Morgunblaðið - 22.08.2013, Page 16

Morgunblaðið - 22.08.2013, Page 16
S ýningin er sögulegt yfirlit og sýnir þróun íslenskrar myndlistar frá aldamót- unum 1900 til 1950, en markmið hennar er að rannsaka og dýpka þekkingu okkar á menningararfinum,“ segir Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur. Sýningin Íslensk myndlist 1900-1950: Frá landslagi til abstraktlistar stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum og þar verður vel tekið á móti gestum á Menning- arnótt. „Starfsmenn safnsins ætla að ganga um salinn og spjalla við gesti um sýninguna á laugardeginum frá klukkan 16-20. Þetta er einstakt tækifæri fyrir fjölskylduna til að fræðast um listaverk sýningarinnar en henni er skipt í fjórar frásagnir og fjögur tímabil: Rómantík og rót- tækni 1900-1930, Landslag 1930- 1950, Maðurinn og umhverfi hans 1930-1950 og Ný-róttækni og upp- haf abstraktlistar 1940-1950.“ Fjallamjólk og Lómar Á sýningu Kjarvalsstaða eru nær 200 málverk og höggmyndir eftir 40 listamenn. Verkin koma víðsvegar að, frá listasöfnum, stofnunum, ein- staklingum og fyrirtækjum. „Á sýn- ingunni er mikið af þekktum verk- um en þar er einnig að finna óþekkt verk og jafnvel verk sem hefur ekki áður komið fyrir sjónir almennings. Verkið Hekla eftir Ásgrím Jónsson frá árunum 1905-1906 hefur t.d. ekki verið sýnt áður opinberlega.“ Spurður út í merkustu verk sýn- ingarinnar segir Hafþór þau mörg vera merkileg og erfitt sé að velja eitt fram yfir annað. „Hins vegar er hægt að nefna að líklega eru Fjalla- mjólk eftir Kjarval og Lómar við Þjórsá eftir Jón Stefánsson meðal þekktustu verkanna á sýningunni.“ Róttækar hugmyndir Landslagið var ráðandi viðfangsefni myndlistarmanna í upphafi ald- arinnar og um 1930 hófst nýtt blómaskeið landslagslistar, að sögn Hafþórs. Hann bendir á að íslenskir samtímalistamenn fáist enn við landslagsmyndir, s.s. Eggert Pét- ursson, Guðrún Kristjánsdóttir og Guðrún Einarsdóttir. „Áherslurnar eru þó aðrar en á fyrri hluta 20. aldarinnar. Það má t.d. nefna „efnislandslög“ Guðrúnar Einarsdóttur sem minna á eldgos. Hún málar ekki myndir af lands- lagi, eins og Ásgrímur og Kjarval gerðu, heldur lofar hún efninu sjálfu að móta yfirborð myndanna. Hún blandar mismunandi teg- undum og magni olíu, olíulitar og ol- íuíblöndunarefna til að breyta því hvernig málningin þornar. Lands- lagið myndast á yfirborði mynd- anna af sjálfu sér, vegna efnafræði- legra einkenna efnanna, fremur en af tilraun listamannsins til að mála mynd af eldgosi.“ Hafþór er spurður út í ab- straktlist 5. áratugarins, hvort um sé að ræða merkilegan kafla í ís- lenskri listasögu. „Með abstraktlist- inni komu fram nýjar og róttækar hugmyndir um hlutverk og gildi myndlistarinnar sem mörkuðu djúp spor í íslenskri listasögu. Nýjar áherslur á frjálsa tjáningu og form- ræna eiginleika myndverksins hafa ennþá áhrif á listamenn og listunn- endur. Eftir áramót verður opnuð sýning í Ásmundarsafni þar sem við munum leiða saman abstraktverk eftir Ásmund Sveinsson og unga listamenn sem vinna með abstrakt- form. Það verður gaman að bera verkin saman hlið við hlið.“ Menningararfurinn Sýning Kjarvalsstaða skiptist sem fyrr segir í fjórar frásagnir og fjögur tímabil: Rómantík og róttækni 1900- 1930: Í þessum kafla sýningarinnar eru sýnd verk eftir Ásgrím Jónsson, Brynjólf Þórðarson, Einar Jónsson, Einar Jónsson frá Fossi, Eyjólf Ey- fells, Finn Jónsson, Guðmund Thor- steinsson, Gunnlaug Blöndal, Jó- hannes Kjarval, Jón Stefánsson, Júlíönu Sveinsdóttur, Kristínu Jónsdóttur, Kristínu Þorvalds- dóttur, Kristínu Þorláksdóttur Bernhöft, Nínu Sæmundsson og Þórarin B. Þorláksson. Landslag 1930-1950: Til sýnis eru verk eftir Ásgrím Jónsson, Finn Jónsson, Gunnlaug Blöndal, Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson, Júlíönu Sveinsdóttur, Kristínu Jónsdóttur, Jón Þorleifsson, Krist- ján Magnússon, Svein Þórarinsson, Tryggva Magnússon, Kristin Pét- ursson, Guðmund Einarsson, Egg- ert Laxdal og Freymóð Jóhann- esson og Ásgeir Bjarnþórsson. Maðurinn og umhverfi hans 1930-1950: Sýnd eru verk eftir Gunnlaug Scheving, Sigurjón Ólafsson, Ásmund Sveinsson, Snorra Arinbjarnar, Jón Eng- ilberts, Þorvald Skúlason, Jóhann Briem, Finn Jónsson, Jón Þorleifs- son, Gunnlaug Blöndal, Nínu Tryggvadóttur og Louisu Matthías- dóttur. Ný-róttækni og upphaf ab- straktlistar 1940-1950: Í þessum hluta sýningarinnar eru verk eftir Svavar Guðnason, Ásmund Sveins- son, Þorvald Skúlason, Valtý Pét- ursson, Kjartan Guðjónsson, Jó- hannes Jóhannesson, Nínu Tryggvadóttur, Kristján Davíðsson og Sigurjón Ólafsson. beggo@mbl.is Myndlistarveisla á Menningarnótt Sumarnótt Jón Stefánsson, Lómar við Þjórsá, 1929. Á Kjarvalsstöðum verður vel tekið á móti gestum og boðið upp á leiðsögn um sýn- inguna Íslensk mynd- list 1900-1950: Frá landslagi til abstrakt- listar. Fjallamjólk Jóhannes Kjarval, 1941. Morgunblaðið/Ómar Fjársjóður „Á sýningunni er mikið af þekktum verkum en þar er einnig að finna óþekkt verk og jafnvel verk sem hefur ekki áður komið fyrir sjónir almennings,“ segir Hafþór Yngvason safnstjóri Listasafns Reykjavíkur. Starfsmenn safnsins ætla að ganga um salinn og spjalla við gesti um sýninguna á laugardeginum frá klukkan 16-20. 16 | MORGUNBLAÐIÐ + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + ++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++ H V ÍT A H Ú SI Ð / SÍ A Dala-Brie er kominn i nýjar umbúðir og er enn jafngóður a agðið. L júfur og mildur hvítmygluostur sem hentar við öll tækifæri. Flour úr Dölunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.