Monitor - 10.10.2013, Page 16

Monitor - 10.10.2013, Page 16
16 MONITOR FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013 Rósa María Árnadóttir rosamaria@monitor.is stíllinn Júlíus Geir, hvernig myndir þú lýsa sjálfum þér og þínum stíl? Ég reyni að hafa minn stíl bara nokkuð einfaldan og þægilegan jafnvel. Mér finnst bara best að vera í því sem mér finnst kúl. Þannig kannski er ég bara einfaldur, þægilegur og kúl? Hvað ert þú að bardúsa þessa dagana? Þessa dagana er ég í Háskóla Íslands í líf- eindafræði og einnig í píanónámi í Tónlistar- skóla Kópavogs og bara á fullu í ræktinni. Svo vinnur maður inn á milli í Lyfju Smáralind! Hefur þú alltaf haft gaman af tísku? Já, alveg lúmskt, mér finnst t.d. gaman að kaupa föt á sjálfan mig. Tala nú ekki einu sinni um ef maður er erlendis með móður sinni, þá lætur maður hana borga reikninginn og hún hefur gaman af… Átt þú þér einhverja tískufyrirmynd, einhver sem veitir þér innblástur? Mér hefur alltaf fundist David Beckham rosalega flottur gaur, það er eiginlega alveg sama í hvað hann fer þá púllar hann það alltaf. Það mættu margir taka hann sér til fyrirmyndar. Í hvaða búðum verslar þú helst hér á Íslandi? En í útlöndum? Svona þegar ég lít á fataskápinn minn þá sé ég að flest fötin sem ég á eru keypt í útlönd- um og ein uppáhaldsbúðin mín er Topman, get alltaf fundið eitthvað flott þar. Svo eru það líka þessar „beisík“ búðir eins og HM. Mér finnst líka geðveikt gaman í Primark þar sem maður fær mikið fyrir lítið. Hver eru þín bestu kaup fyrr og síðar? 66°N úlpan mín. Búinn að eiga hana síðan í 10. bekk og hún hefur alltaf staðið fyrir sínu! Hvað er algjört möst fyrir veturinn að þínu mati? Það er klárlega eitt stykki góð úlpa og góðir vetrarskór! Stíllinn fékk Júlíus Geir Sveinsson, eða Ryan Gosling Íslands eins og margir vilja kalla hann, í heimsókn nú á dögunum. Júlíus stundar nám við Háskóla Íslands í lífeindafræði, hann elskar David Beckham og segir góða úlpu fyrir veturinn vera algjört möst. Þægilegur og kúl Mér hefur alltaf fundist David Beckham rosalega flottur gaur, það er eiginlega al- veg sama í hvað hann fer þá púllar hann það alltaf. PARTÍ SKÓR: TIMBERLAND BUXUR: HM SKYRTA: TOPMAN JAKKI: ORGINAL HVERDAGS SKÓR: FLOSSY (KEYPTIR Á SPÁNI) BUXUR: HM SKYRTA & GOLLA: TOPMAN SPARI SKÓR: NEXT BUXUR: HM SKYRTA & JAKKI: ZARA VESTI: ORGINAL KÓSÍ STUTTBUXUR: HM BOLUR: PRIMARK HETTUPEYSA: TOPMAN M yn di r/ Ró sa B ra ga

x

Monitor

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.