Morgunblaðið - 22.08.2013, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 22.08.2013, Qupperneq 13
Kl. 13:00 – 17:00 Málverkasýning Höddu Fjólu Reykdal Hadda Fjóla Reykdal sýnir olíumálverk og vatnslitamyndir sem miðla litabrigðum, veðrabrigðum og stemningum landslags og veðurs. Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41 Kl. 15:00 – 15:30 Listamannaspjall Höddu Fjólu Reykdal Hadda Fjóla Reykdal leiðir gesti um málverkasýningu sína og segir frá listsköpun sinni. Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41 Kl. 15:30 – 16:00 Listamannaspjall Diddu Hjartardóttur Leaman Didda Hjartardóttur Leaman leiðir gesti um sýningu sína Tilfærslur og segir frá listsköpun sinni. Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41 Kl. 13:00 – 14:30 Holtið og hafið Birna Þórðardóttir hjá Menningar- fylgd Birnu og Jón Proppé listfræðingur leiða gesti frá Skólavörðuholti í átt til hafs. Æðar borgarinnar hríslast frá holti til hafs og hafi til holts. Upphaf og endir og upphaf ... með tónlistarívafi. Skólavörðuholt hjá Leifi Eiríkssyni Kl. 13:00 – 18:00 Pönnuköku garðveisla Boðið verður uppá dásamlegar pönnukökur, kaffi og ýmislegt fleira í garðinum. Bakgarður, Þórsgötu 5 Kl. 13:00 – 18:00 Skapandi og skemmtilegt Listakonur taka á móti gestum. Kl. 13.00 sýnir Svafa útskurð í postu- lín. Kl. 13.30 sýnir Harpa hreiðurgerð úr vír. Kl. 14.30 málar Þóra með vatnslitum. Kl. 15.30 þrykkir Elva grafíkverk. Kl. 16.30 vinnur Helena úr roði og kl. 17.30 Ólöf mótar leir. Listaselið, Skólavörðurstíg 17 Kl. 13:00 – 17:00 Reykjavík – Mannlíf og innkaupakerrur Gunnar Marel Hinriksson sýnir ólíkar myndir með aðferðum tveggja tíma, svarthvítar filmumyndir af mannlífi í miðbænum og instagrammaðar innkaupakerrur. Garðurinn við Skólavörðustíg 38 (við hliðina á Eggert feldskera) Kl. 14:00 – 15:45 Jón Svavar syngur Chet Baker Tónleikar til heiðurs bandaríska jazz- söngvaranum og trompetleikaranum Chet Baker. Jón Svavar Jósefsson í cool sveiflu ásamt jazzkvartett Jóns Ómars Árnasonar. Á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, Skólavörðustíg 19 Kl. 14:00 – 17:00 Djúp slökun með gongi Ljósheimar, miðstöð fyrir huga, líkama og sál bjóða hugleiðslu, slökun og gong næringu innan um listaverk Einars Jónssonar. Kosmísk upplifun! Listasafn Einars Jónssonar, Hallgrímstorgi 3 Kl. 14:00 – 22:00 Tölum saman um stytturnar í garðinum Nýtt safnafræðslu efni. Viðfangsefnið eru þrjár valdar höggmyndir í styttu- garði Listasafns Einars Jónssonar: Vernd, Konungur Atlantis og Heimir. Listasafn Einars Jónssonar, Hallgrímstorgi 3 Kl. 14:00 – 17:00 Harmonikkutónlist - ilmandi kakó og kleinur í boði Atlantsolíu Félagar á vegum Félags harmoniku- unnenda Reykjavík laða fram ljúfa og létta tóna. Fjölbreytt tónlist m.a. swing, jazz og gömlu dansarnir. Atlantsolía býður upp á nýbakaðar kleinur og ilmandi kaffi og kakó. Við Handprjónasambandið, Skólavörðustígur 19 Kl. 14:00 – 21:00 Birtustemningar norðan og sunnan heiða Vignir Hallgrímsson frá Dalvík sýnir olíumálverk á Loka þar sem birtustemningar fanga athygli gesta, listamaðurinn kynnir sína list frá kl. 14-16. Café Loki, Lokastíg 28, beint á móti Hallgrímskirkju Kl. 14:00 – 15:30 Pole Art & Pole Fit Nemendur og þjálfarar Pole Sport sýna listir sínar. Sýndir verða flottir snúningar og erfiðari samsetningar á æfingum. Skólavörðustíg 9 Kl. 14:00 – 18:00 Amma hvað er nú þetta? Gamlir hlutir, verkfæri, búsáhöld, myndir, bækur, barmmerki, föt, skartgripir, veiðafæri - hver er saga þeirra? Hvaðan komu þeir? Baldursgata 37, hornhús gengið inn frá Lokastíg Kl. 15:00 – 21:00 Sálmafoss á Menningarnótt Frumflutningur sex nýrra barna- sálma, spunatónleikar Mattias Wager frá Stokkhólmi, tvær trompetkynslóðir, Stephen Burns og ungstjarnan Baldvin Oddsson, Mótettukór Hallgrímskirkju, kór og hljómsveit frá Stokkhólmi o.fl. Hallgrímskirkju, Hallgrímstorgi 1 Kl. 15:00 – 18:00 Götutónlist til góðs Götuspilarinn knái, Ágústa Dómhild- ur, leikur af fingrum fram til heiðurs börnum í Afríku fyrir vegfarendur. Við Skólavörðustíg 11-13 Kl. 16:30 – 17:10, kl. 17:30 – 18:10, kl. 20:00 – 20:40 og kl. 21:00 – 21:40 Skáldhús við Skólavörðustíg Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, skáld og tónlistarmaður, flytur blandaða dagskrá ljóða og söngva á heimavelli og óvæntum gestum bregður fyrir. Efnið sniðið að áhorfendum hverju sinni, en húsrúm takmarkast við 30 manns í senn. Aðalsteinn Ásberg var upphafsmaður stofutónleika og húslestra sem hafa átt vaxandi vin- sældum að fagna, en þá fyrstu hélt hann einmitt á Menningarnótt fyrir rúmum áratug. Skólavörðustíg 27 Kl. 20:00 – 22:00 Vocal Innvols Ungskáld ljá götunni orð, þenja radd- ir sínar og hvísla ýmist upp við eyru vegfarenda eða hátt yfir höfðum. Frá Hallgrímskirkju áleiðis niður Skólavörðustíg og Skólavörðustíg 35, kjallari, gengið inn að aftan Kl. 20:30 – 22:00 Um höf og lönd á slóð Kríunnar í leit að eilífu sumri Vox feminae og söngsystur Domus Vox flytja lög frá hjartanu. Söngslóðin nær frá Hallgrímskirkju, Kaffi Mokka, Arnarhóli og niður að Ingólfstorgi. Hallgrímskirkja, Göngum og syngjum Skólavörðuholtið að Grófinni Austurbærinn Around Iceland Ísland er með´etta á Menningarnótt Kl. 11:00 – 11:30, kl. 13:00-13:30 og kl. 14:30-15:00 Jólasveinn úr Dimmuborgum heimsækir Reykjavík Jólasveinn að norðan, tekur vel á móti börnum með leik og skemmtun og óskalistum fyrir komandi jól. Upplýsingamiðstöðin Around Iceland, Laugavegi 18b Kl. 12:00-13:00 Tálgað úr við Sigurður Petersen sýnir hvernig hægt er að gera álf og jólasvein úr trébút. Upplýsingamiðstöðin Around Iceland, Laugavegi 18b Kl. 13:00 – 14:45 Ævintýraferð með Sögu og Jökli Kynnist ævintýrum Sögu og Jökuls um heim víkinganna og goðafræðinnar á Vesturlandi með skemmtilegum ratleik í snjallsíma, skemmtun fyrir börn og fullorðna. Upplýsingamiðstöðin Around Iceland, Laugavegi 18b Kl. 13:00 – 18:00 Bragðgóð upplifun af Austurlandi Austfirskar krásir - framleiðendur töfra fram kræsingar úr skóginum, af fjörðunum, ökrunum og heiðinni. Kíktu við og smakkaðu. Upplýsingamiðstöðin Around Iceland, Laugavegi 18b Kl. 13:30 – 14:00 Tónlistarflutningur Skúla Mennska Ísfirðingurinn Skúli Mennski flytur frumsamda tónlist að hætti Vestfirðinga. Kjörorð Skúla eru frelsi, virðing og góð skemmtun. Upplýsingamiðstöðin Around Iceland, Laugavegi 18b Kl. 14:00 – 14:30 Böðvar Víkingur Böðvar Gunnarsson víkingur frá Víkingaheimum í Reykjanesbæ verður með skemmtilega uppákomu sem þið viljið ekki missa af. Upplýsingamiðstöðin Around Iceland, Laugavegi 18b Kl. 15:00 – 15:30 Sunnlenskur söngur Hlýðið á tónlistaratriði úr sunnlensku héraði, heimagert og hjartnæmt. Upplýsingamiðstöðin Around Iceland, Laugavegi 18b Kl. 16:00 – 16:30 Aðferðir við sápugerð Sápan frá Reykjanesbæ útskýrir hvernig hægt er að búa til heima- gerða náttúrulega sápu og deilir leynilegri uppskrift frá tímum Víking- anna. Upplýsingamiðstöðin Around Iceland, Laugavegi 18b Kl. 16:00 – 17:00 Borgfirskt rokk og ról Magni mætir og tekur nokkur vel valin lög. Hver veit nema það bresti á með borgfirsku rokki og róli. Upplýsingamiðstöðin Around Iceland, Laugavegi 18b Kl. 13:00 – 14:00 Músík og myndlist - Gímaldin og Emmalyn Bee Fjöllistamennirnir Gímaldin og Emmalyn Bee leiða saman hesta sína. Emmalyn sýnir myndlist og Gímaldin leikur músík fyrir unga sem aldna. Húfur sem hlæja, Laugavegi 97 Kl. 14:00 – 22:30 Tónlist í öllum stærðum og gerðum Eins og síðustu 10 ár verða tónleikar á Hársnyrtistofunni Amadeus. Að þessu sinni verður boðið uppá tónlist allan daginn. Söngleikjafélagið, Alexandra, hljómsveitin Thin Jim og fleiri gestir taka lagið. Amadeus, Laugavegi 62 Kl. 14:00 – 23:00 Lagaffe Tales og BORG Hústónlistarútgáfan Lagaffe Tales og BORG teymið snúa bökum saman og blása til allsherjar hústónlistar- veislu með rjómanum af íslenskum plötusnúðum. Hjartagarðurinn, Laugavegi 19 Kl. 14:00 – 15:00 Knús í boði Vegfarendum á Laugaveginum er boðið upp á knús og faðmlög í boði Hlutverkaseturs. Það bætir, hressir og kætir. Laugavegi 25 Kl. 14:30 – 15:00 Finnsk tangóstemning Finnskur tangó, tónlistamaður Matti Kallio leikur á harmónikku. Suomi PRKL! Design, Laugavegi 27, bakhús Kl. 15:00 – 17:00 Söngvin skálda menningu Söngvaskáldin segja sögur sínar, fram koma Brylli, Heiða Dóra, María Viktoría, Hjalti Þorkels, Hermann og Jón Hallur Stefánssynir, Gímaldin og HeK. Bravó, Laugavegi 22 Kl. 16:00 – 16:30 Raulað úr ræmum Hinn stórgóði og vinsæli kór Söngfjelagið Góðir grannar mun flytja kvikmyndatónlist og önnur lög í bland, sér og öðrum til yndisauka. Vínberið, Laugavegi 43 Kl. 19:00 – 21:00 Lifandi tískublogg Adulescentulus tekur yfir glugga Kiosk og við bjóðum þér að koma og þiggja léttar veitingar og innblástur í boði íslenskra fatahönnuða. Kiosk, Laugavegi 65 Kl. 19:00 – 23:00 Ósíaðir útitónleikar Ósíaðir tónleikar á Kaldabar á Menningarnótt, heitir tónar. Sísí Ey, Sometime, DJ DelaRosa og fleiri óvæntir gestir. Kaldibar, Laugavegi 20b Kl. 20:00 – 23:00 Sjúddírarígay Samtökin ´78 bjóða heim í hinsegin menningarveisluna Sjúddírarígay, margvíslegar hinsegin uppákomur, fræðsla og fjör allt kvöldið. Allir velkomnir, heteró sem hinsegin. Laugavegi 3, 4. hæð Kl. 20:30 – 22:30 Kókos spilar á Gamla/Old Island Tríóið spilar innlend og erlend vinsæl ábreiðulög við öll tækifæri. Á dagskrá eru lögin sem allir þekkja og geta sungið með. Bandið skipa, Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, Örnólfur Örnólfsson og Ágúst Bernhardsson Linn. Gamla/Old Island, Laugavegi 72 Skuggahverfi Kl. 11:00 – 15:30 Dans æði DANS ÆÐI hertekur Dansverkstæðið og býður upp á skapandi þrautabraut fyrir börnin og tækifæri til að skapa eigið dansverk með atvinnudansara þér til aðstoðar. Dansverkstæðið, Skúlagötu 30 Kl. 12:00 – 18:00 Portrett af íslenskum tónlistarmönnum Magnús Andersen og Daníel Starra- son sýna ljósmyndir af þjóðþekktum íslenskum tónlistarmönnum. Gym & tonic á KEX Hostel, Skúlagötu 28 Kl. 12:00 – 22:00 Festisvall Festisvall listahátíðin býður upp á fjölbreytta myndlistar- og tónlistar- dagskrá og afrakstur vinnustofu ungra íslenskra og erlendra lista- manna. Artíma Gallerí, Skúlagötu 28 Kl. 13:00 – 22:00 Áttunda myndlistarsýning Sigurðar Sævars 15 ára Myndlistarmaðurinn Sigurður Sævar Magnúsarson hefur á síðustu mánuðum vakið mikla athygli fyrir viðamiklar sýningar og fjölbreytt verk. Gym og tonic á Kex Hostel, Skúlagötu 28 Kl. 13:00 – 22:00 Bylting – ójarðbundin listaverk eftir Dagbjörtu Jóhannesdóttur Þegar undirmeðvitundin tjáir sig með sköpun er margt sem hægt er að uppgötva um sjálfan sig í tengingu við óraunveruleikann. Skúlptúrar og málverk sem abstrakt birtingarmynd af sjónarhorni Dagbjartar verða til sýnis. Opnaðu hugann og gakktu í bæinn! Gym og tonic á Kex Hostel, Skúlagötu 28 Kl. 14:00 – 16:00 Bóhemar, bókagerðarmenn, bæjarfógeti og kóngur Bókagerðarmönnum, skáldum, bæjarfógeta og Danakonungi bregður fyrir á sögusýningu í aldargömlu húsi sem hefur fengið nýtt hlutverk. Leiðsögn: Guðjón Friðriksson. Reykjavík Residence Hótel, Hverfisgötu 21 Kl. 17:00 – 22:00 6. bindið Samtal við gesti og dagskrá þar sem lista- og fræðimenn koma fram, gera gjörninga og lesa upp úr verkum sínum. Nýlistasafnið, Skúlagötu 28 Kl. 19:00 – 20:00 Jazztríóið Skarkali Framsækinn, frumsaminn jazz spilaður af tríói sem stundar nám í Hollandi. Þjóðmenningarhúsið, Hverfisgötu 15 Kl. 20:00 – 22:55 Tónaflóð Rásar 2 Það verður mikið um dýrðir á Arnar- hóli en þar fagnar Tónaflóð Rásar 2 10 ára afmæli sínu. Þar stíga á stokk Kaleo, Ásgeir Trausti, Hjaltalín og Sálin hans Jóns míns. Arnarhóll Norðurmýrin Gallerí Fold Kl. 11:00 – 19:00 Opnun á minningarsýningu um Kristján Davíðsson Sýning á verkum þessa stórbrotna listamanns í Forsalnum. Myndir- nar eru flestar málaðar á fimmta áratug síðustu aldar og hafa aldrei verið sýndar áður. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl. 11:00 – 19:00 Tveir af þeim bestu sýna grafíkverk Bragi Ásgeirsson sýnir í Baksalnum og Tryggvi Ólafsson í Hliðarsalnum. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl. 11:00 – 19:00 Safnarinn – leiðin til að eignast listaverk á auðveldan hátt Við kynnum safnarann. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl. 11:00 – 19:00 Ratleikur fyrir börn og fullorðna Leikurinn felst í að finna listaverk sem sýnd eru í galleríinu. Við hvert þeirra er lítil frásögn og í henni bók- stafur sem er hluti af orði sem gestir eiga að finna út. Dregið er úr réttum lausnum og heppinn þátttakandi fær listaverkabók í verðlaun. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl. 11:00 – 14:00 Hvaða saga er í myndinni? Leikur fyrir alla. Verk eftir Braga Ásgeirsson hangir uppi í galleríinu. Finndu myndina og skrifaðu niður titil eða hvaða sögu þér finnst myndin segja. Listamaðurinn velur úr eina sögu sem honum finnst best. Í verðlaun er lítil bók um myndlist. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl 12:00 – 19:00 Listahapp Dregið í fyrsta skipti í ókeypis listaverkahappdrætti. Allir gestir fá happdrættismiða. Dregið verður á 30 mínútna fresti, alls 15 sinnum. Dregið verður þangað til vinningar ganga út. Vinningar eru eftirprentun íslenskra listaverka og listaverka- bækur. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl. 12:00 – 14:00 Listamaður að störfum Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir vinnur að verkum sínum og spjallar við gesti. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl. 13:30 og 16:00 Hádegistónleikar Guðbjörn Guðbjörnsson óperusöng- vari syngur létt lög við undirleik Guðbjargar Sigurjónsdóttur. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl. 14:00 – 15:00 Meistararnir spjalla Tryggvi Ólafsson og Bragi Ásgeirsson spjalla við gesti um sýningar sínar. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl. 14:00 – 16:00 Hvaða saga er í myndinni? Leikur fyrir alla. Verk eftir Tryggva Ólafsson hangir uppi í galleríinu. Finndu myndina og skrifaðu niður titil eða hvaða sögu þér finnst myndin segja. Listamaðurinn velur úr eina sögu sem honum finnst best. Í verðlaun er lítil bók um myndlist. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl. 14:00 – 16:00 Listamaður að störfum Soffía Sæmundsdóttir vinnur að verkum sínum og spjallar við gesti. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl. 16:00 – 18:00 Listamaður að störfum Hallur Karl Hinriksson spjallar við gesti um verk sín. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl. 16:00 – 19:00 Hvaða saga er í myndinni? Leikur fyrir alla. Verk eftir Harald Bilson hangir uppi í galleríinu. Finndu myndina og skrifaðu niður titil eða hvaða sögu þér finnst myndin segja. Listamaðurinn velur úr eina sögu sem honum finnst best. Í verðlaun er lítil bók um myndlist. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Kl. 13:00, 15:00 og kl. 17:00 Halaleikhópurinn – Á góðum degi Halaleikhópurinn sýnir leikþátt eftir Jón Benjamín Einarsson á Hlemmi um tvo skólafélaga sem hittast í fyrsta skipti eftir 20 ár. Hlemmur, Laugavegi 105 Kl. 13:00 - 18:00 Málverk Maríu María Sigríður Jónsdóttir sýnir olíumálverk í gluggum Gullkúnst Helgu. Gullkúnst Helgu, Laugavegi 13 Kl. 13:00 - 19:00 Garngraff á Hlemmi Handóðir handavinnu graffarar mæta á Hlemm og skreyta hann með aðstoð gesta Menningarnætur, kíktu við! Hlemmur, Laugavegi 105 Kl. 14:00 – 16:00 Söguganga Lúðrasveitar verkalýðsins Hlemmur - Tjarnargata. Nokkrir merkisstaðir í sögu LV heimsóttir. Flutt stutt erindi og leikin lög. Tilvalinn viðburður fyrir alla fjölskylduna. Hlemmur, Laugavegi 105 Kl. 14:00 – 16:00 Sjáum-k eg meir um Munin Huginn og Muninn / fljúga hverjan dag / jörmungrund yfir. / Óum-k eg Hugin / að hann aftr né komi, / þó sjáum-k eg meir um Munin. Þessi orð Óðins eiga erindi við okkur í dag þegar miðillinn virðist orðinn merkingin. Það er ekki bara minnið sem hverfur þegar við erum á netinu og því bjóðum við ykkur upp á að fagna mætti orðsins og ímyndunar- aflsins – með flugdrekaflugi! Á Klambratúni, ef veður leyfir, annars á Kjarvalsstöðum Kl. 14:00 – 22:00 Skipulagshlemmur Hlemmur verður suðupunktur skipu- lagsmála. Ein sýning með tvenns konar skipulagi: Nýtt aðalskipulag Reykjavíkur og hverfisskipulag. Gerðu gott í þínu hverfi! Hlemmur, Laugavegi 105 Listasafn Reykjavíkur -Kjarvalsstaðir Kl. 16:00 – 20:00 Íslensk myndlist 1900-1950 Frá landslagi til abstraktlistar Starfsmenn safnsins ganga um sýninguna og spjalla við gesti og gangandi. Einstakt tækifæri fyrir fjölskylduna að fræðast um listaverk sýningarinnar. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir, Klambratún við Flókagötu Kl. 20:00 – 21:00 Í Austurvegi – Tríóið Kalinka Gerður Bolladóttir sópran, Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir harmonikuleikari og Marina Shulmina rússneska hljóðfærið domra, flétta saman íslenskum og rússneskum sönghefðum. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir, Klambratún við Flókagötu Dagskrá birt með fyrirvara um breytingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.