Morgunblaðið - 11.11.2013, Qupperneq 31
Er í eigin rekstri
„Ég stofnaði með eiginmanni
mínu útgerðarfyrirtæki árið 1993.
Við gerum út einn bát í dag og ég hef
séð um öll laun og bókhaldsvinnu frá
upphafi. Ég rek litla búð í dag í Rifi,
Rifssaum, sem selur garn og fylgi-
hluti og ég býð upp á ísaumsmerk-
ingar í t.d. handklæði, rúmföt og
fatnað.
Af félagsstörfum má nefna að ég
var í Lionsklúbbnum Þernunni en
hætti þar fyrir nokkrum árum og
svo er ég slysavarnakona.“
Er með heklæði
„Ég var á kafi í bútasaumi í nokk-
ur ár og fór á mörg námskeið hjá
Virku, Bót og Quilt-búðinni. Ég hef
prjónað mikið, alveg frá því að ég
var 12 ára og í dag er ég með hekl-
æði. Ég fór árið 2008 til Danmerkur
í Skals – højskolen for design og
håndarbejde á útsaumsnámskeið.
Ég hef æft og keppt í blaki í 18 ár
eða síðan 1995 og farið nánast á
hverju ári á Íslandsmót öldunga í
blaki. Ég hef mjög gaman af því að
ferðast um landið okkar og ganga á
fjöll og fyrir um þremur árum fór ég
að hlaupa á sumrin og hef hlaupið
víða um Ísland og erlendis líka.
Nýjasta æðið hjá mér er hjólreið-
ar. Ég kynntist Brellunum í fyrra
þegar ég hjólaði með þeim Snæfells-
neshringinn – Stykkis-
hólmur-Rif-Garðar-Stykkishólmur.
Brellurnar eru hópur hjólakvenna
sem flestar koma frá Patreksfirði. Í
október fórum við sjö Brellur í 12
daga hjólaferð um norðurhluta eyj-
arinnar Sardiníu. Það var frábær
ferð þótt það hefði sprungið ellefu
eða tólf sinnum hjá okkur á tveim
dögum. Hægt er að lesa ferðasöguna
inni á Facebook – Brellurnar.“
Fjölskylda
Eiginmaður Katrínar er Jóhann
Rúnar Kristinsson, f. 11.10. 1957,
skipstjóri og útgerðarmaður. For-
eldrar hans eru Kristinn Haralds-
son, f. 15.03. 1925, d. 15.01. 1987,
vörubílstjóri í Rifi, og Ester Úranía
Friðþjófsdóttir, f. 11.10. 1933, hús-
freyja og póstberi í Rifi. Búsett í
Reykjavík.
Börn: 1) Arnar Laxdal, f. 10.5.
1981, skipstjóri í Ólafsvík. Maki:
Bryndís Ásta Ágústdóttir, skrif-
stofumaður og nemi. Börn þeirra
eru Jóhann Ágúst, f. 2.12. 2005, og
Evíta Eik, f. 8.6.2010. 2) Ester
Soffía, f. 29.7. 1982, matráður í
Reykjavík. Synir hennar eru Dagur
Máni, f. 16.2. 2003, og Rúnar Ernir,
f. 22.1. 2005. 3) Friðþjófur Orri, f.
20.6. 1987, skipstjóri í Rifi. Maki:
Rakel Magnúsdóttir, leikskólaleið-
beinandi og hársnyrtir. Dóttir þeirra
er Inga Dís, f. 7.8. 2011. 4) Lilja
Hrund, f. 1.10. 1994, aðstoðarkokkur
og nemi í Rifi.
Systkini Katrínar eru Agnes Ein-
arsdóttir, f. 3.3. 1950, bús. í Dan-
mörk; Kristín Gísladóttir, f. 25.09.
1952, bankastarfsmaður á Höfn í
Hornafirði; Sturlaugur Laxdal, f.
25.6. 1954, skipstjóri á Akranesi;
Guðrún Gísladóttir, f. 10.11. 1957,
sjávarafurðaframleiðandi í Rifi; Haf-
dís Gísladóttir, f. 29.1. 1959, vinnur
við umönnun í Reykhólahreppi.
Foreldrar Katrínar eru Gísli
Kristjánsson, f. 21.1. 1928, fyrrver-
andi skipstjóri, og Lilja Finnboga-
dóttir, f. 5.5. 1930, fyrrverandi mat-
ráður. Þau eru búsett í Grundarfirði.
Úr frændgarði Katrínar Gísladóttur
Katrín
Gísladóttir
Helga Jóhanna Jóhannesdóttir
húsfr. á Borgarfirði eystra
Sveinn „skotta“ Gunnarsson
póstur á Borgarfirði eystra
Kapitóla Sveinsdóttir
húsfr. og verkakona á Seyðisfirði
Finnbogi Dalmann Laxdal Sigurðsson
skipstjóri á Seyðisfirði
Lilja Finnbogadóttir
matráður í Grundarfirði
Guðrún Lilja Finnbogadóttir
húsfr. og hannyrðakona í
Berlín á Seyðisfirði
Sigurður Eiríksson
útgerðarmaður í Berlín á Seyðisfirði
Jósefína Jósefsdóttir
húsfreyja í Innri-Tröð
Gísli í Tröð Jónsson
útvegsbóndi í Innri-Tröð
í Eyrarsveit
Kristín Gísladóttir
húsfr. í Móabúð í Eyrarsveit
Kristján Jónsson
útvegsbóndi í Móabúð í Eyrarsveit
Gísli Kristjánsson
skipstjóri í Grundarfirði
Guðrún Líndal Hallgrímsdóttir
húsfreyja í Móabúð
Jón Jónson
útvegsbóndi í Móabúð í Eyrarsveit
Katrín Afmælisbarnið og Gói.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013
Matthías Jochumsson, prestur og
skáld, fæddist á Skógum í Þorska-
firði, A-Barð. Foreldrar hans voru
Jochum Magnússon, bóndi á Skóg-
um, og k.h. Þóra Einarsdóttir í Skál-
eyjum Ólafssonar.
Matthías fór út í Flatey sextán ára
gamall þar sem hann var við versl-
unarstörf og fór til Kaupmannahafn-
ar veturinn 1856-57 í verslunarnám.
Hann gekk síðan í Latínuskólann
1859, varð stúdent 1863 og lauk
prestsnámi 1865.
Matthías fékk Kjalarnesþing,
1866, síðan Hjaltabakka 1870 og var
prestur þar til 1873 þegar hann fékk
lausn frá prestskap. Hann hafði orð-
ið fyrir miklum áföllum í einkalífi
sínu. Hann hafði kvænst tvisvar en
fyrri kona hans lést eftir tvö ár í bú-
skap en sú seinni lést eftir tæpt eitt
ár í hjónabandi.
Matthías ferðaðist til Evrópu,
m.a. til Bretlands þar sem hann
samdi Lofsöng, sem varð síðan þjóð-
söngur Íslendinga, veturinn 1873-74.
Hann varð ritstjóri Þjóðólfs 1874-
1880. Matthías varð síðan prestur í
Odda í sex ár, sótti þá um Akureyr-
arbrauð og var prestur á Akureyri
þar til undir aldamótin þegar hann
fékk skáldalaun frá Alþingi. Matt-
hías varð heiðursdoktor í guðfræði í
Háskóla Íslands 1920 og heiðurs-
borgari Akureyrarbæjar sama ár.
Ljóðmæli Matthíasar voru fyrst
gefin út 1884, og eftir hann liggja
mörg ritverk og kvæði. Hann fékkst
við leikritun og naut skólaverk hans
um Skugga-Svein mikilla vinsælda
en það kom út 1864. Af öðrum leik-
ritum má nefna Helga magra og Jón
Arason. Hann gaf út ferðabækur,
m.a. Chicagóför mín, Frá Danmörku
og Ferð um fornar slóðir. Matthías
var einnig mikilvirkur þýðandi; hann
þýddi nokkur leikverka Williams
Shakespeares, og verk eftir Byron
lávarð og Henrik Ibsen. Hann gaf út
endurminningar sínar, Sögukaflar af
sjálfum mér.
Þriðja kona Matthíasar var
Guðrún Runólfsdóttir, en hún lifði
Matthías, f. 7.6. 1851, d. 6.11. 1923.
Þau áttu ellefu börn.
Matthías lést 18.11. 1920.
Merkir Íslendingar
Matthías
Jochumsson
85 ára
Anna Lísa E. Sandholt
Elí Auðunsson
Halla Bergþórsdóttir
Hjörtur Ármann Eiríksson
Ólafur Ólafsson
Þorkell Gunnarsson
80 ára
Ásgeir Sigurðsson
Emilía Sigurbjörg Emils-
dóttir
Hanna Ingvarsdóttir
Jóhanna Þorkelsdóttir
Margrét J. Þorsteinsdóttir
Sveinn Sigmarsson
Þorkell Elías Kristinsson
Þórarinn Ingimundarson
75 ára
Ásta Kristín Sigurbjörns-
dóttir
Fríða Sigurveig Trausta-
dóttir
Guðni Runólfsson
70 ára
Þórarinn Sveinsson
Þrúður S. Ingvarsdóttir
60 ára
Aðalgeir M. Jónasson
Bjarni Ómar Guðmundsson
Kristinn G. Guðmundsson
Lúðvík Júlíus Jónsson
Ragnheiður K. Sigurð-
ardóttir
Þorbjörn Stefánsson
Þorsteinn Barðason
50 ára
Elín Björk Einarsdóttir
Garðar Hallur Sigurðsson
Helga Daníelsdóttir
Helga Steinarsdóttir
Helgi Guðmundsson
Hermann Hinriksson
Jóhannes Hauksson
Katrín Gísladóttir
Pétur Björnsson
Sigríður Helga Sveinsdóttir
Sigurlaug Kristín Sævars-
dóttir
Sigurlaug Ólafsdóttir
Sýta Rúna Haraldsdóttir
Vagn Jóhannes Jónsson
Þóra Ingimarsdóttir
Þórhallur Gunnarsson
40 ára
Fjóla Ragnarsdóttir
Guðrún Ingibjörg Karls-
dóttir
Halldór Antonsson
Ketill Már Júlíusson
Kristín Margrét Ingólfs-
dóttir
Magnús Fjeldsted
Oddný Marie Guðmunds-
dóttir
Ólöf Engilbertsdóttir
30 ára
Davíð Eldur Baldursson
Guðrún Helga Guðmunds-
dóttir
Hlynur Arnarson
Hulda Margrét Óladóttir
Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
Jóhannes Gunnar Guð-
mundsson
Jóna Björg Árnadóttir
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir
Kristófer Karlsson
Lóa Sigríður Ólafsdóttir
Lórý Benjamínsdóttir
Matthildur Sveinsdóttir
Milica Milovanovic
Róbert Þór Guðmundsson
Úlfur Sveinbjarnarson
Þórey Guðmundsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Ketill er frá Bol-
ungarvík en býr í Reykja-
vík og er tæknimaður hjá
Nýherja.
Maki: Elín Birgitta Birg-
isdóttir, f. 1976, hjúkr-
unarfræðingur.
Börn: Róbert Örn, f.
2001, Karen Erla, f. 2005,
og Katrín Sara, f. 2012.
Foreldrar: Júlíus H. Krist-
jánsson, f. 1954, kjötiðn-
aðarmaður, og Anna
Torfadóttir, f. 1953,
heimavinnandi.
Ketill Már
Júlíusson
40 ára Magnús er frá
Ferjukoti í Borgarfirði en
býr í Borgarnesi og er
fjármálaráðgjafi fyrir-
tækja hjá Arion banka.
Maki: Margrét Ástrós
Helgadóttir, f. 1973,
heilsunuddari.
Börn: Heba Rós, f. 2000,
Óliver Kristján, f. 2001, og
María Sól. f. 2009.
Foreldrar: Þorkell Fjeld-
sted, f. 1947, og Heba
Magnúsdóttir, f. 1951,
bændur í Ferjukoti.
Magnús
Fjeldsted
30 ára Kolbrún Ýr er frá
Akranesi en býr í Reykja-
vík og er þjónustufulltrúi
hjá Landsbankanum.
Maki: Garðar Sigfússon,
f. 1982, bílasali hjá Net-
bílum.
Synir: Kristján Helgi, f.
2009, og Sigfús, f. 2013.
Foreldrar: Kristján
Hannibalsson, f. 1955,
múrarameistari, og Ing-
unn Ríkharðsdóttir, f.
1955, leikskólastjóri á
Garðaseli á Akranesi.
Kolbrún Ýr
Kristjánsdóttir