Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 1
FÓTBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Þau tíðindi bárust úr Garðabænum í gær að
Þorlákur Árnason hefur ákveðið að hætta
þjálfun kvennaliðs Stjörnunnar í knatt-
spyrnu. Þorlákur hefur stýrt Stjörnuliðinu
með frábærum árangri undanfarin þrjú ár
en á þessum tíma hefur liðið í tvígang
hampað Íslandsmeistaratitlinum og einu
sinni bikarmeistaratitlinum. Víst er að önn-
ur félög munu horfa til Þorláks með það
fyrir augum að fá hann til starfa og ekki er
ólíklegt að ÍA verði eitt þeirra en Skaga-
menn leita að þjálfara fyrir meistaraflokk
karla. Þorlákur er ekki alveg ókunnugur ÍA
en hann þjálfaði á Skaganum.
„Mér stóð til boða að vera áfram en mér
finnst bara kominn tími til að kveðja Stjörn-
una eftir átta ára starf,“ sagði Þorlákur en
áður en hann tók við þjálfun kvennaliðsins
var hann yfirþjálfari yngri flokka Stjörn-
unnar og vann þar afar gott starf.
Ég er ekki hættur í þjálfun. Ég er þjálfari
U17 ára liðs karla og svo verður bara að
koma í ljós á næstu vikum hvert verður
framhaldið hjá mér. Ég hugsa að ég muni
vinna áfram í tengslum við fótboltann en ég
er ekkert að leita mér að sérstöku dæmi. Ef
eitthvað spennandi kemur upp þá skoða ég
það bara,“ sagði Þorlákur en Stjörnuliðið
náði þeim glæsilega árangri að vinna alla
leiki sína í Pepsi-deildinni á tímabilinu.
Nú eru nokkur karlalið að leita sér að
þjálfara eins og til að mynda Fram og ÍA.
Kæmi það til greina?
„Ég bara veit það ekki. Maður er löngu
kominn yfir það að vera að stressa sig eitt-
hvað á haustin yfir einhverju öðru. Ég er
búinn að vera lengi hjá sama félaginu og
hef ekkert verið að spá í neitt annað. Ég hef
átt alveg frábært samstarf við Einar Pál,
formann meistaraflokksráðs Stjörnunnar,
og er að skilja við alveg frábæran leik-
mannahóp sem mjög erfitt er að yfirgefa.
Ég er hins vegar búinn að ná öllum mínum
markmiðum hjá Stjörnunni með yngri flokk-
ana og meistaraflokkinn og finnst kominn
tími til að skipta um vinnustað,“ sagði Þor-
lákur.
Búinn að ná öllum mínum markmiðum
Þorlákur Árnason yfirgefur Íslandsmeistara Stjörnunnar Tekur hann við liði Skagamanna?
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2013
ÍÞRÓTTIR
Áfram í Keflavík Kristján Guðmundsson samdi áfram við Keflavík til tveggja ára í gær og stýrir því
liðinu í Pepsi-deildinni næsta sumar. Keflvíkingar stefna hærra á næsta ári og vilji er til að bæta í 3
Íþróttir
mbl.is
Harpa Þorsteinsdóttir, markadrottning úr
Stjörnunni, og Björn Daníel Sverrisson úr FH
voru í gær útnefnd bestu leikmenn í Pepsi-
deild kvenna og karla í knattspyrnu í hófi sem
haldið var í KSÍ í gær en það voru leikmenn í
deildinni sem tóku þátt í valinu.
Guðmunda Brynja Óladóttir hjá Selfossi og
Arnór Ingvi Traustason úr Keflavík urðu val-
inu valinu sem efnilegustu leikmenn deild-
arinnar.
Sérstök dómnefnd valdi Rúnar Kristinsson,
þjálfara Íslandsmeistara KR, sem þjálfara
ársins í Pepsi-deild karla og Þorlákur Árna-
son, þjálfari Íslandsmeistara Stjörnunnar,
varð fyrir valinu sem þjálfari ársins í Pepsi-
deild kvenna.
Gunnar Jarl Jónsson var valinn besti dóm-
arinn í Pepsi-deild karla en Ívar Orri Krist-
jánsson í Pepsi-deild kvenna.
Stuðningsmannaverðlaunin féllu Víkingi
Ólafsvík í karlaflokki og Stjörnunni í kvenna-
flokki í skaut.
Gunnleifur Gunnleifsson úr Breiðabliki og
Dóra María Lárusdóttir úr Val fengu háttvís-
isverðlaun einstaklinga. Í karlaflokki urðu
KR-ingar fyrir valinu og Stjarnan í kvenna-
flokki.
Þá fékk Atli Viðar Björnsson úr FH
gullskóinn fyrir að verða markahæstur í karla-
flokki og Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni,
fékk gullskóinn í kvennaflokki.
gummih@mbl.is
Harpa og Björn Daníel valin best
Arnór Ingvi Traustason og Guðmunda Brynja Óladóttir urðu fyrir valinu sem efnilegustu leikmenn-
irnir í Pepsi-deildinni Rúnar Kristinsson og Þorlákur Árnason þjálfarar ársins
Morgunblaðið/Rósa Braga
Best Harpa Þorsteinsdóttir og Björn Daníel Sverrisson, bestu leikmenn Pepsi-deildanna.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Efnilegust Geir Þorsteinsson og Guðmunda B. Óladóttur, efnilegasta leikmanni Pepsi-deildar.