Akureyri - 31.10.2013, Blaðsíða 16
16 31. október 2013
AÐSEND GREIN SIGRÚN JÓNSDÓTTIR
Mikilvægi þess að krabba-
meinssjúklingar séu virkir
Á árum áður var Krabbameinssjúk-
lingum ráðlagt að hafa hægt um
sig meðan að þeir voru í Krabba-
meinsmeðferð, hvort sem um var að
ræða lyfja- eða geislameð-
ferð. Endilega fara vel með
sig. það hefur aðra merk-
ingu hjá okkur í nútíman-
um. Í dag er átt við að huga
vel að virkni sinni eins og
hægt er, hreyfa sig daglega.
Stunda eftir aðstæðum
þjálfun bæði styrkjandi og
þolaukandi í samráði við
viðkomandi krabbameins-
lækni og annað fagfólk.
Regluleg hreyfing og þjálfun
hefur fjölþætt gildi fyrir almenna
heilsu og vellíðan fólks. Sýnt hef-
ur verið fram á að hún hefur einnig
forvarnargildi og dregur úr lík-
um á langvinnum sjúkdómum og
heilsufarskvillum.
Aðgerðarleysi bætir ekkert
Rannsóknir hafa sýnt fram á hversu
slæm áhrif kyrrseta, hefur á lík-
amann, til lengri tíma. Hún veldur
rýrnun á vöðvum og vöðvastyrk,
veikir hjartavöðvann og blóðrásar-
kerfið ,hægir á efnaskiptum líkam-
ans og hefur ekki góð áhrif á and-
lega líðan fólks. Að breyta og bæta
lífstílinn með reglulegri hreyfingu,
þjálfun og bættu matarræði er
mjög mikilvægt fyrir alla. Þar eru
krabbabeinssjúklingar engin undan-
tekning. Ávinningur af hreyfingu og
þjálfun er sá sami fyrir þá .Hætta
er á því að krabbameinssjúklingur
dragi sig í hlé eftir að lyfjameðferð
hefst. Hann upplifir sig veikan eða
slappan, með slen eða þreytu jafn-
vel aukið stress eða depurð. Í þessu
ástandi hefur fólk tilhneigingu
til að draga úr virkni sinni á alla
lund og viðhaldi því ástandi eftir
að Krabbameinsmeðferð lýkur. Það
hjálpar ekki til, né dregur úr, ein-
kennum að hætta að hreyfa
sig. Því er mjög mikilvægt í
heildina litið að hreyfa sig
reglulega, stunda æfingar
og fara í gönguferðir.
Fleiri greinast með
krabbamein
Í dag greinist fólk fyrr
með krabbamein en áður.
Því má þakka öflugri tækja-
kosti og þekkingu, bæði til
rannsókna og meðferðar. Einnig eru
lyfin orðin betri. Líf krabbameins-
sjúklinga hefur því lengst, jafnvel um
mörg ár, eftir lyfjameðferð auk þess
sem fleiri læknast af krabbameininu.
Meiri athygli beinist því að bætt-
um lífsgæðum fyrir krabbameins-
sjúklinga bæði á meðferðartíma en
einnig á eftir. Sýnt hefur verið fram
á að krabbameinssjúklingur bætir
lífsgæði sín með daglegri líkamlegri
virkni s.s. með þjálfun sem eykur
úthald og vöðvastyrk. Hreyfing veitir
líkamlegan og andlegan styrk til að
takast á við krabbameinsmeðferðina,
dregur jafnvel úr sumum hliðarverk-
unum s.s. þreytu, ógleði, þunglyndi,
streitu og ótta, sem algengar eru í
kjölfar lyfjameðferðar. Ekki má
gleyma að nefna áhrifamátt góðra
öndunaræfinga og slökunar sem oft
ná að losa um innri spennu með því
að ná ró og góðri slökun. Af þessu
leiðir aukinn súrefnisflutningur um
líkamann sem bætir svefn og and-
lega líðan.
tengslanetið er nauðsynlegt
Það er mikilvægt fyrir krabbameins-
sjúklinga að hafa gott stuðningsnet
í kringum sig. Hvort sem um er að
ræða aðstandendur eða vini sem
sýna skilning og eru hvetjandi til
aukinnar hreyfingar og virkni al-
mennt. Hættan er sú að fólk einangr-
ist þegar það dregur sig í hlé, t.d. úr
vinnu og fer í annan takt en aðrir í
umhverfinu. Þá er gott að geta mætt í
hóp þar sem skilningur er fyrir sjúk-
dómnum og aðstæðum er fyrir hendi.
Finna samkenndina í sameiginlegri
reynslu. Þar fæst félagsleg örvun og
jafnvel er hægt að ræða þá hluti sem
meira segja er erfitt að deila með
sínum nánustu.
Hvað er í boði á Akureyri
Krabbameinsfélag Akureyrar og
nágrennis (KAON) leggur metnað
sinn í að mæta þörfum skjólstæðinga
sinna til bættrar heilsu, eins og það
er megnugt, ásamt því fylgja því
besta sem þekkist á heilbrigðissviði,
hverju sinni. Á Akureyri er starf-
rækt hópþjálfun fyrir Krabbameins-
sjúka á vegum KAON og undir stjórn
Sigrúnar Jónsdóttur sjúkraþjálfara.
Boðið er upp á æfingar í vatni eða
sundleikfimi, styrkjandi og liðkandi
æfingar í sal og sérstaka tíma fyrir
öndunar og slökunaræfingar. Allar
þessar æfingar henta vel krabba-
meinssjúklingum og langveikum en
ekki síst æfingar í vatni sem reynst
hafa krabbameinssjúklingum mjög
vel. Vegna flotáhrifa vegur fólk að-
eins um 10% af þyngd sinni í vatninu.
Vatnið styður við liðarmót og gerir
fólki kleift að hreyfa sig á margan
hátt sem það annars gæti ekki, að
ekki sé talað um ef til staðar er stirð-
leiki eða eymsli í liðum. Þannig get-
ur liðleiki aukist við auknar hreyf-
ingar. Vatnið getur gefið töluverða
mótstöðu í hverri hreyfingu allt eftir
því hversu hröð hreyfingin er. Þannig
að vöðva styrkjandi þáttur hreyf-
ingar getur verið mikill. Hreyfingar
í vatni auka efnaskipti og blóðflæði
til vöðva og súrefnisupptöku. Æski-
legt hitastig við æfingar er 27°-31°
þess vegna og vegna uppdrif vatns-
ins verður sársauki við gerð æfinga
minni og hefur slakandi áhrif.
eflumst við þrengingar
Kæru Akureyringar og Norð-
lendingar. Mikið er talað um
þrengingar í heilbrigðiskerfinu.
Þrátt fyrir það láta Eyfirðingar
ekki deigan síga heldur fylgja eftir
því sem nýjustu rannsóknir sýna að
bæti heilsu og hjálpi fólki í baráttu
við krabbamein. Ef allir leggja hönd
á plóg mun sá sem við sjúkdóminn
glímir verða áfram virkur, hreyfa sig
og njóta þess að vera nýtur samfé-
lagsþegn. Hvetjum hvort annað til
dáða og styðjum jákvætt við bakið
á þeim er ganga þessa götu.
Höfundur er sjúkraþjálfari
RANNSÓKNIR SÝNA AÐ
regluleg hreyfing og þjálfun
skiptir máli
Hvetjum hvort
annað til dáða
og styðjum
jákvætt við bakið
á þeim er ganga
þessa götu
Tryggvi
Sveinbjörnsson