Akureyri


Akureyri - 31.10.2013, Blaðsíða 11

Akureyri - 31.10.2013, Blaðsíða 11
1131. október 2013 Enn er talið mun betra að vera strákastelpa en stelpustrákur Kvennafrídagsins var minnst með ýmsum hætti sl. fimmtudag. Fjöl- margir fyrirlesarar fluttu erindi á fundi Jafnréttisstofu og Akureyrar- bæjar og vakti margt athygli. Boðað var til fundarins undir yfirskriftinni Rjúfum hefðirnar – förum nýjar leiðir. Fundurinn var helgaður kynbundnu náms- og starfsvali og kynskiptum vinnu- markaði. Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, sagði í erindi sínu að kynbundið val væri eitt af því sem skýrði launa- mun kynjanna. En ein spurningin er hvort fólk er frjálst að vali sínu. Hvort fólk fái rými og blessun í sam- félaginu til að nema og starfa við það sem það langar til. Kristín benti á að ekkert rök- legt mæli sérstaklega gegn því að karlar séu hjúkrunarfræðingar eða konur pípulagningarmenn. Ekki þá annað en sagan, hefðirnar fordómar og samkeppni kynjanna um launa- bjargirnar. Kristín sagði vandann hvorki lagalegan né líkamlegan, hins vegar væri hann inngróinn í þann hugmyndaarf sem við bærum frá kynslóð til kynslóðar. BJAGAÐ GILDISMAT? Ef grannt er skoðað gætu margir orðið sammála um, að minnsta kosti á efsta degi, að fátt væri mikilvægara í lífinu en búa vel að börnum. Margir gætu orðið sammála um að það að koma börnum til manns væri verð- mætara starf en að skiptast á verð- bréfum fyrir holan gróða. Launasaga kennara og verðbréfamiðlara degur upp allt aðra mynd. „Við þurfum að breyta verðmætamatinu, nýta mannauðinn betur,“ sagði Kristín. ÚRELTAR STAÐALÍMYND- IR ENN VIÐ LÝÐI Kjarakönnun BHM í vor sýndi áber- andi launamun milli kynja hjá öllum vinnuveitendum. Línulegt samband var milli launa og fjölda kvenna í að- ildarfélagi, því fleiri konur því lægri laun. Samkvæmt upplýsingum frá Jafnréttisstofu eru úreltar staðal- myndir kynjanna þegar kemur að náms- og starfvali enn rótgrónar. Sem dæmi má nefna að árið 2011 voru konur 95% starfsmanna á leik- skólum en karlar 91% starfsmanna við fiskveiðar. Konur hafa þó frekar en karlar brotist yfir landamærin og virðast hafa meira frelsi til að fara ótroðnar slóðir.Það kom fram í erind- um á fundinum. Karlar mæta hins vegar oft fordómum ef þeir hætta sér inn í hefðbundnar kvennagrein- ar. Þá komu í erindum fyrirlesara einnig fram vísbendingar um að ungum konum stafi meiri jafnrétti- sógn af jafnöldrum sínum en eldri karlmönnum. Með öðrum orðum eru ungir menn íhaldssamari í dag en fyrir nokkrum árum. TEIKN Á LOFTI Ísland mældist í síðustu viku sem fremsta land kynjajafnréttis en ótal margt er þó óunnið. Í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar gegn kynbundn- um launamun er gert ráð fyrir að unnin verði framkvæmdaáætlun, um langtímaaðgerðir til úrbóta, þar sem sérstök áhersla verður lögð á að fjölga körlum í kvennastéttum og konum í karlastéttum. Baldvin B. Ringsted yfirmaður tæknisviðs við VMA, sagði í sínum fyrirlestri frá já- kvæðum teiknum innan veggja skól- ans. Sprengingar hefðu orðið í sókn kvenna í málm- og véltæknigreinar. Stúlkur voru í þeim greinum í haust 10% nýnema. „Þetta er mesti fjöldi sem við höfum séð,“ sagði Baldvin. Múrar hafa einnig hrunið í hina áttina. Í haust innrituðust tveir piltar á sjúkraliðabraut skólans. Það hefur ekki gerst áður. Formaður nemenda- félagsins Þórdunu er stúlka í fyrsta sinn í sögunni að sögn Baldvins. Að loknu erindi barst Baldvini fyrirspurn úr sal um kynskiptingu kennara í verknámi iðnnema. Þá kom á daginn að aðeins konur kenna hár- greiðslu við skólann. Hitt eru allt karlar. AÐ HALDA Í KARLMENNSKUNA Lena Rut Birgisdóttir námsráð- gjafi við MA hefur skoðað reynslu karla í kvennastörfum. Hún flutti erindi sem hún kallaði: Að halda í karlmennskuna. Hún gerði rann- sókn þar sem rætt var við nokkra karla sem gegna „hefðbundnum“ kvennastörfum, s.s. hjúkrunar- fræðing, karlmann á öldrunarheim- ili og karlmann á leikskóla.Sam- kvæmt viðtalsrannsókninni kom fram sá rauði þráður að karlar velja ekki „kvennastörf“ vegna launanna. Líka má greina hræðslu við stimpil, ímynd. Meiri krafa virð- ist um að karlar séu fyrirvinnan, tengist einnig virðingu. Þá höndla ekki allir karlar óttann við að vera álitnir „kvenlegir“ sem aftur veltur upp spurningum um skaðlega karl- mennsku og jafnvel hómófóbíu. Einn viðmælenda Lenu Rutar leitar eftir karlmannlegu athæfi eftir að „mjúku vinnunni“ lýkur á daginn. Karlarnir töldu það tvennt ólíkt ef karl sækir um kvennastarf en stelpa um karlastarf. Greina mátti eðlishyggju í viðhorfum sumra karlanna sam- kvæmt rannsókninni. Ef hugga átti barn á leikskóla var haldið fram að konur gerðu það öðruvísi en karlar svo eitt dæmi sé nefnt. Þá nefndu sumir karlanna að samræður á vinnustöðum þar sem konur eru ríkj- andi væru of persónulegar og körlum fyndist erfitt að taka þátt. Margir karlanna töldu að konur ættu ekki að vera sjómenn eða elta slíkar greinar. ÍHALDSSAMIR UNGIR MENN „Það er ekki nóg að vel sé tekið á móti nemendum af báðum kynjum ef vinnumarkaðurinn reynist svo ekki tilbúinn fyrir breytingar,“ sagði Katrín Björg. STELPUR Í SMÍÐUM Berglind Judith Jónadóttir húsa- og húsagnasmiður og Guðrún Björg Eyjólfsdóttir húsagnasmiður reka verkstæðið Mublur. Þeirra erindi bar skemmtilega tvíræðan titil: Stelpur í smíðum. Í ljós kom að önnur þeirra hafði lært förðunarfræði en komst svo að því að það hentaði ekki. „Ef maður vill verða smiður þá verður maður smiður,“ sagði hún. Þess vegna er hún smiður í dag. Þær sögðust ekki hafa upplifað fordóma vegna þess að þær væru konur í karllægri grein. Kann það að tengjast því að þær eru ekki í beinni samkeppni við aðra karla um nákvæmlega sömu bjargir. Þær sögðu eina gallann við að vinna starf- ið að það gætu skapast sjaldgæfar aðstæður þar sem beita þyrfti miklu líkamlegu afli en þá væri ekkert mál að biðja um hjálp eins og t.d. þegar losa þyrfti sérlega föst sagarblöð. „Fólk hefur voða gaman af því að sjá stelpur í smíðabuxum,“ sögðu þær. Skilja mátti af máli þeirra að ekki væri fullt frelsi hjá sumum stelpum til að feta sömu stigu og þær hafa gert. Oft kæmi fyrir að stelpur segðu: „Ég vildi að ég gæti þetta.“ Þær Berglind og Guðrún voru sammála um að erfiðara væri fyrir stráka að fara í stelpustörf, en öfugt. ÁTAK SKILAR ÁRANGRI Halldór S. Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar , hefur ítrekað verið í fréttum eftir að hann tók það skref í sumar að reyna kerfisbundið að fjölga karlmönnum í störfum innan Öldrunarheimila Akureyrar. Hon- um fannst að við hæfi að nota jafn- réttislögin til halds og trausts og ákvað sl. vor að auglýsa í tvennu lagi eftir sumarafleysingafólki, annars vegar eftir fólki með reynslu en líka sérstaklega eftir körlum. „Á þessum tíma voru fimm karlar skráðir í vinnu innan Öldrunarheimila Akureyrar, 2,3 prósent af heildarfjölda. Mér datt í hug að við fengjum kannski 2 í við- bót en það bárust alls 25 umsókir frá körlum. Við réðum 14 karla til starfa og í dag eru starfandi 16 karlar, þar af eru 11 í umönnunarstörfum. Við höfum með þessu einfalda átaki aukið fjölda karla um 200 prósent hjá okkur,“ sagði Halldór. Hann segir reynsluna af þessu hafa verið góða fyrir starfið. ÁNÆGÐUR ÍBÚI Akureyri vikublað ræddi við vist- mann á Hlíð, karl, sem hefur upplifað þá breytingu að sjá aukinn fjölda karla sinna sér. Hann vildi ekki koma fram undir nafni en sagði engu máli skipta af hvoru kyninu fólk væri. Mestu skipti að fagmennska og alúð einkenndi störfin. Þessi vistmaður sagðist ánægður með að fá fleiri karla inn á stofnunina því þá kæmu upp „fleiri spennandi umræðuefni“, enda væru menningarheimar ekki síst eldri kynslóða ögn ólíkir eftir kynjum. a Úttekt Björn Þorláksson MIKIÐ FJÖLMENNI SÓTTI málþing á Hótel KEA á kvenna- frídeginum. BÞ

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.