Morgunblaðið - 11.11.2013, Side 9

Morgunblaðið - 11.11.2013, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013 H a u ku r 5 .1 3 Finnur Árnason rekstrarhagfræðingur finnur@kontakt.is Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, lögg. verðbr.- og fasteignasali, brynhildur@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hrl. sigurdur@kontakt.is Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is Stórt innflutningsfyrirtæki með góð umboð í tæknivörum fyrir sjávarútveg.• Ársvelta 800 mkr. EBITDA 70 mkr. Auðvelt fyrir góða rekstrarmenn með þekkingu á þessu sviði að gera mun betur. Nýr hótelrekstur með 100 herbergi á Reykjavíkursvæðinu til leigu fyrir• kraftmikinn aðila. Hótelinu verður skilað fullbúnu fyrir sumarvertíðina og viðkomandi leigutaki getur haft áhrif á frágang hótelsins. Rótgróin heildverslun með vinsælar vörur fyrir konur, sem seldar eru í• verslunum um land allt. Ársvelta 250 mkr. EBITDA 50 mkr. Þekkt glerfyrirtæki sem selur einnig aðrar vörur fyrir nýbyggingar. Stöðug• velta og góð EBITDA frá hruni, en umsvifin eru nú að aukast gífurlega og fyrirliggjandi pantanir nema nú meira en ársveltu síðasta árs. Áratuga gömul og vel þekkt sérverslun, sú stærsta og þekktasta á sínu• sviði. Hentar vel fyrir hjón eða konur. Ársvelta 150 mkr. EBITDA 25 mkr. Tveir Subway staðir á Benidorm. Velta 100 mkr. og góður hagnaður.• Miklir möguleikar fyrir duglega aðila að opna fleiri staði á svæðinu. Stálsmiðja sem framleiðir staðlaðar vörur fyrir sjávarútveg. Stöðug velta• og vel tækjum búin. Hægt að flytja hvert á land sem er og hentar vel sem viðbót við starfandi vélsmiðju. Heildverslun með sérhæfðar byggingavörur. Rótgróið fjölskyldufyrirtæki,• en eigandi vill fara að draga sig í hlé sökum aldurs. Stöðug velta síðustu árin um 300 mkr. og góð framlegð. Stórt og rótgróið iðnfyrirtæki sem byggir mest á útflutningi. ÁRsvelta 700• mkr. EBITDA 70 mkr. Litlar sem engar skuldir. Bæjarlind 4, Kópavogur S: 554 6800 Njarðarnesi 9, Akureyri S: 466 3600 www.vidd.is Öðruvísi flísar Klappastíg 44 – Sími 562 3614 Mikið úrval af piparkökumótum Sænska jólavaran komin Englaspil 1.995 kr. Diskamotta 895 kr. stk. Verð frá kr. 2.750 Hæð 18 cm Kúlukertastjaki 395 kr. Kertastjaki 295 kr. Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Hannesi Smárasyni var fyrir helgi birt ákæra sérstaks saksóknara. Hannes er ákærður fyrir fjárdrátt með því að hafa 25. apríl 2005 sem stjórn- arformaður FL Group, dregið sér af fjármunum FL Group, 2,875 millj- arða króna sem hann ráðstafaði til Fons. Þetta kem- ur fram í ákæru sérstaks saksóknara. Millifært án vitundar stjórnenda Í ákærunni segir að þann 22. apríl 2005 hafi Hannes látið millifæra 46.500.000 Bandaríkjadali af banka- reikningi FL Group í útibúi Danske Bank í New York í Bandaríkjunum inn á bankareikning FL Group í Kaupþingi banka í Lúxemborg en þann reikning hafði Hannes látið stofna 17. apríl 2005. Þann 25. apríl 2005 var 45.864.241 Bandaríkjadölum svo skipt yfir í 2,875 milljarða íslenskra króna. Sama dag var sú upphæð millifærð yfir á banka- reikning Fons í sama banka. Sama dag var fjárhæðinni skipt yfir í 260.889.292 danskar krónur og 375.000.000 danskar krónur svo milli- færðar af sama reikningi Fons yfir á bankareikning þáverandi eiganda Sterling Airlines. Þá segir að milli- færsla Hannesar hafi verið fram- kvæmd án vitundar, og þar með sam- þykkis, þáverandi forstjóra, fjármálastjóra og annarra meðlima í stjórn FL Group. Umboðssvik til vara Til vara er Hannes ákærður fyrir umboðssvik með því að hafa misnotað aðstöðu sína og valdið FL Group verulegri fjártjónshættu með um- ræddri millifærslu. „Sakargögn benda til þess að ákærði [Hannes] hafi haldið um- ræddri millifærslu leyndri fyrir stjórnendum og stjórn FL Group, en aðrir en ákærði höfðu ekki aðgang að bankareikningi FL Group hjá KBL fyrr en 28. júní 2005,“ segir í ákær- unni og að það hafi ekki verið fyrr en eftir þrýsting, meðal annars frá þá- verandi forstjóra félagsins, að fjár- munirnir skiluðu sér aftur á reikning FL Group 30. júní 2005, eða rúmum tveimur mánuðum eftir millifærsluna. Fyrir þann tíma hafði millifærslan ekki verið færð í bókhald félagsins. Í ákæru segir að Kaupþing í Lúx- emborg hafi veitt Fons lán til að greiða umrædda fjármuni til baka til FL Group og gengust Hannes og Jón Ásgeir Jóhannesson í persónulegar ábyrgðir fyrir endurgreiðslu lánsfjár- hæðarinnar. Þá segir að það skipti engu máli varðandi refsinæmi að fjármunirnir hafi skilað sér aftur til FL Group. „[Á]kærði neyddist til að láta Fons skila fjármununum til baka vegna mikils þrýstings af hálfu FL Group, meðal annars frá þáverandi forstjóra FL Group. Fons varð að taka lán til að geta endurgreitt FL Group fjár- munina og ákærði að ábyrgjast end- urgreiðslu þess.“ Sakaður um fjárdrátt  Sérstakur saksóknari hefur ákært Hannes Smárason  Hannes er sakaður um að hafa dregið sér 2,9 milljarða Hannes Smárason Hannes ákærður » Hannes Smárason hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt. » Í ákærunni er hann sak- aður um að hafa dregið sér tæpa 2,9 milljarða frá FL Gro- up. » Endurgreiðsla fjármunanna skömmu síðar er ekki talin fría hann ábyrgð. » Hámarksrefsing fyrir fjár- drátt er sex ára fangelsi. Guðbrandur Ein- arsson, formaður Verslunarmanna- félags Suð- urnesja, var kjör- inn formaður Landssambands íslenzkra verzl- unarmanna (LÍV) á þingi sam- bandsins sem haldið var á Ak- ureyri 8. og 9. nóvember. Tvö buðu sig fram til formanns, Guðbrandur og Helga Ingólfsdóttir stjórnarmaður í VR, og fékk Guð- brandur 82% greiddra atkvæða. Á þinginu var samþykkt ályktun um kjaramál. Í henni kemur fram að í ljósi þeirrar óvissu sem ríki í ís- lensku efnahagslífi telji þing LÍV ráðlegt að gera kjarasamning til skemmri tíma. „Þingið tekur undir þau sjónarmið sem fram hafa komið innan verkalýðshreyfingarinnar, að gerður verði kjarasamningur til skemmri tíma og í kjölfarið verði unnið að því að koma hér á stöð- ugleika, sem kjarasamningur til lengri tíma getur byggt á.“ Þar segir einnig að kannanir á meðal verslunar- og skrifstofufólks sýni að flestir leggi áherslu á aukinn kaupmátt og hækkun lægstu launa. Þá segir í ályktuninni að hækkanir sem lesa megi úr fjárhagsáætlunum sveitarfélaga vegna ársins 2014 séu „ögrun við íslenskt launafólk sem hefur tekið á sig ómældar byrðar frá efnahagshruninu 2008“. Þing LÍV samþykkti og ályktun um starfsmenntamál. Atvinnulífið var hvatt til að taka undir kröfur LÍV í starfsmenntamálum. LÍV krefst þess að starfsmenntamálum verði gert hátt undir höfði í næstu kjarasamningum. M.a. verði starfs- menntun fyrir starfsfólk í verslunar- og þjónustugreinum skilgreind með námslokum sem verði metin til launa. Einnig að boðið verði upp á samfellt nám á framhaldsskólastigi fyrir starfsfólk í verslunar- og þjón- ustugreinum og að launafólk með stutta skólagöngu geti fengið færni sína metna.. gudni@mbl.is Guðbrandur nýr formað- ur LÍV Guðbrandur Einarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.