Morgunblaðið - 11.11.2013, Side 16

Morgunblaðið - 11.11.2013, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013 Skútuvogi 1h | 104 Reykjavík | Sími: 585 8900 | jarngler.is Sjálfvirkir hurðaopnarar fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki. Uppsetning og þjónusta fyrir hurðir og glugga Allir velkomnir 14/11/2013 Skráning á imark.is Hittumst áHilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 14. nóvember klukkan 12 Hver verðurmeistari markaðsmálanna? H ví ta hú si ð /S ÍA – 13 -2 73 4 Tölur frá bandaríska atvinnumála- ráðuneytinu sýna að störfum þar í landi fjölgaði um 204.000 í október og er það vel umfram væntingar markaðsgreinenda sem BBC greinir frá að hafi búist við 125.000 nýjum störfum í mánuðinum, m.a. vegna áhrifa af nokkurra daga lokun fjölda ríkisstofnana í byrjun mánaðarins. Tölur ráðuneytisins sýna hins veg- ar líka að atvinnuleysi jókst í mán- uðinum og fór upp í 7,3% en var 7,2% í september. Segir ráðuneytið að skoða verði þær tölur með hliðsjón af því að margir þeirra ríkisstarfs- manna sem ekki gátu mætt til vinnu framan af mánuðinum hafi verið skráðir atvinnulausir. Eins sýna mælingarnar nú að í september og ágúst var fjöldi nýrra starfa vanmetinn um samtals 60.000 stöður. Allt á uppleið? Bætast þessar sterku atvinnutölur við jákvæðar fréttir fyrr í síðustu viku þegar hagvöxtur mældist 2,8% á ársgrundvelli á þriðja ársfjórðungi, sem var umfram væntingar. BBC segir þessi merki um bata í banda- ríska hagkerfinu vekja á ný vænt- ingar á markaði um að bandaríski seðlabankinn fari að draga úr örv- unaraðgerðum sínum. Markaðurinn brást vel við at- vinnutölunum og hækkuðu helstu vísitölur á föstudag. Dow Jones-vísi- talan hækkaði um 1,1% og endaði í 15.761, sem er nýtt met. S&P 500- vísitalan hækkaði um 1,3% og endaði í 1.770,61 stigi, rétt undir metinu sem slegið var 29. október. Einnig hækkaði Nasdaq um 1,6% og endaði í 3.919,23 stigum, að því er Market- Watch greinir frá. Bandaríkjadalur styrktist sömu- leiðis á föstudag. Fór ICE-dollara- vísitalan upp um 0,45% og endaði í 81,255 og WSJ-dollaravísitalan, sem notast við stærri körfu samanburð- argjaldmiðla, hækkaði um 0,59% á föstudag og endaði í 73,43. ai@mbl.is Atvinnutölur í BNA umfram væntingar  Hlutabréfavísitölur hækkuðu á föstudag og dalurinn styrktist  204.000 ný störf urðu til í október og tölur fyrir mánuðina tvo á undan voru leiðréttar til hækkunar AFP Kippur Ný störf í Bandaríkjunum í október voru töluvert umfram vænt- ingar. Starfsmaður á gólfi NYSE-hlutabréfamarkaðarins. Saksóknarar hafa farið fram á það við alríkisdóm- ara í Manhattan að Bank of America greiði hæstu sekt sem lög leyfa, 863 milljónir dala, jafnvirði rösklega 100 milljarða króna,vegna galla á þeim lánum sem bankinn seldi bandarísku fasteignalána- stofnununum Fannie Mae og Freddie Mac. Bank of America var í október fundinn sekur af kviðdómi um sölu gallaðra lánapakka. Bandarísk stjórnvöld höfða málið sem er það fyrsta sinnar teg- undar til að fara fyrir dóm. Var yfirstjórnandi Countrywide, Rebecca Marione, einnig úrskurðuð sek fyrir að hafa haft fé af stjórn- völdum en Marione var eini einstak- lingurinn sem tilgreindur var í máls- höfðuninni. Saksóknarar sögðu í bréfi sem lagt var fyrir dóminn á laugardag að undirdeild bankans, Countrywide, hefði vitandi vits selt óörugg lán sem þau væru örugg með það að markmiði að hafa fé af bandarísku fasteignalánastofnununum tveimur. Fréttastofa Bloomberg segir að málið muni halda áfram 5. desember og í framhaldinu verður sektarupp- hæðin ákvörðuð. Talsmenn bankans hafa tjáð sig um að þeim þyki bóta- krafa saksóknara úr samhengi við bæði umfang lánanna sem málið varðar og það tjón sem bankinn olli. ai@mbl.is Vilja að Bank of America greiði 863 milljónir dala  Styttist í niðurstöðu í máli vegna sölu lánapakka til Fannie Mae og Freddie Mac AFP Afleiðingar Dómsmálið varðar fjármála- afurðir sem seldar voru á tímum fasteignaból- unnar vestanhafs. Hús til sölu í Virginíu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.