Monitor - 10.10.2013, Blaðsíða 16
16 MONITOR FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013
Rósa María Árnadóttir
rosamaria@monitor.is
stíllinn
Júlíus Geir, hvernig myndir þú lýsa sjálfum
þér og þínum stíl?
Ég reyni að hafa minn stíl bara nokkuð
einfaldan og þægilegan jafnvel. Mér finnst
bara best að vera í því sem mér finnst kúl.
Þannig kannski er ég bara einfaldur, þægilegur
og kúl?
Hvað ert þú að bardúsa þessa dagana?
Þessa dagana er ég í Háskóla Íslands í líf-
eindafræði og einnig í píanónámi í Tónlistar-
skóla Kópavogs og bara á fullu í ræktinni. Svo
vinnur maður inn á milli í Lyfju Smáralind!
Hefur þú alltaf haft gaman af tísku?
Já, alveg lúmskt, mér finnst t.d. gaman að
kaupa föt á sjálfan mig. Tala nú ekki einu
sinni um ef maður er erlendis með móður
sinni, þá lætur maður hana borga reikninginn
og hún hefur gaman af…
Átt þú þér einhverja tískufyrirmynd, einhver
sem veitir þér innblástur?
Mér hefur alltaf fundist David Beckham
rosalega flottur gaur, það er eiginlega alveg
sama í hvað hann fer þá púllar hann það
alltaf. Það mættu margir taka hann sér til
fyrirmyndar.
Í hvaða búðum verslar þú helst hér á
Íslandi? En í útlöndum?
Svona þegar ég lít á fataskápinn minn þá sé
ég að flest fötin sem ég á eru keypt í útlönd-
um og ein uppáhaldsbúðin mín er Topman,
get alltaf fundið eitthvað flott þar. Svo eru
það líka þessar „beisík“ búðir eins og HM. Mér
finnst líka geðveikt gaman í Primark þar sem
maður fær mikið fyrir lítið.
Hver eru þín bestu kaup fyrr og síðar?
66°N úlpan mín. Búinn að eiga hana síðan í
10. bekk og hún hefur alltaf staðið fyrir sínu!
Hvað er algjört möst fyrir veturinn að þínu
mati?
Það er klárlega eitt stykki góð úlpa og góðir
vetrarskór!
Stíllinn fékk Júlíus Geir Sveinsson, eða Ryan Gosling Íslands eins og margir vilja kalla
hann, í heimsókn nú á dögunum. Júlíus stundar nám við Háskóla Íslands í lífeindafræði,
hann elskar David Beckham og segir góða úlpu fyrir veturinn vera algjört möst.
Þægilegur og kúl
Mér hefur alltaf
fundist David
Beckham rosalega flottur
gaur, það er eiginlega al-
veg sama í hvað hann fer
þá púllar hann það alltaf.
PARTÍ
SKÓR: TIMBERLAND
BUXUR: HM
SKYRTA: TOPMAN
JAKKI: ORGINAL
HVERDAGS
SKÓR: FLOSSY (KEYPTIR Á SPÁNI)
BUXUR: HM
SKYRTA & GOLLA: TOPMAN
SPARI
SKÓR: NEXT
BUXUR: HM
SKYRTA & JAKKI: ZARA
VESTI: ORGINAL
KÓSÍ
STUTTBUXUR: HM
BOLUR: PRIMARK
HETTUPEYSA: TOPMAN
M
yn
di
r/
Ró
sa
B
ra
ga