Morgunblaðið - 11.11.2013, Síða 34

Morgunblaðið - 11.11.2013, Síða 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013 VIÐTAL Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráð- herra og formaður Framsóknar- flokksins, hefur sent frá sér bókina Guðni - Léttur í lund, og fagnar út- komu hennar á morgun, þriðjudag- inn 12. nóvember, með útgáfuteiti í Hannesarholti í Reykjavík sem hefst klukkan 17. Í þessari nýju bók segir Guðni sögur af fólki sem hann hefur mætt á lífsleiðinni. „Þetta eru sígildar sögur, bæði nýjar og gamlar, sumar hef ég flutt á ýmsum samkomum og þær hafa alltaf fallið í jafn góðan farveg,“ seg- ir Guðni. „Ég er að halda utan um minningar um skemmtilega sam- ferðamenn sem mér þykir vænt um og ég vona að enginn reiðist eða móðgist. Þarna eru sögur og skemmtilegar vísur, ekki síst eftir samferðamenn mína á þingi sem settu svip á Alþingi. Svo eru líka í bókinni sögur sem ýmsir vinir segja af samskiptum við mig. Ég skrifaði þessa bók á rigningasumri og þá var auðvelt að sitja inni og skrifa. Bókin á erindi við bæði unga og aldna og ég hlakka til að ferðast um og lesa upp úr henni. Þegar við Sig- mundur Ernir gáfum út ævisögu mína ferðuðumst við um landið og ég las upp úr henni og áritaði. Það var ákaflega skemmtilegt. Nú þegar hef ég fengið góð viðbrögð við þess- ari nýju bók. Ég er að lesa bókina inn á hljóðbók með minni sérstæðu rödd. Svonefndar Guðnasögur, inn- sendar sögur sem fjalla um mig og samskipti annarra við mig, les ég hins vegar ekki sjálfur því mér fannst það ekki passa. Þannig að ég fékk vin minn, Pál Magnússon út- varpsstjóra, til að lesa þær. Það er gott að fá þá fallegu rödd inn á hljóðbókina.“ Heldurðu að þú eigir eftir að skrifa fleiri bækur? „Það vona ég. Ég er með nóg af hugmyndum og það væri gaman að skrifa skáldsögu. Við sjáum bara til. Ég les mikið af skáldsögum og það væri gaman að spreyta sig á því að skrifa eins og eina.“ Held að ég hafi bjargað flokkn- um Saknarðu þess stundum að vera ekki lengur í pólitík? „Ég held að það sé vakað yfir mér. Á örlagastundu hætti ég, ekki bara sem formaður Framsókn- arflokksins heldur lét einnig af þingmennskunni og krafði gras- rótina um að velja sér nýjan for- ystumann. Sigurmundur Davíð Gunnlaugsson var valinn, kom nán- ast óþekktur maður inn í pólitík, og er nú forsætisráðherra og á alla möguleika, ef hann vill, að beita oddinum fast og bjarga landinu og þessari þjóð. Ég get sagt þér alveg eins og er að ég hef ekki eitt einasta augnablik séð eftir þeirri ákvörðun minni að hætta í pólitík. Hún kom eins og elding ofan í hausinn á mér eftir átakafund. Ég var umdeildur stjórn- málamaður, ekki síst í mínum flokki og þar voru viðvarandi átök ríkjandi um stefnu og Evrópumálin. Fram- sóknarflokkurinn hafði þróast þann- ig þá að hann hafði fjarlægst sína grundvallarstefnu og var töluvert umbreyttur flokkur, en hefur nú rétt kúrsinn af á ný. Ég held að ég hafi bjargað flokknum og kallað fram nýja for- ystu sem var mikilvægt eftir hrunið. Ég var á móti því að við gengjum í Evrópusambandið og hef haldið vel utan um allt það sem íslenskt er. Ég ann þessu landi og þessari þjóð. Ég held að ég hefði orðið vitlaus ef ég hefði verið áfram í þinginu, minn tími var kominn að hætta. Líf- ið hefur eins og alltaf leikið við mig eftir að ég hætti í pólitík. Ég á góð- ar minningar og hef bara kynnst góðu fólki. Mér líður vel innan um fólk og er alls staðar vel tekið. Ég er alsæll.“ Verðum að nenna að vinna Jón Gnarr vill ekki lengur vera borgarstjóri, hvað finnst þér um það? „Jón Gnarr kom utan úr geimn- um, eins og furðuvera, og hefur sjálfsagt staðið sig vel á margan hátt. En þeir geta ekki vikið sér undan því, hann og Dagur B. Egg- ertsson, að fjárhagslega hefur borg- in farið illa á kjörtímabilinu. Jón Gnarr ruglaði spilin í pólitík- inni og hefur verið einvaldur þetta kjörtímabil og engin stjórnarand- staða í Reykjavík hefur verið til. Það eru miklir möguleikar eftir að svæði Jóns Gnarr stendur autt – en ekki fyrir sams konar mann og hann því þannig maður finnst aldrei – heldur fyrir alvörufólk sem vinnur ötullega að málefnum Reykjavíkur. Borgin hefur verið á röngu róli und- ir stjórn Jóns Gnarr, eins og í flug- vallarmálinu því flugvöllurinn á að vera í Vatnsmýrinni.“ Nú hrynur fylgið af þínum flokki, Framsóknarflokknum. Hvað seg- irðu um það? „Þetta gerist þegar menn hafa stuttan tíma til að vinna sín krafta- verk. Stóra réttlætismálið er að fella að hluta til niður skuldir heimilanna, eins og Sigmundur og Framsóknar- flokkurinn lofuðu. Það þýðir ekkert hjá íhaldinu að berjast gegn því. Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti í stjórnarsáttmála að þetta væri leið sem ríkisstjórnin myndi fara og ber orðið jafn mikla ábyrgð á því fyrir- heiti og Framsóknarflokkurinn. Lausn á þessum málum þarf að liggja fyrir núna um jólin. Þá hættir Framsóknarflokkurinn að minnka og ætti frekar að stækka. Það er áróður í gangi þar sem fullyrt er að Framsóknarflokkurinn ætli að svíkja þetta kosningaloforð sitt. Ég trúi því ekki. Verði þetta mikilvæga mál að veruleika munum við sjá breytingar varðandi lífsgleði í landinu og um leið bjargast ríkis- stjórnin. Ef þetta klúðrast og verð- ur svikið, sem ég trúi ekki, er ríkis- stjórnin dauð. Þá bjargast hún ekki. Þegar landið fer svo að rísa undir forsæti Sigmundar Davíðs og Bjarna Benediktssonar þá breytist pólitíkin og Alþingi mun vaxa að virðingu og vinsældum. Svo verðum við Íslendingar líka að vekja upp allt það besta sem í okkur býr og nenna Sígildar sögur Guðna  Guðni Ágústsson sendir frá sér nýja bók  Hann útilokar ekki að hann eigi eftir að skrifa skáldsögu » Sjálfur var ég svoheppinn að mennirnir sem settu Ísland á hliðina fundu alltaf fjósalyktina af mér. Þeir vissu að ég væri sveitamaður en það jafn- gildir líka heiðarleika. Þeir kalla það að vera gamaldags. Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver Komdu inn í hlýjuna í súpu dagsins Mundu eftir súpukortinu FR Í súp a d ag sin s Súpukort hægt að fá súpu í brauðkollu eða í skál. Verð kr. 835 Súpu dagsins sérðu á Facebook síðunni okkar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.