Akureyri


Akureyri - 31.10.2013, Qupperneq 21

Akureyri - 31.10.2013, Qupperneq 21
31. október 2013 21 ANDARTAK Á AKUREYRI áherslu á að falla að staðalmyndum og vera „normal”. Reyndar hafi hún gert allt til að falla inní hópinn. Kvöðin að falla að samfélagslegum norm- um segir Þuríður að hafi ekki komið frá fjöl- skyldunni sinni, heldur telur hún að sjálf hafi hún beitt sig þrýstingi. Hugmyndirnar hafi hinsvegar komið úr fjölmiðlum. „Ég vinn á Te og Kaffi í Eymundsson og hef því gott aðgengi að allskonar tímaritum. Flest venju- leg tímarit sem stelpur lesa innihalda mjög áberandi staðalmyndir. Þar eru allskonar greinar og ráðgjöf fyr- ir gagnkynhneigð pör, t.a.m. hvernig konur eigi að gera kærastana ánægða og glaða. Af hverju er ekki fjallað um það hvernig stelpur geti gert kærusturnar ánægðar og glaðar?” spyr Þuríður og finnst að jöfnum höndum eigi að fjalla um samkynhneigða og gagn- kynhneigða, án þess að samkynhneigðir séu teknir sérstaklega umfjöllunar eins og um sérstök tilvik sé að ræða. „Hvað var svona merkilegt við að Jóhanna Sigurðardóttir, sem dæmi, væri lesbía?” Þuríður segist alltaf verða svolítið vand- ræðaleg þegar fólk gengur að henni og seg- ist vera stolt af því að hún hafi komið út úr skápnum. „Ég veit að fólk vill með þessu sýna stuðning. En á sama tíma finnst mér ég ekki það ekki þurfa að vera umræðuefni frekar en gagnkynhneigð fólks er umræðuefni. “ Hún bendir líka á að þarna sé um að ræða ákveðinn tvískinnung. „Ég veit að samfélagið samþykkir hver ég er. Það er jafnvel litið á íslenskt samfélag sem sérstaklega vinsamlegt samkynhneigðum. En af hverju er það ekki sýnt á skýrari hátt? Ef ég fletti tímariti þar sem lesbískt par er hluti af einhverri umfjöllun þá verð ég mjög stolt. En ég set samtímis spurningamerki við það. Af hverju verð ég svona stolt þegar það á að heita eðlilegt?” Hún bendir jafnframt á að það sé sjaldgæft að samkynhneigðir komi fyrir í umfjöllunum eða greinum án þess að kynhneigðin sé umfjöllunarefni. „Á sama tíma og við eigum að heita opin – þá erum við lokuð.” Þuríður bendir á að þær staðalmyndir sem tengist flokkun á fólki eftir kynhneigð eigi ekki síður við um homma og lesbíur en gagn- kynhneigða. „Ég vil ekki að fólk sé stimplað samkvæmt kynhneigð. Hommar eiga t.a.m. ekki að þurfa að vera hárgreiðslumenn eða förðunarfræðingar. Alveg eins á að gera ráð fyrir að þeir séu lögfræðingar, verkfræðingar eða hagfræðingar – í raun hvað sem er,” seg- ir Þuríður og bendir á að sem betur fer séu margir mjög opnir. „Samt rekst ég stundum á að kynhneigð mín er hluti af kynlífsfantasíum gagnkyn- hneigðra karla. Svo eru þeir sem halda að þar sem ég er lesbía þá sé ég alltaf að pæla í stelpum – og þá helst þessari staðalmynd sem talið er að strákar falli fyrir. En ég hef mína manngerð og auðvitað er ég ekkert frekar að pæla í stelpum en fólk er yfir höfuð að spá í annað fólk. Ég er hluti af samfélaginu, hvort heldur sem ég er samkynhneigð eða ekki.” Þannig geri samfélagið ráð fyrir því að fólk sé í ákveðnum flokkum. Það gefi lítið svigrúm fyrir einstaklingsbundna hegðun. Fólk geti vel verið samkynhneigt og gagnkynhneigt í senn. Önnur hvor kynhneigðin sé þá mögulega ráðandi og geti hlutföllin þá verið mjög mis- munandi. „Það þarf ekki að ákveða endanlega hvaða kynhneigð fólk hefur. Hún getur verið fljótandi og til dæmis er fullkomlega rökrétt að vera áttatíuogfimm prósent lesbía,” segir Þuríður. „Mér finnst heldur ekki að gagnkyn- hneigð eigi að vera skilgreind eða hólfuð niður. Allir ættu að hafa leyfi til að prófa sig áfram einhverntíman á lífsleiðinni. Ömmur sem hafa verið með strák í fjörutíu ár gætu þess vegna prófað að vera með stelpu.” Um leið og ráða megi bót á flokkun og staðalmyndum kynhneigðar segir Þuríður að erlendis glími fólk við mun meiri fordóma en hér á landi. „Ég var skiptinemi á Ítalíu og eins hef ég ferðast töluvert um Asíu,” segir Þuríður. „Ég hef séð samanburðinn úti í heimi þar sem fólk má ekki gifta sig og jafnvel ekki vera samkynhneigt. Þá verð ég svo þakklát fyrir að búa á Íslandi.” a Samt rekst ég stundum á að kyn- hneigð mín er hluti af kynlífsfantasí- um gagnkyn- hneigðra karla. ARON OG ÞURÍÐUR: litríkt fólk með sitt á hreinu. V ölu n du r

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.