Morgunblaðið - 11.11.2013, Síða 1

Morgunblaðið - 11.11.2013, Síða 1
M Á N U D A G U R 1 1. N Ó V E M B E R 2 0 1 3  162. tölublað  101. árgangur  MANNAUÐUR VIRKJAÐUR Á REYKJANESI GERPLA VARÐI NORÐUR- LANDAMEISTARATITILINN SÍGILDAR SÖGUR GUÐNA ÁGÚSTS- SONAR Í BÓK HÓPFIMLEIKAR ÍÞRÓTTIR ÍHUGAR SKÁLDSÖGU 34MARGFÖLD AÐSÓKN 10 ÁRA STOFNAÐ 1913 Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Í tillögum hagræðingarhóps ríkis- stjórnarinnar er meðal annars lagt til að hætt verði að veita fjármuni úr ríkissjóði til Bændasamtakanna, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Í fjárlögum síðasta árs fengu samtökin 485 milljónir króna í sinn hlut. Einnig leggur hópurinn til að fjölmiðlanefnd verði lögð niður, framkvæmdum við hús íslenskra fræða verði frestað til lengri tíma og að Landgræðsla ríkisins og Skógrækt ríkisins verði sameinað- ar. Þetta er aðeins hluti þeirra til- lagna sem kynntar verða í dag. Kerfisbreytingar í ráðuneytum Einnig mun vera lagt til að kerf- isbreytingar verði gerðar í öllum ráðuneytum, væntanlega til að draga úr kostnaði. Ekki hafa feng- ist upplýsingar um í hverju þær breytingar felast. Ekki fengust upplýsingar um hversu mikilli hagræðingu hópurinn stefnir að, en margt af þeim til- lögum sem munu koma fram í dag snýr að rekstri ríkissjóðs til lengri tíma. Hagræðing nemur milljörðum Heimildir blaðsins herma einnig að heildarhagræðingin muni þegar fram líða stundir nema milljörðum króna, en búast má við að mikil um- ræða verði um tillögurnar. Gera má ráð fyrir að tillögur hópsins verði hafðar að leiðarljósi í umræðum um fjárlögin, en nefndin var skipuð af ríkisstjórninni í sum- ar til að kanna hvernig hægt væri að hagræða í rekstri ríkisins. Al- menningi gafst tækifæri til að koma ábendingum til nefndarinnar og 500 tillögur bárust á aðeins níu dögum. Leynd hefur hvílt yfir störfum nefndarinnar og erfitt verið að fá upplýsingar um hvernig vinnu hennar væri háttað, og hefur stjórnarandstaðan gagnrýnt það nokkuð. Niðurskurður Lagt er til að Bænda- samtökin fái ekki fé frá ríkinu. Bændasamtökin af fjárlögum  Tillögurnar hugsaðar til langs tíma  Landgræðsla og Skógrækt sameinaðar Ljósmynd/Páll Jökull Pétursson  Framleiðsla lambakjöts er tæpum 170 tonnum minni en hún hefði ver- ið ef meðalvigtin hefði verið sú sama og í fyrra. Þetta er rakið til léttari lamba en meðalvigt þeirra lamba sem slátrað var í ár er 15,98 kg á móti 16,30 kg í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá Mat- vælastofnun var ríflega 533 þúsund lömbum slátrað í ár og eru það lið- lega 4.500 fleiri en á síðasta ári. Þrátt fyrir að fleiri lömb komu til slátrunar í ár er útlit fyrir að fram- leiðsla á lambakjöti dragist í heild- ina saman um tæp eitt hundrað tonn. »4 Morgunblaðið/Árni Sæberg Lömb Meðalvigtin minnkaði í öllum slát- urhúsum nema á Húsavík og Kópaskeri. Léttari lömb valda samdrætti í fram- leiðslu lambakjöts  Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri SA, segir þróun mála í kjaraviðræðum SA og ASÍ gefa til- efni til bjartsýni. „Það er orðinn mjög stuttur tími til stefnu. Við höfum lagt áherslu á breytt vinnubrögð og ný nálgun á kjarasamninga verður ekki unnin nema með virkri aðkomu stjórnvalda.“ Í verkalýðshreyfing- unni er litið á þær viðræður sem nú eru hafnar sem lokatilraun til víð- tæks samkomulags um skammtíma- samninga en aðeins eru þrjár vikur þar til samningar renna út. Gangi það ekki gæti svo farið að einstök landssambönd og félög færu hvert sína leið í kjaraviðræðum. »20 „Orðinn mjög stutt- ur tími til stefnu“ Fundur ráðherranefndar og ASÍ. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þúsundir farþega í millilandaflugi urðu fyrir töfum vegna óveðursins sem gekk yfir landið í gær. Milli- landaflugvél á leið frá Kaupmanna- höfn til Keflavíkur sneri við síðdegis og lenti í Glasgow í Skotlandi. Far- þegarnir áttu að koma til landsins í gærkvöldi, samkvæmt upplýsingum frá Icelandair. Allar aðrar áætlunar- flugvélar lentu í Keflavík. Farþegar þurftu að bíða um borð í nokkrum flugvélum á flugvellinum þar til lægði því of hvasst var til að tengja landgöngubrýr við flugvél- arnar. Þá seinkaði brottförum flug- véla til Evrópu og Vesturheims um nokkrar klukkustundir vegna óveð- ursins. Óveðrið setti samgöngur úr skorð- um í lofti, á landi og á sjó. Flugfélag Íslands aflýsti öllu flugi eftir hádeg- ið í gær. Lögreglan í Borgarnesi lok- aði veginum undir Hafnarfjalli um miðjan dag en þar voru vindhviður allt að 52 m/s síðdegis. Vegurinn var aftur opnaður um sexleytið. Margir voru veðurtepptir um tíma í Borg- arnesi af þeim sökum. Strætó felldi niður nokkrar ferðir utan höfuðborgarinnar síðdegis í gær, m.a. á Vestur- og Norðurlandi. Ófært var í Landeyjahöfn í gær. Ferð Herjólfs sem fyrirhuguð var til Þorlákshafnar var felld niður. »2 Ljósmynd/Hilmar Bragi Bragason Keflavíkurflugvöllur Flugvélar gátu ekki lagt að flugstöðinni. Þúsundir farþega töfðust  Óveður truflaði samgöngur í gær Óttast er að fleiri en 10.000 hafi látið lífið þegar fellibyl- urinn Haiyan gekk yfir Filippseyjar á föstudag. Yfirvöld í borginni Tacloban í Leyte-sýslu, sem varð einna verst úti í fárviðrinu, sögðu um helgina að þar hlypi fjöldi látinna á þúsundum en hundruð voru talin af í bæjum á nálægum eyjum. Talið var að allt að 70-80% bygginga sem urðu í vegi fellibylsins hefðu eyðilagst og sögðu almannavarnir Filippseyja að allt að 630.000 manns væru á vergangi. Heimili, skólar og flugvöllur voru meðal þeirra mann- virkja sem fellibylurinn lagði í rúst í Tacloban. Í samtali við fréttamiðla lýstu íbúar áhyggjum vegna skorts á hreinu vatni, matvælum og rafmagni og í gær voru lögreglumenn og hersveitir send á vettvang til að koma í veg fyrir að ör- væntingarfullt fólkið færi ránshendi um svæðið. Þá höfðu björgunarmenn enn ekki náð til nokkurra bæja og þorpa. Að sögn breska ríkisútvarpsins blasti algjör eyðilegging við í Tacloban og innanríkisráðherra Filippseyja, Mar Roxas, sagði aðsteðjandi vanda yfirþyrmandi en á sumum svæðum blasti ekkert við nema aur og rústir. „Úr þyrlu sérðu umfang eyðileggingarinnar. Frá ströndinni og kíló- metra inn í land standa engar byggingar. Þetta var eins og flóðbylgja,“ sagði hann í samtali við Reuters. Alþjóðasam- félagið brá skjótt við yfir helgina og ýmis stjórnvöld og hjálparstofnanir lýstu yfir vilja til aðstoðar. Unicef, Læknar án landamæra og þýska sendiráðið voru meðal þeirra sem tilkynntu að neyðargögn yrðu send til Filippseyja á næstu dögum og þá hétu ríkisstjórnir Kanada, Nýja-Sjálands og Ástralíu fjárstuðningi við hjálp- arstarfið. holmfridur@mbl.is »18 AFP Hörmungar Íbúar í Tacloban lýstu örvæntingu sinni um helgina vegna skorts á hreinu vatni og matvælum. Yfir 10.000 talin af AFP Fárviðri Haiyan myndaður úr Alþjóðageimstöðinni.  Allt að 630.000 manns eru talin vera á vergangi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.