Akureyri - 31.10.2013, Síða 14
14 31. október 2013
AÐSEND GREIN HREFNA HJÁLMARSDÓTTIR
EM IIIII L ..........
Um þessar mundir sýnir Frey-
vangsleikhúsið barnaleikritið sívin-
sæla um snáðann Emil í Kattholti
og fjölskyldu hans eftir sænska rit-
höfundinn Astrid Lindgren. Astrid
Lindgren ( 1907-2002) þarf vart
að kynna fyrir íslenskum lesend-
um. Bækur hennar voru þýddar á
íslensku mjög snemma og margar
hverjar af frábærum þýðendum. Fyr-
ir það megum við vera þakklát.
Astrid Lindgren er án efa einhver
vinsælasti barnabókahöfundur á
Norðurlöndum ásamt H.C. Andersen.
En hverjar eru skýringar á þessum
dæmalausu vinsældum hennar? Það
kemur margt til. Astrid var auðvitað
frábær höfundur, réði yfir margskon-
ar frásagnarhætti og stílgaldri. Hún
virðist einnig hafa verið mjög fljót að
tileinka sér nýja miðla. Sögur hennar
voru lesnar snemma í útvarp og gerð
útvarpsleikrit eftir þeim. Einnig voru
gerðir framhaldsþættir eins og t.d.
um Línu langsokk og kvikmyndir
um Sumar á Saltkráku og Ronju
ræningjadóttur. Og ekki má gleyma
öllum leikritunum sem sett hafa
verið á svið.
En Astrid átti líka auðvelt með að
velja sér góða samverkamenn, ekki
síst teiknara og tónlistarmenn.
Ingrid Vang Nyman (1916-1959)
var fyrsti teiknarinn sem Astrid
Lindgren vann með. Hún var höf-
undur Línu þessarar dæmalausu og
skemmtilegu persónu (stelpu) sem
á sínum tíma fór mjög fyrir brjóstið
á ráðamönnum og var talin geta
haft skaðleg áhrif á börn. Ingrid
Nyman teiknaði að auki myndir í
margar aðrar barnabækur og var
afkastamikil. Hún hlaut mikið lof
fyrir myndi af grænlenskum börnum.
Ingrid Vang Nyman gekk ekki heil
til skógar. Hún glímdi við þunglyndi
og var oft lengi frá vinnu. Einmitt
þannig var ástandið þegar bókin
um Emil í Kattholti var að koma út.
Þá sárvantaði góðan teiknara og þá
kom Björn Berg (1923-2008) eins og
kallaður. Hann myndskreytti bókina
skemmtilega og gaf þessum dæma-
lausa dreng útlit við hæfi. Myndirnar
eru fjörlegar, næstum órólegar enda
er Emil alltaf á ferðinni. Og pottlokið
og síða skyrtan er ómissandi. Talið
er að fyrirmyndin hafi verið sonur-
inn Torbjörn. Ekki varð framhald á
samstarfi Björns Borg og Astrid enda
hafði hann fyrst og fremst hlaupið
í skarðið fyrir Inger Nyman. Hann
hélt áfram að reikna myndir í barna-
bækurfrægra höfunda eins og t.d.
Alf Pröysen.
Astrid vann líka með mörgum
góðum tónlistamönnum. Einn þeirra
var Georg Riedel. Hann var Tékki en
kom barnungur flóttadrengur til Sví-
þjóðar eftir síðari heimsstyrjöldina.
Hann samdi tónlist við fjöldamarga
sjónvarpsþætti sem geriðir voru eftir
sögum A.L. Eitt laga hans hans, Vor-
söngur Idu þykir það sænskasta af
öllu sænsku þar sem Ida litla lýsir
því hvernig hún þokar hinum langa
vetri í burtu svo vorið geti farið að
njóta sín. Böðvar Guðmundsson
þýddi þennan texta þegar leikritið
um Emil var sett upp hjá L.A. fyrir
allmörgum árum. Hefur orðið vin-
sæll leikskólasöngur.
Inger Nyman lést fyrir aldur
fram aðeins 46 ára. Fyrir algjöra
tilviljun kom nýr teiknari fram á
sjónarsviðið. Ung óþekkt stúlka frá
Eistlandi, Ilon Wikland f. 1930 var að
leita sér að vinnu og fékk það verk-
efni að myndskreyta söguna Elsku
Mio minn til reynslu. Ilon, sem hafði
einnig komið sem flóttabarn til Sví-
þjóðar 1944 hafði góða athyglisgáfu
og tók vel eftir öllum smáatriðum.
Hún reyndist frábær listamaður og
myndskreytti m.a. söguna um Ronju
ræningjadóttur, Bróðir minn ljóns-
hjarta, Börnin í Ólátagarði , Maddit
og Betu, Drekann með rauðu augun
og sögurnar um Lottu. Ilon teikn-
aði bæði pennateikningar og málaði
vatnslitamyndir. Hún nostraði mikið
við myndirnar, gluggatjöld, borðbún-
aður, fatnaður, húsgögn, landslag,
allt var teiknað mjög vandlega. Og
ekki gleymdi hún koppnum undir
rúminu eða mynstrinu á veggfóðrinu
þar sem það átti við. Enda er hún
talin hafa varðveitt andblæ liðins
tíma með myndum sínum.
Astrid Lindgren var mjög af-
kastamikill rithöfundur. Hún náði
háum aldri og hélt andlegum kröft-
um óvenju lengi. Mjög margar bækur
hennar eru enn óþýddar á íslensku.
Vissulega skreyttu margir aðrir lista-
menn bækur hennar en hér eru nefnd
en þessi þrjú, sem myndskreyttu þær
sögur sem hafa orðið vinsælastar.
Þeir sem lesa bækur fyr-
ir börn og með börnum vita hve
myndskreytingar í barnabókum
eru mikilvægar. Það er afskaplega
gaman að benda börnum á einstakar
myndir, byggingu þeirra, liti , ljós og
skugga o.fl.
Ég er þess fullviss að eftir að
hafa séð Emil í Kattholti á leiksviði
í Freyvangs-leikhúsinu mun mörg
börn þyrsta í fleiri sögur eftir þennan
frábæra höfund. Var ekki einhver
að tala um að yndislestur væri eitt
fegursta orð í íslenskri tungu?
Höfundur er fv. leikskóla-
kennari og heimsótti slóðir Astrid
Lindgren haustið 2005
Ingrid Vang Nyman (1916-1959)
var fyrsti teiknarinn sem Astrid
Lindgren vann með. Hún var
höfundur Línu þessarar dæmalausu
og skemmtilegu persónu (stelpu) sem
á sínum tíma fór mjög fyrir brjóstið á
ráðamönnum og var talin geta haft
skaðleg áhrif á börn
NOKKUR DÆMI UM frábæra teiknivinnu.
Gjöfult samstarf á
landsbyggðinni
Þann 2. nóvember í Hofi á Akureyri
og 3. nóvember í Kirkju- og menn-
ingarmiðstöðinni á Eskifirði gefst
tækifæri til að rifja upp gamla þegar
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands,
Tónlistarmiðstöð Austurlands og
Kór Fjarðabyggðar sameina krafta
sína ásamt Gunnari Þórðarsyni,
Daníel Þorsteinssyni og einsöngv-
urunum Heiðu Ólafs og Matta Matt.
Tónleikarnir eru helgaðir helstu
perlum íslensku poppsögunnar frá
árunum 1960-1980 þar sem lög
Gunnars Þórðarsonar skipa veiga-
mikinn sess. Gunnar Þórðarson
fagnar í ár hálfrar aldar afmæli
sem tónlistarmaður enda er tónlist
hans þjóðkunn og fjölbreytt og hefur
fylgt mörgum á lífsleiðinni. Nýjasta
þrekvirki hans svo dæmi sé tekið er
óperan Ragnheiður sem hlaut ein-
róma lof.
Á efnisskrá tónleikanna 2. og
3. nóvember verða lög á borð við
Starlight, To be grateful, Dont try
to fool me, Söknuður og Disco frisco
og hljómsveitarstjórn og útsetningar
eru í höndum Gunnars Þórðarson-
ar og Daníels Þorsteinssonar. Auk
20 manna strengja- og ryþmískrar
hljómsveitar kemur fram 50 manna
kór undir stjórn Gillian Haworth
svo búast má við „miklum krafti og
djúsí poppi og diskói“ eins og segir
í tilkynningu frá aðstandendum. a
HEIÐA ÓLAFS
MATTI MATT
ÚLPUDAGAR
30-50% AFSLÁTTUR
Af völdum úlpum
Stærðir xs - xxl