Morgunblaðið - 22.08.2013, Síða 12
Kl. 14:45 – 15:05
Sviðslistahópurinn SUS
Sviðslistahópurinn SUS sýnir ævintýrið
Hjartalausi risinn, í nýjum búningi
með frumsaminni tónlist. Hitt húsið,
Pósthússtræti 3-5
Kl. 15:10 – 15:30
Trommuhringur Slagverks
Listhópurinn Slagverk trommar í
hringi. Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5
Kl. 15:35 – 15:55
Stringolin
Stringolin fiðluleikari leikur þekkt
verk frá klassíska tímabilinu ásamt
vinsælustu útvarpslögum sumarsins.
Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5
Kl. 16:00 – 16:15
Sviðslistahópurinn SUS
Sviðslistahópurinn SUS býður
gangandi vegfarendum að velja
sér mínútulangan menningarbút
af Menningarmatseðli. Hitt húsið,
Pósthússtræti 3-5
Kl. 16:20 – 16:40
Listhópurinn Tómamengi
Listhópurinn Tómamengi frumsýnir
videoverk fyrir framan gömlu
lögreglustöðina í Pósthússtræti.
Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5
Kl. 16:40 – 17:00
Hljómsveitin Kasia
Hljómsveitin Kasia samanstendur af
þremur ungum tónlistarkonum sem
hafa í sumar, glætt borgina lífi með
tónlist eftir konur. Þær flytja eigin
útsetningar á fjölbreyttri tónlist eftir
hin ýmsu kventónskáld. Hitt húsið,
Pósthússtræti 3-5
Kl. 14:00 – 16:00
Menningarsetur Muck
Hljómsveitin Muck býður gestum
og gangandi að skyggnast inn í líf
og sögu íslenskrar jaðarrokksveitar.
Aðalstrætið, Aðalstræti 7
Kl. 14:00 – 19:00
Garðpartí Hressingarskálans
á Menningarnótt
Hressingarskálinn verður með 6
hljómsveitir í garðinum sem spila
fagra tóna fyrir gesti, hljómsveitirnar
eru: Dorian Gray, Blær, Solar, Scarlet,
Sister Sister, Ramses rappari og
Dukagjin. Hressingarskálinn,
Austurstræti 20
Kl. 14:00 – 20:00
Myndlistarsýning
ásamt prjónavörum
Nýjung í myndlist eftir Glósu.
Myndirnar eru handgerðar úr eggja-
skurn, frá íslenskum Landnáms-
hænum. Einnig verða handprjónaðar
lopavörur frá HSS handverk.
Gullsmiðja Óla, Veltusund 1 v/Ingólfs-
torg í húsi Einars Ben (kjallara)
Kl. 14:00 – 20:00
Lame Dudes og vinir djamma við
Thorvaldsen bar
Hljómsveitin Lame Dudes stendur fyrir
fjölbreyttri tónlistardagskrá ásamt
fjölda annarra listamanna og leika
töfrandi tóna sem munu óma yfir
Austurvöll. Thorvaldsen, við Austurvöll
Kl. 14:00 – 22:00
Yfirgefin list
Félagar í Félagi frístundamálara gefa
myndlist. Málverk eru falin á ýmsum
stöðum í miðbænum og sá á fund
sem finnur. Víðsvegar um miðbæinn
Kl. 14:00 – 16:00
Sjóðheit og suðræn salsasveifla
Dansarar frá Salsa Iceland hita torgið
upp með trylltum salsadansi ásamt
því að kenna gestum og gangandi
byrjendasporin í salsa. Lækjartorg,
fyrir framan Héraðsdóm Reykjavíkur
Kl. 14:00 – 17:00
Fornleifadagur fjölskyldunnar
Á Landnámssýningunni gefst færi á
að kynnast hinum spennandi heimi
fornleifafræðinnar, m.a. með
fornleifauppgreftri fyrir krakka
og dýrabeinarannsóknum.
Landnámssýningin, Aðalstræti 16
Kl. 14:00 – 22:00
Sjávarfang og Lifandi þrykk
Þrykkjarar á verkstæði félagsins
þrykkja með ýmsum aðferðum.
Rafætingar á veggjum og stuð. Í sal
er sýning Ástu Guðmundsdóttur,
Sjávarfang. Íslensk grafík - Sýningar-
salur og verkstæði, Tryggvagata 17,
Hafnarhúsið hafnarmegin
Kl. 14:00 – 18:00
Fjármálagjörningar heimilanna
Hagsmunasamtök heimilanna
sviðsetja fjármálagjörninga. Lifandi
tónlist, andlitsmálning, töfrabrögð,
verðtrygging og afskriftir. Veitingar
fullnaðarkvittana og smökkun
skuldasúpu fyrir hugrakka. Skráning
á staðnum. Biðstöð almennings-
samgangna, Lækjartorgi
Kl. 15:00 – 20:00
Plasthafið
Ungir umhverfissinnar fræða
almenning um alvarlega og vaxandi
plastmengun í hafinu, leiðir til að
sporna við henni og mikilvægi endur-
vinnslu. Grjótatorg, Vesturgata 5b
Kl. 15:00 – 17:00
Góðgerðarakstur HOG Chapter
Iceland
HOG býður upp á akstur kringum
Tjörnina til heiðurs UMHYGGJU
kl. 14.30. Við Alþingishúsið,
Austurvelli
Kl. 16:00 – 18:00 og
kl. 19:00 – 21:00
Andi Sókratesar svífur
yfir Reykjavík
Véfréttin boðar komu gríska
heimspekingsins Sophiu sem tjalda
mun í hjarta Reykjavíkurborgar og
bjóða Íslendingum upp á heimspeki-
legar samræður í anda Sókratesar.
Stéttin við Vesturgötu 5
Kl. 16:00 – 21:00
Myndlist úr þremur heimshornum
Myndlist þriggja listamanna frá
þremur löndum bregður birtu á
fjölbreytileika og sköpunargleði sem
endurspeglar mannlífið og litróf ólíkra
en sammannlegra sjónarhorna á lífið
og tilveruna. Hafnarloftið/HarbourLoft,
Lækjartorg 5, 4.hæð
Kl. 16:30 – 18:30
Pauline syngur swing
50’s Swing & Big Band Pauline
McCarthy, flytur lög eftir Frank
Sinatra, Shirley Bassey, Dean Martin
o.fl. Verslunin Kvosin Café,
Aðalstræti 6-8
Kl. 17:00 – 17:30
Raulað úr ræmum
Hinn stórgóði og vinsæli kór
Söngfjelagið Góðir grannar mun flytja
kvikmyndatónlist og önnur lög í
bland, sér og öðrum til yndisauka.
Við Grófarhúsið, Tryggvagötu 15
Kl. 17:00 – 17:45
Norræn síðsumur
Söngvar um norræn sumur, um
náttúru og fegurð, um ást og
rómantík verða fluttir af Ursus
Kammarkór frá Stokkhólmi.
Dómkirkjan, Lækjargötu 14a
Kl. 17:00 – 23:00
Uppskeruhátíð F.Í.R.
á Menningarnótt
Plötusnúðar F.Í.R. spila undir dansi
og kynna sín nýju lög. Einnig mun
eldlistamaðurinn Inferno leika listir
sínar. Kaffi Zimsen, Hafnarstræti 18
Kl. 18:00 – 19:00
Svæsið og rómantískt
Gönguferðin Tilhugalíf í borginni,
þátttakendur leiddir um stefnumóta-
og næturlífsfrumskóg Reykjavíkur-
borgar. Sannar sögur þó sumar
lygilegar! Gangan hefst við veitinga-
staðinn UNO, Hafnarstræti 1-3
Kl. 18:15 – 19:00
Kórgleði í garði
Frænkukórinn Fjörðurnar syngur fyrir
gesti og hvetur til samsöngs, gleði og
gamans. Garðurinn Hólatorgi 4
Kl. 19:30 – 20:30
Tunglskinsnótt við hafnarbakkann
Tónleikar tileinkaðir Tómasi
Guðmundssyni þar sem Una Dóra
Þorbjörnsdóttir, Margrét Hannesdóttir
og Sigurður Helgi Oddsson flytja lög
við texta skáldsins. Dómkirkjan
í Reykjavík, Lækjargötu 14a
Kl. 20:00 – 22:30
Útitónleikar Bylgjunnar
Fram koma Dikta, Á móti sól,
Björgvin Halldórsson og Stuðmenn.
HljóðX sviðið á Ingólfstorgi
Vatnsmýrin
Þjóðminjasafn Íslands
Kl. 11:00 – 12:00
Leiðsögn á ensku
Leiðsögn um grunnsýningu
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til.
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41
Kl. 13:00 – 15:00
Á vit minninganna
Sérfræðingar í minningavinnu taka á
móti gestum á öllum aldri í minninga-
herbergi Þjóðminjasafnsins. Spjallað
um minningar gesta. Þjóðminjasafn
Íslands, Minningarherbergi,
Suðurgötu 41
Kl. 14:00 – 15:00
Furður úr fortíð - Barnaleiðsögn
í Þjóðminjasafninu
Barnaleiðsögn um Þjóðminjasafnið
þar sem skoðaðir verða ýmsir for-
vitnilegir gripir úr fortíðinni, til dæmis
eldgamlar beinagrindur, álfapottur
og dularfullar rúnir. Þjóðminjasafn
Íslands, Suðurgötu 41
Kl. 14:00 – 15:00
Sigfús Eymundsson myndasmiður
- Frumkvöðull íslenskrar
ljósmyndunar
Leiðsögn Ívars Brynjólfssonar um
sýningu á ljósmyndum Sigfúsar
Eymundssonar, frumkvöðuls
ljósmyndunar á Íslandi. Þjóðminjasafn
Íslands, Myndasalur, Suðurgötu 41
Kl. 15:00 – 16:00 og
kl. 16:00 – 17:00
Raddir fortíðar
Raddir fortíðar er lifandi leiðsögn
á íslensku um Þjóðminjasafnið þar
sem landnámsfólk, munkar og fleiri
persónur lifna við. Þjóðminjasafn
Íslands, Suðurgötu 41
Kl. 18:00 – 19:00
Sigfús Eymundsson myndasmiður
- Frumkvöðull íslenskrar
ljósmyndunar
Leiðsögn Ingu Láru Baldvinsdóttur
um sýningu á ljósmyndum Sigfúsar
Eymundssonar, frumkvöðuls
ljósmyndunar á Íslandi. Þjóðminjasafn
Íslands, Myndasalur, Suðurgötu 41
Kl. 19:30 – 20:30
Af jörðu - íslensk torfhús
Hjörleifur Stefánsson arkitekt fjallar
um bók sína Af jörðu-íslensk torfhús.
Torfhúsaarfurinn skoðaður út frá
nýjum sjónarhornum.
Þjóðminjasafn Íslands,
Fyrirlestrarsalur, Suðurgötu 41
Kl. 20:30 – 21:15
Léttir og leikandi jazztónar
Húsband Þjóðminjasafnsins leikur
jazz í anddyri Þjóðminjasafnsins.
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41
Kl. 12:00 – 16:00
Tryllt Talfjör
Tal verður með hoppukastala fyrir
börnin á túninu við Hljómaskála-
garðinn. Á túninu við Hljómskála-
garðinn, Sóleyjargata
Kl. 13:00 – 19:00
Endurminningar Hljómskálans
– Frá Lúðrum að Lýðræði
Samstarfsverkefni Berglindar Jónu
Hlynsdóttur myndlistarkonu og
Guðmundar Steins Gunnarssonar
tónskálds. Hljómskálinn fær orðið og
tjáir sig um sögu sína og framtíðar-
hugmyndir. Einnig verður frumflutt
nýtt tónverk byggt á Hljómskálanum.
Hljómskálinn, Sóleyjargata
Kl. 13:30 – 17:00
Skátafjör í Hljómskálagarði
Skátar í Reykjavík verða með skáta-
leiktæki og kynna vetrardagsskrá
sína. Hljómskálagarður
Kl. 15:00 – 19:00
C²
Myndverk og teikningar unnar í
sitthvoru horninu en sameinast
í efnivið sem dregur ólíka heima
myndlistar og grafík saman.
Hljómskálinn, Sóleyjargata
Kl. 18:00 – 19:00
Artwrite
Í Artwrite fjalla Andrea, Hörður og
Guðmundur Pétursson (gítar) af
fingrum fram um margfaldleika
þeirrar nærveru sem líkaminn býr yfir.
Norrænahúsið, Sturlugötu 5
Þingholtin
Listasafn Íslands
Kl. 14:00 – 14:50
Vinnustofuspjall – Guðfaðir
íslenskrar landslagslistar
Rakel Pétursdóttir fjallar um líf og
list Ásgríms Jónssonar. Safn Ásgríms
Jónssonar, Bergstaðastræti 74
Kl. 16:00 – 16:50
Seyðandi tónar
Duende í Listasafni Íslands. Flamenco
tónlist í flutningi gítarleikaranna
Símonar Helga Ívarssonar og Ívars
Símonarsonar. Listasafn Íslands,
salur 3, Fríkirkjuvegi 7
Kl. 17:00 – 17:40
Vinnustofuspjall – Memento mori
Sara Riel ræðir við gesti. Listasafn
Íslands, salur 1, Fríkirkjuvegi 7
Kl. 18:00 – 18:50
Art lab
Listsmiðja fyrir alla fjölskylduna.
Listasafn Íslands, vinnustofa barna,
Fríkirkjuvegi 7
Kl. 20:00 – 20:50
Söngfjelagið
Fjölbreyttur og lifandi kórsöngur.
Listasafn Íslands, salur 3,
Fríkirkjuvegi 7
Kl. 21:00 – 21:50
Tvö loftrör og slagharpa
Jón Guðmundsson og Berglind
Stefánsdóttir flautuleikarar ásamt
Arnhildi Valgarðsdóttur píanóleikara
munu fylla Listasafnið af tónum
Köhlers, Dopplerbræðra og meistara
CPE Bach. Listasafn Íslands, pallur,
Fríkirkjuvegi 7
Kl. 13:30 – 14:00
Meistari Jakob, sönghópur
Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi
Meistari Jakob flytur nokkur lög af
sinni tæru snilld. Ella, Ingólfsstræti 5
Kl. 14:00 – 15:00
Sendiherra Bandaríkjanna opnar
heimili sitt
Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi,
Luis E. Arreaga opnar á ný vistarverur
sínar á Menningarnótt. Sérstök sýning
til að minnast þess að 50 ár eru
liðin frá I Have a Dream ræðu Martin
Luther King ásamt Art in Embassies
sýningu sendiherrans. Sendiherra-
bústaðurinn, Laufásvegi 23
Kl. 14:00 – 16:00
Vöfflukaffi
Íbúar Þingholtanna bjóða gestum
og gangandi í vöfflur og kaffi á
eftirtöldum stöðum:
Ingólfsstræti 21a, Bjargarstíg 17,
Freyjugötu 28, Grettisgötu 35b,
Grundarstíg 4, 2h., Njarðargötu 9,
Óðinsgötu 8b, Þingholtsstræti 27,
3h, Hellusund 2, Ránargötu 1-16,
Laufásvegi 10.
Kl. 14:00 – 16:00
Garðveisla
Boðið verður upp á nýbakaðar vöfflur
og kaffi í garðinum. Einnig verður
flutt lifandi tónlist innan um verk
Þorbjargar Pálsdóttur myndhöggvara.
Ýmsir flytjendur, m.a. hljómsveitin
Útidúr. Í garðinum á Ingólfsstræti 21a
(bakhús)
Kl. 14:00 – 23:00
Elskum fólk til lífs
Líknarfélagið Spörvar Reykjavík
(UNITEDS REYKJAVÍK) kynnir starfs-
semi sína sem fyrst og fremst beinir
kröftum sínum til þeirra sem minna
mega sín í þjóðfélaginu. Við leggjum
áherslu á gleði, kærleika og vináttu
á þessum degi. Tónlistin er allt frá
danstónlist til gospel. Svið á horni
Skólavörðustígs og Laugavegs
Loft Hostel
Kl. 13:30 – 15:30
Í Tón og Mynd
Í Tón og og Mynd er lifandi viðburður
þar sem hægt er að upplifa samspil
tónlistar og kvikmynda. Loft Hostel,
Bankastræti 7
Kl. 16:00 – 16:30
Einar Lövdahl og Hjörðin
Einar Lövdahl leikur lög af nýútgefinni
plötu sinni, Tímar án ráða, ásamt
tónklíku sinni sem ber nafnið Hjörðin.
Loft Hostel, Bankastræti 7
Kl. 16:45 – 17:20
Það sést til Solar á Loft Hostel
Hljómsveitin Solar leikur frumsamda
popptónlist. Lög sveitarinnar eru
melódísk og grípandi, búa yfir
drungalegum keim en eru afslöppuð
á sama tíma.
Hljómsveitameðlimir hafa mikla
reynslu af hljóðfæraleik en þau eru öll
nemendur við tónlistarskóla FÍH.
Loft Hostel, Bankastræti 7
Kl. 17:30 - 18:00
Helga Ragnarsdóttir
Helga Ragnarsdóttir hefur starfað í
ýmsum kimum listalífsins í Reykjavík
og lagt stund á nám í tónlist og
japönsku. Hún flytur okkur nokkur
vel valin íslensk og japönsk lög.
Loft Hostel, Bankastræti 7
Kl. 18:15-18:45
Babies
Babies skipa átta manneskjur sem
hafa það sjálfskipaða markmið að
kveikja í lendum og hjörtum dans-
þyrstra einstaklinga í leit að hjartaró
og hamingju. Hljómsveitin hefur
hingað til verið þekkt fyrir einstaklega
vandaðar ábreiður af hinum ýmsu
slögurum en hefur undanfarið verið
að sækja í sig veðri með frumsamin
soulskotin lög sem gefa tökulögunum
ekkert eftir. Loft Hostel, Bankastræti 7
Kl. 19:00-20:00
Gull funk og bleiser
Húsband Loft Hostel, Gull funk og
bleiser troða upp með einstaka
blöndu af jazz, fönk og afrobeat með
smá dass af hiphop. Hljómsveitin
er skipuð einvalaliði tónlistarmanna
og þykir fullvíst að hún muni koma
gestum og gangandi í spariskapið.
Loft Hostel, Bankastræti 7
Kl. 14:00 – 15:30 og
kl. 16:00 – 17:30
Kántrískotin alþýðutónlist
Sveitasynir spila heimagerða lífrænt
ræktaða hljómbæra gleðitónlist og
kynna um leið disk sinn, Þá áttu líf.
Lækjarbrekka, Bankastræti 2 (portið)
Kl. 14:00 – 19:00
Gangið í bæinn
Gamla Bíó er opið og gestum boðið
að ganga um húsið og kynna sér
sögu þess ásamt því að skoða tillögur
að breytingu á húsinu fyrir framtíðar
áform. Gamla Bíó, Ingólfstræti 2
Kl. 14:00 – 18:00
Guðs barnið eitt ég er
Meðlimir og trúboðar Kirkju Jesú
Krists hinna síðari daga heilögu kynna
kirkjuna, svara spurningum og leyfa
börnum að föndra. Við Fríkirkjuveg 7
Kl. 14:00 – 20:00
Þrengir þægindahringurinn að þér?
JCI opnar húsið og kynnir
starfsemina. Boðið er upp á
fjölbreytt tónlistar- og skemmtiefni
eins og hljómsveitina Fox train safari,
ýmis konar örfyrirlestra og aðrar
uppákomur. JCI Ísland, Hellusundi 3
Kl. 15:00 – 17:00
Orkusprengja – Brasilíska
bardagalistin Capoeira
Capoeirafélagið á Íslandi kynnir
Capoeira. Brasilísk orkusprengja af
tónlist, dansi, bardagalist og mikilli
gleði. Allir geta tekið þátt.
Hallargarðurinn, Fríkirkjuvegi 11
Kl. 15:00 – 17:00
Harpa Árnadóttir – Milt regn
Harpa Árnadóttir opnar
myndlistasýningu sína í Slippnum.
Harpa flytur gjörning á opnun og
Sigríður Thorlacius söngkona flytur
jazzstandarda. Slippurinn,
hárgreiðslustofa, Skólavörðustíg 25a
Kl. 15:00 – 18:00
Jam Session með Dans Brynju
Péturs
Dans Brynju Péturs heldur danspartý.
Komdu og kynntu þér Street dans
á Íslandi en vetrarönnin hefst 9.
september. Taflborðið, Lækjarbrekku,
Bernhöftstorfa
Kl. 16:00 – 17:00
Tískusýning á Skólavörðustíg
Fögur fljóð frá Elite, flæða um strætin
íklædd fallegum klæðum og bera
glæsilegt skart og fylgihluti. Sjoppan
sér um að þessi fögru fljóð eru
vel greidd og strokin. Göngugata
Skólavörðustígs (neðri hluti)
Kl. 16:00 – 18:00
Þrasið 2013
Hér mætast stálin stinn í úrslitum
Þrassins, ræðukeppni í anda MORFÍS.
Nánari upplýsingar má nálgast á
Facebooksíðu keppninnar.Mæðra-
garðurinn, á horni Lækjargötu og
Bókhlöðustígs
Kl. 17:00 – 19:00
Frjálslegur ljóðlestur Fríyrkjunar í
Fríkirkjunni
Fríyrkjan er skáldskaparhópur ungs
fólks á Íslandi. Fyrsta ljóðabók
Fríyrkjunnar kemur út samhliða ljóða-
lestri sem þér er boðið til í Frí-
kirkjunni. Fríkirkjan, Fríkirkjuvegi 5
Kl. 17:00 – 22:00
Jarðhæð
Ljósmyndasýning þar sem Reykjavík
er skoðuð frá óvenjulegu sjónarhorni,
hvað er undir fótum þér. Íslenskur
ferðamarkaður ehf, upplýsinga-
miðstöð, Bankastræti 2
Kl. 17:17 – 17:30
Öðruvísi tískusýning
Vetrarlína GuSt verður kynnt á
óhefðbundinn hátt, dansandi, brosandi
gleði í Bankastrætinu. Fyrir utan
verslun GuSt, Bankastræti 11
Kl. 17:30 – 20:00
Atala útijóga
Endurnærandi kundalini-jóga fyrir
alla fjölskylduna undir berum himni.
Komdu og finndu orkuna sem býr
innra með þér. Hallargarðurinn,
Fríkirkjuvegi 11
Kl. 20:30 – 21:30
KSS fundur
KSS - Kristileg skólasamtök, félags-
skapur ungs fólks á aldrinum 15-20
ára heldur opna samverustund fyrir
alla aldurshópa. Tónlist, skemmtiatriði
og hugleiðing.Menntaskólinn í
Reykjavík (hátíðarsal), Lækjargata 7
Kl. 22:00 – 22:45
Stefnumót í Fríkirkjunni
Gunnar Gunnarsson og Ellen
Kristjánsdóttir flytja lög um ástina.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson les
texta um kærleika og samskipti.
Fríkirkjan, Fríkirkjuvegi 5
Goðahverfið
Kl. 12:00 – 18:00
Víkingar í vígahug
Víkingafélagið Einherjar slær upp
tjaldi, verður með ýmiskonar
víkingasprell. Kynning á félaginu og
starfsemi þess. Hallgrímstorgi 1
Kl. 12:00 – 18:00
Margbreytileiki á Óðinstorgi
Dans og tónlistaratriði, sýning
Heimilisiðnaðarsambandsins, föndur-
smiðja fyrir börnin og nágrannarnir
Frú Lauga og Snaps verða á svæðinu.
Óðinstorgi
Kl. 13:00 – 13:20
TANYA og Zumba Dívurnar
TANYA og Zumba Dívurnar frá HRESS
dansa eldheit Salsa, Swing og
Cumbia. Óðinstorg
Kl. 14:00 – 15:00
Reggae Sunsplash
Skinny T og afródansararnir, bræðing-
ur af reggae tónlist og afrískum
dönsum. Komdu og njóttu afrískrar
menningar. Óðinstorgi
Kl. 14:30 – 14:45
Les Ballet Barakan
Komdu og upplifðu sjóðheitt og tryllt
dans og trommu atriði frá Gíneu
V-Afríku, undir stjórn Mamady Sano.
Óðinstorgi
Kl. 16:30 – 17:00
Hljómsveitin Treisí
Orkuboltarnir í Treisí munu skjóta þér
upp í háloftin eins og þeim einum er
lagið með sínu popp/rokki. Óðinstorgi
Listasafn ASÍ
Kl. 13:00 – 17:00
Tilfærslur - Listsýning
Diddu Hjartardóttur Leaman
Didda Hjartardóttur Leaman sýnir
málverk og myndband sem skrásetur
ákveðna gönguleið.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41