Morgunblaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 11
Kl. 13:00 – 14:00 Blúshátíð Reykjavíkur Upptaktur verður sleginn fyrir næstu Blúshátíð. Harpa, Hörpuplan, Austurbakka 2 Kl. 14:00 – 21:00 Mýrin – alþjóðleg barnabók- menntahátíð í Reykjavík Úti í mýri er alþjóðleg barna- og unglingabókmenntahátíð í Reykjavík. Fjölbreyttir viðburðir fyrir áhugamenn, fagfólk, börn og fullorðna. Harpa, við 12 Tóna, Austurbakka 2 Kl. 14:00 – 14:30 Riff Kvikmyndahátíðin RIFF býður upp á úrval íslenskra stuttmynda, þar á meðal Child Eater e. Erling Óttar Thoroddsen og Yfir horfinn veg e. Andra Frey Ríkharðsson sem hlutu sérstaka viðurkenningu á hátíðinni 2012. Harpa, Kaldalón, Austurbakka 2 Kl. 15:00 – 16:00 og kl. 17:00 – 18:00 Bókmenntaborgin í Reykjavík – Ofurlítil dugga Bókmenntaborgin Reykjavík býður krökkum og fjölskyldum þeirra í hressilega skáldasiglingu á bátnum Lunda með systkinunum Sigrúnu og Þórarni Eldjárn. Smábátahöfnin við Hörpu, Austurbakka Kl. 17:00 – 18:00 og kl. 19:00 – 20:00 Bókmenntaborgin í Reykjavík – Ljóðasigling Skáldin Sigurbjörg Þrastardóttir og Sigurður Pálsson verða í brúnni á bátnum Lunda á stuttri siglingu um Sundin. Þau munu flytja farþegum eigin ljóð og annarra sem snerta bókmenntaborgina Reykjavík og hafið. Smábátahöfnin við Hörpu, Austurbakka Kl. 15:00 – 16:00 Myrkir músíkdagar Hátíðardagskrá Myrkra músíkdaga kynnt. Flytjendur eru Tinna Þorsteins- dóttir, píanóleikari og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, messósópran. Auk þess eru flutt rafverk eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Harpa, Kaldalón, Austurbakka 2 Kl. 16:00 – 16:30 Riff Kvikmyndahátíðin RIFF býður upp á úrval íslenskra stuttmynda, þar á meðal Ástarsaga e. Ásu Helgu Hjörleifsdóttur og Dag eða tvo e. Hlyn Pálmason sem hlutu sérstaka viðurkenningu á hátíðinni 2012. Harpa ,Kaldalón, Austurbakka 2 Kl. 16:00 – 17:00 og kl. 17:00 – 18:00 Lókal – alþjóðleg leiklistarhátíð Alþjóðlega leiklistarhátíðin Lókal sýnir brot úr fjórum nýjum verkum sem sýnd verða á hátíðinni í ár sem haldin verður 28. ágúst – 1. september. Harpa ,Ríma, Austurbakka 2 Kl. 16:00 – 18:00 Airwaves Nokkrar hljómsveitir sem komið hafa fram á Airwaves hátíðinni stíga á svið. Harpa, Silfurberg, Austurbakka 2 Bakkastígshátíð Kl. 14:00 – 19:00 Bakkastígshátíð Tónlistaratriði, listsýning, rakvélasafn og eldsmiður að störfum þar sem vélsmiðja var áður starfrækt í kringum 1950. Hugljúf gleði á Bakkastíg frameftir degi. Á mótum Bakkastígs og Vesturgötu Kl. 14:00 – 22:00 Með hverju rökuðu menn sig hér á árum áður? Raksköfur, rafmagnsvélar, rakhnífar og fylgihlutir sem Hörður Þórarinsson hóf að safna fyrir 30 árum til sýnis í heild sinni í fyrsta skipti. Beitt rakvéla- safn á Vesturgötunni. Rakarastofa Ragnars og Harðar, Vesturgötu 48 Kl. 14:00 – 22:00 Listsýning í Kotinu Listafólkið Hildur Harðardóttir, Óskar A. Hilmarsson, Kjartan Kjartansson og Davíð Örn Óskarsson sýna þæfð verk og myndir í Kotinu á Bakkastíg. Í Kotinu á Bakkastíg, á mótum Bakkastígs og Vesturgötu Kl. 14:00 – 22:00 Tvær sardínur á palli Dos Sardinas leikur létt og skemmtileg lög í eldri kantinum á sinn einstaka hátt. Á mótum Bakkastígs og Vesturgötu Kl. 15:45 – 15:05 Skátakórinn á góðri stund Skátakórinn þekkja margir af einskærri gleði og léttleika sem hann einkennir. Kórinn tekur nokkur vel valin lög og hver veit nema þar leynist einhver skátalög. Á mótum Bakkastígs og Vesturgötu Kl. 17:15 – 17:35 ÍTRíó í Ríó Á meðan meðlimir ÍTRíó eru ekki að sinna öðrum verkum á Menningarnótt þá flytja þeir hér nokkur af sínum best æfðu lögum á Bakkastígshátíð. Á mótum Bakkastígs og Vesturgötu Kl. 18:00 – 18:20 Baldursbandið Baldursbandið er gjarnan þekkt fyrir sína jözzuðu tóna. Hér taka þeir nokkra gamla slagara eins og þeir gerast bestir. Fly me to the moon… Á mótum Bakkastígs og Vesturgötu Kl. 18:45 – 19:00 Dos Sardinas Dos Sardinas setur skemmtilegan lokahnykk á Bakkastígshátíðina með nokkrum laufléttum tónum. Rakvéla- safnið og listsýningin verða þó opin frameftir kvöldi. Á mótum Bakkastígs og Vesturgötu Kl. 14:00 – 22:00 Kertaljósashow Kertastjakar í öllum útfærslum. Háir, lágir, langir, mjóir, samvaxnir, spengi- legir, hvítir, bláir, röndóttir og köflóttir eftir ýmsa listamenn. Geirsgötu 5A Kl. 14:00 – 23:00 Járnbraut 2013 Járnbrautin verður stútfull af tónlist, myndlist, mat og drykk á Menningar- nótt. Hljómsveitir hússins spila ásamt vel völdum gestum. Allir velkomnir! Járnbraut - Skapandi Vettvangur, Hólmaslóð 2 Kl. 14:00 – 16:00 Tangó frá höfn og heim í garð Tangófélagið dansar tangó í gegnum miðbæ Reykjavíkur. Ferðalagið hefst við höfnina, Slippbarinn og eitt spor eltir annað í gegnum Þingholtin. Slippbarinn, Mýrargötu 2 Kl. 14:00 – 19:00 Leir smiðja – sjávardýr og furðuverur Allir hjartanlega velkomnir í föndur- smiðju á Vinnustofu 31. Gestum og gangandi er boðið að koma og leira sjávardýr og furðuverur. Vinnustofa 31, Grandagarði 31 Kl. 14:30 – 15:00 Meistari Jakob, sönghópur Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi Meistari Jakob flytur nokkur lög af sinni tæru snilld. Vinnustofa Siggu Heimis, Grandagarði Kl. 16:00 – 17:00 Blús á Café Haití Blússveit Þollýjar leikur kröftugan ryþmablús í bland við hugljúfari melódíur fyrir gesti og gangandi. Café Haití, Geirsgötu 7b Kl. 17:00 – 21:20 Heimstónlist og hamingja Eldstöðin Tryggvagötu fagnar Menningarnótt með kraumandi tónlistardagskrá og litríkum straumum utan úr heimi. Söngur, trumbusláttur, píanó, brass, strengir og fleira funheitt og skemmtilegt. Eldstöðin, Hafnarhvoli, Tryggvagötu 11 Kl. 18:00 – 22:00 IIIF kynnir SERIE N°1 REINDEER IIIF hönnunarteymið frumsýnir sýna fyrstu vörulínu, en að þessu sinni vinna þau með hreindýraafurðir og austfirskum framleiðendum. Alliance française, Tryggvagötu 8 Kl. 20:00 – 23:00 Vinnslan #6 Vinnslan er suðupottur grasrótarlista- manna af öllum toga. Komdu og njóttu lista og menningar á gömlu Reykja- víkurbryggjunni, í hvalaskoðunarbát og í gömlu verbúðunum. Grænu verbúðirnar, Geirsgötu 7. Friend in Iceland, Café Haití, Sægreifinn, útiport og hvalaskoðunarbátur við bryggjuna, Grandagarði 8 23:00-23:10 Eldar – Flugeldasýning Hrífandi flugeldasýning í lok kvöldsins. Í sýningunni Eldar gefst gestum tæki- færi á að hvíla hugann, njóta dansandi flugelda og finna fegurð og kraft Reykjavíkur umlykja sig sem og aðra gesti Menningarnætur. Arnarhóll Kvosin Kl. 10:00 – 22:00 Hannað í tré Lára Gunnarsdóttir sýnir handgerðar skálar úr birki og lerki. Handverk og hönnun, Aðalstræti 10, 2. hæð Kl. 11:00 – 22:00 Happdrætti – Vinningur: Leyndarmál Allir geta lagt símanúmerið sitt í pott- inn sem dregið verður úr daginn eftir. Kostar ekkert að vera með. Kogga keramikgallerí & studio, Vesturgötu 5 Kl. 11:00 – 20:00 Húlla húlla frjáls aðferð Kl. 14 og 16 er tónlist og húlla mjaðmasveiflusalsa fyrir þá sem þora. Verðlaun fyrir þann sem getur haldið hringnum lengst á lofti meðan eitt lag er spilað. Kirsuberjatréð, Vesturgötu 4 Kl. 11:00 – 22:00 Orb Collection – Á leið til Bretlands Ella Rósinkrans sýnir veggskúlptúra og stórar ávaxtaskálar. Eldri verk og listaverkaunnendur ákveða verð á verkunum. Léttar veitingar og lifandi tónlist. Center Hotel Plaza, Aðalstræti 4 Landsbankinn Húsið er opið frá kl. 11:45 – 18:00 Felix Bergsson kynnir dagskrá Kl. 12:00, kl. 13:00 og kl. 14:00 Listaverkaganga Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur leiðir listaverkagöngu um gamla bankahúsið í Austurstræti og fræðir um listaverk í eigu Landsbankans. Landsbankinn, Austurstræti 11 Kl. 15:00 – 15:30 Leikhópurinn Lotta Söngvasyrpa með brotum af því besta úr öllum sýningum Leikhópsins Lottu. Landsbankinn, Austurstræti 11 Kl. 15:30 – 16:15 Nótan – tónlistarskólar gefa tóninn Valin atriði frá Nótunni, uppskeruhátíð tónlistarskólanna 2013. Slagverks- hópur frá Tónlistarskóla Árnesinga, fiðlu- og píanóleikur frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík, samspilshópur frá Tónlistarskóla FÍH og einsöngur frá Söngskólanum í Reykjavík. Landsbankinn, Austurstræti 11 Kl. 16:15 – 16:45 Freyr Eyjólfsson Skemmtikrafturinn og útvarps- maðurinn Freyr Eyjólfsson verður með uppistand og tekur lagið eins og honum er einum lagið. Landsbankinn, Austurstræti 11 Kl. 16:45 – 17:30 Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson úr Hjaltalín Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson úr hljómsveitinni Hjaltalín flytja hugljúfa tóna fyrir gesti. Landsbankinn, Austurstræti 11 Kl. 12:00 – 14:00 Kaffiristun Te & Kaffi býður gestum og gangandi að koma á kaffihúsið í Aðalstræti að fylgjast með ristun kaffibauna. Tveir brennslumeistarar, Stefán og Dóri verða á staðnum til að fræða fólk um ferli kaffibaunarinnar frá tínslu til ristunar og þaðan í bollann þinn. Te & Kaffi, Aðalstræti 9 Iðnó Kl. 12:00 – 17:00 Sirkus Íslands – sirkusfjör í Iðnó Sirkusskólinn verður á svæðinu og aldrei að vita nema þú hittir fyrir stultufólk. Sirkussýningar kl. 13.00, 14.30 og 16.00. Iðnó, Vonarstræti 3 Kl. 14:00 – 16:00 Testofa í Iðnó Tefélagið býður gestum að setjast niður í erli dagsins og smakka oolong te, hvítt -, grænt - og svart te. Iðnó 3. hæð, Vonarstræti 3 Kl. 14:00 – 16:00 Hvað er ósnortin náttúra? – Heimspekikaffihús Í Heimspekikaffihúsinu er tekist á við stóru spurningarnar. Svör finnast þegar margir koma saman og virða reglur rökræðunnar. Iðnó, 2. hæð, Vonarstræti 3 Kl. 16:00 – 21:00 Bridge gerir lífið skemmtilegra Bridgesamband Íslands verður með Bridge spilamennsku á 4-5 borðum. Allir velkomnir til að taka þátt og grípa í spil, jafnt ungir sem aldnir, byrjendur og lengra komnir. Iðnó, 2. hæð, Vonarstræti 3 Kl. 18:00 – 18:45 Dillandi djarfur djass og blús Blúsinn og djassinn ráða hér ríkjum og mun tónlistarkonan Brynhildur Oddsdóttir syngja og spila eigið efni í bland við einstaka ábreiður ásamt fullskipaðri hljómsveit. Iðnó, Vonarstræti 3 Kl. 19:30 – 20:40 Fögur er jörðin Flutt verða 10-15 lög samin af Óskari Guðnasyni við ljóð úr ljóðabókinni Bréf til næturinnar eftir Kristínu Jónsdóttur. Bókin er metsöluljóðabók á Íslandi og eru ljóðin opinská og einlæg með sterk tengsl við íslenska náttúru. Iðnó, Vonarstræti 3 Kl. 21:00 – 22:30 Edda Borg Music Project Tónlistarkonan Edda Borg sýnir á sér nýja hlið og leikur tónlist af sínum fyrsta sólógeisladiski með framúrskarandi hljómsveit. Iðnó, Vonarstræti 3 Ráðhús Kl. 13:00 – 13:40 Hljómsveitin 4 1/2 Hljómsveitin 4 1/2 er skipuð fimm ungum drengjum úr Árbænum sem flytja frumsamin lög auk nokkurra erlendra ábreiða. Ráðhúsið, Tjarnargötu 11 Kl. 14:00 – 14:30 Múfasa makeover Andri Már Magnason og Atli Jasonar- son eru eldhressir nýstúdentar og rapparar sem flytja frumsamin lög fyrir alla þá sem vilja ljá þeim eyra. Ráðhúsið, Tjarnargötu 11 Kl. 14:40 – 14:47 Magadans madness Magadansarar taka trylltan en fágaðan dans sem allir geta notið og þú mátt hrista rassinn með okkur. Ráðhúsið, Tjarnargötu 11 Kl. 15:00 – 15:40 Snorri Helgason Tónlistarmaðurinn góðkunni Snorri Helgason tekur nokkur lög. Ráðhúsið, Tjarnargötu 11 Kl. 16:00 – 16:40 Meistarar Dauðans Hljómsveitin Meistarar Dauðans samanstendur af kornungum strákum. Þeir unnu Tónabær rokkar og Tónsköpunarverðlaun menningar- hátíðar og nú verður Ráðhúsið rokkað í sundur. Ráðhúsið, Tjarnargötu 11 Kl. 18:00 – 18:40 Alan Jones Brot af því besta úr sýningu sem verður í Hörpu í september, Alan Jones and the MJ Experience. Ráðhúsið, Tjarnargötu 11 Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsið Kl. 12:00 – 13:00 Lunch Beat - Hádegistaktur Reykjavík Dance Festival býður upp á Lunch Beat í hinu magnaða umhverfi Hafnarhússins. Eina reglan er að dansa! Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús, Tryggvagötu 17 Kl. 12:00 – 23:00 Black Yoga Screaming Chamber Kassi sem hægt er að stíga inn í og öskra – eins lengi og þú vilt. Skrifaðu niður netfang og þú getur fengið öskrið sent til þín. Listasafn Reykja- víkur, Hafnarhús, Tryggvagötu 17 Kl. 16:00 – 20:00 Lúðurhljómur í skókassa – Gjörningar Magnúsar Pálssonar 1980 – 2013 Starfsmenn safnsins ganga um sýninguna og spjalla við gesti og gangandi. Einstakt tækifæri fyrir fjölskylduna að fræðast um listaverk Magnúsar. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús, Tryggvagötu 17 Kl. 16:00 – 20:00 Huginn Þór Arason og Andrea Maack – Kaflaskipti Starfsmenn safnsins ganga um sýninguna og spjalla við gesti og gangandi. Einstakt tækifæri fyrir fjölskylduna að fræðast um sýningu Hugins og Andreu. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús, Tryggvagötu 17 Borgarbókasafn Kl. 13:00 – 15:00 Brosbókin Útgáfu barnabókarinnar Brosbókin verður fagnað og opnuð sýning á myndum og texta úr bókinni eftir Jónu Valgerði Árnadóttur og Elsu Nielsen. Upplestur, föndur og fleira. Borgar- bókasafn, Tryggvagötu 15, 1. hæð Kl. 13:00 – 22:00 Leitin að týnda brosinu Brosleit fyrir alla fjölskylduna. Bros eru falin á ýmsum stöðum í Borgar- bókasafni. Gestir geta leitað að þeim á milli bóka, á veggjum eða annars staðar. Nokkrir heppnir þátttakendur fá glaðning. Borgarbókasafn, Tryggvagötu 15 Kl. 17:00 – 18:00 Látum brosið ganga. Opinn hljóðnemi fyrir 2 – 100+ ára Kanntu brandara, skemmtilega sögu, hefurðu lent í einhverju fyndnu eða langar til að segja eitthvað sem getur kveikt bros eða hlátur? Fólk á aldrinum tveggja til hundrað+ er hvatt til að láta ljós sitt skína. Hljóðneminn bíður eftir skemmtilegheitunum sem verða að vera örstutt svo allir komist að. María Pálsdóttir leikkona stýrir. Borgarbókasafn, Tryggvagötu 15, 1. hæð Kl. 17:30 – 19:00 Brossmiðja Búðu til bros til að skella upp við öll tækifæri. Fyrir börn og fjölskyldur. Leiðbeinandi er Kristín Arngrímsdóttir myndlistarmaður. Borgarbókasafn, Tryggvagötu 15, 1. hæð Kaffi Gæs Kl. 13:00 – 23:00 Kompudagur Komdu og skoðaðu allskonar gamlar og nýjar gersemar, listaverk, handverk, föt, skó og húsgögn svo eitthvað sé nefnt. Kaffi GÆS, Tjarnarbíói, Tjarnargötu 12 Kl. 13:00 – 23:00 Spádómsþrykk og bollamyndir Halla Óskarsdóttir sýnir þrykkmyndir unnar með ætingu. Kaffibollar voru undirbúnir fyrir spádómslestur eftir kúnstarinnar reglum sem að lokum var þrykkt á blað ásamt myndinni af bollanum. Kaffi GÆS, Tjarnarbíói, Tjarnargötu 12 Kl. 17:00 – 18:30 Söngfuglarnir Edgar Smári og Jana María flytja falleg lög og hugljúfar dægurperlur eins og þeim einum er lagið. Kaffi GÆS, Tjarnarbíói, Tjarnargötu 12 Kl. 13:00 – 17:00 Götuveisla Gistihúsaeigendur, íbúar og verslunar- eigendur bjóða upp á götuveislu með vöfflukaffi og tónlist. Ránargötu 1-16 Kl. 13:00 – 18:00 Opið hús á Borgarskjalasafni Að þessu sinni tengist þemað börnum og foreldrum þeirra. Sýning verður um börn í borg, einföld getraun og börnum boðið upp á að föndra og lita, meðal annars að gera grímur. Borgarskjalasafn Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 3. hæð Kl. 13:00 – 13:30 og kl. 14:00-14:30 Söngvasyrpa Leikhópsins Lottu Leikhópurinn Lotta er þekktur fyrir utandyra fjölskylduleiksýningar sínar. Söngvasyrpan er brot af því besta í gegnum árin og koma margar skemmtilegar persónur í heimsókn. Grjótatorg, Vesturgötu 5b Kl. 13:00 – 20:00 Tears children´s charity Flutt verður tónlist frá Kenýa, trommusláttur og ástarsöngvar þar sem gleðin ræður ríkjum og fagrir listmunir frá Kenýa fanga augað. Lækjartorgi Kl. 14:00 – 22:00 Hamrað meðan heitt er Það lifir enn í gömlum glæðum. Eldsmiðir blása nýju lífi í þessa gömlu list og loftið mun sindra þessa nótt. Á horni Vesturgötu og Aðalstrætis 7 Kl. 14:00 – 18:00 Norður heimskautið aðgengilegt Fallegar myndir sem sýna fjölbreyti- leikann á hinu einstaka heimskauta- svæði Kanada. Hallveigarstaðir, anddyri, Túngötu 14, 1.hæð Sendiskrifstofa Færeyja Kl. 14:00 – 18:00 Silja Strøm Einstök færeysk listakona sem opnar okkur ævintýraheim í verkum sínum, sannkölluð draumaveröld þar sem menn og dýr eru í fyrirrúmi. Sendiskrifstofa Færeyja, Túngötu 14 (jarðhæð) Kl. 14:30 – 15:00 Stanley Samuelsen Stanley spilar hugljúf lög, en hann er einn fremsti kassagítarleikari Færeyja. Sendiskrifstofa Færeyja, Túngötu 14 (jarðhæð) Hitt húsið Kl. 14:00 – 14:20 Götuleikhúsið Götuleikhúsið gefur litunum meira líf! Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5 Kl. 14:20 – 14:40 Spunahljómsveitin Sagitaria Raga Spunahljómsveitin Sagitaria Raga leikur frjálsa spunatónlist. Hópurinn hefur í sumar einblínt á kosti og galla spunatónlistar og ferðast um ókort- lagðar slóðir í tónlistarsköpun sinni. Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5 Kl. 14:00 – 17:00 Ritsveinninn réttsýni sýnir eigin ritverk Götulistahópurinn Operation Creed vinnur að tveimur ólíkum krítarverkum fyrir utan Hitt Húsið. Verkin eru byggð á rannsókn hópsins á primitivískri list- gerð, en fléttað verður saman stílum úr mismunandi menningarheimum svo úr verður eþnískur hrærigrautur. Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5 Kl. 14:00 – 17:00 Gallerí Tukt Sýning á teikningum og málverkum eftir Sockface, unga konu á einhverfu- rófi. Lög af plötu hennar, Rat Manicure. Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.