Akureyri - 31.10.2013, Side 4
4 31. október 2013
Tímarit um uppeldi
í stafrænum heimi
Vodafone tímaritið er fullt af gagnlegum greinum
fyrir foreldra og aðra sem þurfa að fræða börn
um hinn stafræna heim og möguleika hans.
Vodafone tímaritið fylgir með
Fréttablaðinu í dag
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið
Jafning
jafræð
sla
foreldr
a
Vodafon
e býður
upp á ör
námske
ið
í verslun
Vodafo
ne á Gle
rártorgi
laugard
aginn 2
. nóv.
Kl. 13,
14, 15
og 16
Hættutímar fara í hönd
Sl. sumar dæmdi Héraðsdómur
Norðurlands vestra tvo menn í skil
orðsbundið fangelsi vegna mann
dráps af gáleysi eftir að vöruflutn
ingabíll lenti í árekstri við annan bíl
í Langadal með þeim afleiðingum að
maður lést. Annar mannanna fékk
fjögurra mánaða dóm, hinn tveggja
mánaða dóm. Þá missti annar bíl
prófið tímabundið. Mennirnir voru
dæmdir til að greiða stórfelldan
sakarkostnað.
Slysið skóp umræðu um öryggi
á vegum og ábyrgð atvinnubílstjóra
ekki síst þegar vetrar og umferðar
öryggi verður minna en ella á vegum
landsins vegna hálku, myrkurs og
snjóa. Fyrrnefnt slys varð í Langa
dal, rétt austan við svonefnt Svart
árdalshorn, mánudagskvöldið 27.
desember árið 2010 . Þá var vöru
flutningabifreið með vélavagn ekið
norður. Vélavagninn hentaði ekki til
flutninga á þeim farmi sem ákærði
flutti, hann var bremsulítill eða
bremsulaus, á mismunandi stórum
dekkjum og með mismunandi loft
þrýsting í hjólbörðum, hlaðinn 12
tonnum af steinrörum. Farmurinn
náði 2,5 metra hæð, en rörin höfðu
verið sett þvert á vagninn, án lög
boðinna klossa framan og aftan við
farminn og engir klossar eða styttur
til varnar hliðarskriði og farmur
inn aðeins bundinn niður að hluta.
Ástand vagnsins skerti rásfestu
með þeim afleiðingum að vagninn
fylgdi ekki bifreiðinni heldur leit
aði of mikið til vinstri yfir miðlínu
vegarins. Það varð til þess að hinn
dæmdi bílstjóri ók vagninum á ann
an flutningabíl sem ekið var suð
ur sama veg. Við áreksturinn lenti
vagninn sem ákærði ók á bifreiðinni
sem kom á móti og farmurinn, sem
hinn brotlegi var með losnaði af
og fór að hluta inn í ökumannshús
bifreiðarinnar og lenti á ökumanni
þannig að hann lést nær samstundis.
Auk bílstjórans var forsvarsmað
ur og aðaleigandi einkahlutafélags
sem rak bílinn ákærður fyrir hlut
deild í ofangreindu manndrápi af
gáleysi og umferðarlagabrot, með
því að tryggja ekki að útbúnaður
vélarvagnsins væri lögmætur.
SKELFILEGAR AFLEIÐINGAR
Bílstjórinn bar fyrir dómi að hann
hefði ekki tekið eftir að að vagninn
var með svonefndan endurskoðunar
miða en um stakan flutning var að
ræða hjá honum. Hann tilgreindi
ýmsar ástæður fyrir því að svo fór
sem fór.
Í niðurstöðu dómsins segir að
draga megi þá ályktun að árekstur
inn hefði ekki valdið manntjóni ef
farmurinn á dráttarvagninum hefði
setið fastur á honum, en allt annað
hefði verið óbreytt.
„Ekki þarf að fara mörgum orðum
um skelfilegar afleiðingar slyssins, en
í því lét ökumaður flutningabifreiðar
lífið. Þá verður að hafa í huga að hér
fór vörubifreið með mjög þungan
farm á vélavagni um aðalþjóðveg
landsins, þar sem gera mátti ráð fyrir
töluverðri umferð almennra borgara.
Er alvarlegra en ella ef lagt er á tæpt
vað með útbúnað slíkra tækja þar
sem vænta má almennrar umferðar,“
segir í niðurstöðu dómsins.
ÝMSAR MÁLSBÆTUR
Héraðsdómur Norðurlands vestra
taldi málsbætur bílstjóra einnig fyrir
hendi:
„Þó ákærði hafi í máli þessu verið
sakfelldur fyrir gáleysi fer því að
mati dómsins fjarri að akstur hans
og framganga í ferðinni hafi öll ein
kennst af gáleysi. Þvert á móti virðist
hann hafa gert sér fulla grein fyrir
því að hann flytti hættulegan farm
og lagði til dæmis mikla áherslu á
að binda hann eins og hann best
gat. Hann hafði frumkvæði að því
að skipta um dekk eftir suðurferðina
og þegar hann tók eftir því að tekið
var að rjúka af dekki leitaði hann
aðstoðar við að endurhlaða á vagn
inn og létta hann, þó þær aðgerðir
hans hafi ekki verið nægilegar,“ segir
í dóminum.
Samkvæmt varðstjóra hjá Lög
reglunni á Akureyri eru sum at
vinnuflutningafyrirtæki alltaf með
sitt á hreinu og vinni eftir reglum en
önnur sýni minni ábyrgð. a
Línur skapi víðar vanda
Ekki er búið að selja umdeild
ar kræklingalínur út úr þrotabúi
Skelfélagsins. Þetta upplýsir Víð
ir Björnsson sem starfað hefur að
kræklingarækt í Eyjafirði um langt
árabil. Víðir segir í athugasemd við
frétt blaðsins í síðustu viku um
árekstra sjómanna við línurnar,
að tveir aðilar hafi sýnt því áhuga
að taka línur og fleira yfir en Um
hverfisstofnun muni taka ákvörðun
um framhaldið.
Annar sem til þekkir bendir á
að línurnar sunnan við Hrísey séu
einnig ómerktar og hafi bátar lent
í þeim þar sem þær fljóti í yfirborði
sjávar. Siglingaviðvörun hafi verið
gefin út um Eyjafjörð og sé n.a. á
vefnum hjá Samskipum. Ástandið
sé ekki skipaferðum um fjörðinn til
framdráttar.
Í frétt blaðsins í síðustu viku
kvartaði Ólafur Gunnarsson sjó
maður yfir því að kræklingalín
ur, ekki síst austan Skjaldarvíkur,
lægju eins og hráviði í sjónum og
ógnuðu öryggi sjómanna sem hafa
lent í því að fá línur í skrúfuna.
Kallaði Ólafur afgreiðslu þeirra
sem staðið hafa að kræklingarækt
á þessum slóðum stórhættulegan
sóðaskap. Annað hvort þyrfti að
merkja línurnar vel eða fjarlægja
þær. a
FSA harmar tilvik sem
olli ama siglfirskrar konu
Sigurður E. Sigurðsson, fram
kvæmdastjóri lækninga og hand
lækningasviðs, Sjúkrahúsinu á Ak
ureyri, segir að stofnunin harmi öll
tilvik þar sem notendur læknaþjón
ustu kunni að hafa fengið óskýra
upplýsingagjöf eða læknismeðferð
sem valdi óþörfum andlegum og
líkamlegum þjáningum. Í frétt á
visir.is í vikunni var sögð reynslu
saga ungrar konu frá Siglufirði sem
hafði brotið fingur og fékk nagla
til að laga brotið á FSA. Naglarn
ir komu síðar upp úr húðinni og í
kjölfarið lýsti konan hvernig henni
varð innanbrjósts. Hún var ósátt
við að fá ekki meðhöndlun strax
og taldi að óhappatilviljanir og
skortur á þjónustu hefðu valdið
miska.
Sigurður segist ekki geta rætt
mál einstakra notenda heilbrigð
isþjónustunnar en almennt taki
spítalinn það alvarlega ef óskýr
samskipti hafi áhrif á þjónustuna.
Almennt um ísetningu nagla kunni
sú staða að koma upp að þeir losni
og fari þá stundum upp í gegnum
húð. Í öðrum tilfellum eru þeir
hafðir frá upphafi í gegnum húð
svo auðveldara sé að fjarlægja síð
ar. Hann geti ekki rætt mál ungu
konunnar sérstaklega en farið sé
yfir allar kvartanir. Sigurður telur
ekki að fjársvelti kerfisins hafi verið
skýring á þessu atviki.
Samkvæmt heimildum blaðsins
fór aðgerð fram á konunni sl. mánu
dag og gekk hún vel. a
UMFERÐARSLYS KOSTA MANNSLÍF á Íslandi sem annarsstaðar. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar beint. Völundur