Morgunblaðið - 11.11.2013, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.11.2013, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013 Útgáfa í 100 ár Um 1.200 manns komu saman til að fagna 100 ára afmæli Morgunblaðsins í Hörpu síðastliðinn laugardag, en Morgunblaðið hefur komið út síðan 2. nóvember 1913. Eva Björk Stefán B. Sigurðs- son, rektor Háskólans á Akureyri, hefur birt grein í Akureyri- Vikublað þar sem hann reynir að réttlæta embættisfærslu sína við ráðningu í starf forseta hug- og fé- lagsvísindasviðs Há- skólans á Akureyri ný- lega. Málið olli úlfaþyt norðan heiða og sunn- an, enda margt í ráðningaferlinu sem er gagnrýnivert. Til dæmis er það áhyggjuefni fyrir háskólafólk hvernig gengið var gegn vilja fræðasviðsins sem reglum sam- kvæmt á að hafa úrslitaáhrif að virt- um lögmætum sjónarmiðum og hæfnisdómum. Hug- og félagsvísindasvið mælti með ráðningu minni, en rektor réð þann umsækjanda sem fræðasviðið hafði metið þriðja hæfastan og hlaut næstfæstu atkvæðin í kosningu sviðsfundar. Sú kosning fór fram að afstöðnum kynningarfundi þar sem farið var yfir menntun, fyrri störf og framtíðarsýn umsækjenda fyrir HA. En yfirstjórn skólans lét sér ekki nægja (kannski óvænta) nið- urstöðu fræðasviðsins heldur leitaði til ráðningastofu sem var látin hafa lokaorðið í þessum leikþætti. Ég efast ekki um að sú sem ráðin var sé þrátt fyrir þetta fullfær um að gegna starfi sviðsforseta. Málið snýst ekki um það, heldur þá geð- þóttastjórnsýslu sem þarna var við- höfð með því að gengið var í ber- högg við reglur Háskólans á Akureyri um ráðningu sviðsforseta. Stjórnsýslulög og reglur veita ekki forstöðumönnum op- inberra stofnana ger- ræðisvald, þvert á móti. Þar sem háskóla- rektor hefur auk ann- ars hallað réttu máli á opinberum vettvangi sé ég mig tilneydda að leiðrétta nokkur atriði og halda öðrum til haga. Farið út fyrir aug- lýstan ráðningarferil Í auglýsingu um starfið sagði að dómnefnd (ekki ráðningarstofa) myndi meta hæfi umsækjenda „með sama hætti og hæfi umsækjenda um stöðu há- skólakennara“. Enn fremur að ráðið yrði í starfið „að fenginni umsögn hug- og félagsvísindasviðs og að höfðu samráði við háskólaráð“. Þessi áform stóðust illa. Tíma- áætlun stóðst engan veginn. Vilji hug- og félagsvísindasviðs var huns- aður. Þar með var brotið blað í sögu skólans og brotnar reglur háskólans um ráðningar. Ónákvæmni og villur í hæfnisdómi fengust ekki leiðréttar áður en kosning fór fram á fræða- sviðinu. Er þá fátt eitt talið af því sem aflaga fór. Reglur brotnar Rektor segir að fylgt hafi verið þeim reglum sem gilda fyrir háskól- ann varðandi ferlið, en þar segir: „Rektor ræður forseta fræðasviðs til tveggja ára í senn að fenginni umsögn viðkomandi fræðasviðs og að höfðu samráði við háskólaráð … Dómnefnd metur hæfni umsækj- enda um stöðu forseta fræðasviðs með líkum hætti og hún metur hæfni umsækjenda um stöður há- skólakennara, en þó skal einnig sér- staklega litið til starfsferils, starfs- reynslu, stjórnunarreynslu og menntunar umsækjenda …“ Reglurnar skýra glöggt hvað skuli metið og hvernig: Fræðasviðið tekur afstöðu til umsækjenda á grundvelli hæfnisdóma sérskipaðrar dómnefndar sem metur akademískt hæfi á borð við menntun og rann- sóknavirkni, en einnig starfs- og stjórnunarreynslu með tilliti til eðlis starfsins. Þrátt fyrir meinlegar vill- ur í hæfnisdómi um mig – þar sem bæði menntun og rannsóknavirkni voru vanmetin án þess að það feng- ist leiðrétt – er það niðurstaða dóm- nefndar að allir umsækjendur séu hæfir til þess að gegna auglýstri stöðu forseta hug- og félagsvís- indasviðs en „Ólína og Sigrún eru með mesta reynslu í krefjandi störf- um við stjórnun og rekstur“. Rangt farið með niðurstöður Háskólarektor hefur ítrekað látið að því liggja að dómnefnd hafi metið Sigrúnu Stefánsdóttur hæfasta til starfans. Í helgarblaði DV segir hann að „bæði niðurstaða dóm- nefndar og skýrsla ráðningarstof- unnar“ hafi verið „mjög skýrar“ að Sigrún væri hæfust. Lítum þá á nið- urstöðu Capacent. Þar erum við Sigrún báðar taldar „skara fram úr“ öðrum umsækjendum, en um mig segir: „Ólína hefur miklar forsendur til þess að sinna þessu starfi. Hún er með góða menntun, hefur reynslu af stjórnun, og þekkir til háskóla- samfélagsins. Hún hefur tekið þátt í uppbyggingu, m.a. innan háskóla, þó sú reynsla sé ekki endilega reynsla stjórnandans. Ólína sér marga möguleika fyrir Háskólann á Akureyri, og hefur áhuga og vilja til að vera í liðsheild sem eflir og styrkir skólann. Ólína er mjög vel máli farin samkvæmt því sem heyra mátti í viðtalinu. Þá eru gögn henn- ar vel upp sett og textinn skýr …“ Matskenndar umsagnir eru auð- vitað opnar fyrir túlkun en ég tel óhætt að fullyrða að enginn um- sækjenda hafi fengið „betri“ um- sögn en þessa hjá Capacent. Hins vegar gaf Capacent umsækjendum einkunn fyrir frammistöðu í viðtali. Þar skildi 1 stig af 12 milli mín og Sigrúnar. Þetta eina matskennda stig lætur rektor vega þyngra en hina lögbundnu hæfnisþætti og vilja fræðasviðsins sem hefur tekið lög- mæta afstöðu að virtum öllum fyr- irliggjandi gögnum um umsækj- endur. Virðing og jafnrétti? Kjörorð Háskólans á Akureyri „frelsi, framsækni – virðing og jafn- rétti“ eru háleit markmið sem vert er að rækta. En orð eru merking- arlaus nema efndir fylgi. Því miður hafa þessar síðustu tiltektir yfir- stjórnar Háskólans á Akureyri sett blett á skólann og varpað rýrð á hin háleitu kjörorð hans. Eftir Ólínu Þorvarðardóttur » Stjórnsýslulög veita ekki gerræðisvald. Þarna var viðhöfð geð- þóttastjórnsýsla og reglur háskólans brotn- ar. Sá blettur verður seint máður af skól- anum. Ólína Þorvarðardóttir Höfundur er þjóðfræðingur. Já, hver er svo hæfastur? Morgunblaðið/Kristján Rannsókna- og nýsköpunarhús Háskólans á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.