Morgunblaðið - 11.11.2013, Side 25

Morgunblaðið - 11.11.2013, Side 25
verið hinn sanni gleðigjafi á langri ævi. Fjölskyldu og vinum Sveins votta ég mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Sveins Guðmundssonar. Magnús Ástvaldsson. Hún getur verið hljóðlát og hlý, aldan sem hjúfrar sig við strönd- ina í Aðalvík á Hornströndum, þegar sumarið er gengið í garð – andstæða vetrarins við ysta haf. Og þótt félagi okkar og söngbróð- ir til margra ára, Sveinn Guð- mundsson, væri fæddur á þorra, var hann svo sannarlega sumars- ins barn. Nú er þetta barn náttúr- unnar á Hornstöndum að öllum líkindum búið að lenda fleyi sínu á ströndinni fyrir neðan Þverdal í Aðalvík. Sveinn Guðmundsson var eft- irminnilegur maður. Alltaf var söngurinn nærri og þegar ein- hverjir ætluðu að láta reyna á raddstyrkinn, rétti Sveinn fram hendurnar, lét þær síga og tón- arnir urðu að lágværum klið. Allir nutu augnabliksins. Í hálfa öld var hann í hinum trausta hópi annars bassa sem fyllti raðir Karlakórs Reykjavík- ur og síðar eldri félaga hans. Síð- asta söngferðin af mörgum eftir- minnilegum var farin síðastliðið vor vestur í Stykkishólm og Búð- ardal. Þá var Sveinn rúmlega ní- ræður – geri aðrir betur. Í miðju lagi í Stykkishólmskirkju hringdi síminn en í hvern? Gekk þá ekki Sveinn Guðmundsson fram og af- henti nærstöddum á fyrsta bekk símann sinn. Enn eitt eftirminni- lega augnablikið þar sem Sveinn átti salinn. Mér og fleirum mun aldrei líða úr minni stundin á hótelherbergi í Minneapolis í lok frábærrar söng- ferðar um Íslendingabyggðir vestan hafs haustið 1975, þegar Sveinn vakti athygli á því að ég og sambýliskona mín, værum ennþá ógift. Það sæmdi ekki þar sem með í för væri sjálfur biskupinn – Sigurbjörn Einarsson. Sveinn taldi það skyldu sína sem virðu- legur sóknarnefndarmaður að bæta hér úr. Að athöfn lokinni spurði Sveinn „brúðina“ hvort hún vildi ekki láta syngja lag í lok- in? Mín kona, nýflutt frá Finn- landi, bað þá um það lag sem hún þekkti best og allir Íslendingar syngja á erlendri grundu: „Ríð- um, ríðum“. Það hlógu allir nema hún. Allar götur síðan þegar við Sveinn hittumst kom spurningin hjá Sveini: „Heldur þetta enn“? Við söngfélagarnir, sumir í hálfa öld, getum sagt marga sög- una af Sveini, svo minnisstæður félagi sem hann var. Það var stutt í glettnisglampann í augunum sem oftast endaði með brosi. En Sveinn var líka alvörunnar maður og tók víða til hendinni. Og tryggð hans við átthagana vestra var ein- stök. Sveinn átti því láni að fagna að kveðja hljóðlega eftir langa og starfsama ævi. Við félagarnir úr Karlakór Reykjavíkur geymum minningarnar um einstakan fé- laga. Innilegar samúðarkveðjur; Bergþóra og fjölskylda. Fyrir hönd eldri félaga í Karla- kór Reykjavíkur, Reynir Ingibjartsson. Sveinn Guðmundsson, fóst- bróðir minn og söngfélagi, var óvenjulega vel af Guði gerður. Hann var glæsimenni, fríður sýn- um og vel skaptur. Það sópaði að honum hvar sem hann fór. Hann var síbrosandi og ávallt í góðu skapi og mikill gleðigjafi. Hann hló með öllu andlitinu og hlátur hans var svo smitandi að áður en varði voru allir í kring um Svein farnir að kíma og brosa. Sveinn var líka mikill mann- kostamaður. Sannur félagi og vin- ur í raun. Hann var höfðingi heim að sækja, hvort heldur var á fag- urt heimili hans á Sogaveginum eða vestur í Aðalvík. Ég var svo heppinn að vera á handfærum frá Ísafirði sumarið 1978 og upplifði sumarnæturnar vestra eins og þær gerast fegurstar í Aðalvík. Heimahagarnir áttu hug hans all- an, og hann sýndi þeim mikla ræktarsemi. Sveinn lærði húsgagnasmíði og varð meistari í þeirri grein. Hann var fágætur völundur. Allt lék í höndum hans. Hann lét ekkert frá sér fara nema framúrskarandi vandaða vöru. Handverki hans má lýsa sem fegurstu listasmíð. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að vera söngbróðir Sveins um áratuga skeið, fyrst í Karlakór Reykjavíkur og síðar í kór eldri félaga karlakórsins. Það fór strax afar vel á með okkur, enda ekki annað hægt þar sem Sveinn átti í hlut. Báðir í öðrum bassa. Sveinn hafði óvenju fallega söngrödd og var afar tónviss. Alltaf var kátína í kring um Svein og lífið kryddað með kjarnmiklum sögum og gam- anyrðum. Sveinn var fagurkeri og það fór ekki fram hjá okkur þegar fagrar konur liðu hjá. Þá brostum við hvor til annars. Oft lágu leiðir okkar líka saman utan söngsins og allar þær stundir voru gleði- stundir. Ég þakka Guði fyrir að fá að vera samtímamaður Sveins Guðmundssonar. Við Sveinn ræddum stundum um heimspekileg málefni, eðli mannsins og hamingjuna. Við komumst að þeirri niðurstöðu að gleði og jákvætt viðhorf til tilver- unnar lengdi lífið eins og sannast hefur á honum sjálfum. Hann sagðist vera afar hamingjusamur maður og lífshlaup sitt hefði fært sér mikla gæfu. Hann hefði alltaf verið umvafinn ástvinum, ættingj- um, afkomendum og góðum fé- lögum sem hefðu fært sér ríkar gjafir. Við gengum báðir út frá þeirri vissu að Guð væri til. Við biðjum hann á þessari stundu að vernda Svein Guðmundsson og blessa Bergþóru Skarphéðins- dóttur, börn þeirra, ættingja og vini. Far þú í friði, elsku vinur. Baldur Óskarsson. Enn hefur einn góður félaginn kvatt okkar glaða hóp. Sveinn Guðmundsson var árum saman fastur sólarblettur í tilverunni okkar í Laugardalslauginni. Eftir honum man enginn öðruvísi en brosandi breitt með glettni í aug- um. Hnellinn á velli, rjóðleitur og réttholda með grásprengt hár. Svenni var forsöngvari lengi í föstudagskórnum í gamla gufu- baðinu. En þangað þyrptist fólk um níuleytið og tók lagið. Fáum mun úr minni líða hvernig hljóm- mikil bassarödd fyllti gufuna með allskyns tilbrigðum í röddun hans. Hann hafði eina hina feg- urstu bassarödd sem nokkurs staðar heyrist. Hann hafði algilt tóneyra sem getur greint öll til- brigði og tóntegundir og sungið hvaða rödd sem er. Kunni öll lög og alla texta og meira til. Hann var líka félagi lengi í Karlakór Reykjavíkur. Sá sem þetta skrifar minnist þess að heyra rödd Sveins í gegnum allan kórinn sitjandi á svölunum í Langholtskirkju svo unun var að hlýða á voldugan hljómbotn söng- verksins. Sveinn Guðmundsson var lærð- ur húsgagnasmiður og auk þess listasmiður í þeirri grein. Marga fagra gripi lætur hann eftir sig á því sviði. Hann var góður félagi og glaður. Hann var fluttur í Boða- þing og farinn að sækja meira laugina þar sem hann lofaði. Okk- ur er sagt að hann hafi ekki látið sig vanta þar daginn sem hann dó og leikið á als oddi að vanda. Það var honum líkt og sæmandi, slíkur maður sem hann var. Og þegar næturhúmið svart um sálu mína síðast fer og slökkur augna minna glóð, þá veit ég hvaða ljúflingsljóð mun líða hinzt að eyrum mér: Ó, fagra veröld, vín og sól, ég þakka þér! Við sundfélagar í Laugardal þökkum Sveini Guðmundssyni fyrir samfylgdina. F.h. sundfélaga í Laugardal, Halldór Jónsson. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013 ✝ Hákon SveinnDaníelsson fæddist í Reykjavík 1. ágúst 1929. Hann lést í Reykjavík 30. október 2013. Foreldrar hans voru hjónin Daníel Helgi Þorkelsson málarameistari, f. 21.8. 1903, d. 28.8. 1989, og Martha Christine Fredrike Þorkelsson húsmóðir, fædd Kämpferth frá Buxtehude í Þýskalandi, f. 10.12. 1905, d. 4.9. 1991. Hákon var næstelstur fjög- urra systkina, en tvö þeirra er látin: Anna Svanhildur, f. 5.7. 1927, d. 8.3. 1992 og Ernst Peter, f. 8.12. 1936, d. 30.11. 2012. Eft- irlifandi bróðir er Helgi, f. 26.9. el Ísar. 2) Marteinn, versl- unarmaður, f. 30.1. 1959. Mar- teinn var kvæntur Hafdísi Guðmundsdóttur, þau eiga börn- in Guðmund, Arnar og Valgerði Birnu. Þau skildu. Guðmundur er kvæntur Brynju Ruth Karls- dóttur, þau eiga börnin Tómas Andra og Agnethu Ýri. Marteinn var í sambúð með Margréti Kristínu Björnsdóttur og börn- um hennar, Baldvini Sigurðssyni og Karolínu Sigurðardóttur. Þau slitu samvistum. Hákon lauk prófi frá Verzl- unarskóla Íslands 1949 og var síðan eitt ár við enskunám í Glas- gow. Hákon starfaði lengst af sem skrifstofumaður. Hann starfaði meðal annars hjá Lof- leiðum í New York og Flugfélagi Íslands í Hamborg. Var skrif- stofumaður og verkstjóri hjá Hafskipum og starfaði hjá Bræðrunum Ormsson. Útför Hákonar fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 11. nóv- ember 2013, og hefst athöfnin klukkan 15. 1947. Hákon kvæntist 18. október 1951 Valgerði Proppé, f. 22.7. 1929. For- eldrar hennar voru Anton Vilhelm Proppé fram- kvæmdastjóri, f. 1.1. 1885, d. 24.5. 1963, og Ólafía El- ísabet Tómasdóttir Proppé húsfreyja, f. 31.7. 1887, d. 8.9. 1947. Börn Há- konar og Valgerðar eru: 1) El- ísabet, flugfreyja, f. 7.12. 1952, eiginmaður hennar er Halldór K. Valdimarsson, þau eiga synina Hákon Davíð og Stefán Tandra. Hákon Davíð er kvæntur Sveinu Berglindi Jónsdóttur, þau eiga börnin Elísabetu Hrönn og Daní- Hann Hákon tengdapabbi hef- ur kvatt. Hann var ein af hvunndags- hetjum sinnar samtíðar. Þessar- ar kynslóðar sem óx upp af grunni hafta og takmarkana og gjörbylti íslenskum raunveru- leika með einkunnarorðin „ég skal“ að vopni. Hákon tók þar fullan þátt. Gekk sinn veg af elju og dugnaði og viðurkenndi hvorki eigin tak- mörk né vék fyrir þeim. Það var lítið slegið af þótt líkaminn byrj- aði að gefa eftir fremur ungur. Hnefinn bara krepptur þéttar og bitið fastar á jaxlinn. Hákon stundaði nám í Verzl- unarskólanum og sú skólavist varð mikill áhrifavaldur í lífi hans því þar kynntist hann lífs- förunaut sínum Valgerði Proppé. Þar mynduðust líka vinabönd sem héldu ævilangt, því „stráka- “hópurinn hittist enn og Hákon hafði mikla ánægju af þeim sam- fundum. Eftir að Hákon lauk námi lá leiðin út í atvinnulífið. Hann fékk ungur mikinn áhuga á flugi, sem varð ævilangt áhugamál. Hann starfaði fyrir Loftleiðir í New York og síðar fyrir Flugfélag Ís- lands í Hamborg. Seinna á starfsævinni var hann hjá Haf- skipum og síðast í hlutastarfi hjá Bræðrunum Ormsson. Hákon varð að víkja snemma af vinnumarkaði vegna veikinda. Það hafa verið þung tímamót þótt ekki hafi verið höfð mörg orð þar um. Hákon var glaðvær að eðlis- fari og þrátt fyrir veikindi og þvert á allar þjáningar var jafn- an stutt í barnslega gleði. Sæl- gætismoli á góðri stund, stjörnu- ljós á gamlárskvöld, skondið andsvar barnabarnabarns, allt náði þetta að slaka drættina sem verkirnir höfðu markað í andlitið og kalla fram bjart bros. Hákon var mikið snyrtimenni og var umhugað um að klæðast fallegum og vönduðum fötum og vel burstuðum skóm. Þessi snyrtimennska náði yfir allt hans umhverfi og átti sér skýra birt- ingarmynd í því hvernig hann hugsaði um bíla. Þeir voru þvegnir og stroknir og séð til þess að aldrei félli niður þjón- ustuskoðun eða smurning dræg- ist fram yfir tilsettan kílómetra- fjölda. Hann meira að segja þvoði og bónaði vélarnar. Hákoni var það í blóð borið að hugsa vel um og fara vel með eigur sínar og þá hluti sem honum voru fólgnir til notkunar og varð- veislu. Hákon hafði næmt auga fyrir því fagra og listræna og var prýðilegur ljósmyndari. Oft undi hann sér við að mynda blómin í garði þeirra hjóna og svo skráði hann að sjálfsögðu margar ferðir þeirra á mynd. Það sem einkenndi Hákon um- fram annað var óendanleg trú á að einhver bati gæti náðst. Hann gafst aldrei upp heldur hélt í vonina um að einhvern veginn tækist að minnka þjáninguna, rétta úr bakinu og ganga staf- laus. Vonin og trúin á betri tíð er arfleifð hans til okkar sem eftir stöndum. Ef til vill má það líka verða eiginkonu, börnum og öðrum að- standendum Hákonar huggun að honum var hlíft við enn meiri skerðingu hreyfigetu en orðið var, því hún varð honum sífellt þungbærari. Það var líka dæmigert fyrir Hákon að þegar kallið kom laut hann ekki forlögum sínum útaf- liggjandi heldur fór fram úr til þess að deyja uppréttur. Hann féll í þeirri baráttu við hvunn- daginn sem hafði staðið svo lengi og var orðin svo erfið en hann féll með reisn. Við kveðjum hann með þökk- um. Halldór K. Valdimarsson. Það var vorið 1949. Við vorum 66 sem lukum burtfararprófi úr verzlunardeild frá Verzlunar- skóla Íslands. Það var lífsglaður hópur sem hafði átt ógleymanleg fjögur ár í gamla skólahúsinu við Grundarstíg. Ungt fólk sem fullt bjartsýni bjó sig undir að takast á við lífið og vandamálin víðs fjarri. Frá skólaárunum eru liðn- ir rúmir sex áratugir. Nú er svo komið að það er árviss viðburður að við þurfum að kveðja einn eða fleiri úr hópnum hinstu kveðju. Að þessu sinni er það Hákon Daníelsson sem kveður en hann er sá 36. af skólasystkinunum sem fer yfir móðuna miklu. Frá- bær félagi alla tíð og skilur eftir sig margar og góðar minningar. Eftir að skólagöngu lauk tvístraðist hópurinn. Sum okkar lögðu á sig lengra nám, önnur helltu sér út í atvinnulífið og við tók hjá flestum daglegt strit við stofnun heimilis, ómældar stund- ir við að koma sér upp húsnæði og oft langur tími sem fylgdi bið- inni í bönkum við að bjarga af- borgunum á kröfum sem héldu oft vöku fyrir þeim sem alltaf vildu standa í skilum. Nokkur úr hópnum hleyptu heimdraganum og héldu á framandi slóðir til menntunar eða varanlegrar bú- setu. Þrátt fyrir þessa breytingu megnaði ekkert að rjúfa sam- stöðuna. Böndin varð að treysta sem myndast höfðu á skólaárun- um. Það var gert á þann eina hátt sem slíkt getur megnað. Með því að eiga sameiginlegar samverustundir. Gleðjast með þeim sem lánið hafði leikið við. Sýna samúð þeim sem höfðu orð- ið fyrir áfalli. Fáir voru traustari í þessum hópi en Hákon. Í áratugi höfum við skólabræðurnir hist og notið samverustundar með því að neyta léttrar máltíðar. Hákon var sérstakur varðandi matar- venjur á þessum stundum. Hans réttur var brauðsneið með roast beef. Sem fagmaður með áratuga reynslu biðum við hinir eftir því hver hans einkunnargjöf yrði. Í október kom hópurinn saman og þá fékk rétturinn hæstu einkunn hjá Hákoni. Það var ánægjulegt að hann gat kvatt okkur á þenn- an hátt. Það sem einkenndi Há- kon öðru fremur var bjartsýni á hverju sem gekk. Hann átti erfitt með gang og varð að notast við göngugrind undir það síðasta. Aldrei kvartaði hann og alltaf var sama viðkvæðið: „Ég segi bara allt gott.“ Hans lífsgleði mættu margir taka sér til fyr- irmyndar. Að leik loknum stöndum við skólasystkinin í mikilli þakkar- skuld við þau Valgerði og Hákon fyrir allar þær ánægjustundir sem við höfum átt sameiginlegar í gegnum árin. Við færum Val- gerði og öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Þórður H. Jónsson. Hákon Sveinn Daníelsson Hann afi minn er dáinn og við þessi tímamót eru margar minn- ingar sem leita á hugann. Þegar ég var í fyrstu bekkjum grunn- skólans þá var bara skóli eftir hádegi og á hverjum morgni fór ég til ömmu á Dyngjó þar sem við áttum okkar stund en svo kom afi í hádeginu, borðaði heit- an mat og hlustaði á fréttirnar og þegar hann fór aftur í vinn- una þá keyrði hann mig heim og ég fór í skólann. Þannig gekk þetta í tvo vetur. Það má því segja að afi hafi átt inni mikið skutl og þó að hann hafi ekki keyrt í seinni tíð þá náði ég aldrei að borga allar ferðirnar til baka. Mér er einnig mjög minnis- stæð ferðin sem var farin hring- inn í kringum landið þegar afi og amma og við fjölskyldan fór- Geir Agnar Zoëga ✝ Geir AgnarZoëga, fram- kvæmdastjóri, fæddist í Reykjavík 8. júní 1919. Hann lést á líknardeild Landspítalans 22. október 2013. Útför Geirs Agn- ars fór fram frá Ás- kirkju 1. nóvember 2013. um saman. Afi var einkar fróður um marga hluti, hann þekkti öll fjöll og sprænur enda hafði hann unnið við vegamælingar þeg- ar hann var yngri og ferðast mikið um landið. Afi var líka mjög minnugur á ættir, enda var það verkefnið hans í nokkur ár eftir að hann hætti að vinna að skrá niðjatal ættarinn- ar. Við systurnar vorum líka svo heppnar á unglingsárunum að fá að fara með ömmu og afa til London og vorum þar í nokkra daga. Afi og amma fóru með okkur í hverja tuskubúðina á fætur annarri en ég man að afa þótti það samt gott ef hann fann stól til þess að tylla sér á því þetta gat tekið svolítinn tíma. Í seinni tíð var það sumarbú- staðurinn sem átti hug hans all- an og þar leið honum afskaplega vel innan um öll trén sem hann hafði fóstrað og svo plantað, borið á og vökvað. Við hjónin erum þakklát fyrir allar þær stundir sem við og börnin okkar áttum með honum. Kristín, Halldór og börn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR ÞÓR JÖRGENSSON viðskiptafræðingur, lést fimmtudaginn 31. október. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 12. nóvember kl. 13.00. Guðni Þór Sigurðsson, Guðlaug Guðjónsdóttir, Sigþrúður Sigurðardóttir, Lárus Ingi Magnússon, Sigrún Ása Guðnadóttir, Arnar Þór Guðnason, Sigurður Þór Ómarsson, Magnús Orri Lárusson, Kristjana Ása Lárusdóttir, Lilja Björg Lárusdóttir, Aaron Gauti Lárusson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL ÞÓRHALLSSON læknir, Laugarnesvegi 89, lést á Landspítalanum í Fossvogi hinn 6. nóvember. Hildigunnur Halldórsdóttir, Hjördís S. Pálsdóttir, Björgúlfur Pétursson, Þorgerður B. Pálsdóttir, Guðmundur K. Marinósson, Bentína U. Pálsdóttir, Kristinn Á. Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.