Morgunblaðið - 11.11.2013, Page 17
FRÉTTIR 17Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013
30%
SPEGLADAGAR Í NÓVEMBER
54 54 300 • SMIÐJUVEGUR 7 • KÓPAVOGUR
Eina glerverksmiðjan á landinu með vottaða framleiðslu
30% afsláttur af öllum speglum út nóvember.
Sérfræðingar okkar veita þér faglega ráðgjöf
við val á bestu lausninni fyrir þig. Við bjóðum
einnig sandblástur og LED baklýsingu.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Innreið leikfangarisans Mattel og
Barbí-dúkkunnar frægu á Kína-
markað er oft nefnd sem skólabók-
ardæmi um vestrænt fyrirtæki sem
les rangt í menningu og áherslur
neytenda á asískum markaði.
Það var árið 2009 að Barbí ætl-
aði að legga Kína undir sig. Með
pomp og pragt var opnuð sex hæða
30 milljóna dala risaverslun á besta
stað í Shanghaí, með veitingastað,
snyrtistofu og kokkteilbar. Þaðan
átti að breiða út hróður dúkkunnar
vinsælu um allt landið.
Allt kom fyrir ekki og áhugi Kín-
verja á Barbí komst ekki á það flug
sem Mattel hafði vonast eftir,
kannski vegna þess að kínverskar
stúlkur eru áhugasamari um „sæt-
ar“ fígúrur eins og Hello Kitty
frekar en „föngulegar“ dúkkur eins
og bombuna hana Barbí.
Nótnabækur í Barbí-stærð
Nú ætlar Mattel aftur að reyna að
gera strandhögg í Kína, en í þetta
skiptið með breyttum áherslum.
Wall Street Journal greinir frá
að nýja Barbí eigi að höfða til
metnaðarfullra kínverskra mæðra
sem vilja að börnin leggi sig fram í
námi og tómstundum. Um leið og
verðið á dúkkunni mun lækka fær
kínverski markaðurinn vörur eins
og „fiðlueinleikara-Barbí“ með
fiðlu, boga og nótnabókum.
Mattel mun einnig reyna að fá
kínversk stjórnvöld á á sitt band
með því að vekja athygli á jákvæð-
um áhrifum leiks á þroska barna.
Funduðu stjórnendur Mattel á dög-
unum með fulltrúum kínversku
mennta- og menningarmálaráðu-
neytanna með það að markmiði að
hvetja til aukins leiks í skólum,
sem svo aftur myndi smita frá sér
inn á heimilin og styrkja leik-
fangasölu.
Barbí breytir um áherslur fyrir Kína
Fræða kínversk stjórnvöld um ávinninginn af auknum leik í skólum Reyna
að höfða til metnaðarfullra mæðra með dúkku sem er einleikari á fiðlu
AFP
Metnaður Stúlka tekur lagið með vinkonu sinni í borginni Tíanjin. Mattel ætlar að reyna að ná rótfestu á Kína-
markaði með dúkkum sem höfða til metnaðarfullra foreldra, s.s. með tónlistar-Barbí sem spilar á fiðlu.
Lánamál ríkisins munu á föstudag
bjóða út ríkisvíxla í flokkunum
RIKV 14 0217 og RIKV 14 0515
með gjalddaga 17. febrúar og 15.
maí 2014.
Í tilkynningu frá stofnuninni
kemur fram að einungis aðalmiðl-
urum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu og er lág-
mark hvers tilboðs ein milljón
króna að nafnvirði.
Verður útboðinu þannig háttað
að öll samþykkt tilboð bjóðast aðal-
miðlurum á sama verði. Hæsta sam-
þykkta ávöxtunarkrafa ræður sölu-
verðinu og er greiðslu- og
uppgjörsdagur 15. nóvember.
Verður sótt um að RIKV 14 0515
verði tekinn til viðskipta í NASDAQ
OMX á Íslandi 18. nóvember.
ai@mbl.is
Útboð
ríkisvíxla á
miðvikudag
Hagtölur frá Kína voru birtar á
föstudag og sýna ágætan vöxt í
hagkerfinu. Iðnframleiðsla jókst
um 10,3% á ársgrundvelli í októ-
ber og er það umfram væntingar.
Útflutningur jókst um 5,6% á árs-
grundvelli og hristi af sér sam-
drátt í september. Landsfram-
leiðsla mældist 7,8% á
ársgrundvelli á síðasta ársfjórð-
ungi, sem er aukning frá fjórð-
unginum á undan.
MarketWatch greinir frá að vísi-
tala neysluverðs hækkaði úr 3,1
upp í 3,2% í október. ai@mbl.is
Sterkar tölur
koma frá Kína