Morgunblaðið - 11.11.2013, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
ðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til lei
2. janúar
Síðustu sætin til
Frá kr. 119.900 í 13 nætur
Kanarí
Verð frá 119.900
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð með einu svefnherbergi á Roque Nublo.
Sértilboð 2. janúar í 13 nætur.
Heimsferðir bjóða einstakt tilboð til Kanaríeyja.
Við bjóðum fjölbreytt úrval gististaða. Mikil dagskrá í boði
í fylgd reyndra fararstjóra.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Léttari lömb valda því að framleiðsla
lambakjöts er tæpum 170 tonnum
minni en hún hefði verið ef með-
alvigtin hefði verið sú sama og í fyrra.
Fleiri lömb komu til slátrunar þannig
að útlit er fyrir að framleiðslan á
lambakjöti dragist í heildina saman
um tæp 100 tonn.
Sauðfjárslátrun hefur verið að
ljúka í sláturhúsum landsins, einu á
fætur öðru. Henni er nú lokið alls
staðar.
Hugur í sauðfjárbændum
Alls var slátrað liðlega 533 þúsund
lömbum, samkvæmt upplýsingum
Matvælastofnunar, liðlega 4.500 fleiri
en á síðasta ári. Á því ári urðu mikil
afföll á Norðurlandi vegna óveðurs
snemma að hausti.
Lömbin í ár reyndust til muna létt-
ari en á síðasta ári. Meðalvigtin var
15,98 kg á móti 16,30 kg haustið 2012.
Þess ber að geta að lömbin voru betri
í fyrra en nokkru sinni áður, sé litið til
meðaltals yfir allt landið. Þá er með-
alvigtin í ár ekki langt frá meðaltali
síðustu ára, sem er um 16 kg.
Meðalvigtin minnkaði í öllum slát-
urhúsum landsins nema á Húsavík og
Kópaskeri. Mesti munurinn var hjá
SS á Selfossi og Sláturhúsi KVH á
Hvammstanga en þar var með-
alvigtin 680 og 640 grömmum lægri
en á síðasta ári.
„Það er líklega vegna þess hversu
erfitt vorið var og bændur heylitlir,“
segir Ágúst Andrésson, for-
stöðumaður kjötafurðastöðvar KS á
Sauðárkróki, en þar voru lömbin 230
grömmum léttari að meðaltali en í
fyrra.
Hann telur að erfitt tíðarfar hafi
ekki dregið kjark úr bændum. „Mér
finnst vera hugur í sauðfjárbændum
hér og sauðfjárbúskapur að eflast.
Tiltrú á greinina er að aukast.“ Hann
nefnir að metslátrun hafi verið hjá
KS á Sauðárkróki, 115 þúsund fjár
hafi verið slátrað, og einnig aukning á
Hvammstanga.
170 tonna minni kjötframleiðsla
Sauðfjárslátrun lokið Aukin slátrun en framleiðsla
lambakjöts minnkar vegna lægri meðalvigtar lamba
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kjötskurður Slátrun er lokið en
áfram er unnið að vinnslu kjötsins.
Góðar horfur eru í útflutningi á lambakjöti. Ágúst
Andrésson hjá KS segir að mikil afsetning hafi verið í
sláturtíðinni.
Sláturleyfishafar hafa verið að gera tilraunir með
útflutning á lambakjöti til Rússlands, til viðbótar ær-
kjöti og hrossakjöti sem þangað hefur verið flutt.
Ágúst var í gær staddur í St. Pétursborg og sagði að
þar væru að opnast leiðir inn á nýjan markað. Einkum
er verið að hugsa um veitingahús og betri stórmark-
aði. Ágúst segir að sending fari þangað á næstu vik-
um. „Þetta er ekki mikið magn til að byrja með en
áhuginn er mikill og markaðurinn lofar góðu.“ Þá nefnir hann að aftur
sé byrjað að selja kindakjöt til Spánar en það féll alveg niður á síðasta
ári.
Um 30% aukning var í sölu kindakjöts á innanlandsmarkaði í sept-
embermánuði, miðað við árið á undan. Ágúst segir að KS hafi selt ágæt-
lega í sláturtíðinni. Nefnir þó að verslanir hafi átt meira af eldra kjöti í
birgðum en á undanförnum árum og hafi verið að reyna að selja þær
upp áður en nýjar væru keyptar.
Pétursborg lofar góðu
VINNA AÐ ÚTFLUTNINGI Á LAMBAKJÖTI
Ágúst
Andrésson
Minningarathöfn um fallna hermenn frá Bret-
landi og bresku samveldislöndunum var haldin
við hermannagrafreitinn í Fossvogskirkjugarði í
gær. Athöfn þessi er haldin árlega um þá sem
létu lífið í heimsstyrjöldunum tveimur. Meðal
viðstaddra var Stuart Gill, sendiherra Bretlands
á Íslandi, en séra Bjarni Þór Bjarnason stjórnaði.
Viðstaddir héldu einnig stutta athöfn við graf-
reit þýskra hermanna sem er skammt frá.
Morgunblaðið/Kristinn
Minntust fallinna hermanna í Fossvogskirkjugarði
Ásgerður Hall-
dórsdóttir, bæj-
arstjóri á Sel-
tjarnarnesi, sigr-
aði í prófkjöri
Sjálfstæðis-
flokksins á Sel-
tjarnarnesi á
laugardag. Hún
fékk 517 atkvæði
í 1. sætið. Í 2.
sæti varð Guð-
mundur Magnússon með 275 at-
kvæði í 1.-2. sæti. Bjarni Torfi Álf-
þórsson fékk 348 atkvæði í 1.-3.
sæti, Sigrún Edda Jónsdóttir fékk
430 atkvæði í 1.-4. sæti, Magnús
Örn Guðmundsson fékk 336 at-
kvæði í 1.-5. sæti, Karl Pétur Jóns-
son fékk 364 atkvæði í 1.-6. sæti og
Katrín Pálsdóttir fékk 450 atkvæði
í 1.-7. sæti.
Alls voru 1.314 á kjörskrá og
greidd atkvæði voru 759. Auð og
ógild atkvæði voru 36 talsins.
gudni@mbl.is
Ásgerður sigraði
Ásgerður
Halldórsdóttir
Lítið einbýlishús við Ólafsbraut í
Ólafsvík varð eldi að bráð í gær-
morgun en tilkynnt var um brun-
ann um klukkan sex. Þegar slökkvi-
liðsmenn bar að garði var húsið
alelda og reyndist það vera mann-
laust. Eldsupptök eru ókunn og
vinnur lögreglan að rannsókn.
Mannlaust einbýlis-
hús brann í Ólafsvík
EM landsliða í skák hófst á föstu-
daginn í Varsjá í Póllandi. Íslenska
karlaliðið í opnum flokki tapaði
með einum og hálfum vinningi
gegn tveimur og hálfum í fyrstu
umferð gegn Tékkum.
Héðinn Steingrímsson gerði
jafntefli við stórmeistarann David
Navara á fyrsta borði. Hannes
Hlífar Stefánsson og Hjörvar
Steinn Grétarsson gerðu einnig
jafntefli.
Guðmundur Kjartansson tapaði
sinni fyrstu skák fyrir íslenskt
skáklandslið. Í annarri umferð
gerði sveitin 2-2-jafntefli við
Finna. Hannes Hlífar Stefánsson
vann sína skák, Hjörvar Steinn og
Henrik Danielsen gerðu jafntefli
en Héðinn tapaði.
Kvennaliðið tapaði 1-3 fyrir
sveit Litháa í fyrstu umferð. Í
fyrradag tapaði sveitin 1-3 fyrir
mjög sterkri sveit Ungverja. Þrátt
fyrir það vann Lenka Ptacníková
Evrópumeistarann Thanh Trang
Hoang. Í gærkvöldi tapaði karla-
liðið, aftur með einum og hálfum
vinningi gegn tveimur og hálfum,
fyrir þriðja liði heimamanna. Guð-
mundur Kjartansson vann sinn
fyrsta sigur með íslenska landslið-
inu. Hannes Hlífar Stefánsson
gerði jafntefli en Hjörvar Steinn
og Henrik Danielsen töpuðu.
Skákmenn Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Guð-
mundur Kjartansson. Lenka Ptacníková sigraði Evrópumeistarann.
Lenka vann Evrópumeistarann