Morgunblaðið - 11.11.2013, Page 30

Morgunblaðið - 11.11.2013, Page 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013 Vörubílar eru ær og kýr Kristins Helga Gunnarssonar, sem er 65 ára í dag. Hann er bifvélavirki og hefur starfað sem slíkur í áratugi. Nam hjá Olíufélaginu og starfaði seinna á bílaverkstæði Véladeildar Sambandsins. „Ég var snemma settur í viðgerðir á stóru bílnum sem SÍS flutti inn, til dæmis Bedford og GMC. Það markaði brautina. Ár- ið 1984 hóf ég eigin rekstur og hef í tímans rás helst sinnt vörubíl- unum. Búvélarnar hafa svo verið aukageta,“ segir afmælisbarnið sem rekur KHG-þjónustuna við Eirhöfða í Reykjavík. Í tilefni dagsins hefur Kristinn Helgi með fjölskyldu sinni boðið sjö systkinum sínum í kvöldheimsókn og mun hópurinn telja alls um 30 manns. „Dagurinn byrjar þó, eins og aðrir, að á verkstæðið til mín mæta nokkrir karlar í kaffi og tölum um fótbolta, pólitík og allt þar á milli. Nokkrir okkar eru harðir stuðningmenn Manchester United og við stefnum á að fara til Englands eftir áramótin og sjá góðan leik. Almennt eru ferðalög eitt helsta áhugamál okkar hjónanna og við höfum farið í margar skemmtilegar ferðir á síðustu árum, meðal annars til Rússlands, Víetnams, Kambódíu og erum ný- komin úr mjög áhugaverðri ferð til Suður-Afríku,“ segir Kristinn Helgi sem er kvæntur Sigrúnu Guðrúnu Ragnarsdóttir. Þau eiga samtals fimm börn. Þar er talinn með með sonurinn Ragnar, sem vinnur á verkstæðinu með karli föður sínum. sbs@mbl.is Kristinn Helgi Gunnarsson er 65 ára í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ferðalangar Kristinn Helgi Gunnarsson og Sigrún Guðlaug Ragn- arsdóttir með melónudrykk í siglingu á Mekong-fljóti í Víetnam. Hálfsjötugur í Sambandsbílunum Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Finnur Atli fæddist 22. febrúar kl. 11.15. Hann vó 3.838 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Ágústa Dóra Þórðardóttir og Helgi Hákonarson. Nýir borgarar Kópavogur Bjarki Rúnar fæddist 19. febrúar kl. 0.45. Hann vó 3.928 g og var 55 cm langur. Foreldrar hans eru Magðalena Ósk Guðmundsdóttir og Guðmundur Bjarki Ingvarsson. K atrín Gísladóttir fædd- ist í Grundarfirði 11. nóvember 1963 og ólst þar upp. Hún gekk í Grunnskóla Grund- arfjarðar og síðar í Reykholt í einn vetur. Katrín hefur lokið ýmsum námskeiðum, þar á meðal Máttur kvenna á Bifröst. „Fyrstu störf mín voru við fisk- vinnslu í Hraðfrystihúsi Grundar- fjarðar og síðan í mötuneyti Hrað- frystihússins og lærði ég þar að skræla kartöflur og fleira. Ég fór svo yfir í Sæfang og sá um mötu- neytið þar, 17 ára gömul.“ Katrín starfaði sem flugvalla- vörður á Rifi í 15 ár, frá 1989 til 2004, og var þá einnig slökkviliðs- kona hjá Slökkviliði Hellissands. Katrín starfaði einnig sem gjaldkeri í Landsbanka Íslands á Hellissandi í nokkur ár. Katrín Gísladóttir, hannyrðakona og búðareigandi – 50 ára Reykjavíkurmaraþonið 2012 Katrín, Lilja Hrund, Jóhann og Friðþjófur eftir 10 km hlaup. Saumar og stundar hjólreiðar af kappi Brellurnar Snæfellshringurinn tekinn, Brellurnar að leggja upp frá Rifi. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is PI PA R\ TB W A • SÍ A • 12 18 16 www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind LÁTTU FAGMENN META GULLIÐ Sérstaða okkar hjá Jóni og Óskari er sú að við höfum keypt og selt gull í 41 ár og búum því yfir mikilli þekkingu, reynslu og fagmennsku á þessu sviði. Við kaupum til endurvinnslu allar tegundir af gullskartgripum, gamla og nýja, gullúr, tanngull, gullpeninga, hvers kyns silfur og demanta í betri skartgripagæðum. Við bjóðum gott og alþjóðlega samkeppnishæft verð fyrir gripina og fram- leiðum úr öllu gulli sem við kaupum. Þannig spörum við gjaldeyri. Komdu til okkar á Laugaveg 61 og leyfðu okkur að veita þér faglega ráðgjöf sem tryggir að þú færð rétta greiningu á þínum verðmætum. Það skiptir mestu máli. Við staðgreiðum allt gull en áskiljum okkur rétt til að biðja um persónuskilríki. Aðeins í verslun okkar að Laugavegi 61, virka daga milli kl. 10–18. Góð séraðstaða þar sem gull er metið í ró og næði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.