Morgunblaðið - 11.11.2013, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
kröfu notenda Virkjunar. „Hér áður
fyrr voru jafnvel vellaunaðir verk-
efnastjórar að stýra starfseminni og
það lagðist illa í suma. Margir hafa
lítið sem ekkert á milli handanna og
því finnst okkur nauðsynlegt að hér
ríki jöfnuður.“ Hann kom sjálfur inn
rétt eftir síðustu áramót sem sjálf-
boðaliði og sagðist ekki hafa verið
burðugur til að byrja með. Hann
hefði hins vegar nýtt sér námskeið
og leiðsögn sem var í boði í Virkjun
og væri því fær um ýmislegt í dag
sem hann hefði ekki getað áður, eins
og að standa fyrir framan fólk og
tala og sitja augliti til auglitis við
blaðamann í viðtali án þess að hika
og tafsa. Sjálfstraust og sigurvissa
heitir námskeiðið sem hjálpaði Olav,
en því stýrir Jónas Eyjólfsson sjálf-
boðaliði, sem jafnframt er í stjórn
Virkjunar. „Við bjóðum upp á marg-
vísleg námskeið hér, s.s. trésmíða-
námskeið, tréútskurð, föndur, gimb-
kennslu, prjónakennslu, tölvu-
námskeið og það nýjasta nýtt;
airbrush-námskeið sem hófst í dag
undir handleiðslu Arnar Halldórs-
sonar. Við erum alltaf með augun
opin gagnvart áhugaverðri
fræðslu og hvetjum alla sem
búa yfir ákveðinni þekkingu og
verkkunáttu að leggja okkur lið
með því að bjóða fram krafta sína í
kennslu á námskeiðum í sjálfboða-
vinnu.“
Þátttökukostnaður
í lágmarki
Að sögn Ólaf eru öll námskeiðin
ókeypis, en þátttakendur þurfi að
borga lágmarksefniskostnað ef ein-
hver sé. Þá er notendum frjálst að
gerast félagsmenn Virkjunar og
borga 2.000 krónur á mánuði, þá
mánuði sem hentar, en fá í staðinn
kaffi, jólaköku á miðvikudögum og
vöfflur á fimmtudögum, en boðið er
upp á meðlæti
með kaffinu
þessa tvo
daga vik-
unnar. Súpa
er fram-
reidd í há-
deginu á
þriðjudögum og borgar hver 300
krónur fyrir skammtinn, en salan fer
í jólahlaðborðssjóð. „Við erum að
stefna að því að koma kostnaðinum
við jólahlaðborðið niður fyrir 1.000
krónur á mann, svo fleiri hafi mögu-
leika á að njóta þess með okkur.“
Félagsmenn Virkjunar eru nú um
fjörutíu, þótt misjafnt sé hversu
margir greiði félagsgjöld í hverjum
mánuði og það sem af er vetri hefur
aðsókn tekið stökk upp á við. Í
ágúst voru gestir samtals
381, þann hálfa mánuð
sem opið var, í september hafði þeim
fjölgað um rúmlega 1.000, enda
starfsemi komin á fullan skrið, og í
október voru skráðir gestir samtals
1.707. Hér segir Olav að kynning
sem sjálfboðaliðar stóðu fyrir á
Ljósanótt í byrjun september hafi
ekki síður haft áhrif á aðsókn því í
framhaldi hafi fjöldi fylgjenda á
Facebook farið yfir 1.500.
Þann dag sem blaðamaður var
staddur í Virkjun beið hópur ungra
manna eftir að ná tali af Olav. Þarna
voru á ferðinni spunaspilarar í
spunaspilaklúbbnum Ými, sem voru
að falast eftir aðsetri í húsinu. Það
var auðsótt mál af hendi Olavs enda
ýmis félög sem hafa leitað til Virkj-
unar eftir húsaskjóli fyrir starfsem-
ina. Hjálpsemi, jákvæðni, örlæti,
handaband, samkennd og bros-
mildi eru líka nokkur af einkennis-
orðum ánægjumánaðarins í Virkj-
un. Forvitni blaðamanns á Ými tók
hins vegar yfir þegar hér var komið
sögu og eftir að hafa fengið að vita í
smáatriðum út á hvað spunaspil
gengur; sögulist, spunalist, hlut-
verkaleik, stærðfræði, hæfileika til
að hugsa út fyrir rammann og þjálf-
un ímyndunaraflsins, hljómaði þetta
mjög áhugavert og skapandi. Þeir
sem hafa áhuga á Ými eða annarri
starfsemi í Virkjun ættu að kynna
sér dagskrána. Hana má m.a. nálg-
ast á slóðinni www.virkjun.net.Sýnishorn úr föndrinu.
Trésmíði Örn Ólafsson og Dröfn Sigurvinsdóttir hafa bæði verið á tréútskurðarnámskeiði og á trésmíðanámskeiði í á þriðja ár og líkar vel. Olav Olsen
sér um trésmíðanámskeiðin en Jón Arason kennir útskurð. „Það er meiriháttar gaman og gott að koma hingað,“ sagði Dröfn og Örn bætti við að þessi fé-
lagsskapur væri mikils virði. „Ég er hissa á því að svona starfsemi skuli ekki vera í fleiri bæjarfélögum.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C
Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri
Full búð af nýjum vörum
á frábærum verðum
Það verður norræn dagskrá á Café
Lingua í Borgarbókasafninu við
Tryggvagötu í Reykjavík í dag.
Klukkan 17:30 verður kafli lesinn
úr bókinni Klakahöllinni eftir Tarjei
Vesaas á norrænum málum og nor-
rænir tónar munu hljóma frá slag-
hörpunni sem Marc Bolhardt leikur á.
Í tilefni norrænu bókasafnavik-
unnar verður boðið upp á sérstakt
hraðstefnumót þar sem gestum
gefst tækifæri til að kynnast norræn-
um tungumálum og menningu.
Í lokin verður kynning á starfsemi
tengdri Norðurlöndum og norrænni
menningu. Norræna félagið og Nor-
ræna húsið halda utan um dagskrá
Café Lingua ásamt Borgarbókasafn-
inu.
Það er alltaf heitt kaffi á könnunni
og þátttaka er ókeypis og öllum
heimil.
Hraðstefnumót við málstöðvarnar
Café Lingua Mynd frá opnuninni á Café Lingua þann 9. september sl.
Café Lingua veitir inn-
sýn í ólík tungumál
Sigrún Helgadóttir, höfundur bók-
arinnar Faldar og skart mun á morg-
un, þriðjudaginn 12. nóvember, halda
erindi í fyrirlestrarsal Þjóðminja-
safnsins. Yfirskrift erindisins er Fald-
búningurinn – klæðnaður íslenskra
kvenna í nokkur hundruð ár.
Tilefnið er 100 ára afmæli Heim-
ilisiðnaðarfélagsins og er erindið lið-
ur í fyrirlestraröð Þjóðminjasafnsins.
Heimilisiðnaðarfélagið fagnaði af-
mæli sínu þann 12. júlí síðastliðinn og
hafa ýmsir viðburðir verið haldnir af
því tilefni.
Sigrún mun stuttlega rekja sögu
félagsins og markmið þess auk þess
sem sagt verður frá vinnu Faldafeyk-
is, starfshóps um 17 kvenna innan
Heimilisiðnaðarfélagsins. Hópurinn
varð til um síðustu aldamót og setti
sér það markmið að kanna hvernig
hægt væri að sauma trúverðugan
faldbúning í samræmi við þann
klæðnað sem íslenskar konur klædd-
ust fram á miðja 19. öld. Erindið hefst
klukkan 12 og er aðgangur ókeypis.
Hádegisfyrirlestur um
þjóðbúninga
Þjóðbúningur Þessi búningur er
varðveittur á safni í Bretlandi.
Klæðnaður ís-
lenskra kvenna
í hundruð ára