Akureyri


Akureyri - 31.10.2013, Side 2

Akureyri - 31.10.2013, Side 2
2 31. október 2013 HA hafi ekkert fræðilegt gildi? Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskól­ ans á Akureyri, hefur ekki svarað fyrirspurn Akureyrar vikublaðs um þá gagnrýni sem komið hefur fram í kjölfar skipunar forseta Hug­ og félagsvísindasviðs skólans. Ólína Þorvarðardóttir er mjög ósátt yfir því að hafa ekki fengið stöðuna. Hún ætl­ ar að láta lögmenn gæta réttar síns og útilokar ekki málsókn. Nokkur hiti hefur orðið í umræð­ um um málið á netsíðum. Ofbauð Birgi Guðmundssyni, dósent við Háskólann á Akureyri, þegar Ólína dreifði skrifum Jónasar Kristjáns­ sonar, fyrrum ritstjóra, á facebook þar sem Ólína gaf í skyn að hún tæki undir skýringar Jónasar um hvers vegna Ólína var ekki ráðin, að þar væri kvótamálum, pólitík og spill­ ingu um að kenna. Jónas fór í pistli sínum mjög hörðum orðum um HA og stjórnendur hans, hann kallar skól­ ann „súpergaggó“ og segir rektor hafa tíu þumla og fjögur handarbök. „Og sumpart vegna þess, að súpergaggó er aðili að ágrein­ ingi kvótagreifa við lattelepjandi lopatrefla í hverfi 101. Súpergaggó á Akureyri hefur ekkert fræðilegt gildi og er bara til að sýnast fyrir Norð­ lendinga. Tímabært að leggja hann niður og gera að útstöð fyrir alvöru­ háskóla. Ef slíkur fyrirfinnst í þessu ríki spillingar,“ segir Jónas í pistli sínum þar sem hann vandar hvorki rektor HA sé skólanum kveðjurnar. Þessu svarar Birgir Guðmunds­ son dósent með eftirfarandi orðum: „Fróðlegt Ólína Þorvarðardóttir að kynnast raunverulegum viðhorfum þínum til skólans ­ þó seint sé. Von­ andi náið þið Jónas í sameiningu að halda þjóðfélagsumræðunni á því háa plani sem þið teljið hæfa!“ Margir kennarar innan HA sem blaðið hefur rætt við lýsa ánægju með skipan Sigrúnar Stefánsdóttur sem forseta. Skoðanir um feril máls­ ins og rök á bak við ákvarðanir eru hins vegar skiptar. a Jarðgöng ekki fyrir hvern sem er Valgeir Bergmann, framkvæmda­ stjóri Vaðlaheiðarganga, segir að jarðgangavinna sé ekki fyrir hvern sem er. 40­50 manns starfa nú við samgöngubótina en starfið sé hvorki laust við áhættu né óþægindi. Fyrstu vikurnar eftir að framkvæmd ganganna hófst urðu 4­5 smáslys þar sem starfsmenn meiddust. Þá reyni á menn að starfa án dags­ birtu í ófullkomnu lofti og hávaða í löngum lotum. Óþægindum sé þó mætt með ýmsum búnaði og hafi miklar framfarir orðið á skömmum tíma. Gangamenn, sem flestir tengjast vélum með einhverjum hætti, vinna tíu daga í röð en fá svo fimm daga frí. Í því ljósi segir Valgeir að viðvera starfsmanna í vinnunni sé jafnvel meiri en hjá sjómönnum sem oft hvíli annan hvorn túr. Valgeir segir að engin kona starfi inni í göngunum og telur hann það ekki tilviljun. Aðstæður inni í svona göngum henti konum illa í ýmsu til­ liti, t.d. út frá salernisaðstöðu. Hins vegar hafi matráðskonur það veigamikla hlutverk að tryggja góðan mat í búðum utan ganganna. Fátt skipti gangamenn meira máli en góður matur. Valgeir segir að slíkar vinnutarnir eins og fram fara í göngunum kalli á fjarveru frá ættingjum og vinnan og hann hefur tilfinningu fyrir því að allnokkur hluti vinnumanna séu einhleyp­ ingar. Samkvæmt alþjóðasamning­ um um jarðgöng eru slík störf talin hættulegri en mörg önnur vinna og greidd sérstök áhættuþóknun. Því sé eftir nokkru að slægjast fyrir réttu manngerðina en að vera inni í fjalli árum saman sé alls ekki fyrir hvern sem er. a Bæjarstjóri vill sveitarfélög inn í nýja samráðshópinn „Þetta samkomulag gerir lítið ann­ að en að fresta ákvörðun um málið. Menn hafa líklega ekki treyst sér til að afgreiða málið í andstöðu við meirihluta borgarbúa,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri vegna millilendingar um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Hann segist telja mikilvægt að nýta tímann vel og gæta þess að ekki verði til enn ein skýrslan sem ágreiningur verði síðan um. „Ég vil sjá fulltrúa Sambands íslenskra sveitar­ félaga í samráðshópnum enda hafa fjölmargar bæjar­ og sveitarstjórnir haft skoðun á málinu og áhrif á feril þess þ.m.t. bæjarstjórn Akureyrar sem hefur unnið ötullega í þessu máli allt þetta kjörtímabil. Undirskriftalistinn hefur örugglega líka haft sín áhrif,“ segir Eiríkur og vísar til Hjartans í Vatnsmýrinni. Þá segir bæjarstjóri: „Ég hefði viljað sjá í samkomulaginu úrbætur strax í aðstöðu fyrir starfs­ fólk flugvallarins og flugfarþega.“ Njáll Trausti Friðbertsson, annar tveggja talsmanna Hjartans í Vatns­ mýrinni, segist telja að fjölmennasta undirskriftasöfnun á Íslandi sem varði íslenskt málefni hafi haft mikil áhrif á þróun þessa máls. Áður var reiknað með að einungis ein flugbraut yrði í Vatnsmýrinni eftir 2016. Nú hafi líftími norður­suður brautarinnar a.m.k verið lengdur til 2022 og skip­ uð nefnd undir forsæti Rögnu Árna­ dóttir sem fær rúmt ár til að skoða hvaða kostir fyrir flugvallarstæði eru í stöðunni til framtíðar. „Það er okkar skilningur að ekki verði ráðist í neinar þær framkvæmdir sem geta hamlað þróun Reykjavíkurflugvallar í Vatns­ mýrinni á þeim tíma sem nefndin starfar. Einnig að flugvöllurinn verði til framtíðar í Vatnsmýrinni nema að það komi til nýtt jafngott flugvallar­ stæði á höfuðborgarsvæðinu.“ Hins vegar sé ljóst að talsverð vinna fari fram áður en endaleg niðurstaða fæst í málið. „Tímara­ mminn til að ná utan um málið er stuttur þannig að hér þarf að vinna hratt og vel og ljóst að mikilvæg vinna þarf að fara fram í Reykjavík á næsta kjörtímabili þar sem ljóst er að stórar ákvarðanir verða teknar.“ Andrea Hálmsdóttir, bæjarfulltrúi VG á Akureyri, segir að samkomulagið hljóti að teljast áfangasigur fyrir flug­ samgöngur milli höfuðborgarinnar og landsbyggðanna og því beri að fagna. „Með samkomulaginu er mik­ ilvægi flugvallar í höfuðborginni viðurkennt með afgerandi hætti og við hljótum að binda miklar vonir við að störf þeirrar nefndar sem á að skipa skili farsælli niðurstöðu fyrir alla landsmenn og taki tillit til byggðaþróunar og sérstöðu lands­ byggðanna,“ segir Andrea. Ólafur Jónsson, fulltrúi sjálf­ stæðismanna í bæjarstjórn Akur­ eyri segir: „Þetta er áfangasigur og eyðir í bili þeirri óvissu sem ríkti um framhald málsins. Sú óvissa var mjög íþyngjandi fyrir landsbyggðina og flugrekstraraðila. Nú er mikilvægt að sú nefnd sem falið var að kanna möguleikana á öðru flugvallarstæði innan bæjarmarka höfuðborgarinn­ ar vinni hratt og örugglega. Það er nauðsynlegt að fá niðurstöðu sem fyrst því átta ár eru ekki langur tími þegar svona stórt mál er undir. Hér þarf að horfa til margra hluta s.s. bættrar aðstöðu og endurnýjun flugvéla. Allt stórar ákvarðanir sem þurfa ákveðinn undirbúning.“ „Ég nefndi í umræðu í bæjarstjórn, sem ég hafði óskað eftir um stöðu Reykjavíkurflugvallar, að ég óttaðist að framtíð Reykjavíkurflugvallar yrði að stóru kosningamáli í höfuðborginni í vor. Nú hefur því verið afstýrt og gefst vonandi andrými til að skoða málið að nýju ofan í kjölinn,“ segir Ólafur. a ENGIN KONA STARFAR inni í Vaðlaheiði við gerð jarðganganna. Framkvæmdastjóri segir það enga tilviljun. Völundur Andrea Hjálmsdóttir Valgeir Bergmann Birgir Guðmundsson Jónas Kristjánsson Stefán B. Sigurðsson Ólína Þorvarðardóttir Njáll Trausti Ólafur Jónsson Eiríkur Björn V öl u n du r Ný sending! Steinsmiðja Norðurlands, Glerárgata 36, S: 466 2800 Lampar frá 4.900- Hlýleg birta í skammdeginu Mikið úrval - Frábært verð

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.