Morgunblaðið - 11.11.2013, Qupperneq 23
Áhugavert þetta
stöðuga kennitölu-
flakk hjá vinstri
flokkunum. Þegar ég
var að alast upp voru
Sósíalistaflokkurinn,
Bandalag jafn-
aðarmanna og fleiri
slíkir liðnir undir lok
en sterkustu vinstri
flokkarnir voru Al-
þýðuflokkurinn og
Alþýðubandalagið.
Þeir voru síðan lagðir
niður og stofnaðir
voru flokkar eins og
Samfylkingin og
Vinstri grænir og
loks Besti flokkurinn
sem nú hefur verið
lagður niður og Björt
framtíð tekin yfir.
Alltaf lifir samt Sjálf-
stæðisflokkurinn á
sömu kennitölu. Get-
ur verið stoltur af því
að hafa verið í meiri-
hluta ríkisstjórna á
lýðveldistímanum, þeim tíma sem
Ísland breyttist úr því að vera fá-
tækasta land Evrópu í eitt það rík-
asta. En vegna þessa kennitöluf-
lakks er voða erfitt að gagnrýna
vinstri flokkana, því mistök þeirra
eru alltaf einhverra annarra. R-
listinn stýrði Orkuveitunni í þrot og
þegar maður ætlar að gagnrýna
það þá vill enginn eiga neitt í þeim
lista lengur. Manni líður hálfund-
arlega að ætla að gagnrýna eitt-
hvað hjá Besta flokknum núna þeg-
ar búið er að leggja hann niður.
Hvers vegna þarf
Sjálfstæðisflokkurinn ekki
að skipta um nafn?
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
grunnhugsjónir sem standast tím-
ans tönn um trú á einstaklingnum
og með áherslu á frelsi hans. Í stað
þess að leggja allt í að drepa hann
niður og draga úr frumkvæði og
framtakssemi hans með ofurskatt-
lagningu hafa sjálfstæðismenn allt-
af reynt að gera honum
kleift að taka sínar
ákvarðanir sjálfur með
því að auka honum
svigrúm til athafna. Í
gegnum átök síðustu
aldar stóðu sjálfstæð-
ismenn með lýðræð-
isöflunum en margir
vinstri menn með ein-
ræðisöflunum. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur
aldrei þurft að skipta
um nafn né kennitölu
því hann er og verður
stoltur af verkum sín-
um.
Léleg stjórnarand-
staða í borginni?
Sumir sjálfstæð-
ismenn hafa gagnrýnt
borgarfulltrúa sína fyr-
ir lélega stjórnarand-
stöðu á þessu kjör-
tímabili. Því er ég ekki
sammála. Mér finnst
þeir allir hafa staðið sig
vel. Menn verða að
horfa til þess að ólíkt
var um að litast á
þinginu eða í borginni. Á meðan við
stjórn í landsmálum tóku vinstri
flokkar sem ólu á hatri og reiði í
samfélaginu vann Besti flokkurinn
borgina og reyndi að ala á sátt og
samlyndi. Á meðan vinstri rík-
isstjórnin setti á laggirnar fyrstu
pólitísku réttarhöldin í sögu Ís-
lands og reyndi að koma pólitískum
andstæðingi sínum í fangelsi, þá
reyndi vinstri meirihlutinn í borg-
inni að rétta fram sáttarhönd og
vildi samstarf. Staðan var einfald-
lega þannig að við völd í lands-
málum var gamalkunnugt andlit
vinstrisins sem maður hefur þekkt
lengi og þekkir í gegnum sögu Ís-
lands og Evrópu allrar en við völd í
borginni var nýtt og milt andlit
vinstrisins.
Það breytir því ekki að þau eru
vinstri menn og verða að fara frá.
Ef vinstri menn eru of lengi við
völd drepst allt í dróma í samfélag-
inu. Þess vegna eru komandi kosn-
ingar gríðarlega mikilvægar.
Kostnaður við rekstur borgarinnar
í höndum þessara manna vex og
vex. Eina leiðin sem þeir sjá út úr
því er að hækka álögur á borg-
arbúa með nýjum sköttum og
gjöldum. Þessu verðum við að
breyta.
Eftir Börk
Gunnarsson
Börkur
Gunnarsson
Höfundur er rithöfundur og leikstjóri
sem gefur kost á sér í 3. sæti í próf-
kjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Léleg stjórnarandstaða hjá
sjálfstæðismönnum í borginni?
»En vegna
þessa
kennitöluflakks
er voða erfitt að
gagnrýna
vinstri flokkana,
því mistök
þeirra eru alltaf
einhverra ann-
arra.
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013
Velkomin á
í hjarta Reykjavíkur
STÓRGLÆSILEGT
JÓLAHLAÐBORÐ
Kr. 8.900
Einstaklega glæsilegt og býður upp
á „allt sem hugurinn girnist“!
kemur þér í jólaskapið
EYJÓLFUR
KRISTJÁNSSON
Borðapantanir
í 551 7759
Missið ekki af einstakri
upplifun og pantið
borð í tíma.
Í löggjöf um mál-
efni aldraðra nr. 125/
1999 segir um tilgang
laganna; Lögin fela í
sér þau markmið að
gera öldruðum fært
að lifa eðlilegu heim-
ilislífi eins lengi og
kostur er og að öldr-
uðum sé tryggð þjón-
usta þegar hennar er
þörf og í samræmi við
þarfir hvers og eins.
Ásamt því er lögð áhersla á að
aldraðir njóti jafnréttis og að sjálf-
stæði þeirra sé virt.
En nú er allt að fara á líming-
unum vegna 50 eldri borgara sem
dagar uppi í rúmum í öldr-
unarálmu Landspítala sem byggð
var fyrir peninga úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra, en sam-
kvæmt ofangreindum lögum eiga
aldraðir að njóta jafnréttis til
sjúkrahúsvistar, sem hver annar,
ef sjúkdómar verða í vegi eða líkn-
arþörf. Þar eiga þeir að fá þjón-
ustu og alúð sem þeir þurfa.
Hvernig stendur þá á væli embætt-
ismanna nú vegna þessara líkn-
arþurfandi eldri borgara sem fá
notið vistar og þeirrar frábæru
ókeypis þjónustu sem Landspít-
alinn er þekktur fyrir?
Það er vegna þess að til eru sér-
byggð sjúkrahús fyrir aldraða sem
heita hjúkrunarheimilli. En sam-
kvæmt verklagi vist-
unarreglna mættu
heita „líknarhús“, því
þangað komast ein-
ungis í rými fársjúkir.
Það sem þykir óeðli-
legt er að læknarými
spítalans kostar 80
þkr. á sólarhring en
rýmið sérbyggða 23
þ.kr. á sólarhring.
(Meðaltölur í krónum.)
Það á auðvitað að hola
ofangreindum Land-
spítalasjúklingum þar
sem er hægt er og
rukka þá um rúmar 300 þúsund
krónur og ríkissjóð um rúmar 400
þúsund krónur á mánuði fyrir rúm-
ið.
Stóri vandinn er hinsvegar sá að
það eru engin pláss á hjúkr-
unarheimilum á lausu. Um 200
pláss skortir á höfuðborgarsvæð-
inu. Hafnarfjarðarheimilið er í
óvissu eftir margra ára undirbún-
ing og Sléttuvegarheimilinu var
sparkað út af núverandi ráðherra
fyrir nokkrum dögum. Hvert skal
haldið þá, ef ekki er hægt að þjóna
þessu sjúka fólki höfuðborgarsvæð-
isins með viðunandi hætti? Það
virðist enginn vita neitt um það,
síst af öllu Landspítalinn eða sjálf-
ur lögverndari velferðar aldraðra,
heilbrigðisráðherrann. Þeir eru svo
ráðalausir að ætla enn á ný að eyða
stórfé í Vífilsstaði til að losna við
fólkið af öldrunardeild Landspítala.
Væri ekki betra og ódýrast að við-
urkenna að kostnaður er minnstur
ef plássin á öldrunardeild Land-
spítala eru nýtt sem vistunarúræði
þar til betra býðst ef bókhald fær-
ist í rauntölum? Ef menn kynnu að
skammast sín sem bera ábyrgð á
þessu ófremdarástandi, er gott
tækifæri núna. Brettið upp ermar,
nýir ráðamenn og ráðherrar, og
komið ykkur að verki og verið ekki
þær mýslur sem áður fylltu sæti.
Ríkisstjórn sem ekki ber gæfu til
að sjá skóginn fyrir trjánum í þess-
um efnum á að hverfa út í hafs-
auga og maður spyr eins og Katla-
skáldið spurði í mótlæti fortíðar:
„Er hið sjálfstæða Ísland þá frels-
isins friðland, ef fólk sem vill rísa,
á þar hvergi griðland?“
Rétt er að minna á að Ásmundur
Stefánsson hagfræðisnillingur með
meiru skammaði Samtök aldraðra
og aðra talsmenn aldraðra fyrir að
gagnrýna ekki stjórnvöld, því út-
reikningar hans sýndu að við sem
nú erum á ævikvöldi erum fyrir
löngu búin að greiða okkar um-
sýslukostnað.
Eftir Erling Garðar
Jónasson » „Er hið sjálfstæða
Ísland þá frelsisins
friðland, ef fólk sem vill
rísa á þar hvergi grið-
land“.
Erling Garðar
Jónasson
Höfundur er formaður
Samtaka aldraðra.
Griðland aldraðra?
Aukablað alla
þriðjudaga