Morgunblaðið - 11.11.2013, Síða 28

Morgunblaðið - 11.11.2013, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013 Smáauglýsingar Hljóðfæri Þjóðlagagítarpakki: kr. 23.900. Gítar, poki, ól, auka- strengir, stilliflauta og kennslu- forrit. Gítarinn ehf., Stórhöfða 27, s. 552 2125. www.gitarinn.is, gitarinn@gitarinn.is Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga ✝ Þórdís HelgaJónsdóttir Os- terhorn fæddist í Reykjavík 8. maí 1941. Hún andaðist í Sunnuhlíð í Kópa- vogi 1. nóvember 2013. Foreldrar henn- ar voru Jón Gauti Jónatansson, raf- magnsverkfræð- ingur, f. 14. októ- ber 1907 í Sigluvík, Svalbarðsstrandarhr., S.-Þing., d. 20. febrúar 1964 og Guðrún Kristjánsdóttir, f. 4. febrúar 1909 á Suðureyri við Súg- andafjörð, d. 27. október 2001. Þórdís var þriðja í hópi fimm systkina en þau eru Svanhildur Erna, f. 16. júlí 1935, Sigríður Kristjana, f. 30. júlí 1936, d. 30. desember 1998, Jón Gauti, f. 29. desember 1945, d. 4. ágúst 2008, og Guðrún Kristín, f. 27. apríl 1948. Þórdís giftist 21. október 1966 eftirlifandi manni sínum Joachim Osterhorn, f. 13. desember 1936, í Þýskalandi. Börn þeirra eru: 1) Svanhildur Björk, f. 2. janúar 1968, gift Björn Stefan Gilles, f. 17. september 1970, þau eiga þrjú börn, Liv, f. 18. júlí 2000, Thorben, f. 22. desember 2001 og Solvey, f. 7. mars 2006. 2) Kristjana, f. 28. maí 1970, í sambúð með Jan Stefan Meier, f. 26. apríl 1978. Þórdís nam tækniteiknun, lærði förðun og módelstörf í Chicago, vann hjá Rafmagns- veitu ríkisins og kenndi við tískuskóla á sínum yngri árum. Hún var búsett í Berlín frá 1967 til 1996, síðan á Majorka til 2005 en þá fluttust þau hjónin heim til Íslands. Þórdís verður jarðsungin í Fossvogskirkju í dag, 11. nóv- ember 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Við systurnar áttum þægilega og hamingjuríka barnæsku og það var henni mömmu okkar Þórdísi að þakka. Hún bjó okkur dætrunum elskuríkt, yndislegt heimili. Hún reiddist okkur aldrei. Hún gaf okkur svigrúm til að þroskast og við fundum alltaf fyrir því að við vorum elskaðar. Hún studdi okkur í áhugamálum okkar, gaf okkur allan þann tíma sem við þurftum og var alltaf til staðar fyrir okkur. Vinir okkar voru alltaf velkomnir og þeir komu gjarnan í heimsókn því mamma tók á móti þeim með opnu hjarta. Hún var yndisleg og góð og hafði mikla kímnigáfu og hún tók þátt í hvaða fífla- gangi sem okkur datt í hug og gerði óspart grín að sjálfri sér. Við hlógum mikið með mömmu og við dönsuðum mikið og oft um stofuna saman en það var eitt af því skemmtilegasta sem hún gerði. Undir það síð- asta dönsuðum við saman á göngum heimilisins þar sem hún dvaldi og þá sáum við hvernig augu hennar lýstu upp og djúpt í huga hennar vaknaði minning. Hún var mjög stolt af barna- börnum sínum og naut þess að vera með þeim. Því miður var tími þeirra saman ekki langur. Við söknum hennar svo mikið, elsku hennar og kímni og við vit- um að við munum aldrei fá að kynnast svo yndislegri mann- eskju aftur, því hún var einstök. Veikindi hennar tóku mikið frá henni, en allt til enda hélt hún yndislega, hlýja brosinu sínu. Hún miðlaði tilfinningum sínum oft með opnum lófum og undir lokin teygði hún opna lófa til himins, þar sem hún situr núna við sama borð og amma, Systa og Jón Gauti og spilar og hlær með þeim. Svanhildur (Svanny) og Kristjana. Þórdís Helga eða Dúddý eins og við systkinin kölluðum hana lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi föstudag- inn 1. nóvember sl. Andlát systk- ina og ástvina er alltaf sárt og höfum við sem eftir erum fundið það, þar sem yndislega fólkið okkar hefur farið allt of ungt. Dúddý var aðeins 72 ára. Nú var hún búin að eignast barnabörn sem hún hlakkaði til að njóta, því hún hafði alltaf nægan tíma fyrir börn. Var heimavinnandi húsmóðir með sín börn ung og naut þess að geta fylgst með þeim og passað að allt væri eins og það átti að vera. Hún var sér- staklega myndarleg húsmóðir og lagaði góðan mat fyrir fólkið sitt og hélt fínar veislur fyrir gesti sína. Dúddý bjó í Berlín í mörg ár og varð ég þeirrar ánægju að- njótandi að fara til hennar nokkrum sinnum og njóta gest- risni þeirra hjóna og væntum- þykju hennar sem hún sýndi manni í verki og orðum. Síðan flutti hún á suðlægar slóðir og þar naut maður gestrisni hennar og þeirra þónokkuð oft, var allt- af hálfu betri og glaðari þegar heim var komið. Ég fékk þá hug- mynd að vera hjá henni á Maj- orka þegar ég átti 50 ára afmæli og það væsti nú ekki um mig. Hún planaði að mér forspurðri að drengirnir mínir kæmu út á miðnætti afmælisdags míns, mér til mikillar ánægju og gleði. Af- mælisdagurinn var frábær og buðum við Haukur þeim út að borða og áttum við yndislegt kvöld. Þegar matnum lauk var gengið niður í bæinn og farið á bar. Já, takk, þá hafði verið planað að þegar ég kæmi í dyrn- ar á barnum sem við fórum inn á skyldi spilað lag með Bubba Morthens, Það er svo gott að elska. Þetta hafði þeim Jochen dottið í hug og gladdi mig mikið. Allra, allra besti afmælisdagur sem ég hef átt. Svona var hún þessi elska að gleðja aðra og finna út hvernig mætti gera þeim eitthvað gott. Dúddý var góð manneskja sem lét sig varða hvernig fólki leið. Vegna sjúkdómsins var hún raun farin frá okkur fyrir nokkru en samt fannst mér allt- af þegar ég kom til hennar að hún vissi hver ég væri. Jochen, dætrunum, tengdabörnum og barnabörnunum votta ég mína dýpstu samúð og missir þeirra er mikill. Ég sakna þín, elsku systir mín. Hvíl í friði. Kveðja, Guðrún Kristín (Gunna Stína). Hún var ljúf, ljós og létt í spori nýja stelpan sem flutti í hverfið. Þá vorum við báðar tíu ára, fljótar að kynnast og horn- steinn að ævilangri vináttu var lagður. Við gengum í sama skóla, vorum í sama bekk, fermdumst saman, ferðuðumst saman, störfuðum saman sum- arlangt og fengum leyfi foreldra okkar til að leigja saman her- bergi í miðbænum nálægt vinnu- stað – vorum ekki alveg tilbúnar fyrir slíkt sjálfstæði og komumst fljótt að því að það var miklu þægilegra að búa í foreldrahús- um. Hún staldraði ekki lengi við í hverfinu okkar og flutti í Laufás í Kópavogi. Þaðan koma margar af mínum dýrmætustu æsku- minningum. Það var ævintýra- ljómi yfir litla fallega húsinu í hvamminum, umvöfðu trjá- gróðri, landið í kring óbyggt svæði. Það ilmaði í eldhúsinu af nýbakaðri, heimsins bestu jóla- köku sem mátti borða á meðan hún var volg. Í skúrnum var vín- berjakútur sem var upplagt að laumast í og í bókaskápnum var allt fullt af áhugaverðum bókum. Mér var alltaf tekið eins og ég væri ein af skemmtilegu og góðu fjölskyldunni hennar vinkonu minnar. Árin liðu eins og gengur, hún flutti yfir hafið til austurs og ég til vesturs. Þannig bjuggum við hvor í sinni álfunni um langt ára- bil – tölvuöldin ekki gengin í garð og báðar latar við bréfa- skriftir. Þráðurinn slitnaði samt ekki og þegar við hittumst var eins og tími og fjarlægð skiptu ekki máli. Þórdís Helga vinkona mín, ávallt kölluð Dúddý af fjölskyldu og vinum, var orðin veik þegar hún flutti aftur til Íslands. Við náðum þó samt að eiga góðar stundir saman áður en óminn- issjúkdómurinn heltók hana. Á barnaskólaárunum skrifuð- um við í dagbók hvor annarrar: Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa.) Ég kveð góða vinkonu með söknuð í hjarta og þakklæti fyrir að hafa auðgað líf mitt. Lilja Þormar (Lóla). Mín elskulega vinkona, Þór- dís, lést á umönnunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, föstudag- inn 1. nóvember. Hvíld er hinum ferðlúna ávallt kærkomin, en Þórdís mín var orðin vegmóð eftir margra ára baráttu við Alz- heimer-sjúkdóminn. Alltaf var hún jákvæð og róleg, eins og henni einni var lagið. Starfsfólk- ið í Sunnuhlíð var henni afar gott. Kærar þakkir til ykkar allra. Við kynntumst fyrst í Berlín haustið 1967, þegar við Jón hófum þar nám í tannlækn- ingum við Freie Universität. Þórdís kynntist eftirlifandi manni sínum Joakim Osterhorn, hér á Íslandi, en hann vann hér sem tannlæknir í nokkur ár, eft- ir útskrift frá Freie Universität Berlin. Þau fluttu síðan til Berl- ínar vorið 1967, þar sem þau bjuggu sér yndislegt heimili. Þar voru fyrstu jólin haldin, ekki í foreldrahúsum.Við urðum góðar vinkonur á þessum tíma og við leituðum mikið til þeirra í frí- stundum frá náminu. Svanhildur fæddist svo í janúar 1968 og Kristjana 1970. Þær voru gim- steinarnir hennar mömmu sinn- ar og hún var alltaf á jáinu við þær; hjá Þórdísi var það þannig að nei sagði hún nánast aldrei við þær, en þegar neiinu var beitt, þá vissu þær alveg, að ekk- ert þýddi að rökræða meira. Þetta hef ég alltaf sjálf haft að leiðarljósi við uppeldi á börnun- um mínum þremur. Við vorum margir stúdentarnir sem voru í Berlín á þessum yndislega tíma. Alltaf var blaðakvöld einu sinni í viku og síðan partí af og til. Þau voru mjög oft haldin heima hjá Þórdísi og Jochen og höldum við því við, heima hjá Jochen hér á Íslandi. Þórdís og Jochen byggðu sér seinna glæsivillu á Mallorca, þar sem þau nutu lífs- ins þar til Alzheimer-sjúkdóm- urinn fór að gera vart við sig. Elsku besta vinkona, takk fyr- ir allar góðu ráðleggingarnar þínar í gegnum lífið, allar góðu samverustundirnar í Berlín, á Mallorca og hér heima á Íslandi. Helena, Tómas og Sara, börnin mín, hugsa líka til þín. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þín einlæg, Gunilla. Einn af kostunum við að til- heyra örþjóð út í ballarhafi er samheldnin og samhjálpin sem smæðinni fylgir. Það var og raunin þegar við, þá nýbakaðir stúdentar, komum til Vestur- Berlínar haustið 1970. Borgin var í raun einangruð eyja inni í miðju Austur- Þýskalandi og það var ekkert einfalt við Vestur- Berlín, hvorki að komast þangað eða búa þar. Þar urðum við fljót- lega hluti af litlu íslensku ný- lendunni. Flestir voru náms- menn og svo voru það Þórdís og Jochen. Jochen hafði starfað á Íslandi sem tannlæknir um tíma þegar Þórdís einn góðan veðurdag gekk inn á tannlæknastofuna og settist í stólinn hjá honum.Við grínuðumst stundum með það hvort Jochen hefði nú örugglega borað í rétta tönn í það skiptið. En það var ekki að sökum að spyrja, þegar Jochen fór frá Ís- landi tók hann brúði sína með sér. Mér er minnisstætt þegar ég hitti Þórdísi í fyrsta sinn á blaðakvöldi á stammknæpu Ís- lendinga í V-Berlín. Hún renndi í hlað á glæsilegum Porsche. En það var ekki Porschinn sem vakti athygli mína heldur Þórdís fallega, glæsilega Þórdís með sín dökku augu og hlýja viðmót. Þórdís hafði ekki verið í Berl- ín nema nokkur ár þegar hér var komið sögu en hún og Jochen voru þá þegar orðin fastur punktur í Íslendinganýlendunni. Þar mynduðust vinatengsl, sem haldist hafa æ síðan. Þórdís og Jochen höfðu nokkra sérstöðu í hópnum þar sem allir hinir voru blankir námsmenn. Sambandið við landa sína skipti Þórdísi miklu og reyndar Jochen líka. Hann hafði tekið ástfóstri við land og þjóð og sína nýju íslensku tengdafjöl- skyldu. Við vissum öll að í þeim áttum við nokkurs konar bakland. Heimili þeirra stóð okkur alltaf opið og margar af bestu minn- ingunum frá Berlínarárum þessa hóps eru án efa tengdar sam- verustundum þar, hvort sem það voru barnaafmæli eða dúndur- partí. Ég velti því stundum fyrir mér að það hefur ekki verið auð- velt fyrir Þórdísi að kveðja heimahagana og fjölskyldu sína til að setjast að í umhverfi sem þrátt fyrir góð lífsskilyrði var henni framandi og að auki takast á við nýtt tungumál. Það fór nefnilega ekki fram hjá neinum að það var stutt í heimþrána hjá Þórdísi og hversu hún saknaði fjölskyldu sinnar. Á vissan hátt urðum við vinirnir og samlandarnir önnur fjölskylda fyrir hana eins og hún fyrir okk- ur. Og það var gott og gefandi að eiga Þórdísi að. Hún var ekki bara falleg og höfðingleg, hún var fyrst og fremst góð og hlý og vildi öllum vel. Ég held að ég hafi aldrei heyrt hana segja hnjóðsyrði um nokkurn mann. En tengslin við átthagana rofnuðu aldrei. Fjölskyldan kom reglulega heim til Íslands. Þau nutu þess að ferðast um landið, ekki síst Jochen. Eftir að Berlínardvölinni lauk leið oft langt á milli funda en það skipti ekki máli, þeir voru bara ánægjulegri. Svo fór að lokum að þau flutt- ust búferlum til Íslands og þá varð styttra á milli funda. En þá hafði sjúkdómurinn þegar slegið klónum í Þórdísi og nú er hún fallin frá. Ég þakka henni samfylgdina og góðar minningar. Jochen, dætrunum Svanhildi og Krist- jönu og fjölskyldum votta ég mína dýpstu samúð. Unnur Úlfarsdóttir. Þórdís Helga Jóns- dóttir Osterhorn Viggó E. Maack ákvað snemma að gerast skipa- verkfræðingur. Í viðtali í bókinni Milli sterkra stafna, sem Jónína Michaelsdóttir skrifaði, og var gefin út 1993, sagði Viggó: „Ég ætlaði mér alltaf að búa til skip. Fyrst var ég að hugsa um að verða skipasmiður og ákvað svo að verða skipaverkfræðingur. Faðir minn var togaraskipstjóri og kom aldrei svo í höfn að við bræðurnir færum ekki um borð og værum að vasast um í skip- Viggó Einar Maack ✝ Viggó EinarMaack skipa- verkfræðingur fæddist í Reykjavík 4. apríl 1922. Hann lést í Reykjavík 20. október 2013. Útför Viggós fór fram frá Dómkirkj- unni 1. nóvember 2013. unum. Leikvangur okkar var höfnin og heimurinn var skip.“ Hann hóf fyrri- hlutanám í verk- fræði 1942, lauk því 1944 og hélt til náms í MIT, einum þekktasta tæknihá- skóla Bandaríkj- anna. Hann lauk mastersnámi í skipaverkfræði, kom heim síð- sumars og var ráðinn skipaverk- fræðingur hjá Eimskip í ágúst 1947. Það var í fyrsta skipti, sem ráðið var í slíka stöðu hjá fyr- irtækinu. Unnið hafði verið að því að endurnýja og auka skipaflotann að lokinni heimsstyrjöld og við þyt lýðveldis. Gerður hafði verið samningur um smíði fjögurra skipa í Danmörku, og verkefnið komið í gang. Um var að ræða svonefnda þríbura, Goðafoss, Dettifoss og Lagarfoss og far- þegaskipið Gullfoss, sem kom 1950. Ungi skipaverkfræðingur- inn hafði því nóg verkefni á höndum sér, sem úr leystist. Verkefni Viggó Maack hjá Eimskip var að sjá um nýsmíði, viðhald og viðgerðir og að mætt væri reglum flokkunarfélaga. Hann fylgdist með nýjungum alls konar, þar með talin flutn- ingatækni. Ekki fór þó á milli mála, að hugstæðustu verkefnin, sem hann fékkst við, var hönnun nýrra skipa og að sjá þau verða til. Um það segir fyrrnefnd heim- ild. „Mér finnst ekkert eins stór- kostlegt og að taka þátt í að skapa eitthvað. Byggja upp. Ég teiknaði og fylgdist með smíði skipa Eimskipafélagsins um ára- bil og það var dýrlegur tími. Þeg- ar maður var búinn að sitja við skólaborðið og teikna skrokka á skipum og sér svo þessa skrokka verða til og renna í sjóinn, það er engu líkt.“ Eimskip lét smíða 9 skip eftir teikningum Viggós á árunum 1953 til 1971. Hann sinnti einnig öðrum verkum, þar sem verkfræðiþekking hans og reynsla kom að góðum notum. Þannig hafði hann forystu um byggingu nýrra vörugeymslu- húsa í Gömlu höfninni í Reykja- vík, og síðar vöruhús í Sunda- höfn, þegar hún kom til sögunnar. Starf skipaverkfræðings Eim- skips varð ævistarf hans. Lætur nærri, að hann hafi haft afskipti af eða umsjón með rúmlega átta- tíu skipum á ferli sínum. Hann var vinsæll af sam- starfsmönnum sínum, hrókur alls fagnaðar í gleðskap, og gerði mönnum gjarnan greiða, ef hann átti kost á því. Hann var þekktur borgari í Reykjavík og tók þátt í margs- konar félagsstörfum. Ég hitti hann fyrst, þegar ég var kynntur fyrir honum, og hvar annars staðar en í anddyri Atlantic Hot- el í Hamborg, líklega 1976. Við vorum samstarfsmenn í Eimskip frá 1979. Það samstarf gekk vel. Að leiðarlokum leyfi ég mér að þakka fyrir samstarfið og störf hans hjá félaginu. Ég sendi eig- inkonu hans, Ástu Þorsteinsdótt- ur Maack, og fjölskyldunni allri einlægar samúðarkveðjur. Bless- uð sé minning hans. Hörður Sigurgestsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.