Morgunblaðið - 11.11.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013
Veðurstofan spáði því að óveðrinu sem gekk yfir landið í gær myndi slota
í gærkvöldi og í nótt, fyrst sunnan- og vestanlands.
Spáð var suðvestan 10-23 m/s í dag og að hvassast yrði við suður- og
suðvesturströndina. Spáð var hvassri norðanátt og slyddu eða snjókomu
norðvestantil í kvöld.
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar sagði að veðrið austan- og norðaust-
anlands myndi ganga niður í nótt. Svo átti veðrið að snúast í suðvest-
anstorm suðvestan- og vestanlands í nótt og í morgun. Honum myndu
fylgja krapaél og hálka ofan við 200-300 metra hæð.
Áfram leiðindaveður
SUÐVESTANSTORMUR SUÐVESTAN- OG VESTANLANDS MEÐ
KRAPAÉLJUM OG HÁLKU Í DAG EFTIR HVELLINN Í GÆR
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Óveðurshvellur gekk yfir landið í
gær og gætti hans fyrst á suðvest-
urhorninu. Óveðrið færðist svo norð-
ur yfir og var víða hvasst á Norður-
og Austurlandi í gærkvöldi. Óveður
var á Vestfjörðum og á Norðurlandi
vestra. Vetrarfærð var í flestum
landshlutum. Veðrið tók að ganga
niður síðdegis í gær á suðvestur-
horninu.
Engin slys urðu á fólki, svo kunn-
ugt sé, en björgunarsveitir voru kall-
aðar út á Suður- og Suðvesturlandi,
þeirra á meðal allar björgunarsveitir
á höfuðborgarsvæðinu. Um 170
björgunarsveitarmenn voru að störf-
um þegar mest var síðdegis í gær.
Vel á annað hundrað hjálparbeiðnir
bárust til sveita Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, að sögn Ólafar Snæ-
hólm Baldursdóttur upplýsingafull-
trúa. Þar af höfðu björgunarsveitir
sinnt 59 verkefnum á höfuðborgar-
svæðinu og 24 á Suðurnesjum. Einn-
ig voru mörg verkefni á Akranesi og
í Borgarnesi en færri á Hvolsvelli og
eitt á Hvammstanga.
„Þetta voru hefðbundin verkefni,
þakplötur, grindverk og annað að
fjúka. Á höfuðborgarsvæðinu brotn-
uðu tré eða rifnuðu upp með rótum.
Á Bárugötu féll vinnupallur ofan á
þrjár bifreiðar og olli tjóni,“ sagði
Ólöf. Björgunarfélag Akraness festi
þakplötur. Þar fauk líka kerra sem
skemmdi bæði hús og bíl og húsbíll
fauk út á götu. Einnig fuku bæði
vinnupallur og vinnuskúr við Dval-
arheimilið Höfða, þak fauk af sum-
arhúsi í Hafnarskógi. Gámur í Borg-
arnesi fauk eina 200 metra, braut
ljósastaur og munaði litlu að hann
lenti á útibúi Arion banka.
Ýmislegt fleira fauk eins og sex
metra há jólageit IKEA í Garðabæ.
Fiskikör fuku í Hafnarfirði og garð-
hús í Vallahverfi.
Björgunarsveit Hafnarfjarðar
lokaði veginum í Bláfjöll þar sem
brak fauk yfir veginn frá skála sem
brann í fyrrinótt. Eins aðstoðaði
björgunarsveitin ferðamenn við að
komast af svæðinu og til byggða.
Klæðning tók að losna á íbúðar-
húsi í Vestmannaeyjum í gærmorg-
un en húsráðanda tókst að festa
klæðninguna. Þá var björgunarsveit
frá Hvolsvelli kölluð til að hefta þak-
plötur sem voru að losna af útihúsi í
Landeyjum.
Pressphotos.biz/Geirix
Rok og fok Vinnupallar fuku í Fossvogi og enduðu á næsta húsi. Björg-
unarsveitarmenn tryggðu að ekki hlytist meiri skaði af fokinu.
Óveðurshvellur olli
víða tjóni í gær
Engin slys á fólki en björgunarsveitir fengu mörg útköll
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Árið 2013 stefnir í að verða metár
hvað varðar notkun á heitu vatni á
höfuðborgarsvæðinu. Í hverjum mán-
uði, sjö mánuði röð, frá mars og fram
í september, var sett nýtt mán-
aðarmet í heitavatnsnotkun.
Um 90% af heita vatninu sem renn-
ur til höfuðborgarsvæðsins er notað
til húsakyndingar en afgangurinn fer
til baða og þvotta og annars konar
brúks.
Eiríkur Hjálmarsson, upplýsinga-
fulltrúi OR, segir að aukin notkun á
heitu vatni sé einkum til marks um
kaldari tíð. Þá séu flestir komnir með
einhvers konar hitastillingar á ofnana
sína. „Þannig að það gerist sjálfkrafa
að menn nota meira vatn þegar kóln-
ar í veðri,“ segir hann.
Aukin sala komi ekki á óvart en all-
ir hafi getað fundið það á eigin kroppi
að sumarið 2013 var ekki sumar sól-
dýrkenda. „En það kemur okkur svo-
lítið á óvart að við sjáum metnotkun
mánuð eftir mánuð. Við höfum ekki
séð svona samfellu metmánaða síð-
ustu áratugina,“ segir Eiríkur.
Einn þáttur í aukningunni sé hugs-
anlega sá að húsnæði, sem hafi staðið
óklárað frá hruni, hafi nú verið tekið í
notkun.
Eiríkur segir að Orkuveitan sé vel í
stakk búin til að anna aukinni notkun
enda hafi ný hitaveita frá Hellisheið-
arvirkjun verið tekin í notkun árið
2010.
Skilar tekjum hraðar
Undanfarið hefur töluvert verið
fjallað um að krafturinn í borholum
Hellisheiðarvirkjunar sé að dvína.
Eiríkur segir þetta engin áhrif hafa
á hitaveituna og alls engin hætta sé á
að eftir nokkra áratugi verði að draga
úr framleiðslu af þessum sökum.
Aukin sala á heitu vatni kemur sér
vel fyrir fjárhag OR. „Hitaveitan frá
Hellisheiðarvirkjun skilar tekjum
hraðar fyrir vikið,“ segir hann.
Nýtt met í
notkun sett sjö
mánuði í röð
Árið 2013 metár í notkun á heitu
vatni á höfuðborgarsvæðinu
Notkun á heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu
(í þúsundum rúmmetra)
10.000
9.000
8.000
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
Jan. Feb. Mars Maí Júní Júlí Ág. Sept. Okt.
Heimild: Orkuveita Reykjavíkur
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013
8.290
5.240
Tíð mánaðarmet
» Kaldari tíð og hitastillar á
ofnum hafa sitt að segja
» Um 90% af heita vatninu
sem rennur til höfuðborg-
arsvæðisins er notað til húsa-
kyndingar
» Orkuveita Reykjavíkur
kveðst vera vel í stakk búin til
að anna eftirspurn
Morgunblaðið/ÞÖK
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Í lögfræðiáliti sem hæstaréttarlög-
maðurinn Eiríkur S. Svavarsson vann
fyrir Fjölver ehf. kemur fram að ekki
hafi verið þörf á áfangamarkmiðum
um endurnýjanlegt eldsneyti.
„Álit Eiríks staðfestir að ekki hafi
verið þörf á að láta lagaákvæði um
endurnýjanlega eldsneytið í sam-
göngum taka gildi fyrr en á árinu
2020,“ sagði Glúmur Jón Björnsson,
framkvæmdastjóri Fjölvers. „Engin
þörf var á að fara í áfangamarkmið á
næsta og þarnæsta ári. Álitið sýnir að
frumvarp Steingríms J. Sigfússonar,
sem Alþingi sam-
þykkti umræðu-
laust síðasta vor,
gengur lengra en
tilskipun ESB
krefst.“
Óþarfa gjald-
eyrisútgjöld
Hann segir að
verði þessum lög-
um ekki breytt
fyrir áramót telji hann einsýnt að af
þeim hljótist aukin og óþörf gjaldeyr-
isútgjöld, á tímum þar sem leitast er
við að spara gjaldeyri, vegna elds-
neytisinnkaupa Íslendinga fram til
ársins 2020. „Lífeldsneyti sem þarf að
kaupa til landsins er bæði dýrara og
orkurýrara en hefðbundið eldsneyti.
Álitið leiðir jafnframt í ljós að EFTA-
ríkið Liechtenstein fékk algera und-
anþágu frá tilskipun ESB. Liechten-
stein hefur þó ekki uppfyllt megin-
markmið tilskipunarinnar um 20%
notkun endurnýjanlegra orkugjafa,“
segir hann. Það hafi Ísland hins vegar
gert og hefði að því leyti átt að vera í
miklu betri stöðu til að fá undanþágu
frá kostnaðarsömum aðgerðum eins
og íblöndun mun fela í sér. „Sú spurn-
ing hlýtur að vakna hvers vegna Ís-
land óskaði ekki eftir samskonar und-
anþágu og Liechtenstein.“
Ekki þörf á lögum nú um
endurnýjanlegt eldsneyti
Telur mikið tap verða fyrir Ísland verði lögunum ekki breytt
Glúmur Jón
Björnsson