Morgunblaðið - 22.08.2013, Síða 13
Kl. 13:00 – 17:00
Málverkasýning
Höddu Fjólu Reykdal
Hadda Fjóla Reykdal sýnir
olíumálverk og vatnslitamyndir sem
miðla litabrigðum, veðrabrigðum og
stemningum landslags og veðurs.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41
Kl. 15:00 – 15:30
Listamannaspjall
Höddu Fjólu Reykdal
Hadda Fjóla Reykdal leiðir gesti
um málverkasýningu sína
og segir frá listsköpun sinni.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41
Kl. 15:30 – 16:00
Listamannaspjall
Diddu Hjartardóttur Leaman
Didda Hjartardóttur Leaman leiðir
gesti um sýningu sína Tilfærslur og
segir frá listsköpun sinni.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41
Kl. 13:00 – 14:30
Holtið og hafið
Birna Þórðardóttir hjá Menningar-
fylgd Birnu og Jón Proppé
listfræðingur leiða gesti frá
Skólavörðuholti í átt til hafs. Æðar
borgarinnar hríslast frá holti til hafs
og hafi til holts. Upphaf og endir
og upphaf ... með tónlistarívafi.
Skólavörðuholt hjá Leifi Eiríkssyni
Kl. 13:00 – 18:00
Pönnuköku garðveisla
Boðið verður uppá dásamlegar
pönnukökur, kaffi og ýmislegt fleira í
garðinum. Bakgarður, Þórsgötu 5
Kl. 13:00 – 18:00
Skapandi og skemmtilegt
Listakonur taka á móti gestum.
Kl. 13.00 sýnir Svafa útskurð í postu-
lín. Kl. 13.30 sýnir Harpa hreiðurgerð
úr vír. Kl. 14.30 málar Þóra með
vatnslitum. Kl. 15.30 þrykkir Elva
grafíkverk. Kl. 16.30 vinnur Helena
úr roði og kl. 17.30 Ólöf mótar leir.
Listaselið, Skólavörðurstíg 17
Kl. 13:00 – 17:00
Reykjavík – Mannlíf og
innkaupakerrur
Gunnar Marel Hinriksson sýnir ólíkar
myndir með aðferðum tveggja tíma,
svarthvítar filmumyndir af mannlífi
í miðbænum og instagrammaðar
innkaupakerrur. Garðurinn við
Skólavörðustíg 38 (við hliðina
á Eggert feldskera)
Kl. 14:00 – 15:45
Jón Svavar syngur Chet Baker
Tónleikar til heiðurs bandaríska jazz-
söngvaranum og trompetleikaranum
Chet Baker. Jón Svavar Jósefsson
í cool sveiflu ásamt jazzkvartett
Jóns Ómars Árnasonar. Á horni
Skólavörðustígs og Klapparstígs,
Skólavörðustíg 19
Kl. 14:00 – 17:00
Djúp slökun með gongi
Ljósheimar, miðstöð fyrir huga,
líkama og sál bjóða hugleiðslu,
slökun og gong næringu innan um
listaverk Einars Jónssonar. Kosmísk
upplifun! Listasafn Einars Jónssonar,
Hallgrímstorgi 3
Kl. 14:00 – 22:00
Tölum saman um stytturnar
í garðinum
Nýtt safnafræðslu efni. Viðfangsefnið
eru þrjár valdar höggmyndir í styttu-
garði Listasafns Einars Jónssonar:
Vernd, Konungur Atlantis og Heimir.
Listasafn Einars Jónssonar,
Hallgrímstorgi 3
Kl. 14:00 – 17:00
Harmonikkutónlist - ilmandi kakó
og kleinur í boði Atlantsolíu
Félagar á vegum Félags harmoniku-
unnenda Reykjavík laða fram ljúfa
og létta tóna. Fjölbreytt tónlist m.a.
swing, jazz og gömlu dansarnir.
Atlantsolía býður upp á nýbakaðar
kleinur og ilmandi kaffi og kakó.
Við Handprjónasambandið,
Skólavörðustígur 19
Kl. 14:00 – 21:00
Birtustemningar
norðan og sunnan heiða
Vignir Hallgrímsson frá Dalvík
sýnir olíumálverk á Loka þar sem
birtustemningar fanga athygli gesta,
listamaðurinn kynnir sína list
frá kl. 14-16. Café Loki, Lokastíg 28,
beint á móti Hallgrímskirkju
Kl. 14:00 – 15:30
Pole Art & Pole Fit
Nemendur og þjálfarar Pole Sport
sýna listir sínar. Sýndir verða flottir
snúningar og erfiðari samsetningar á
æfingum. Skólavörðustíg 9
Kl. 14:00 – 18:00
Amma hvað er nú þetta?
Gamlir hlutir, verkfæri, búsáhöld,
myndir, bækur, barmmerki, föt,
skartgripir, veiðafæri - hver er
saga þeirra? Hvaðan komu þeir?
Baldursgata 37, hornhús gengið inn
frá Lokastíg
Kl. 15:00 – 21:00
Sálmafoss á Menningarnótt
Frumflutningur sex nýrra barna-
sálma, spunatónleikar Mattias
Wager frá Stokkhólmi, tvær
trompetkynslóðir, Stephen Burns
og ungstjarnan Baldvin Oddsson,
Mótettukór Hallgrímskirkju, kór
og hljómsveit frá Stokkhólmi o.fl.
Hallgrímskirkju, Hallgrímstorgi 1
Kl. 15:00 – 18:00
Götutónlist til góðs
Götuspilarinn knái, Ágústa Dómhild-
ur, leikur af fingrum fram til heiðurs
börnum í Afríku fyrir vegfarendur.
Við Skólavörðustíg 11-13
Kl. 16:30 – 17:10, kl. 17:30 – 18:10,
kl. 20:00 – 20:40 og
kl. 21:00 – 21:40
Skáldhús við Skólavörðustíg
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, skáld
og tónlistarmaður, flytur blandaða
dagskrá ljóða og söngva á heimavelli
og óvæntum gestum bregður fyrir.
Efnið sniðið að áhorfendum hverju
sinni, en húsrúm takmarkast við 30
manns í senn. Aðalsteinn Ásberg
var upphafsmaður stofutónleika og
húslestra sem hafa átt vaxandi vin-
sældum að fagna, en þá fyrstu hélt
hann einmitt á Menningarnótt fyrir
rúmum áratug. Skólavörðustíg 27
Kl. 20:00 – 22:00
Vocal Innvols
Ungskáld ljá götunni orð, þenja radd-
ir sínar og hvísla ýmist upp við eyru
vegfarenda eða hátt yfir höfðum.
Frá Hallgrímskirkju áleiðis niður
Skólavörðustíg og Skólavörðustíg 35,
kjallari, gengið inn að aftan
Kl. 20:30 – 22:00
Um höf og lönd á slóð Kríunnar
í leit að eilífu sumri
Vox feminae og söngsystur Domus
Vox flytja lög frá hjartanu. Söngslóðin
nær frá Hallgrímskirkju, Kaffi Mokka,
Arnarhóli og niður að Ingólfstorgi.
Hallgrímskirkja, Göngum og syngjum
Skólavörðuholtið að Grófinni
Austurbærinn
Around Iceland
Ísland er með´etta
á Menningarnótt
Kl. 11:00 – 11:30, kl. 13:00-13:30
og kl. 14:30-15:00
Jólasveinn úr Dimmuborgum
heimsækir Reykjavík
Jólasveinn að norðan, tekur vel á
móti börnum með leik og skemmtun
og óskalistum fyrir komandi jól.
Upplýsingamiðstöðin Around Iceland,
Laugavegi 18b
Kl. 12:00-13:00
Tálgað úr við
Sigurður Petersen sýnir hvernig hægt
er að gera álf og jólasvein úr trébút.
Upplýsingamiðstöðin Around Iceland,
Laugavegi 18b
Kl. 13:00 – 14:45
Ævintýraferð með Sögu og Jökli
Kynnist ævintýrum Sögu og
Jökuls um heim víkinganna og
goðafræðinnar á Vesturlandi með
skemmtilegum ratleik í snjallsíma,
skemmtun fyrir börn og fullorðna.
Upplýsingamiðstöðin Around Iceland,
Laugavegi 18b
Kl. 13:00 – 18:00
Bragðgóð upplifun af Austurlandi
Austfirskar krásir - framleiðendur
töfra fram kræsingar úr skóginum,
af fjörðunum, ökrunum og heiðinni.
Kíktu við og smakkaðu.
Upplýsingamiðstöðin Around Iceland,
Laugavegi 18b
Kl. 13:30 – 14:00
Tónlistarflutningur Skúla Mennska
Ísfirðingurinn Skúli Mennski
flytur frumsamda tónlist að hætti
Vestfirðinga. Kjörorð Skúla eru
frelsi, virðing og góð skemmtun.
Upplýsingamiðstöðin Around Iceland,
Laugavegi 18b
Kl. 14:00 – 14:30
Böðvar Víkingur
Böðvar Gunnarsson víkingur frá
Víkingaheimum í Reykjanesbæ
verður með skemmtilega uppákomu
sem þið viljið ekki missa af.
Upplýsingamiðstöðin Around Iceland,
Laugavegi 18b
Kl. 15:00 – 15:30
Sunnlenskur söngur
Hlýðið á tónlistaratriði úr sunnlensku
héraði, heimagert og hjartnæmt.
Upplýsingamiðstöðin Around Iceland,
Laugavegi 18b
Kl. 16:00 – 16:30
Aðferðir við sápugerð
Sápan frá Reykjanesbæ útskýrir
hvernig hægt er að búa til heima-
gerða náttúrulega sápu og deilir
leynilegri uppskrift frá tímum Víking-
anna. Upplýsingamiðstöðin Around
Iceland, Laugavegi 18b
Kl. 16:00 – 17:00
Borgfirskt rokk og ról
Magni mætir og tekur nokkur vel
valin lög. Hver veit nema það bresti á
með borgfirsku rokki og róli.
Upplýsingamiðstöðin Around Iceland,
Laugavegi 18b
Kl. 13:00 – 14:00
Músík og myndlist - Gímaldin og
Emmalyn Bee
Fjöllistamennirnir Gímaldin og
Emmalyn Bee leiða saman hesta
sína. Emmalyn sýnir myndlist og
Gímaldin leikur músík fyrir unga sem
aldna. Húfur sem hlæja, Laugavegi 97
Kl. 14:00 – 22:30
Tónlist í öllum stærðum og
gerðum
Eins og síðustu 10 ár verða tónleikar
á Hársnyrtistofunni Amadeus. Að
þessu sinni verður boðið uppá tónlist
allan daginn. Söngleikjafélagið,
Alexandra, hljómsveitin Thin Jim
og fleiri gestir taka lagið.
Amadeus, Laugavegi 62
Kl. 14:00 – 23:00
Lagaffe Tales og BORG
Hústónlistarútgáfan Lagaffe Tales og
BORG teymið snúa bökum saman
og blása til allsherjar hústónlistar-
veislu með rjómanum af íslenskum
plötusnúðum. Hjartagarðurinn,
Laugavegi 19
Kl. 14:00 – 15:00
Knús í boði
Vegfarendum á Laugaveginum er
boðið upp á knús og faðmlög í boði
Hlutverkaseturs. Það bætir, hressir
og kætir. Laugavegi 25
Kl. 14:30 – 15:00
Finnsk tangóstemning
Finnskur tangó, tónlistamaður Matti
Kallio leikur á harmónikku. Suomi
PRKL! Design, Laugavegi 27, bakhús
Kl. 15:00 – 17:00
Söngvin skálda menningu
Söngvaskáldin segja sögur sínar,
fram koma Brylli, Heiða Dóra, María
Viktoría, Hjalti Þorkels, Hermann og
Jón Hallur Stefánssynir, Gímaldin og
HeK. Bravó, Laugavegi 22
Kl. 16:00 – 16:30
Raulað úr ræmum
Hinn stórgóði og vinsæli kór
Söngfjelagið Góðir grannar mun
flytja kvikmyndatónlist og önnur lög
í bland, sér og öðrum til yndisauka.
Vínberið, Laugavegi 43
Kl. 19:00 – 21:00
Lifandi tískublogg
Adulescentulus tekur yfir glugga
Kiosk og við bjóðum þér að koma og
þiggja léttar veitingar og innblástur
í boði íslenskra fatahönnuða.
Kiosk, Laugavegi 65
Kl. 19:00 – 23:00
Ósíaðir útitónleikar
Ósíaðir tónleikar á Kaldabar
á Menningarnótt, heitir tónar.
Sísí Ey, Sometime, DJ DelaRosa
og fleiri óvæntir gestir.
Kaldibar, Laugavegi 20b
Kl. 20:00 – 23:00
Sjúddírarígay
Samtökin ´78 bjóða heim í hinsegin
menningarveisluna Sjúddírarígay,
margvíslegar hinsegin uppákomur,
fræðsla og fjör allt kvöldið. Allir
velkomnir, heteró sem hinsegin.
Laugavegi 3, 4. hæð
Kl. 20:30 – 22:30
Kókos spilar á Gamla/Old Island
Tríóið spilar innlend og erlend
vinsæl ábreiðulög við öll tækifæri. Á
dagskrá eru lögin sem allir þekkja
og geta sungið með. Bandið skipa,
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, Örnólfur
Örnólfsson og Ágúst Bernhardsson
Linn. Gamla/Old Island, Laugavegi 72
Skuggahverfi
Kl. 11:00 – 15:30
Dans æði
DANS ÆÐI hertekur Dansverkstæðið
og býður upp á skapandi þrautabraut
fyrir börnin og tækifæri til að skapa
eigið dansverk með atvinnudansara
þér til aðstoðar. Dansverkstæðið,
Skúlagötu 30
Kl. 12:00 – 18:00
Portrett af íslenskum
tónlistarmönnum
Magnús Andersen og Daníel Starra-
son sýna ljósmyndir af þjóðþekktum
íslenskum tónlistarmönnum. Gym &
tonic á KEX Hostel, Skúlagötu 28
Kl. 12:00 – 22:00
Festisvall
Festisvall listahátíðin býður upp á
fjölbreytta myndlistar- og tónlistar-
dagskrá og afrakstur vinnustofu
ungra íslenskra og erlendra lista-
manna. Artíma Gallerí, Skúlagötu 28
Kl. 13:00 – 22:00
Áttunda myndlistarsýning
Sigurðar Sævars 15 ára
Myndlistarmaðurinn Sigurður
Sævar Magnúsarson hefur á síðustu
mánuðum vakið mikla athygli fyrir
viðamiklar sýningar og fjölbreytt
verk. Gym og tonic á Kex Hostel,
Skúlagötu 28
Kl. 13:00 – 22:00
Bylting – ójarðbundin listaverk
eftir Dagbjörtu Jóhannesdóttur
Þegar undirmeðvitundin tjáir sig með
sköpun er margt sem hægt er að
uppgötva um sjálfan sig í tengingu
við óraunveruleikann. Skúlptúrar og
málverk sem abstrakt birtingarmynd
af sjónarhorni Dagbjartar verða til
sýnis. Opnaðu hugann og gakktu í
bæinn! Gym og tonic á Kex Hostel,
Skúlagötu 28
Kl. 14:00 – 16:00
Bóhemar, bókagerðarmenn,
bæjarfógeti og kóngur
Bókagerðarmönnum, skáldum,
bæjarfógeta og Danakonungi bregður
fyrir á sögusýningu í aldargömlu
húsi sem hefur fengið nýtt hlutverk.
Leiðsögn: Guðjón Friðriksson.
Reykjavík
Residence Hótel, Hverfisgötu 21
Kl. 17:00 – 22:00
6. bindið
Samtal við gesti og dagskrá þar sem
lista- og fræðimenn koma fram, gera
gjörninga og lesa upp úr verkum
sínum. Nýlistasafnið, Skúlagötu 28
Kl. 19:00 – 20:00
Jazztríóið Skarkali
Framsækinn, frumsaminn jazz
spilaður af tríói sem stundar nám
í Hollandi. Þjóðmenningarhúsið,
Hverfisgötu 15
Kl. 20:00 – 22:55
Tónaflóð Rásar 2
Það verður mikið um dýrðir á Arnar-
hóli en þar fagnar Tónaflóð Rásar 2
10 ára afmæli sínu. Þar stíga á stokk
Kaleo, Ásgeir Trausti, Hjaltalín og
Sálin hans Jóns míns. Arnarhóll
Norðurmýrin
Gallerí Fold
Kl. 11:00 – 19:00
Opnun á minningarsýningu
um Kristján Davíðsson
Sýning á verkum þessa stórbrotna
listamanns í Forsalnum. Myndir-
nar eru flestar málaðar á fimmta
áratug síðustu aldar og hafa aldrei
verið sýndar áður. Gallerí Fold,
Rauðarárstíg 12-14
Kl. 11:00 – 19:00
Tveir af þeim bestu sýna
grafíkverk
Bragi Ásgeirsson sýnir í Baksalnum
og Tryggvi Ólafsson í Hliðarsalnum.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14
Kl. 11:00 – 19:00
Safnarinn – leiðin til að eignast
listaverk á auðveldan hátt
Við kynnum safnarann. Gallerí Fold,
Rauðarárstíg 12-14
Kl. 11:00 – 19:00
Ratleikur fyrir börn og fullorðna
Leikurinn felst í að finna listaverk
sem sýnd eru í galleríinu. Við hvert
þeirra er lítil frásögn og í henni bók-
stafur sem er hluti af orði sem gestir
eiga að finna út. Dregið er úr réttum
lausnum og heppinn þátttakandi fær
listaverkabók í verðlaun. Gallerí Fold,
Rauðarárstíg 12-14
Kl. 11:00 – 14:00
Hvaða saga er í myndinni?
Leikur fyrir alla. Verk eftir Braga
Ásgeirsson hangir uppi í galleríinu.
Finndu myndina og skrifaðu niður titil
eða hvaða sögu þér finnst myndin
segja. Listamaðurinn velur úr eina
sögu sem honum finnst best.
Í verðlaun er lítil bók um myndlist.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14
Kl 12:00 – 19:00
Listahapp
Dregið í fyrsta skipti í ókeypis
listaverkahappdrætti. Allir gestir fá
happdrættismiða. Dregið verður á
30 mínútna fresti, alls 15 sinnum.
Dregið verður þangað til vinningar
ganga út. Vinningar eru eftirprentun
íslenskra listaverka og listaverka-
bækur.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14
Kl. 12:00 – 14:00
Listamaður að störfum
Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir
vinnur að verkum sínum og
spjallar við gesti. Gallerí Fold,
Rauðarárstíg 12-14
Kl. 13:30 og 16:00
Hádegistónleikar
Guðbjörn Guðbjörnsson óperusöng-
vari syngur létt lög við undirleik
Guðbjargar Sigurjónsdóttur.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14
Kl. 14:00 – 15:00
Meistararnir spjalla
Tryggvi Ólafsson og Bragi Ásgeirsson
spjalla við gesti um sýningar sínar.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14
Kl. 14:00 – 16:00
Hvaða saga er í myndinni?
Leikur fyrir alla. Verk eftir Tryggva
Ólafsson hangir uppi í galleríinu.
Finndu myndina og skrifaðu niður titil
eða hvaða sögu þér finnst myndin
segja. Listamaðurinn velur úr eina
sögu sem honum finnst best. Í
verðlaun er lítil bók um myndlist.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14
Kl. 14:00 – 16:00
Listamaður að störfum
Soffía Sæmundsdóttir vinnur að
verkum sínum og spjallar við gesti.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14
Kl. 16:00 – 18:00
Listamaður að störfum
Hallur Karl Hinriksson spjallar við
gesti um verk sín.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14
Kl. 16:00 – 19:00
Hvaða saga er í myndinni?
Leikur fyrir alla. Verk eftir Harald
Bilson hangir uppi í galleríinu.
Finndu myndina og skrifaðu niður titil
eða hvaða sögu þér finnst myndin
segja. Listamaðurinn velur úr eina
sögu sem honum finnst best. Í
verðlaun er lítil bók um myndlist.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14
Kl. 13:00, 15:00 og kl. 17:00
Halaleikhópurinn – Á góðum degi
Halaleikhópurinn sýnir leikþátt eftir
Jón Benjamín Einarsson á Hlemmi
um tvo skólafélaga sem hittast í
fyrsta skipti eftir 20 ár.
Hlemmur, Laugavegi 105
Kl. 13:00 - 18:00
Málverk Maríu
María Sigríður Jónsdóttir sýnir
olíumálverk í gluggum
Gullkúnst Helgu. Gullkúnst Helgu,
Laugavegi 13
Kl. 13:00 - 19:00
Garngraff á Hlemmi
Handóðir handavinnu graffarar mæta
á Hlemm og skreyta hann með
aðstoð gesta Menningarnætur, kíktu
við! Hlemmur, Laugavegi 105
Kl. 14:00 – 16:00
Söguganga Lúðrasveitar
verkalýðsins
Hlemmur - Tjarnargata. Nokkrir
merkisstaðir í sögu LV heimsóttir.
Flutt stutt erindi og leikin lög.
Tilvalinn viðburður fyrir
alla fjölskylduna.
Hlemmur, Laugavegi 105
Kl. 14:00 – 16:00
Sjáum-k eg meir um Munin
Huginn og Muninn / fljúga hverjan
dag / jörmungrund yfir. / Óum-k eg
Hugin / að hann aftr né komi, / þó
sjáum-k eg meir um Munin. Þessi
orð Óðins eiga erindi við okkur í dag
þegar miðillinn virðist orðinn
merkingin. Það er ekki bara minnið
sem hverfur þegar við erum á netinu
og því bjóðum við ykkur upp á að
fagna mætti orðsins og ímyndunar-
aflsins – með flugdrekaflugi!
Á Klambratúni, ef veður leyfir,
annars á Kjarvalsstöðum
Kl. 14:00 – 22:00
Skipulagshlemmur
Hlemmur verður suðupunktur skipu-
lagsmála. Ein sýning með tvenns
konar skipulagi: Nýtt aðalskipulag
Reykjavíkur og hverfisskipulag.
Gerðu gott í þínu hverfi! Hlemmur,
Laugavegi 105
Listasafn Reykjavíkur
-Kjarvalsstaðir
Kl. 16:00 – 20:00
Íslensk myndlist 1900-1950 Frá
landslagi til abstraktlistar
Starfsmenn safnsins ganga um
sýninguna og spjalla við gesti og
gangandi. Einstakt tækifæri fyrir
fjölskylduna að fræðast um listaverk
sýningarinnar. Listasafn Reykjavíkur,
Kjarvalsstaðir, Klambratún við
Flókagötu
Kl. 20:00 – 21:00
Í Austurvegi – Tríóið Kalinka
Gerður Bolladóttir sópran, Helga
Kristbjörg Guðmundsdóttir
harmonikuleikari og Marina
Shulmina rússneska hljóðfærið
domra, flétta saman íslenskum og
rússneskum sönghefðum.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir,
Klambratún við Flókagötu
Dagskrá birt með fyrirvara
um breytingar