Morgunblaðið - 11.11.2013, Page 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013
Eyðir vondri lykt úr loftkælingunni og miðstöðinni.
Þrífur og sótthreinsar þannig að blásturinn verður aftur ferskur.
Auðvelt að nota án þess fjarlægja frjókorna-eða loftsíuna
Kemur í veg fyrir ofnæmisviðbrögð.
Eyðir sýklum, gerlum og fúkkalykt sem koma úr loftkælingunni.
Virka efnið í brúsanum dreifist um
loftkælinguna með viftunni í
miðstöðinn í bílnum.
ÞÝSK
GÆÐAVARA
Innihald: 150 ml Vörunúmer: 4065
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is
Eyðir sýklum, gerlum og
fúkkalykt í miðstöðinni
Klima Fresh
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Þriggja daga viðræðum utanríkis-
ráðherra Írans, Bandaríkjanna, Bret-
lands, Þýskalands, Frakklands og
Rússlands, auk varautanríkis-
ráðherra Kína, um kjarnorkuáætlun
Írana, lauk án samkomulags í Genf í
gær. Eftir maraþonfund, sem hófst á
laugardag og lauk aðfaranótt sunnu-
dags, sögðu Catherine Ashton, utan-
ríkismálastjóri Evrópusambandsins,
og Mohammad Javad Zarif, utanrík-
isráðherra Írans, að þrátt fyrir að
viðræður hefðu þokast í rétta átt
stæðu ákveðin atriði enn út af borð-
inu.
Markmiðið með viðræðunum var
að stíga fyrsta skrefið í átt að fjöl-
þættu samkomulagi um kjarnorku-
mál Írana en meðal þess sem var
rætt um var að Íranir skuldbyndu sig
til að frysta kjarnorkuáætlun sína í
sex mánuði til að gefa viðræðuríkj-
unum tíma til að hamra saman lang-
tímasamkomulag. Í staðinn myndu
Vesturveldin draga úr refsiaðgerðum
gegn Íran, sem hafa haft skaðvænleg
áhrif á efnahag landsins.
Hvorki blindir né heimskir
Innbyrðis óeining ráðamanna
Vesturveldanna var meðal þess sem
kom í veg fyrir að aðilar næðu saman
en Frakkar sögðu að þær tillögur
sem voru til umræðu dygðu skammt í
þeirri viðleitni að koma í veg fyrir
úranauðgun Írana eða stöðva þróun
kjarnakljúfs til plútonframleiðslu.
Ísraelskir ráðamenn, sem áttu ekki
sæti við borðið í viðræðunum um
helgina, vöruðu ítrekað við því að um-
rætt samkomulag væri slæmt og kall-
aði varnarmálaráðherrann Moshe
Yaalon það „söguleg mistök“. Ísrael-
ar hafa varað sérstaklega við því að
byggingu þungavatnskjarnaofns í
Arak verði leyft að komast á það stig
að eyðing hans með herafli gæti vald-
ið umhverfisslysi. John Kerry, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, leit-
aðist við að draga úr áhyggjum í gær
og sagði m.a. að þarlendir ráðamenn
væru hvorki blindir né heimskir þeg-
ar kæmi að viðræðunum við Íran.
Viðræður þok-
ast áfram án
samkomulags
Utanríkisráðherrar ræddu kjarnorku-
áætlun Írana Ísraelar áhyggjufullir
AFP
Viðræður Catherine Ashton og
Mohammad Javad Zarif í gær.
Kjarnorkumál
» Boðað hefur verið til áfram-
haldandi viðræðna eftir tíu
daga.
» John Kerry sagði að það
myndi taka tíma að byggja upp
traust milli Vesturveldanna og
Írans.
» Ísraelar hafa eyðilagt tvo
kjarnakljúfa í loftárásum á síð-
ustu þremur áratugum, í Írak
1981 og Sýrlandi 2007.
Filippseyjar. AFP. | Yfirvöld á Filipps-
eyjum vöruðu við því í gær að tala
látinna, eftir að fellibylurinn Haiyan
gekk yfir eyjarnar, gæti farið yfir
10.000. Yfirþyrmandi eyðilegging
blasti við íbúum og björgunarfólki í
Tacloban, höfuðborg Leyte-sýslu,
þar sem talið var að um 70-80%
bygginga sem urðu í vegi fellibylsins
hefðu eyðilagst.
Íbúar Leyte eru rétt yfir 200.000
talsins en lögregluyfirvöld í sýslunni
töldu líklegt að bara þar hefðu yfir
10.000 látið lífið, flestir í miklum
flóðum sem gengu yfir í fárviðrinu.
Á nágrannaeyjunni Samar voru 300
sagðir hafa látið lífið í bænum Basey
og 2.000 var saknað.
„Tacloban er gjörsamlega eyði-
lögð. Sumir eru að missa vitið af
hungri eða vegna þess að þeir hafa
misst fjölskyldur sínar,“ sagði fram-
haldsskólakennarinn Andrew Po-
meda í samtali við AFP. „Fólk er að
verða ofbeldisfullt. Það er að ræna
fyrirtæki, verslanamiðstöðvarnar,
bara til að finna mat, hrísgrjón og
mjólk. Ég óttast að innan viku muni
fólk drepa vegna hungurs,“ sagði
hann.
Hundruð lögreglumanna og her-
manna voru send á vettvang í borg-
inni í gær til að koma í veg fyrir að
örvæntingarfullir borgarbúar færu
um ránshendi og þá tilkynntu
bandarísk stjórnvöld að bandarískir
hermenn staðsettir í Japan yrðu
sendir á staðinn til aðstoðar.
Öldurnar skoluðu öllu burt
Vitni sögðu að þegar fellibylurinn
fór hjá hefðu allt að fimm metra há-
ar öldur gengið yfir Tacloban og
hrifið með sér fólk og heimili. „Eig-
inmaður minn batt okkur saman en
við vorum engu að síður aðskilin í
rústunum. Ég sá margt fólk
drukkna, öskrandi, fara í kaf. Ég hef
ekki fundið eiginmann minn,“ sagði
hin 27 ára gamla Mirasol Saoyi.
Framkvæmdastjóri World Food
Programme á Filippseyjum, Pra-
veen Agrawal, sagði að eyðilegging-
in í Tacloban væri líkari því að flóð-
bylgja hefði gengið yfir en
fellibylur. „Öll trén eru á hliðinni,
börkurinn rifinn af þeim, húsin eru
skemmd. Mörg eru hrunin,“ sagði
hann.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að
mannúðarstofnanir samtakanna
myndu bregðast fljótt við til að
hjálpa fólki í neyð og framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins sagði að
hún myndi leggja 3 milljónir evra til
hjálparstarfsins. Þá sagði David
Cameron að Bretar myndu leggja
til 6 milljónir punda.
Haiyan nálgast nú Víetnam, þar
sem 600.000 manns voru fluttir
brott, úr vegi fellibylsins, um
helgina. Líkur stóðu til að hann
myndi ganga á land að morgni
mánudags.
AFP
Eyðilegging Náttúruhamfarir á borð við fellibylji, jarðskjálfta og eldgos eru tíðar á Filippseyjum en ef spár um
fjölda látinna ganga eftir, verður Haiyan minnst í sögubókunum sem verstu hamfara sem dunið hafa yfir eyríkið.
Haiyan veldur gríð-
arlegri eyðileggingu
Telja yfir 10.000 látna Hundruð þúsunda á vergangi
Tilfellum lungnakrabbameins hef-
ur fjölgað gríðarlega í Peking síð-
asta áratug, að sögn heilbrigðis-
yfirvalda í borginni. Kínverska
ríkisfréttastofan Xinhua segir að
sjúklingum með lungnakrabbamein
hafi fjölgað úr úr 39,56 á hverja
100.000 íbúa árið 2002 í 63,09 árið
2011, en engar skýringar voru
gefnar á aukningunni.
Heilbrigðisyfirvöld í Peking
segja reykingar enn helstu orsök
lungnakrabbameins en að óbeinar
reykingar og loftmengun geti einn-
ig verið orsakavaldar. Í síðasta
mánuði birti Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunin skýrslu þar sem fram
kom að loftmengun ætti hlut að
máli í 3,2 milljónum ótímabærra
dauðsfalla á ári og 200.000 dauðs-
falla af völdum lungnakrabba-
meins.
Samkvæmt BBC hafa Kínverjar
síauknar áhyggur af heilsufars-
vandamálum tengdum loftmengun,
sem er viðvarandi vandamál víða í
landinu. Hana má meðal annars
rekja til þess að lögum til verndar
umhverfinu er óvíða framfylgt
þannig að þau þjóni tilgangi sínum.
AFP
Mengun Kínverjar hafa sívaxandi áhyggjur af heilsufarsvandamálum sem
tengjast loftmengun en hún er viðvarandi í mörgum borgum í Kína.
Fleiri greinast með
lungnakrabbamein