Morgunblaðið - 11.11.2013, Side 32

Morgunblaðið - 11.11.2013, Side 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft að treysta á hugboð þitt þegar þú stendur frammi fyrir viðkvæmu og vandasömu máli. Hik við að skuldbinda sig í tilteknum aðstæðum er ákveðin vísbending. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú munt njóta þess að fara í stutta ferð í dag. Sýndu sjálfstæði, styrk og þolinmæði. Njóttu þess sem lífið hefur upp á að bjóða og einhvers sem gefur sanna lífsfyllingu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það má alveg gleðja sjálfan sig með óvæntum uppátækjum við og við. Gefðu þér tíma til að sinna sjálfum þér. Njóttu árangurs- ins en mundu að ný verkefni bíða. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Mjög heppilegur dagur til að eiga við yfirvald og yfirboðara því þeir eru opnir fyrir hugmyndum þínum og tillögum í dag. Athug- aðu að hlutirnir virðast flóknir fyrir alla aðila. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft ekki að gera ráð fyrir öllum í áætlunum þínum. Einvera getur vissulega verið gefandi, en ef einhver fjölskyldu- meðlimur gerist boðflenna í einsmanns boð- inu þínu, fyrirgefðu honum þá. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Hlutirnir ganga oft betur og hraðar fyrir sig ef þú reynir að verja þig fyrir um- hverfinu. Hver sem er getur sameinað fólk ef tilgangurinn er mikilvægur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér bjóðast nýjar og spennandi leiðir til frama og fjáröflunar. Vertu óhræddur og hrintu lausninni bara í framkvæmd sem fyrst. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Farðu varlega þegar þú átt í höggi við mann sem veit meira en þú um til- tekið efni. Leitaðu leiða til að auka þroska þinn og víðsýni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Temdu þér yfirvegaða framkomu og umfram allt láttu ekki aðra segja þér hvað þú átt að hugsa. Láttu ekki draga þig út í eitt- hvað sem þú kærir þig ekkert um. 22. des. - 19. janúar Steingeit Búðu þig undir að hitta nýtt og óvenjulegt fólk í dag. Með því að sjá það góða í öðrum, nærðu því besta út úr þeim. Þú munt eiga áhugaverðar samræður í dag. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þig langar að deila hugmyndum þínum með einhverjum. Að verða reiður eða gramur er ekki endilega neikvætt, svo lengi sem tilfinningunum er beint í rétta átt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Fjölskylduframtak færir heppni, ef þú heldur þínu striki. Til er fólk sem alltaf hefur skoðanir sem sjaldnast koma þér að gagni á þinni vegferð. Lausavísan grípur á þeim málum, sem efst eru á baugi hverju sinni. Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir: Saklausari en sólgul blóm er sumarlangt þér veita yndi, hópast nú í héraðsdóm hákarlar með silkibindi. Jólavertíðin er að hefjast. Erling- ur Sigtryggsson yrkir: Mörg kemur bókin út í ár, um það rituð að vonum hve Ólafur Grímsson er góður og klár og gaman að vinna með honum. Ólafur Ragnar var vinsælt yrk- isefni, meðan hann naut sín á Al- þingi. Í „Þá hló þingheimur“ skrif- ar Árni Johnsen þessa örsögu: „Einhverju sinni var það að Ólafur Ragnar Grímsson sté í ræðustól á Alþingi og um leið hófst háreysti og lófaklapp í salnum. Ólafur stóð stutt við í pontu, en það sem hann sagði varð til þess að magna enn hávaðann og lófatakið. Hermann Jóhannesson orti: Inn gengur Ólafur Ragnar. Það er undur, hvað þingheimur fagnar með lófataksdunum og dæsum og stunum, þegar hann kveður og þagnar.“ Nafnið „Ólafur Ragnar“ fellur sérstaklega vel að bragarhættinum stuðlafalli, sbr. „Ólafur Ragnar ekki þagnað getur“ eða „Ólafur Ragnar ekki gagnast lengur“ og er nær allt af þvílíkum skáldskap mér gleymt og gjörir ekki til eins og þessi vísa ber með sér: Ólafur Ragnar ekki sagna bestur pírir hann augum á mig þá eins og draugur til að sjá. Stúlkan Anna hefur orðið mörg- um yrkisefni. Hallmundur Krist- insson yrkir á Leirnum: Aumingja, veslings Anna ekki fékk leik með Danna. Nálæg var neyð. Nóttin svo leið með gráti og gnístran tanna. Um kvöldið kom í ljós, að Fía kannaðist við stúlkuna líka: Full af söknuði sárum sat hún í flóandi tárum og hugsaði um þá sem hún hefði átt að ná fyrir tæplega 20 árum. Í gömlum húsgangi segir: Það er vandi að velja mann vænni handa tróðu. Óláns fjandi ef ekki hann er í standi góðu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahornið Hákarlar, pólitíkusar og bækur Í klípu „JÁ, VIÐ ERUM GRÆNT FYRIRTÆKI - RÁÐUM BARA FÓLK SEM GENGUR FYRIR ENDURNÝJANLEGRI ORKU Á SJÁLFBÆRAN HÁTT.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „VILTU VERA SVO VÆN AÐ TYGGJA MEÐ LOKAÐAN MUNNINN?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að reynast það erfitt að sleppa takinu. KRAKKI SPURÐI MIG AÐ ÞVÍ Í DAG ... ... HVORT ÉG VÆRI GAMALL! ÉG BATT SKÓREIMARNAR HANS SAMAN. ÞÚ ÁTT ENN EFTIR NOKKUR GÓÐ ÁR. ÞETTA ER FYRSTA HEIM- SÓKN MÍN TIL FRAKKLANDS. HVERNIG ER FÓLKIÐ HÉR? FRAKKAR ERU VINA- LEG OG ELSKULEG ÞJÓÐ ... ... EN ÞEIR ERU EKKERT YFIR SIG HRIFNIR AF ÓKUNNUGUM. Víkverji er einn hinna fjölmörguÍslendinga sem haldnir eru lita- fælni, en það er sá krankleiki, eða meinloka, sem verður til þess að fata- skápar fyllast nær eingöngu af svört- um eða dökkum fatnaði. Víkverji hefur reyndar tekið sér meðvitað tak undanfarin misseri, og þá sjaldan að keyptar eru skrokk- tuskur er allra leiða leitað til að fjölga björtum og skemmtilegum lit- um í fataskápnum. Þetta kann að virðast hégómleg og kjánaleg barátta, en þrátt fyrir að Víkverji muni aldrei teljast meðvit- aður um tískustrauma telur hann í það minnsta þrjár góðar ástæður fyr- ir því að Íslendingar eigi að hætta að kaupa svört föt, eða í það minnsta að minnka hlutfall þeirra. x x x Ástæða 1: Það er staðreynd aðbjartir litir hafa góð áhrif á sál- ina. Ef hún á ekki að renna saman við skammdegið er því skynsamlegt að lífga aðeins upp á umhverfið, og sjálf- an sig, með litum sem gleðja augað. x x x Ástæða 2: Þar sem Íslendingarvirðast engan veginn átta sig á hvernig endurskinsmerki virka, eða hversu mikilvæg þau eru, er oft erfitt að sjá gangandi vegfarendur á leið til vinnu eða skóla. Þegar Víkverji ekur til vinnu fer hann framhjá tveimur skólum. Í haust hefur hann nokkrum sinnum snarhemlað þegar svartklæddar ver- ur stíga allt í einu út úr myrkrinu og á gangbraut. Sérstaklega finnst Víkverja sorg- legt að sjá börn á grunnskólaaldri ferðast svartklædd, frá toppi til táar, án þess að neins staðar glitri á end- urskin. Rétt er að benda foreldrum á þessa heiðarlegu yfirsjón. x x x Ástæða 3: Íslendingar sækja í sí-auknum mæli til fjalla, sér til gamans og heilsubótar, en svörtum útivistarfötum virðist gert hærra undir höfði í verslunum en öðrum þrátt fyrir augljóst öryggisgildi þess að klæðast fatnaði í björtum litum. Það á reyndar bæði við á fjöllum og á Laugaveginum á Þorláksmessu. víkverji@mbl.is Víkverji Ef einhver er í Kristi er hann orðinn nýr maður, hið liðna varð að engu, nýtt er orðið til. (Síðara Korintubréf 5:17) Einrúm Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00 Sófi úr hljóðísogsefni sem býr til hljóðskjól í miðjum skarkala opinna skrifstofurýma, auk þess að bæta hljóðvist rýmisins Sturla Már Jónsson Húsgagna- og innanhússarkitekt hannaði Einrúm

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.