Morgunblaðið - 11.11.2013, Page 36

Morgunblaðið - 11.11.2013, Page 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013 AF SÁLINNI Andri Karl andri@mbl.is Tuttugu og fimm ár eru liðinsíðan Sálin hans Jóns mínssté fyrst á svið. Tuttugu og fjögur ár eru liðin síðan pistlahöf- undur eignaðist sína fyrstu hljóð- snældu og söng hátt en kannski ekki svo snjallt og spurði um leið hvar lífið væri sem hann þráði. Það er skemmst frá því að segja að það gerði hann aftur í Eldborgarsal Hörpu á laugardagskvöld, hærra en nokkru sinni fyrr þótt enn megi efast um snilldina. Þarna var um að ræða svo- nefnda viðhafnartónleika Sálar- innar hans Jóns míns sem haldnir voru í tilefni 25 ára afmælis sveit- arinnar. Væntanlega nefndust þeir viðhafnartónleikar vegna þess að sveitin hélt afmælistónleika sína fyrr á þessu ári. Var pistlahöfundi raunar ekki kunnugt um það og hélt sig vera að fara á téða afmæl- istónleika og varð sökum þess fyrir vonbrigðum með að alla veislu vantaði í afmælisveisluna.    En sem viðhafnartónleikarstóðu þeir sannarlega undir nafni og óma lögin svo gott sem öll í höfðinu á sunnudagskvöldi. Eflaust var enginn í Eldborg að fara á sína fyrstu tónleika með sveitinni og ef- laust sagði enginn eftir þá að þetta yrðu þeir síðustu sem þeir færu á með henni. Eins og fagmanna er von og vísa kláruðu meðlimir sveit- arinnar verkefnið með glæsibrag. Raunar voru smávegis vandræði með hljóðið í fyrsta laginu, Á nýjum stað, en það má skrifa á aðra. „Sjóið“ fór rólega af stað með huggulegum lögum á borð við Fannfergi hugans og Þú full- komnar mig og lék þá strengja- kvartett með sveitinni. Afar hug- ljúft en í Eldborg á laugardags- kvöld var biðin eftir meira fjöri orðin dálítið löng. Það var í áttunda lagi, Vængjalaus, sem fjörið byrjaði fyrir alvöru. Þá stóðu áhorfendur upp, sungu með og klöppuðu. Það gerðist svo aftur þegar síðasta lag fyrir hlé var leikið, Krókurinn. Undir áhrifum Sálarinnar Morgunblaðið/Eggert Góður hljómur Öll umgjörð tónleika Sálarinnar hans Jóns míns var hin ágætasta og hentar Eldborgarsalur Hörpu prýðilega fyrir tónleika af þessu tagi. tónleikarnir hafi verið vel heppn- aðir, Sálinni tókst að fylla Eldborg í tvígang þetta kvöld og ekki var að sjá að nokkur teldi sig svikinn. Klárt mál að hún á 25 ár til viðbótar inni. Þá þarf vart að minnast á hversu góður Eldborgarsalurinn er og hentar öllu tónleikahaldi. Í syngjandi sveiflu Stefán Hilmarsson, söngvari hljómsveitarinnar, stóð sig með stakri prýði, eins og svo oft áður. Og reyndar hljómsveitin öll. »Eflaust var enginnað fara á sína fyrstu tónleika með sveitinni og eflaust sagði enginn eftir þá að þetta yrðu þeir síðustu sem þeir færu á með henni. Sumir voru reyndar staðnir upp – og á leið út úr salnum – áður en lag- ið hófst þar sem Stefán sagði það verða það síðasta fyrir hlé.    Dampurinn datt niður eftir aðsveitin hóf leik að nýju eftir hléið og tók nokkur lög til að ná áhorfendum aftur í gang. Nýtt efni sveitarinnar virtist ekki gera mikið fyrir áhorfendur og það var í raun ekki fyrr en undir lok tónleikanna, þegar sveitin renndi í gamla efnið, Hvar er draumurinn? og fleira í þeim dúr, sem áhorfendur tóku við sér. En þá var líka allt keyrt í botn og settist ekki nokkur maður aftur niður. Ekki verður annað sagt en að ÍStóru börnunum, sem LabLoki hefur sett upp í Tjarn-arbíói, er fjallað um líf og leikisvonefndra infantílista sem fá sitt kikk út úr því að leika eða vera börn. Efni á borð við þetta getur ver- ið viðkvæmt umræðuefni í hinum rétthugsandi samtíma en það eru ein- mitt áhugaverðar slóðir fyrir lista- menn. Spurningum sem varpað er fram í Stóru börnunum er prýðilega lýst í leikskránni: „Er ástin einungis einhvers virði ef hún er ókeypis? Missir hún gildi sitt ef borgað er fyrir hana? Hættir hún þá að vera alvöru- ást? Og síðast en ekki síst: Er sá sem selur ástina frjáls í því að falbjóða?“ Höfundur verksins fylgir verkinu einnig úr hlaði í leikskrá og er lýsing hennar og greining alveg prýðileg til hliðsjónar þegar maður veltir efni verksins fyrir sér. Stóru börnin segja í stuttu máli frá fyrirtæki/heimili sem er rekið af mömmu sem Lilja Guðrún Þorvalds- dóttir leikur. Til hennar kemur í upp- hafi miðaldra trésmiður og fyrirtæk- iseigandi sem heitir Kristján, leikinn af Árna Pétri Guðjónssyni. Hann langar stundum til að vera frekar fyr- irferðarmikill þriggja ára strákur sem mamma þarf jafnvel stundum að refsa. Til mömmu venur einnig kom- ur sínar Róbert, sem Stefán Hallur Stefánsson leikur. Hann vill sleppa undan þeim þrýstingi sem hann finn- ur frá starfi sínu, umhverfi og fjöl- skyldu og láta annast sig sem smá- barn. Þegar líður á verkið knýr ung dauðadrukkin kona dyra. Hún heitir Elín, er leikin af Birnu Hafstein. Áð- ur en varir er hún líka komin í barna- hópinn. Eins og bent er á í leikskrá hefur verkið kynferðislegan undirtón. Hann kemur víða fram en missterkt í samskiptum móður og barna í þessari sögu. Sviðsmyndin sýnir heimili mömmu. Lengst til vinstri eru útidyr og hólf fyrir hvert „barn“ þar sem það getur meðal annars skilið eftir farsímann sinn. Fyrir miðju er barnarými sem hægt er að aka risastóru rimlarúmi inn á. Þar er líka hrúgald á gólfi sem Slappað af með snuð og bleiu Tjarnarbíó Stóru börnin bbbbn Eftir Lilju Sigurðardóttur. Leikarar: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Árni Pétur Guð- jónsson, Birna Hafstein og Stefán Hallur Stefánsson. Leikmynd og búningar: Drífa Freyju-Ármannsdóttir og Ari Birgir Ágústsson. Ljósahönnun: Arnar Ingvars- son. Hljóðmynd: Garðar Borgþórsson. Leikstjóri: Rúnar Guðbrandsson. Þriðja sýning í Tjarnarbíói 6. nóvember 2013. SIGURÐUR G. VALGEIRSSON LEIKRIT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.