Morgunblaðið - 11.11.2013, Síða 24

Morgunblaðið - 11.11.2013, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013 ✝ Sveinn Bene-dikt Guðmunds- son húsgagna- smíðameistari, fæddist í Þverdal í Aðalvík 7. febrúar 1923. Hann lést á heimili sínu 31. október 2013. Foreldrar Sveins voru Guðmundur Snorri Finn- bogason, útvegs- bóndi, Þverdal í Aðalvík, f. á Sæ- bóli í Aðalvík 2. apríl 1890, d. 7. okt. 1969, og k.h. Jónína Sveins- dóttir, f. í Selhaga á Skörðum, A-Hún., 25. sept 1883, d. 7. júlí 1973. Systkini Sveins eru: Finn- bogi Ingimar, kaupmaður, f. 6.2. 1913, d. 20.5. 2001. Garðar Hannes, lögreglumaður, f. 13.8. 1917, d. 28.7. 1971, Margrét Sol- veig, húsfreyja, f. 7.2. 1923 (tví- burasystir), d. 25.7. 2011, Magn- ús húsateiknari, f. 18.10. 1925 og Sturla Jósef Sigurður Sturluson, (fósturbróðir), f. 14.12. 1915, d. 15.4. 2011. Sveinn kvæntist 13.9. 1947 Bergþóru Skarphéðinsdóttur, f. 17.7. 1926 á Þingeyri við Dýra- fjörð, hún er dóttir Einars Skarphéðins Magnússonar, f. 23.12. 1903, d. 10.12. 1963, og k.h. Kristínar Sigurlaugar Sím- onardóttur, f. 11.6. 1903, d. 12.5. 1977. Börn Sveins og Bergþóru: Guðmunda Óskarsdóttir versl- unareigandi, f. 23.10. 1960, þau eiga þrjú börn Bergþóru, unn- usti hennar er Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson, og tvíburana Mar- gréti og Óskar. 6) Kristín Linda, f. 18.9. 1967, starfsmaður Sölu- félags garðyrkjumanna, eig- inmaður hennar er Skjöldur Vatnar Árnason starfsmaður hjá Air Atlanta, f. 13.5. 1963, þau eiga þrjú börn, Söru Mjöll, unn- usti hennar er Erlingur Ívar Jó- hannsson, dóttir hans er El- ísabet Von, Magnús Vatnar og Róbert Frans. Sveinn fluttist til Reykjavíkur 1944 og nam húsgagnasmíði hjá Magnúsi Guðmundssyni, vann síðan í Trésmiðjunni Víði þar til að hann stofnaði sitt eigið hús- gagnasmíðaverkstæði að Soga- vegi 192. Hann rak verkstæðið til ársins 1978 samhliða hús- gagnaversluninni Heimilið sem stofnuð var 1974 og rak þá versl- un til 1981, en hætti þá rekstr- inum og sneri sér að ýmsum hugðarefnum s.s. stækkun og endurbótum á sumarhúsi sínu við Hafravatn auk þess sem hann byggði sér og Bergþóru lít- ið sumarhús, Árkot, á landi Þverdals í Aðalvík, æskuslóðum sínum. Sveinn starfaði í yfir tutt- ugu ár í sóknarnefnd Bústaða- sóknar ásamt því var hann í byggingarnefnd Bústaðakirkju. Sveinn var félagi í Karlakór Reykjavíkur í yfir fjóra áratugi auk þess að syngja með Frímúr- arakórnum. Útför Sveins fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 11. nóvember 2013 og hefst kl. 13. 1) Jónína Elfa, f. 23.3. 1946, d. 13.7. 1993, hár- greiðslumeistari, eiginmaður hennar var Örnólfur Örn- ólfsson, f. 12.5. 1945, þau slitu sam- vistum, börn þeirra eru: Ruth, hún á einn son, Ólaf Höskuldsson, og Örnólfur, eig- inkona hans er Bryndís Haralds- dóttir, þau eiga þrjú börn, Ey- dísi Elfu, Fannar Frey og Guðna Geir. 2) Sjöfn Sóley, f. 13.4. 1948, starfsmaður Skipta, eiginmaður hennar er Rögnvaldur R. Andr- ésson, f. 2.4. 1946, starfsmaður Icelandair, börn þeirra: Alma María, eiginmaður hennar er Guðmundur Guðnason, þau eiga tvö börn, Martein og Katrínu og Sveinn Benedikt, eiginkona hans er Signý Gunnarsdóttir, þau eiga tvö börn, Regínu Sjöfn og Gunnar Hrafn. 3) Magnea Gerður, f. 7.9. 1951, starfsmaður Hrafnistu, eiginmaður hennar er Ólafur Sigurðsson, f. 22.7. 1951, starfsmaður Hrafnistu, þau eiga einn son Vilhjálm Hin- rik. 4) tvíburasystir Magneu Gerðar óskírð, lést 5 daga göm- ul. 5) Smári, f. 26.4. 1960, starfs- maður tölvudeildar Landsbank- ans, eiginkona hans er Þegar mér barst tilkynning um andlát Sveins tengdaföður míns voru fyrstu viðbrögðin í mínum huga: Ég vona að þetta sé einhver misskilningur, ég hafði verið hjá honum tveim dögum fyrr, þá var hann hress og glaður að venju, í óðaönn að skipuleggja næstu framkvæmdir í Aðalvík, en það var að refta yfir gömlu fjárhúsa- tóftirnar og reisa þar hús. Hann var sífellt að huga að framtíðinni þessi síungi sveinn, vissi hreint ekki hvað setningin „ekki hægt“ þýddi, hjá honum var allt fram- kvæmanlegt, bara ef maður lagði hug, hönd og trú á sjálfan sig í verkið, enda voru þau ekki mörg verkefnin sem hann gekk frá ef nokkur. Ég hef oft staðhæft og geri enn: Sveinn var frábær verk- fræðingur, hann var ekki með reiknistokk eða tölvu né heldur studdist hann við flóknar form- úlur í sinni hönnun og fram- kvæmdum, heldur notaði sína af- burða skipulagsgáfu og brjóstvit sem aldrei brást honum. Hann hannaði og framkvæmdi hluti sem aðra hafði aðeins dreymt um, að byggja hús og útbúa steypumótin fyrir veggina lárétt, og reisa svo og tengja saman, þannig byggði hann tvö hús sjálfur og leiðbeindi fleirum. Þegar flytja þurfti þunga hluti til Aðalvíkur, þar sem engin er höfnin né aðstæður til landtöku með þungaflutning, hann lá þá kannske andvaka heila nótt og glímdi við vandamálið, svo kom lausnin, hún var ekki á blaði, hann var með hana í kollinum: „Þetta er ekkert vandamál, við gerum þetta bara svona,“ svo framkvæmdi hann hlutina og við fjölskyldan og vinir fylgdumst með og dáðumst að hugkvæmninni og þrautseigj- unni. Þá hannaði hann og smíðaði húsgögn á verkstæði sínu á Soga- veginum sem báru af hvað varðaði vandvirkni og hugvitsamlega út- færslu á flóknum og vandasamri smíði, en hann sótti iðulega hús- gagnasýningar erlendis og fékk þaðan hugmyndir og innblástur. Það var svo á sjöunda áratugnum sem hlutirnir breyttust, sífellt jókst innflutningur á ódýrum verksmiðjuframleiddum hús- gögnum, sem innlendir hand- verksmenn gátu ekki keppt við í verði, en gæðin voru langt frá því að vera þau sömu og á handunn- um húsgögnum hér á landi. Svein neyddist til að bregðast við, svo hann hóf innflutning á erlendum húsgögnum og stofnaði „Heimil- ið“, húsgagnaverslun á Sogavegi 188, sem margir muna eftir og rak hana fram til 1980. Ég ætla ekki að mæra Svein meira hér, en það væri hægt að skrifa heila bók um allt sem hann framkvæmdi, en þess munu afkomendur hans njóta um ókomna tíð. Fjölskyldan sér eftir elskuðum eiginmanni, föður, tengdaföður, afa, langafa og vini. Farðu í friði, kæri tengda- faðir, og þakka þér fyrir allt. Þinn tengdasonur, Rögnvaldur. Tengdafaðir minn yfirgaf lífs- ins svið nákvæmlega á þann hátt sem hann hafði óskað. Búinn að fara í sundið sitt, sópaði sólstof- una, settist aðeins niður í hæg- indastólnum við sjónvarpið og var að bíða eftir matarstundinni. Sofnaði þar svefninum langa. Tengdafaðir minn var litrík persóna. Hafði alist upp í Þverdal, stórbýli í Aðalvík á Hornströnd- um. Þar þurfti fólk að bjarga sér. Þessi staður þykir á hjara verald- ar en er samt svo ótrúlega gjöfull nú sem áður ef þú kemur auga á tækifærin. Og tengdafaðir minn sá svo sannanlega tækifærin alls staðar í kringum sig. Það þarf bara að vinna til að ná þeim. Viðhorf hans hefur haft mikil áhrif á líf fjölskyldu minnar. Það kom glöggt fram þegar ég og son- ur hans fórum að rugla saman reytum okkar. Þá var farið að huga að íbúðarhúsnæði. Lagði hann til að við myndum sækja um lóð en í þá daga var kannski möguleiki að fá úthlutaðri lóð í 3. eða 4. úthlutun. Það yrði þá innan 7–10 ára. Og það var ekki á hverju ári sem hægt var að sækja um. Við sóttum um og í millitíðinni frá umsókn til úthlutunar urðu stjórnarskipti í borginni og allir fengu lóð sem vildu. Var nú úr vöndu að ráða. Við, krakkar á 23. ári og áttum ekkert fjármagn í húsbygginguna. Okkur fannst þetta óvinnandi verkefni. Áttum ekki einu sinni fyrir verktakanum til að taka grunninn. Þá kom tengdafaðir minn og sagði við okkur að fullfrísku fólki væri eng- in vorkunn með þetta. Við ættum að taka skóflu og byrja að moka. Síðan tækjum við þetta eins og efni stæðu til. Nóg væri vinnuaflið í okkur. Og það var reyndin. Unn- um við öll kvöld og helgar við hús- bygginguna, fluttum inn á stein- inn og innihurðarlaust hús nokkrum árum seinna. Auðvitað með hjálp og góðum ráðum frá fullt af fólki en ekki síst frá honum sem hafði byggt mörg hús. Og oft- ar en ekki komu tengsl hans við fólkið frá Vestfjörðum að góðum notum. Einnig kenndi hann mér og börnum mínum að elska Aðalvík- ina. Við höfum farið á hverju ári nánast síðan við Smári kynntumst og við hjónin stundum oft á sumri. Hann fór með okkur 90 ára gam- all á síðasta sumri í messuferðina. Ferðalagið til Aðalvíkur er lýjandi fyrir okkur sem yngri erum, hvað þá fyrir 90 ára gamlan mann. En það sýnir hvað hann var ern og út- lit hans benti ekki til svo hás ald- urs. Daginn fyrir andlát sitt var hann enn að hugsa um uppbygg- ingu í Aðalvíkinni og var að viða að sér efni til þess. Munum við fjölskyldan að sjálfsögðu taka við keflinu og halda áfram í anda hans. Ég vil þakka tengdaföður mín- um samfylgdina og allt sem hann hefur gert fyrir mig og mína. Við höfum verið afar lánsöm að hafa haft hann svona lengi hjá okkur sem öllum er ekki gefið. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guðmunda Óskarsdóttir. Nú stöðvar ekkert tregatárin, og tungu vart má hræra. Þakka þér amma, öll góðu árin, sem ótal minningar færa. Já, vinskap þinn svo mikils ég met og minningar áfram lifa. Mót áföllum lífsins svo lítið get, en langar þó þetta að skrifa. (Höf. ók.) Í samskiptum fólks verður allt- af til þráður. Þráðurinn er mis- munandi af eiginleikum, allt eftir því hverjir spinna. Stundum er þráðurinn þykkur, hrjúfur og augljós þeim sem á horfa, stund- um er þráðurinn fíngerður, mjúk- ur og ósýnilegur. Lífsins lista- menn spinna af list alla þræði og hafa þá í hendi sér í samskiptum og viðurgjörningi öllum við sam- ferðamenn sína. Að sönnu var afi minn listamaður í þessum skiln- ingi. Á sólríkum haustdegi er Esjan skartaði sínu fegursta og Snæ- fellsjökull reis eins og drottning upp úr haffletinum kvaddi afi minn þessa jarðvist. Það er vita- skuld lögmál lífsins að öll hverfum við á braut en það sem einkum skilur á milli er hversu digran sjóð góðra minninga hver og einn skil- ur eftir sig meðal þeirra sem eftir standa. Ég er elsta barnabarn afa og minningarnar streyma. Á kveðjustund finn ég enn sterkara en áður fyrir þræðinum sem var á milli okkar. Höfðingi, hjartað úr gulli, sálin geislandi af hlýju, gestrisnin upp- máluð, umhyggjusemi fyrir öllu og öllum er það fyrsta sem kemur upp í huga minn er ég minnist afa. Hann gaf lífinu lit og góðmennska hans og gleði mun ætíð verða mér að leiðarljósi í lífinu. Sólbrúnir vangar, silfurgrátt hár sálin geislandi af hlýju. Þannig ég minnist þín um ókomin ár þar til við hittumst að nýju. Á mínum yngri árum leit ég oft við á smíðaverkstæðinu hjá afa. Hann tók á móti manni í svunt- unni sinni með pappírshúfu á höfðinu og lyktin af saginu ilmaði um allt. Afi gaf sér ávallt tíma til spjalls og það var gott að leita ráða hjá honum. Á Hafravatni átt- um við margar góðar stundir en þar kenndi afi manni að meta náttúruna. Í kjólfötum á leið á Frímúrara- fund, að tefla skák með bestu vin- unum, á leið á söngæfingu með Karlakór Reykjavíkur eru minn- ingar sem koma sterkt upp í hug- ann. Söngurinn skipaði stóran sess í lífi afa og smitaðist hann út í allt hans fólk, Sveinsfamily, enda ávallt glatt á hjalla er við hitt- umst. Ein er sú vík sem afi unni mest og það er Aðalvíkin hans á Horn- ströndum. Þangað fór hann á hverju sumri og naut sín vel. Árið 1993 fór ég með afa, ömmu og frændfólki í víkina, sú ferð gleym- ist seint því þar knúði sorgin dyra. Við fengum þau skilaboð að Elfa elsta dóttir þeirra og móðir mín væri látin. Við tók erfitt ferðalag til höfuðborgarinnar yfir djúp og land. Þessar fréttir tóku mikið á okkur öll en það er gott til þess að vita að afi og mamma séu nú sam- einuð á ný og eru án efa að taka lagið saman og höfð í heiðurssessi í fortjaldinu hjá hinum hæsta höf- uðsmið himins og jarðar. Elsku Begga amma, missir þinn er mikill, megi algóður Guð halda í hendur þínar á þessari erf- iðu stundu og gefa þér styrk. Megi blessun fylgja elsku afa mínum á eilífðarbrautum. Kóngurinn þinn biður að heilsa. Ruth Örnólfsdóttir. Þrátt fyrir að elsku afi minn hafi verið orðinn 90 ára finnst mér hann ekkert hafa breyst öll árin sem ég man hann. Hann var alltaf jafn reffilegur maður með sterka andlitsdrætti, bjart bros og með þykkt fallegt hár sem ég fékk svo oft að greiða þegar ég var barn. Eftir honum var tekið hvert sem hann fór. Hann var sterkur karakter, fé- lagslyndur mjög og átti óteljandi vini. Hann var höfuð fjölskyld- unnar enda köllum við okkur „Sveins family“. Honum leið einna best þegar við hittumst öll og hann gat verið í kringum öll börnin sín. Afi minn lifði í núinu og var allt- af að plana verkefni framtíðarinn- ar. Hann hefði aldrei sagt „það tekur því ekki“. Ég sé hann fyrir mér gangandi um með hendur fyrir aftan bak í þungum þönkum og fram spruttu svo ótrúlegustu hugmyndir sem flestar voru fram- kvæmdar. Afköst hans og hug- myndaauðgi fram á síðasta dag voru með ólíkindum. Verkstæðið var hans staður og alltaf var svo gaman að fá að dunda þar með honum sem barn. Timburlyktin af honum var mín afalykt sem aldrei gleymist. Afi minn var meistarasmiður. Ég bað hann eitt sinn um að smíða fyrir mig stofuborð sem ég rissaði upp. Hann kom svo með tekkdrumb sem hann átti, enn með berkinum á og spurði hvernig mér litist á. Stuttu síðar var borðið komið til mín og er ég svo þakklát að fá að njóta þeirrar listasmíðar daglega. Fátt fannst afa skemmtilegra en að syngja og þeirri gleði deildi ég með honum. Einar bestu minn- ingarnar sem ég á nú eru söng- stundir okkar saman og þá sér- staklega í Aðalvík. Þá söng ég laglínuna og hann raddaði. Við hljómuðum svo vel saman. Mikið verður Aðalvíkin nú tómleg án hans. Nú þegar ég kveð yndislega blíða afa minn vil ég biðja góðan Guð að vaka yfir elsku ömmu minni sem hefur nú misst lífsföru- naut sinn til 70 ára. Elsku amma, mamma, Gerður, Smári og Kristín Linda. Sorg okkar allra er mikil en saman munum við hlýja okkur við ótelj- andi minningar um góðan mann sem mun áfram verða stoð okkar samrýmdu stórfjölskyldu. Guð geymi þig, elsku afi minn. Þín Alma María. Leiðinlegt að þurfa að segja þér þetta svona í símann en hann afi þinn er dáinn. Ég stóð frosinn með símann í hendi og sagði ekki orð í dágóða stund. Afi var orðinn rúmlega níræður en samt var þetta áfall þar sem hann var eld- hress og ekkert amaði að honum. Ég er nafni hans og hef alltaf verið mjög stoltur af því, hann kallaði mig líka mjög oft nafna og þótti mér vænt um það. Það er svo margra stunda að minnast með afa og ömmu. Ég var nokkuð mik- ið niðri á Sogavegi hjá þeim og alltaf var afi að framkvæma eitt- hvað. Ég var oft með honum á verkstæðinu og kenndi hann mér sitthvað þar þó að ég sé nú ekki mikill smiður í dag. Öll börnin hans, barnabörnin og nú barnabarnabörnin kannast við að greiða afa með greiðunni hans. Gott ráð var að dýfa henni ofan í vatnsglas og svo greiða í gegnum lubbann. Það væri fróð- legt að vita hvað hann hefur borg- að okkur öllum samtals mikið fyr- ir þetta í gegnum árin. Stundir með afa og ömmu á Hafravatni voru ófáar og man ég vel þegar hann leyfði mér að keyra bílinn sinn á ísilögðu vatn- inu og seinna þegar við misstum lítinn vélsleða í gegnum ísinn. Þá vildi afi helst ekki að ég væri mik- ið að segja frá því. Aðalvík, æskuslóðir afa, eru líka ofarlega í minningunni þegar ég rifja upp okkar stundir. Þar man ég vel eftir að hafa smíðað lít- ið hús yfir tóftir með honum og var ég ansi stoltur af því verki. Og svo þegar afi sýndi mér pollinn sem hann lærði að synda í. Þetta var hrikalega kalt vatn og ég gat ekki ímyndað mér að synda þar. Svo sagði hann mér sögur af því þegar Bretinn kom á stríðsárun- um og frá vinnu sinni við að leggja vegi fyrir þá. Ég hef alltaf verið áhugamaður um seinna stríð og þótti mér mikið til frásagna hans koma. Hann afi minn var duglegasti maður sem ég hef kynnst og krafðist einnig af öðrum að þeir legðu sig fram. Fólk sem hitti hann einu sinni man eftir honum. Hann hafði mikla persónutöfra og var mjög félagslyndur. Hann elskaði að syngja og var aldrei ánægðari en í hópi syngjandi fólks. Elsku afi minn, ég mun sakna þín sárt. Sveinn Benedikt Rögnvaldsson. Aðalvík er heimur við ysta haf. Umlukin elsta bergi Íslands. Töfrandi er fegurð harðbýllar náttúru. Þar geymast saga og minningar um það sem var. Land- ið mótaði fólkið, líf þess og drauma. Brot af þessu bergi var Sveinn Benedikt föðurbróðir minn. Föðurættin var vestfirsk og ættbogi móður úr Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum. Bæði Jónína og Guðmundur Snorri höfðu yndi af söng og og var söngurinn gleði- gjafi öllum á heimilinu. Hjálmar Gíslason, mágur Sveins Bene- dikts, fangar heimilisbraginn í Þverdal í einu erindi kvæðisins Hjá afa og ömmu: Þegar afi í Þverdal bjó þá var glatt á hjalla, amma söng og afi hló, oft um margt að spjalla, svo er gesti að garði bar, góðra vina fundir, allir saman áttu þar unaðslegar stundir. Þegar haft er í huga hvað það var, sem mótaði Svein Benedikt, kemur ekki á óvart hver hann varð. Sveinn Benedikt var ein- staklega félagslyndur maður og aufúsugestur hvar sem hann kom. Hann var söngvinn og hafði fal- lega rödd og kórfélagi öll sín full- orðinsár. Hann var hugmyndarík- ur og fór ótroðnar slóðir og maður ekki einhamur. Allt hans líf dvaldi hugurinn tíðum við framkvæmdir í sveitinni við ysta haf og með vissu þegar síðustu kornin féllu í tímaglasi hans. Sveinn Benedikt var góðgjarn og góðviljaður og nutum við ættmenni hans þess. Vinátta og velvild hans um ára- tugi verður þessum höfðingja seint fullþökkuð. Haf þökk, frændi, fyrir allt og allt. Snorri Ingimarsson og fjölskylda. Ég var ungur að árum í föð- urgarði þegar ég kynntist Sveini Guðmundssyni fyrst. Hann var vinur og söngfélagi föður míns heitins í Karlakór Reykjavíkur um áratuga skeið og kom oft í heimsókn. Mér er minnisstætt hvað mér þótti Sveinn skemmti- legur og hláturmildur. Þegar fram liðu stundir gekk ég í raðir Karlakórs Reykjavíkur. Þá gafst mér tækifæri á að kynn- ast Sveini enn betur. Mér varð fljótt ljóst að þar var snillingur á ferð. Söngurinn og tónlistin kraumaði í honum. Lífsgleði hans og kímni var einstök og hrífandi. Hann var húmoristi fram í fing- urgóma, tók upp á ýmsu spaugi- legu, hló dillandi hlátri og hreif alla með sér. Hann var afar vin- sæll og einstakur gleðigjafi í þess orðs fyllstu merkingu. Sveinn var afburða smiður, ein- staklega vandvirkur og útsjónar- samur. Verk hans bera því fagurt vitni hversu mikill völundur tré- verksins hann var. Ég minnist margra óborgan- legra stunda með Sveini. Þar rísa hæst minningar úr Kínaferð Karlakórs Reykjavíkur haustið 1979. Í ferðinni lék hann á als oddi og var þar stórkostlegur í gleði sinni og einlægni. Skemmtilegri ferðafélaga var ekki hægt að hugsa sér. Ég hef kynnst mörgu ágætu fólki á löngum söngferli mínum. Af öllum stendur Sveinn hæst í minningunni. Hann hafði sannan og heilsteyptan karakter að geyma, var drengur góður og öll- um ógleymanlegur. Að leiðarlokum þakka ég hon- um af heilum hug áralöng kynni, sönginn, lífsleiknina og að hafa Sveinn Benedikt Guðmundsson HINSTA KVEÐJA Við biðjum að þér ljóssins englar lýsi og leiði þig hin kærleiksríka hönd, í nýjum heimi æ þér vörður vísi, sem vitar inn í himnesk sólarlönd. Þér sendum bænir upp í hærri heima og hjartans þakkir öll við færum þér. Við sálu þína biðjum guð að geyma, þín göfga minning okkur heilög er (Guðrún Elísabet Vormsdóttir.) Eydís Elfa, Ólafur, Fann- ar Freyr og Guðni Geir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.