Morgunblaðið - 11.11.2013, Blaðsíða 15
Hveragerði er þéttbýlisstaður í vestanverðri Árnessýslu,
undir Kömbum og rétt austan Hellisheiðar. Hveragerðis-
hreppur varð til úr Ölfushreppi árið 1946 og fékk síðan
kaupstaðarréttindi 1987. Um miðja síðustu öld var
bærinn þekktur fyrir mikinn fjölda listamanna sem þar
bjuggu. Rúmlega 2.300 búa í Hveragerði.
Þar er
mikil ylrækt
og fjölmargar
garðyrkju- og
gróðrarstöðvar.
þetta tímabil í sögu bæjarins runn-
ið á enda, þó svo að listamenn séu
enn í bænum.“
Hveragerðisskáldin svokölluðu
komu, að sögn Njarðar, að því að
Hveragerði klauf sig út úr Ölf-
ushreppi árið 1946 og varð að sér-
stöku sveitarfélagi. „Kristmann
Guðmundsson og Gunnar Bene-
diktsson, sem var líka eitt þessara
skálda, komu að því máli og Gunn-
ar sat í fyrstu hreppsnefnd sveitar-
félagsins,“ sagði hann.
Landlítið sveitarfélag
Hveragerði er landlítið sveit-
arfélag, og orti Gunnar Benedikts-
son meðal annars um það um þetta
leyti. „Enn þann dag í dag umlyk-
ur Ölfus Hveragerði og það er eng-
inn kirkjugarður hérna. Þegar við
Hvergerðingar förum yfir móðuna
miklu þurfum við að sætta okkur
við það að láta jarða okkur á Kot-
strönd í Ölfusi,“ sagði Njörður.
Erindi Gunnars hljómar svona:
Hér er kominn hreppur nýr,
hann er sagður kostarýr
þegar lífs við brjótum brýr,
bæði segi og skrifa.
Í öllum hreppnum engin mold
í að greftra látið hold.
Við neyðumst til að nuddast við að
lifa.
En svo er aftur önnur sveit
einstaklega kostafeit,
enga frjórri augað leit
um að tala og skrifa.
Þar er þessi þykka mold,
þar má greftra látið hold,
þar eru menn sem þurfa ekki að
lifa.
Listamennirnir sem bjuggu í
Hveragerði höfðu mikil áhrif á
mannlífið í þorpinu. Mörg Hvera-
gerðisskáldanna fengust við
kennslu til að drýgja tekjur sínar
og jafnframt tóku listamennirnir
þátt í félagslífi, sömdu til dæmis
leikrit sem flutt voru á skemmt-
unum, máluðu leiktjöld fyrir Leik-
félag Hveragerðis og héldu mynd-
listarsýningar. Á hinum svokölluðu
garðyrkju- og listamannaböllum
voru Hveragerðisskáldin hrókar
alls fagnaðar. Þó að margir þeirra
listamanna er hér dvöldu um miðja
20. öld hafi búið hér í áratugi festu
fæstir hér rætur. Á sjöunda ára-
tugnum og fram á þann áttunda
fækkaði í hópi listamanna í Hvera-
gerði, flestir fluttu til Reykjavíkur,
einn á Akureyri en þrír hurfu yfir
móðuna miklu.
Bræðraborg Kristján frá Djúpalæk var einn listamannanna í Hveragerði, en hann bjó um tíma að Bræðraborg.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013
Garðyrkjustöð Ingibjargar hef-
ur verið starfrækt í Hveragerði
í 32 ár. Á þessum árstíma er að-
alræktun garðyrkjustöðv-
arinnar, sem er útiplöntur, lögst
í dvala, en inni í gróðurhúsum
eru breiður af jólastjörnum, sem
hafa verið ræktaðar frá því um
miðjan júlí.
Ingibjörg Sigmundsdóttir seg-
ir að jólastjörnur séu í öllum
gróðurhúsum stöðvarinnar um
þessar mundir, en hún á garð-
yrkjustöðina ásamt Hreini Krist-
óferssyni, eiginmanni sínum.
„Það passar svo vel saman þeg-
ar við erum búin að selja garð-
plönturnar að fara yfir í jóla-
stjörnur.“
Hún segir kreppuna hafa haft
„jákvæð“áhrif á blómarækt.
„Svart/hvíti tíminn var erfiður,
en það er eins og fólk hafi farið
í hreiðurgerð eftir hrunið, það
breyttist eitthvað í kreppunni,“
sagði Ingibjörg. „Fólk virðist
vilja hafa meira líf í kringum
sig, virðist vera meira heima og
vill hafa eitthvað grænt eða
blómstrandi í kringum sig. Það
átti ekki að vera neitt líf neins
staðar, bara allt inni í skápum,
og allt svart og hvítt,“ sagði
Ingibjörg.
Garðyrkjustöð Ingibjargar
Gróska í gróðri eft-
ir efnahagshrunið
Morgunblaðið/Golli
Jólastjörnur Ingibjörg Sigmundsdóttir við breiður af jólastjörnum,
sem eru aðalframleiðsla garðyrkjustöðvarinnar um þessar mundir.
ingum nýjungar í mjólkuriðnaði og
byrjaði 1966 með ostagerð. Það var
fullmikil samkeppni við iðnaðinn
sem var fyrir í landinu og hann
hætti því 1968. Árið eftir byrjaði
hann svo að framleiða ís í félagi við
Gylfa Hinriksson, sem kom með
hugmyndina að framleiðslunni.“
Hann segir Hveragerði hafa orðið
fyrir valinu því mikið sé notað af
orku til að gerilsneyða og þrífa
framleiðslutækin. Ekki fer mikið
fyrir útflutningi hjá fyrirtækinu, þó
sér Kjörís Hamborgarabúllum
Tómasar fyrir ís, bæði hér á landi
og á Englandi. „Þetta er ekkert
gríðarlegt magn, en hugsanlega
byrjunin á einhverju stærra.“
Valdimar tekur undir þá skoð-
un að Kjörís sé máttarstólpi í sam-
félaginu í Hveragerði og fyrirtækið
fái það margfalt til baka. „Um það
bil helmingurinn af starfsfólkinu er
kominn með yfir 20 ára starfs-
reynslu og það þykir bara frekar
gott í svona iðnaði. Fólk vill greini-
lega vinna hjá okkur. Flestar fjöl-
skyldur í bænum eiga einhvern ætt-
ingja sem hefur unnið eða vinnur
hjá okkur. Ég segi stundum að við
séum svipuð fyrir Hveragerði eins
og Samherji er á Akureyri.“
Ættarsvipur Valdimar stillir sér upp við hlið málverks af foreldrum sínum.
Ættarsvipurinn leynir sér ekki. Málverkið er málað eftir ljósmynd.
Ruslahver skilaði ruslinu
HVERIRNIR Í HVERAGERÐI
Hverirnir í Hveragerði hafa ekki ein-
ungis verið notaðir til húshitunar eða
til ísgerðar. Þeir voru jafnvel notaðir
til sorpeyðingar eins og nafn Rusla-
hvers gefur til kynna. Þar fleygðu
Hvergerðingar rusli sínu fyrstu ár
byggðarinnar en í jarðskjálfta árið
1947 lifnaði hverinn svo rækilega við
að hann þeytti öllum úrganginum aft-
ur til baka. Hverirnir geta líka verið
hættulegir, árið 1906 féll maður þar
ofan í og lést af brunasárum sínum.
Hver Hveragerði heitir eftir mörgum
hverum á svæðinu.
Þorlákshöfn er næsti við-
komustaður 100 daga hring-
ferðar Morgunblaðsins.
Á morgun
Pétur
Kristinsson
Lögg.
fasteignasali
893 9048
Soffía
Theodórsdóttir
Lögg.
fasteignasali
Komdu með eignina þína til okkar og við seljum
Vegna mikillar sölu vantar okkur eignir á skrá
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Við hjá Byr fasteignasölu tökum vel á móti þér.
LÆ
KK
AÐ
VE
RÐ
Skipti möguleg á dýrari eða ódýrari eign á höfuðborgarsvæðinu.
SK
IPT
I M
ÖG
UL
EG
Verð 39,9 millj. Verð 39,2 millj.HeiðarbrúnValsheiði
Hveragerði
er heitur reitur
Útivist
Sund
Golf