðu lögum á Bakkastígshátíð.
Á mótum Bakkastígs og Vesturgötu
Kl. 18:00 – 18:20
Baldursbandið
Baldursbandið er gjarnan þekkt fyrir
sína jözzuðu tóna. Hér taka þeir
nokkra gamla slagara eins og þeir
gerast bestir. Fly me to the moon…
Á mótum Bakkastígs og Vesturgötu
Kl. 18:45 – 19:00
Dos Sardinas
Dos Sardinas setur skemmtilegan
lokahnykk á Bakkastígshátíðina með
nokkrum laufléttum tónum. Rakvéla-
safnið og listsýningin verða þó opin
frameftir kvöldi. Á mótum Bakkastígs
og Vesturgötu
Kl. 14:00 – 22:00
Kertaljósashow
Kertastjakar í öllum útfærslum. Háir,
lágir, langir, mjóir, samvaxnir, spengi-
legir, hvítir, bláir, röndóttir og köflóttir
eftir ýmsa listamenn. Geirsgötu 5A
Kl. 14:00 – 23:00
Járnbraut 2013
Járnbrautin verður stútfull af tónlist,
myndlist, mat og drykk á Menningar-
nótt. Hljómsveitir hússins spila ásamt
vel völdum gestum. Allir velkomnir!
Járnbraut - Skapandi Vettvangur,
Hólmaslóð 2
Kl. 14:00 – 16:00
Tangó frá höfn og heim í garð
Tangófélagið dansar tangó í gegnum
miðbæ Reykjavíkur. Ferðalagið hefst
við höfnina, Slippbarinn og eitt spor
eltir annað í gegnum Þingholtin.
Slippbarinn, Mýrargötu 2
Kl. 14:00 – 19:00
Leir smiðja
– sjávardýr og furðuverur
Allir hjartanlega velkomnir í föndur-
smiðju á Vinnustofu 31. Gestum og
gangandi er boðið að koma og leira
sjávardýr og furðuverur. Vinnustofa
31, Grandagarði 31
Kl. 14:30 – 15:00
Meistari Jakob, sönghópur
Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi
Meistari Jakob flytur nokkur lög af
sinni tæru snilld. Vinnustofa Siggu
Heimis, Grandagarði
Kl. 16:00 – 17:00
Blús á Café Haití
Blússveit Þollýjar leikur kröftugan
ryþmablús í bland við hugljúfari
melódíur fyrir gesti og gangandi.
Café Haití, Geirsgötu 7b
Kl. 17:00 – 21:20
Heimstónlist og hamingja
Eldstöðin Tryggvagötu fagnar
Menningarnótt með kraumandi
tónlistardagskrá og litríkum
straumum utan úr heimi.
Söngur, trumbusláttur, píanó, brass,
strengir og fleira funheitt
og skemmtilegt. Eldstöðin,
Hafnarhvoli, Tryggvagötu 11
Kl. 18:00 – 22:00
IIIF kynnir SERIE N°1 REINDEER
IIIF hönnunarteymið frumsýnir sýna
fyrstu vörulínu, en að þessu sinni
vinna þau með hreindýraafurðir og
austfirskum framleiðendum. Alliance
française, Tryggvagötu 8
Kl. 20:00 – 23:00
Vinnslan #6
Vinnslan er suðupottur grasrótarlista-
manna af öllum toga. Komdu og njóttu
lista og menningar á gömlu Reykja-
víkurbryggjunni, í hvalaskoðunarbát
og í gömlu verbúðunum. Grænu
verbúðirnar, Geirsgötu 7. Friend in
Iceland, Café Haití, Sægreifinn, útiport
og hvalaskoðunarbátur við bryggjuna,
Grandagarði 8
23:00-23:10
Eldar – Flugeldasýning
Hrífandi flugeldasýning í lok kvöldsins.
Í sýningunni Eldar gefst gestum tæki-
færi á að hvíla hugann, njóta dansandi
flugelda og finna fegurð og kraft
Reykjavíkur umlykja sig sem og aðra
gesti Menningarnætur. Arnarhóll
Kvosin
Kl. 10:00 – 22:00
Hannað í tré
Lára Gunnarsdóttir sýnir handgerðar
skálar úr birki og lerki. Handverk og
hönnun, Aðalstræti 10, 2. hæð
Kl. 11:00 – 22:00
Happdrætti – Vinningur:
Leyndarmál
Allir geta lagt símanúmerið sitt í pott-
inn sem dregið verður úr daginn eftir.
Kostar ekkert að vera með. Kogga
keramikgallerí & studio, Vesturgötu 5
Kl. 11:00 – 20:00
Húlla húlla frjáls aðferð
Kl. 14 og 16 er tónlist og húlla
mjaðmasveiflusalsa fyrir þá sem þora.
Verðlaun fyrir þann sem getur haldið
hringnum lengst á lofti meðan eitt lag
er spilað. Kirsuberjatréð, Vesturgötu 4
Kl. 11:00 – 22:00
Orb Collection – Á leið til Bretlands
Ella Rósinkrans sýnir veggskúlptúra
og stórar ávaxtaskálar. Eldri verk og
listaverkaunnendur ákveða verð á
verkunum. Léttar veitingar og lifandi
tónlist. Center Hotel Plaza, Aðalstræti 4
Landsbankinn
Húsið er opið frá kl. 11:45 – 18:00
Felix Bergsson kynnir dagskrá
Kl. 12:00, kl. 13:00 og kl. 14:00
Listaverkaganga
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur
leiðir listaverkagöngu um gamla
bankahúsið í Austurstræti og fræðir
um listaverk í eigu Landsbankans.
Landsbankinn, Austurstræti 11
Kl. 15:00 – 15:30
Leikhópurinn Lotta
Söngvasyrpa með brotum af því besta
úr öllum sýningum Leikhópsins Lottu.
Landsbankinn, Austurstræti 11
Kl. 15:30 – 16:15
Nótan – tónlistarskólar gefa tóninn
Valin atriði frá Nótunni, uppskeruhátíð
tónlistarskólanna 2013. Slagverks-
hópur frá Tónlistarskóla Árnesinga,
fiðlu- og píanóleikur frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík, samspilshópur
frá Tónlistarskóla FÍH og einsöngur
frá Söngskólanum í Reykjavík.
Landsbankinn, Austurstræti 11
Kl. 16:15 – 16:45
Freyr Eyjólfsson
Skemmtikrafturinn og útvarps-
maðurinn Freyr Eyjólfsson verður
með uppistand og tekur lagið eins
og honum er einum lagið.
Landsbankinn, Austurstræti 11
Kl. 16:45 – 17:30
Sigríður Thorlacius og
Högni Egilsson úr Hjaltalín
Sigríður Thorlacius og Högni
Egilsson úr hljómsveitinni Hjaltalín
flytja hugljúfa tóna fyrir gesti.
Landsbankinn, Austurstræti 11
Kl. 12:00 – 14:00
Kaffiristun
Te & Kaffi býður gestum og gangandi
að koma á kaffihúsið í Aðalstræti að
fylgjast með ristun kaffibauna. Tveir
brennslumeistarar, Stefán og Dóri
verða á staðnum til að fræða fólk
um ferli kaffibaunarinnar frá tínslu til
ristunar og þaðan í bollann þinn.
Te & Kaffi, Aðalstræti 9
Iðnó
Kl. 12:00 – 17:00
Sirkus Íslands – sirkusfjör í Iðnó
Sirkusskólinn verður á svæðinu
og aldrei að vita nema þú hittir
fyrir stultufólk.
Sirkussýningar kl. 13.00, 14.30
og 16.00. Iðnó, Vonarstræti 3
Kl. 14:00 – 16:00
Testofa í Iðnó
Tefélagið býður gestum að setjast
niður í erli dagsins og smakka oolong
te, hvítt -, grænt - og svart te.
Iðnó 3. hæð, Vonarstræti 3
Kl. 14:00 – 16:00
Hvað er ósnortin náttúra?
– Heimspekikaffihús
Í Heimspekikaffihúsinu er tekist á
við stóru spurningarnar. Svör finnast
þegar margir koma saman og virða
reglur rökræðunnar. Iðnó, 2. hæð,
Vonarstræti 3
Kl. 16:00 – 21:00
Bridge gerir lífið skemmtilegra
Bridgesamband Íslands verður með
Bridge spilamennsku á 4-5 borðum.
Allir velkomnir til að taka þátt og grípa
í spil, jafnt ungir sem aldnir, byrjendur
og lengra komnir. Iðnó, 2. hæð,
Vonarstræti 3
Kl. 18:00 – 18:45
Dillandi djarfur djass og blús
Blúsinn og djassinn ráða hér ríkjum
og mun tónlistarkonan Brynhildur
Oddsdóttir syngja og spila eigið
efni í bland við einstaka ábreiður
ásamt fullskipaðri hljómsveit. Iðnó,
Vonarstræti 3
Kl. 19:30 – 20:40
Fögur er jörðin
Flutt verða 10-15 lög samin af Óskari
Guðnasyni við ljóð úr ljóðabókinni Bréf
til næturinnar eftir Kristínu Jónsdóttur.
Bókin er metsöluljóðabók á Íslandi
og eru ljóðin opinská og einlæg með
sterk tengsl við íslenska náttúru.
Iðnó, Vonarstræti 3
Kl. 21:00 – 22:30
Edda Borg Music Project
Tónlistarkonan Edda Borg sýnir
á sér nýja hlið og leikur tónlist af
sínum fyrsta sólógeisladiski með
framúrskarandi hljómsveit. Iðnó,
Vonarstræti 3
Ráðhús
Kl. 13:00 – 13:40
Hljómsveitin 4 1/2
Hljómsveitin 4 1/2 er skipuð fimm
ungum drengjum úr Árbænum
sem flytja frumsamin lög auk
nokkurra erlendra ábreiða.
Ráðhúsið, Tjarnargötu 11
Kl. 14:00 – 14:30
Múfasa makeover
Andri Már Magnason og Atli Jasonar-
son eru eldhressir nýstúdentar og
rapparar sem flytja frumsamin lög
fyrir alla þá sem vilja ljá þeim eyra.
Ráðhúsið, Tjarnargötu 11
Kl. 14:40 – 14:47
Magadans madness
Magadansarar taka trylltan en
fágaðan dans sem allir geta notið og
þú mátt hrista rassinn með okkur.
Ráðhúsið, Tjarnargötu 11
Kl. 15:00 – 15:40
Snorri Helgason
Tónlistarmaðurinn góðkunni Snorri
Helgason tekur nokkur lög.
Ráðhúsið, Tjarnargötu 11
Kl. 16:00 – 16:40
Meistarar Dauðans
Hljómsveitin Meistarar Dauðans
samanstendur af kornungum
strákum. Þeir unnu Tónabær rokkar
og Tónsköpunarverðlaun menningar-
hátíðar og nú verður Ráðhúsið rokkað
í sundur. Ráðhúsið, Tjarnargötu 11
Kl. 18:00 – 18:40
Alan Jones
Brot af því besta úr sýningu sem
verður í Hörpu í september, Alan
Jones and the MJ Experience.
Ráðhúsið, Tjarnargötu 11
Listasafn Reykjavíkur
- Hafnarhúsið
Kl. 12:00 – 13:00
Lunch Beat - Hádegistaktur
Reykjavík Dance Festival býður
upp á Lunch Beat í hinu magnaða
umhverfi Hafnarhússins. Eina reglan
er að dansa! Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhús, Tryggvagötu 17
Kl. 12:00 – 23:00
Black Yoga Screaming Chamber
Kassi sem hægt er að stíga inn í og
öskra – eins lengi og þú vilt. Skrifaðu
niður netfang og þú getur fengið
öskrið sent til þín. Listasafn Reykja-
víkur, Hafnarhús, Tryggvagötu 17
Kl. 16:00 – 20:00
Lúðurhljómur í skókassa
– Gjörningar Magnúsar Pálssonar
1980 – 2013
Starfsmenn safnsins ganga um
sýninguna og spjalla við gesti og
gangandi. Einstakt tækifæri fyrir
fjölskylduna að fræðast um listaverk
Magnúsar. Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhús, Tryggvagötu 17
Kl. 16:00 – 20:00
Huginn Þór Arason og
Andrea Maack – Kaflaskipti
Starfsmenn safnsins ganga um
sýninguna og spjalla við gesti og
gangandi. Einstakt tækifæri fyrir
fjölskylduna að fræðast um
sýningu Hugins og Andreu.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús,
Tryggvagötu 17
Borgarbókasafn
Kl. 13:00 – 15:00
Brosbókin
Útgáfu barnabókarinnar Brosbókin
verður fagnað og opnuð sýning á
myndum og texta úr bókinni eftir Jónu
Valgerði Árnadóttur og Elsu Nielsen.
Upplestur, föndur og fleira. Borgar-
bókasafn, Tryggvagötu 15, 1. hæð
Kl. 13:00 – 22:00
Leitin að týnda brosinu
Brosleit fyrir alla fjölskylduna. Bros
eru falin á ýmsum stöðum í Borgar-
bókasafni. Gestir geta leitað að þeim
á milli bóka, á veggjum eða annars
staðar. Nokkrir heppnir þátttakendur
fá glaðning. Borgarbókasafn,
Tryggvagötu 15
Kl. 17:00 – 18:00
Látum brosið ganga. Opinn
hljóðnemi fyrir 2 – 100+ ára
Kanntu brandara, skemmtilega sögu,
hefurðu lent í einhverju fyndnu eða
langar til að segja eitthvað sem
getur kveikt bros eða hlátur? Fólk á
aldrinum tveggja til hundrað+ er hvatt
til að láta ljós sitt skína. Hljóðneminn
bíður eftir skemmtilegheitunum sem
verða að vera örstutt svo allir komist
að. María Pálsdóttir leikkona stýrir.
Borgarbókasafn, Tryggvagötu 15,
1. hæð
Kl. 17:30 – 19:00
Brossmiðja
Búðu til bros til að skella upp við öll
tækifæri. Fyrir börn og fjölskyldur.
Leiðbeinandi er Kristín Arngrímsdóttir
myndlistarmaður. Borgarbókasafn,
Tryggvagötu 15, 1. hæð
Kaffi Gæs
Kl. 13:00 – 23:00
Kompudagur
Komdu og skoðaðu allskonar gamlar
og nýjar gersemar, listaverk,
handverk, föt, skó og húsgögn svo
eitthvað sé nefnt. Kaffi GÆS,
Tjarnarbíói, Tjarnargötu 12
Kl. 13:00 – 23:00
Spádómsþrykk og bollamyndir
Halla Óskarsdóttir sýnir þrykkmyndir
unnar með ætingu. Kaffibollar voru
undirbúnir fyrir spádómslestur eftir
kúnstarinnar reglum sem að lokum
var þrykkt á blað ásamt myndinni
af bollanum. Kaffi GÆS, Tjarnarbíói,
Tjarnargötu 12
Kl. 17:00 – 18:30
Söngfuglarnir
Edgar Smári og Jana María flytja
falleg lög og hugljúfar dægurperlur
eins og þeim einum er lagið.
Kaffi GÆS, Tjarnarbíói,
Tjarnargötu 12
Kl. 13:00 – 17:00
Götuveisla
Gistihúsaeigendur, íbúar og verslunar-
eigendur bjóða upp á götuveislu með
vöfflukaffi og tónlist. Ránargötu 1-16
Kl. 13:00 – 18:00
Opið hús á Borgarskjalasafni
Að þessu sinni tengist þemað börnum
og foreldrum þeirra. Sýning verður
um börn í borg, einföld getraun og
börnum boðið upp á að föndra og lita,
meðal annars að gera grímur.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15, 3. hæð
Kl. 13:00 – 13:30 og
kl. 14:00-14:30
Söngvasyrpa Leikhópsins Lottu
Leikhópurinn Lotta er þekktur fyrir
utandyra fjölskylduleiksýningar sínar.
Söngvasyrpan er brot af því besta
í gegnum árin og koma margar
skemmtilegar persónur í heimsókn.
Grjótatorg, Vesturgötu 5b
Kl. 13:00 – 20:00
Tears children´s charity
Flutt verður tónlist frá Kenýa,
trommusláttur og ástarsöngvar þar
sem gleðin ræður ríkjum og fagrir
listmunir frá Kenýa fanga augað.
Lækjartorgi
Kl. 14:00 – 22:00
Hamrað meðan heitt er
Það lifir enn í gömlum glæðum.
Eldsmiðir blása nýju lífi í þessa gömlu
list og loftið mun sindra þessa nótt.
Á horni Vesturgötu og Aðalstrætis 7
Kl. 14:00 – 18:00
Norður heimskautið aðgengilegt
Fallegar myndir sem sýna fjölbreyti-
leikann á hinu einstaka heimskauta-
svæði Kanada. Hallveigarstaðir,
anddyri, Túngötu 14, 1.hæð
Sendiskrifstofa Færeyja
Kl. 14:00 – 18:00
Silja Strøm
Einstök færeysk listakona sem
opnar okkur ævintýraheim í verkum
sínum, sannkölluð draumaveröld
þar sem menn og dýr eru í fyrirrúmi.
Sendiskrifstofa Færeyja, Túngötu 14
(jarðhæð)
Kl. 14:30 – 15:00
Stanley Samuelsen
Stanley spilar hugljúf lög, en hann er
einn fremsti kassagítarleikari Færeyja.
Sendiskrifstofa Færeyja, Túngötu 14
(jarðhæð)
Hitt húsið
Kl. 14:00 – 14:20
Götuleikhúsið
Götuleikhúsið gefur litunum meira líf!
Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5
Kl. 14:20 – 14:40
Spunahljómsveitin Sagitaria Raga
Spunahljómsveitin Sagitaria Raga
leikur frjálsa spunatónlist. Hópurinn
hefur í sumar einblínt á kosti og galla
spunatónlistar og ferðast um ókort-
lagðar slóðir í tónlistarsköpun sinni.
Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5
Kl. 14:00 – 17:00
Ritsveinninn réttsýni sýnir eigin
ritverk
Götulistahópurinn Operation Creed
vinnur að tveimur ólíkum krítarverkum
fyrir utan Hitt Húsið. Verkin eru byggð
á rannsókn hópsins á primitivískri list-
gerð, en fléttað verður saman stílum
úr mismunandi menningarheimum
svo úr verður eþnískur hrærigrautur.
Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5
Kl. 14:00 – 17:00
Gallerí Tukt
Sýning á teikningum og málverkum
eftir Sockface, unga konu á einhverfu-
rófi. Lög af plötu hennar, Rat Manicure.
Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5