Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Page 4
Styrkþegar F.v. Sigríður Þóra Reynisdóttir, Kristín Alexíusardóttir (f.h. Laufeyjar Tryggva-
dóttur), Edda S. Freysteinsdóttir, Birna Þorvaldsd., Anna Marzellíusard. og Inga Reynisdóttir.
Fimmtudaginn 10. október sl.
veitti styrktarfélagið Göng-
um saman íslenskum rann-
sóknaraðilum á sviði grunn-
rannsókna á
brjóstakrabbameini rann-
sóknarstyrki að fjárhæð 8
milljónir króna. Með þessari
styrkveitingu hefur Göngum
saman úthlutað alls rúmum
40 milljónum króna til grunn-
rannsókna á brjósta-
krabbameini frá stofnun fé-
lagsins fyrir sex árum.
Styrkurinn skiptist á milli
sex aðila:
Anna Marzellíus-
ardóttir, meistaranemi við
Háskóla Íslands. Leit að
áhrifabreytingum í erfðaefni
fjölskyldna með háa tíðni
brjóstakrabbameins. Ein
milljón króna.
Birna Þorvaldsdóttir,
meistaranemi við Háskóla Ís-
lands. Hefur telomer-lengd í
blóði forspárgildi um brjósta-
krabbameinsáhættu hjá
BRCA2-arfberum? Ein millj-
ón króna.
Edda Sigríður Frey-
steinsdóttir, meistaranemi
við Háskóla Íslands. Leit að
brjóstakrabbameinsgenum í
fjölskyldum án BRCA1/2-
tengsla. Ein milljón króna.
Inga Reynisdóttir, for-
stöðumaður Rannsókn-
arstofu í meinafræði, Land-
spítala. Leit að
samrunagenum í brjóstaæxl-
um sem bera mögnuð litn-
ingasvæði. Tvær milljónir
króna.
Laufey Tryggvadóttir,
klínískur prófessor við Há-
skóla Íslands og fram-
kvæmdastjóri Krabbameins-
skrár. Áhrif meðferðar og
æxliseiginleika á horfur
brjóstakrabbameinssjúklinga
með BRCA2-stökkbreyt-
ingar. 1,2 milljónir króna.
Sigríður Þóra Reyn-
isdóttir, doktorsnemi við Há-
skóla Íslands. miRNA-tjáning
í BRCA2-tengdu brjósta-
krabbameini. 1,8 milljónir
króna.
Göngum saman byggir
starf sitt á þátttöku almenn-
ings. Styrkveitingin í ár
byggist að mestu leyti á
frjálsum framlögum ein-
staklinga sem hafa lagt hafa
sitt af mörkum með þátttöku
í styrktargöngum, Reykja-
víkurmaraþoninu og kaupum
á söluvarningi félagsins.
Einnig hafa ýmis fé-
lagasamtök, fyrirtæki og ein-
staklingar lagt málefninu lið.
Upplýsingar um félagið er
að finna á www.gongumsam-
an.is. jonagnar@mbl.is
Styrktarfélagið Göngum sam-
an veitir styrki til grunnrann-
sókna á brjóstakrabbameini
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2013
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund sunnudag kl. 14.
Safnaðarheimili Grensáskirkju
Sunnudagurinn 20. okt.
Samkoma kl. 17. Ræðumaður
Hermann Bjarnason.
Samkoma kl.17 sunnudaginn
20. okt. í Kirkjustræti 2. Rannvá
Olsen talar.
Heimilasambandið á mánu-
dögum kl.15
Allir hjartanlega velkomnir
Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7
og fatabúð í Garðastræti 6,
opin alla virka daga kl. 13.-18
Nytjamarkaður í Mjódd opið
þriðjudag til föstudags frá
kl.13-18.
Kl. 11.00 Samkoma
Ræðumaður er Lauren Cunning-
ham, stofnandiYouth with a Mis-
sion. Kaffi og samfélag eftir
samkomuna.
Kl. 14.00 Samkoma á ensku
hjá Alþjóðakirkjunni. Paulo
Sicoli prédikar.
Kl. 18.00 Samkoma með
ljúfri lofgjörð og hagnýtri
prédikun. Helgi Guðnason
prédikar.
Vertu innilega velkomin/n á
samkomu í Hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu .
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur
Síðumúla 31,
s. 588 6060
Miðlarnir, spámiðlarnir og
huglæknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen talnaspekingur
og spámiðill, Ragnhildur
Filippusdóttir, Garðar Björg-
vinsson, Michael-miðill,
Símon Bacon, Guðríður
Hannesdóttir kristalsheilari
og auk annarra, starfa hjá
félaginu og bjóða félags-
mönnum og öðrum upp á einka-
tíma. Upplýsingar um félagið,
starfsemi þess, rannsóknir og
útgáfur, einkatíma og tíma-
pantanir eru alla virka daga
ársins frá kl. 13-18, auk þess
oft á kvöldin og um helgar.
SRFR
Félagslíf
8,0 samanborið við 7,8 að
meðaltali hjá Reykjavík-
urborg. Yngstu og elstu
starfsmennirnir eru ánægð-
astir í starfi, stjórnendur eru
ánægðari en aðrir og þeir
sem hafa skemmri starfstíma
en 3 ár og lengri en 20 ár eru
ánægðari en hinir.
Skóla- og frístundasvið
kemur einnig best út þegar
spurt er um tilgang starfsins,
hvort hæfni nýtist vel í starfi
og hvort starfsfólk sé stolt af
starfi sínu. Þar er gildið 8,4
samanborið við 8,2 að með-
altali hjá borginni.
Upplýsingaflæði stendur í
stað á milli mælinga, en 61%
starfsfólks telur upplýsinga-
streymi á sínum vinnustað
gott og 70% segjast fá nauð-
Ný viðhorfskönnun meðal
starfsmanna hjá Reykjavík-
urborg leiðir í ljós þá megin-
niðurstöðu að 85% þeirra eru
ánægð í starfi og líður vel í
vinnunni og er það hækkun
um eitt prósentustig frá árinu
2011. Helstu breytur sem
auka starfsánægju eru þættir
eins og viðurkenning, hvatn-
ing og metnaður í starfi, en
þeir hækkuðu á milli kann-
ana. 78% starfsfólks telja að
starf þeirra sé metið að verð-
leikum og fleiri fá hrós hjá
næsta yfirmanni eða 70%
starfsmanna.
Þá leiðir könnunin í ljós að
hlutfall starfsfólks sem fer í
starfsþróunarsamtöl hefur
aukist úr 58% á árinu 2011 í
66% og að sama skapi finnst
fleirum að samtalið hafi kom-
ið að gagni. 87% starfsmanna
töldu sig þekkja vel markmið
og stefnu vinnustaðarins og
tæp 80% töldu sig ánægð með
markmiðin.
Skóla- og frístundasvið
skorar
Þegar einstök svið og ein-
stakir þættir eru skoðaðir
kemur fram að starfs-
ánægjan er mest hjá skóla-
og frístundasviði, með gildið
synlegar upplýsingar sem
snerta starfið sitt og/eða
vinnustaðinn. Þá leiðir könn-
unin í ljós að bæta þarf
vinnuaðstöðu starfsfólks, 65%
telja vinnuaðstöðu sína góða,
einu prósentustigi minna en á
árinu 2011, og 72% telja sig
hafa aðgang að þeim gögnum
og tækjum sem þau þurfa
sem einnig er lækkun frá
fyrri könnun.
Þegar spurt er um ímynd
vinnustaðarins skorar menn-
ingar- og ferðamálasvið hæst
með gildið 8,6, samanborið
við 7,9 meðaltal hjá borginni
allri.
Fleiri borgarstarfsmenn
segjast nú upplifa jafnvægi
milli starfs og einkalífs, eða
80% starfsfólks og er það
tveimur prósentustigum
hærra hlutfall en á árinu
2011. Fleiri segjast segjast
einnig hafa sveigjanleika til
að samræma starf og einkalíf,
eða 80% miðað við 77% fyrir
tveimur árum. Starfsfólk
skóla- og frístundasviðs kem-
ur þar best út og ÍTR síst.
Þegar spurt er um vinnuá-
lag eru niðurstöðurnar ívið
betri en árið 2011, en þá töldu
58% að álag í starfi væri of
mikið þegar á heildina er lit-
ið, nú er þetta hlutfall 55%.
Nú segja 56% að vinnuálag
hafi aukist á síðustu 12 mán-
uðum – en árið 2011 sögðust
63% upplifa það.
Hlutfall þeirra sem sjá sig
áfram í starfi sínu eftir tvö ár
lækkar frá árinu 2011 úr 59%
í 57% og sama hlutfall og í
síðustu mælingu segist hugsa
oft um að hætta í núverandi
starfi, eða 22%.
Könnunin var gerð meðal
borgarstarfsmanna dagana
18. apríl til 22. maí 2013. Hún
náði til 7.076 starfsmanna eða
til allra ótímabundið ráðinna
stafsmanna og flestra tíma-
bundið ráðinna starfsmanna.
Alls bárust 4.835 svör og var
svarhlutfallið því 68%.
jonagnar@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Ráðhúsið Könnun meðal starfsmanna Reykjavíkurborgar
leiðir í ljós að 85% þeirra eru ánægð í starfi.
85% starfsmanna ánægð í starfi
Íslenskir kúabændur hafa
gefið Beinvernd nýjan fær-
anlegan beinþéttnimæli (óm-
tæki) að gjöf sem áætlað er að
nýta í samstarfi við heilsu-
gæsluna í landinu. Þessi gjöf
mun efla til muna forvarna-
starf gegn beinþynningu á
landsvísu því mikilvægt er að
greina sjúkdóminn í tíma.
Helstu forvarnir gegn bein-
þynningu sem tengist lífs-
háttum eru kalk, D-vítamín
og hreyfing.
Beinverndardagur 20.
október
Þann 20. október ár hvert
halda beinverndarfélög innan
alþjóða beinverndarsamtak-
anna International Osteopo-
rosis Foundation IOF upp á
alþjóðlegan beinverndardag
til að vekja fólk til vitundar
um að beinþynning er heilsu-
farsvandamál sem ber að taka
alvarlega. Beinvernd er eitt af
þessum beinverndarfélögum.
Beinþynning er sjúkdómur
í beinum sem veldur því að
beinmassinn minnkar og mis-
röðun verður í innri byggingu
beinsins sem leiðir til auk-
innar hættu á beinbrotum.
Beinþynning verður þegar
beinmagnið minnkar hraðar
en líkaminn endurnýjar það.
Flest brot af völdum bein-
þynningar verða á fram-
handlegg, upphandlegg,
mjöðm og hryggjarliðum og
geta valdið miklum verkjum,
verulegri hömlun og jafnvel
dauða.
Á heimsvísu er talið að
beinbrot af völdum beinþynn-
ingar verði á þriggja sek-
úndna fresti. Hér á landi
verða á milli 1400 og 1500
beinbrot vegna beinþynn-
ingar á ári eða um þrjú til
fjögur beinbrot á dag. Við
miðjan aldur mun ein af
hverjum þremur konum og
einn af hverjum fimm körlum
brotna af völdum beinþynn-
ingar síðar á ævinni og áhætt-
an eykst með auknum aldri.
Beinvernd mun á bein-
verndardaginn, þann 20.
október, opna nýuppfærðan
vef sinn www.beinvernd.is en
þar er finna mikinn fróðleik
um beinþynningu, forvarnir
og meðferð, að því er segir í
fréttatilkynningu.
jonagnar@mbl.is
Forvörn Íslenskir kúabændur hafa gefið Beinvernd nýjan
færanlegan beinþéttnimæli að gjöf.
Beinvernd fær
beinþéttnimæli að gjöf
Núna um helgina frumsýnir
Borgarleikhúsið í samstarfi
við unga nýja listamenn leik-
verkið Saumur eftir Anthony
Neilson. Á hverju ári út-
skrifar Listaháskólinn hátt á
þriðja tug sviðslistafólks.
„Þetta fólk slær okkur blíð-
lega utan undir, því fylgja
nýjar hugmyndir og önnur
viðhorf. Ef þetta fólk væri
ekki til þá myndi leikhúsið
deyja út. Við þurfum að hlúa
að því,“ segir í tilkynningu
frá Borgarleikhúsinu, sem
hefur í gegnum árin kapp-
kostað við að fá vaxtarsprota
inn í húsið, leikara, leik-
stjóra, höfunda og annað
sviðslistafólk. Einn af þess-
um vaxtarsprotum er Rík-
harður Hjartar Magnússon
sem leikstýrir verkinu.
Sagan segir af pari í
stormasömu sambandi sem
neyðist til að ákveða hvort
það sé tilbúið til þess að ala
upp barn. Unga parið veltir
fyrir sér hvort það eigi fram-
tíð saman þrátt fyrir reiði og
biturð yfir svikum fortíð-
arinnar. Ef hvorki er hægt
að taka til baka það sem
sagt hefur verið né það sem
hefur verið gert, er þá hægt
að hefja nýtt líf án þess að
fyrirgefa?
Verkið Saumur var upp-
haflega útskriftarverkefni
leikstjórans Ríkharðs Hjart-
ar Magnússonar úr fræði og
framkvæmd við Listaháskóla
Íslands og vakti mikla at-
hygli en verður nú sýnt í
nýrri og endurbættri útgáfu
á Litla sviði Borgarleikhúss-
ins.
Höfundurinn Anthony
Neilson (1967) er tvímæla-
laust eitt magnaðasta sam-
tímaleikskáld Bretlands.
Neilson hefur skrifað mikinn
fjölda leikrita, gríðarlega
ólík að gerð, innihaldi og
framsetningu. Meðal verka
eftir hann sem flutt hafa
verið hérlendis má nefna Pe-
netreitor, Ófagra veröld og
Lík í óskilum. Með hlutverk
parsins fara þau Hjörtur Jó-
hann Jónsson og Vala Krist-
ín Eiríksdóttir.
jonagnar@mbl.is
Borgarleikhúsið Hjörtur Jóhann Jónsson og Vala Kristín
Eiríksdóttir í hlutverkum sínum í Saumi.
Saumur frumsýndur í
Borgarleikhúsinu