Akureyri - 31.10.2013, Qupperneq 18
18 31. október 2013
AÐSEND GREIN TRYGGVI SVEINBJÖRNSSON
Ríku sveitarfélögin og
klíkuskapurinn
Í vikunni var að ég að lesa frétt þar
sem Akureyrarbær var dæmdur til
að greiða skaðabætur þar sem þeir
tóku ekki lægsta tilboði í byggingu
íþróttamiðstöðvar við Giljaskóla.
Þetta á e.t.v. við fleiri
sveitarfélög á svæðinu og í
þessu tilfelli nefni ég Hörg-
ársveit.
Það hefur ekki verið
fjallað um það hvaða að-
ferðir sveitarstjórn Hörg-
ársveitar viðhafði við val á
fyrirtækjum eða einstak-
lingum til að sjá um skóla-
akstur við Þelamerkurskóla
árið 2013 til 2014 en þeir auglýstu
eftir tilboðum í aksturinn sl. vor.
Til að gera langa sögu stutta bauð
FAB Travel ehf sem hefur ekið við
skólann frá árinu 2005 lægsta verð í
fjórar leiðir af fimm en sveitarstjórn
taldi sig ekki þurfa að taka lægsta
tilboði heldur eftir einhverjum
óskiljanlegum tilbúnum reglum sem
ekki hafa fengist útskýrðar ennþá.
Að minnsta kosti óskaði ég eftir að fá
rökstuðning eftir hverju var valið af
þeim fyrirtækjum og einstaklingum
sem buðu í þennan akstur. Í fyrstu
sagði sveitarstjóri að skólastjórn-
endur hefðu mikið um þetta að segja
en þegar leitað var til þeirra báru
þau af sér allar sakir og sögðu að
þau hefðu ekkert að kvarta undan
þjónustu FAB Travel ehf.
Ég hef enn ekki fengið viðhlít-
andi svör þótt sveitarstjórnin hafi
fengið lögfræðing til að svara mér
eftir að ég hafði sent formlegt bréf
til sveitarstjórnar, en svo virðist að
sveitarstjóri hafi haldið
sveitarstjórn frá kröfum
mínum um rökstuðning,
þar til í júlí eða þremur
mánuðum eftir að útboð-
ið fór fram. Lögfræðibréf
þetta er eitt af því fyndn-
asta sem ég hef séð og
bara einhver málamynda-
gjörningur til að þagga
niður í undirrituðum. Á
sama tíma dældi sveitarstjóri yfir
mig ábyrgðarbréfum, eins og hann
vissi ekkert hvað sveitastjórn eða
lögfræðingur þeirra var að gera.
Þetta er efni í gott leikrit sem ætti
að sýna að Melum hálfum mánuði
fyrir kosningar í vor.
Til gamans er hér að neðan út-
reikningur sem ég tók saman sem
sveitarfélagið þarf að greiða meira
fyrir skólaaksturinn skv. heimatil-
búnum reglum og/eða klíkuskaps
Í uppgjöri sveitarfélagsins verður
mismunurinn e.t.v. færður sem gjafa-
gjörningur inn á Hópferðbíla Akur-
eyrar, Klæng Stefánsson og Sigurð
Gíslason? Samtals kr. 1.730.880,-
Það er aumkunarvert hvernig fólk
í opinberum stöðum getur ráðskast
með opinbert fé, fé sem það á ekki
og deilt því eftir einhverjum geð-
þóttaákvörðunum. En það verður
gaman að sjá hvernig meirihlutinn
í Hörgársveit svarar fyrir sig fyrir
næstu sveitastjórnarkosningar n.k.
vor. Eru þetta trúverðugir fulltrúar
að geta hent 1,7 milljónum út um
gluggann?
Tryggvi Sveinbjörnsson
Lögfræðibréf
þetta er eitt af
því fyndnasta
sem ég hef séð
og bara einhver
málamynda-
gjörningur til
að þagga niður
í undirrituðum.
SKÓLAAKSTUR ÞELAMERKURSKÓLA 2013 - 2014
Leið km pr. dag Lægsta boð kr. pr km Umsamið verð kr. pr. km Mismunur f. skólaárið 180 d.
Staðartunga - Skóli 62 280 320 558.000
Auðnir - Skóli 82 190 238 708.480
Skjaldarvík - Skóli 54 240 260 194.400
Lónsbakki - Skóli 50 320 350 270.000
Samtals mismunur 1.730.880
Tryggvi
Sveinbjörnsson
RJÚPNAVEIÐIN HÓFST SÍÐUSTU HELGI. Víða fréttist af þungu færi og lítilli veiði, en göngutúrinn er alltaf bætandi. Völundur
INNHEIMTUDAGUR ÞÓRS
Laugardaginn 2. nóvember klukkan 11 – 13
verður hinn árlegi innheimtudagur Þórs þar
sem foreldrar geta gengið frá æfingagjöldum
fyrir veturinn hjá öllum deildum. Auk þess munu
allar deildir kynna starfssemi sína.
Minnum fólk á ávísun tómstundaávísun Ak-
ureyrarbæjar, millideildarafslátt og systkinaaf-
sláttinn hjá Þór.
Boðið verður upp á
veitingar
Fólk er hvatt til þess að
fjölmenna í Hamar og
njóta dagsins
Frumtamning – framhaldsþjálfun
– leiðréttingarvinna – þjálfun fyrir
kynbótasýningar, keppni og sölu.
Reiðkennsla fyrir fólk á öllum aldri.
Heiðrún Ósk Eymundsdóttir og Pétur Örn
Sveinsson tamningamenn og reiðkennarar.
Sími: 849 5654 og 864 5337
Saurbaer.is
Velkomin á Hótel Skóga
Perla í suðri og mikilfengleg náttúra allt í kring
Sími 487- 4880
www.hotelskogar.is
hotelskogar@hotelskogar.is